Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990
21
Kasparov vann g’læsilegan sigur
Skák
Margeir Pétursson
HEIMSMEISTARINN í skák,
Gary Kasparov, vann enn einn
glæsilegan og mikilvægan sig-
ur er hann vann aðra skákina
í heimsmeistaraeinvíginu við
Anatoly Karpov, fyrrum
heimsmeistara. Kasparov hef-
ur þar með tekið forystu í 24
skáka einvíginu, sem hefst í
New York, en seinni hlutinn
verður tefldur í Lyon í Frakkl-
andi. Taflmennska Kasparovs
var óvenjulega glæsileg, auk
þess sem hann tók forystuna
náði hann að greiða Karpov
mjög þungt högg, bæði frá
skákfræðilegum og sálfræði-
Iegum sjónarhóli.
Það var nefnilega í eigin uppá-
haldsafbrigði af spænska Ieikn-
um, sem kennt er við hann sjálf-
an og aðstoðarmann hans Za-
itsev, sem Karpov beið algjört
afhroð. Fyrstu 18 leikirnir voru
tefldir mjög hratt, en þá kom
Kasparov með rólega en sann-
færandi áætlun sem færði honum
greinilega stöðuyfirburði.
Það var ljóst að Karpov yrði
að leggjast í vörn, en í stað þess
að þreyja hægfara stöðubaráttu
fléttaði Kasparov stórglæsilega í
25. leik. Mikil uppskipti fylgdu í
kjölfar hennar og hafði Kasparov
hrók og peð gegn biskup og ridd-
ara. Slíkur liðsmunur ætti að
vera svörtum í hag, en Kasparov
hafði séð að Karpov myndi ekki
ná að skipuleggja vamir sínar í
tíma. Til að geta lagt út í flétt-
una þurfti heimsmeistarinn að
meta mjög nákvæmlega stöðu
sem upp kom sex leikjum síðar.
Útreikningar Kasparovs
reyndust réttir, í mörgum af-
brigðum mátti ekki miklu muna
að Karpov gæti bjargað sér, en
hann fann enga leið til að ná
samvinnu á milli manna sinna.
Úrslitin voru því ráðin og Karpov
gafst upp í 44. leik.
Þrátt fyrir hrósyrði Kasparovs
um taflmennsku tölva er ég
hræddur um að það verði langt
í að þær leiki slíka fléttu eftir
honum. Það þarf reyndar nokkuð
öflugan skákmann til að sjá frá
25. fram í 29. leik og þeir fáu
sem geta reiknað svo langt
myndu líklega telja að fléttan
gengi ekki. Karpov var greinilega
á því og er það vel skiljanlegt.
Það voru ekki mistök hans sem
skópu þetta meistaraverk, heldur
snilld heimsmeistarans.
Karpov er nú strax kominn í
mjög erfiða aðstöðu. Hann er
vinningi undir og heimsmeistar-
inn heldur titlinum á jöfnu.
Karpov þarf því að ná úrslitunum
12-10 út úr þeim skákum sem
eftir eru, en hann hefur enn ekki
náð að sýna nein tilþrif í þá átt.
Eftir þessa skák verður heims-
meistarinn fyrrverandi líklega að
endurskipuleggja byrjanakerfi
sitt með svöctu.
Þriðja skákin verður tefld í
kvöld og hefur þá Karpov hvítt.
2. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 -
Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6
8. c3 - 0-0 9. h3 - Bb7 10. d4
- He8 11. Rbd2 - Bf8 12. a4
— h6 13. Bc2 — exd4 14. cxd4
— Rb4 15. Bbl — bxa4
Hér leiðir 15. — c5 til mun
tvísýnni baráttu, en þannig tefldi
Karpov í 14. og 16. einvígisskák-
unum við Kasparov árið 1986.
Þær skákir vann heimsmeistar-
inn báðar, svo það er engin furða
þótt Karpov vilji breyta til.
16. Hxa4 - a5 17. Ha3 - Ha6
18. Rh2
í þessari stöðu lék Timman
hinum hörmulega leik 18. Rh4?
í fyrstu einvígisskákinni við
Karpov í Kuala Lumpur í vor.
Því svaraði svartur með 18. —
Rxe4! og náði frumkvæðinu.
18. - g6
19. f3!
Hér hefur áður verið leikið 19.
Rg4 — Rxg4 20. Dxg4 eins og
Jóhann Hjartarson gerði í síðustu
einvígisskákinni við Karpov í
fyrra. Ivanchuk lék 19. f4!? gegn
Karpov í Linares í fyrra, en með
peðsfórninni 19. — d5! 20. e5 —
Re4 náði svartur að jafna taflið.
Með sínum rólega leik treystir
Kasparov einfaldlega miðborðið
og undirbýr áframhaldandi liðs-
skipan með Rc4 og Be3. Karpov
finnur enga virka áætlun gegn
þessu.
19. - Dd7 20. Rc4 - Db5 21.
Hc3 - Bc8 22. Be3 - Kh7 23.
Dcl — c6
Það væri auðvelt að gagnrýna
þennan leik, því án hans gengi
ekki fléttan í 25. leik. En þetta
er liður í herfræðilegri uppbygg-
ingu Karpovs og án hans væri
svarta staðan óneitanlega mjög
döpur.
24. Rg4 — Rg8
Þetta undanhald hefur örugg-
lega aðeins átt að verða tíma-
bundið og líklega hefur Karpov
reiknað fram í 29. leik og talið
sig vera að leggja gildru fyrir
Kasparov. En Karpov fær ekki
tíma til að leika 25. — h5:
25. Bxh6!! - Bxh6 26. Rxh6 -
Rxh6 27. Rxd6 — Db6 28. Rxe8
- Dxd4+ 29. Khl - Dd8
Vafalaust hefur Karpov séð
þessa stöðu þegar hann gaf kost
á 25. Bxh6, en ekki metið hana
rétt. Liðsmunur er svarti ekki
óhagstæður, í miðtafli eru tveir
menn reyndar oftast betri en
hrókur og peð. En Kasparov hef-
ur greinilega kafað mjög djúpt í
stöðuna.
30. Hdl - Dxe8 31. Dg5 - Ha7
Svarta liðið vinnur illa saman
og hvítur hefur mjög sterk tök á
stöðunni. Reynandi var 31. —
Rg8, en því svarar hvítur með
32. Dh4+ - Kg7 33. Hd8 - De6
34. f4! — Ha7 35. f5 og svartur
tapar manni, því við 35. — De7
á hvítur hið snotra svar 36. f6+!
Svartur getur ekki hindrað 32.
Hd8, því eftir 31. — Bd7 er 32.
Hc5! mjög öflugt.
32. Hd8 - De6 33. f4! - Ba6
Það er hart að þurfa að eyða
tíma í þennan leik, en á því sézt
hversu framrásin f4-f5 er gífur-
lega sterk, með henni ógnar
hvítur svörtu kóngsstöðunni og
biskupnum á c8 um leið. Hvítur
vinnur því tíma í sóknina. Ef
svartur gæti hér leikið 33. — Hd7
væri hann hólpinn, en því er ekki
að heilsa: 34. f5 — gxf5 35. exf5
- Del+ 36. Kh2 - Hxd8 37. f6+
— Dxbl 38. Dg7 mát! Innskotið
33. — f6 34. Dg3 bjargar heldur
ekki neinu.
34. f5 - De7 35. Dd2 - De5
36. Df2!
Enn einn öflugur leikur og nú
er orðið ljóst að svartur er búinn
að vera. Eftir 36. — He7 getur
hvítur leikið 37. Hc5 — Dc7 38.
fxg6+ - fxg6 39. Df8 - Rf7
og nú eru fallegustu lokin 40.
Hh5+! — gxh5 41. e5+ — Bd3
42. Hxd3 og mát er óumflýjan-
legt.
36. - De7 37. Dd4 - Rg8 38;
e5! — Rd5 39. fxg6+ — fxg6
40. Hxc6! — Dxd8 41. Dxa7+
— Rde7 42. Hxa6 — Ddl+ 43.
Dgl — Dd2 44. Dfl og svartur
gafst upp.
T-line getur enn sem fyrr
fengið aðstöðu hjá okkur
*
— segir Ottar Proppé hjá Hafnar-
fjarðarhöfn
ÞAÐ HAFA öll skipafélög að-
gang að Hafnarfjarðarhöfn,
hvort sem um er að ræða T-line
eða önnur félög,“ sagði Ottar
Proppé forstöðumaður við-
skiptasviðs hjá Hafnarfjarðar-
höfn í samtali við Morgunblaðið
í gær. En eins og kom fram í
frétt Morgunblaðsins í fyrradag
fékk skipaféíagið T-line í sept-
ember sl. í hendur undirritun
frá forráðamönnum Hafnar-
fjarðarhafnar, þar sem staðfest
er að félagið geti fengið aðstöðu
við losun og lestun gáma ásamt
bryggjuplássi og lóð, þar sem
hægt er að geyma gámana.
„Þetta tilboð stendur enn fyrir
T-line og hefur ekkert breyst,“
sagði Óttar Proppé.
Hann sagði ennfremur að um
leið og HafnarfjarðarhÖfn útvegaði
hafnaraðstöðu, þ.e. bryggju og
athafnasvæði til þess að losa og
lesta gámaskip, væru þeir búnir
að tryggja að varningur kæmist í
land eða út í skip. Þyrfti að fara
rrieð þann varning í vörugeymslu,
þyrfti sú geymsla ekki endilega
að vera við bryggjuna, því hægt
væri að aka gámunum á milli
bryggju og vörugeymslu. „Þetta
þekkjum við mjög vel hér í Hafnar-
firði, þar sem Eimskip er með vöru-
afgreiðslu. Stór hluti af þeim gám-
um er landað í Reykjavíkurhöfn.
Þess vegna sjáum við engin tor-
merki á því, að gámum úr T-line
verði landað hér. Við höfum nóg
bryggjupláss til þess og höfum
gefið vilyrði fyrir því að taka á
móti skipunum. Ef mönnum finnst
óhentugt að geyma gámana á
þeirri lóð sem við höfum bént þeim
á, eru líka til vörugeymsluhúsnæði
hér í Hafnarfirði, sem standa laus,“
sagði Óttar Proppé.
Lítil síldveiði
BRÆLA hefur verið á síldar-
miðum og lítil veiði.
Tveir bátar fengu síld í Beru-
fjarðarál aðfaranótt fimmtudags.
Guðmundur Kristinn SU fékk 70
tonn, sem voru söltuð hjá Pól-
arsíld á Fáskrúðsfirði og Hringur
GK veiddi 30 tonn, sem voru fryst
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
Notaleg kvöldstund í Blómasal
★ Nýrsérréttamatseðill
★ Ljúf píanótónlist fimmtudag - sunnudags
★ Koníaksstofan - fyrir eða eftir máltíð
FLUCLEIDIR
iMIPJII íliHPJTniII R|!
MIKLU MEIRA EN GOTT HÓTEL
Opið alla daga
Borðapantanir í síma 22321
’
i
co n uó co Metsölubloð á hvetjum degi!
Þekktir
bissnessmenn
urðu ríkir af
dópsölu.
VSsion 2000
klúður í nafni
Vigdísar
Úr fjársvikum í
dáleiðslufúsk
Friðrik PállÁgústsson
Skrýtlur um
íslenska stjórn-
málamenn,
bæði góðar og
vondar og sum-
ar á mörkum
velsæmis.
Hvergi dýrari
og hvergi fleiri
en á íslandi -
Lýtalækningar
karla og kvenna
GULA PRESSAN
og fullt blað
of slú...