Morgunblaðið - 12.10.1990, Side 24

Morgunblaðið - 12.10.1990, Side 24
24 Otítíl Jiyttol'wo rf'JOAi lUfSOM OfUA.tlt MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 Fjórir foringjar sovésku öryggislögreglunnar; KGB enn sem fyrrum „skelfílegt“ flokksvopn Moskvu. Daily Telegraph. FJÓRIR foringjar hjá sovésku öryggislögreglunni, KGB, birtu opið bréf í dagblaðinu Komso- molskaja Pravda á miðvikudag. Þar staðhæfa þeir að stofnunin sé „enn sem fyrr skelfilegt vopn Reuter Ur Clangor-diskótekinu í Santiago de Compostela sem gjöreyðilagð- ist í sprengingu í fyrrinótt. Spánn: Þrír bíða bana í spreng- ingu í diskóteki í Galisíu Santiago de Compostela, Spáni. Reuter. ÞRÍR menn biðu bana og um 50 slösuðust er sprengja sprakk á diskóteki í borginni Santiago de Compostela í Galisiu á norðvest- urhluta Spánar í fyrrinótt. ingarinnar í diskótekinu og hinna tilræðanna. í höndunum á flokksforystu sov- éska kommúnistaflokksins í bar- áttu hennar við sína eigin þjóð.“ Foringjarnir krefjast þess að KGB verði leyst undan stjórn flokksins. „Við erum sannfærðir um engar jákvæðar breytingar geta orðið í sovésku samfélagi fyrr en róttæk endurskipulagning hefur farið fram á KGB, vegna þess að öryggislögreglan er enn sem fyrr vopnuð sveit á vegum flokksins, eða svo nákvæmara sé að orði kveðið, vopnuð sveit flokksvélarinnar, “ segir í bréfi foringjanna. I bréfinu er mjög tekið í sama streng og hjá Oleg Kalugin, fyrrum hershöfðingja hjá KGB, sem sagði fyrir fjórum mánuðum að sjá þyrfti til þess að KGB yrði ekki lengur flokkstæki eða skipti sér af stjórn- málum. Ásakanir hans um „óþokka- verk“ og fullyrðing hans um að KGB væri með höndina á öllum þáttum sovésks þjóðlífs reittu stjórnendur stofnunarinnar til reiði. Kalugin, sem eitt sinn var háttsett- ur KGB-foringi í Washington, var sviptur öllum heiðurstitlum og eftir- launum. Hann höfðaði mál gegn fyrrverandi yfirmönnum sínum í síðustu viku og er orðinn að eins konar þjóðhetju. Hann var kosinn á þing í septembermánuði. Foringjamir fjórir sem skrifuðu undir opna bréfið í Komsomolskaja Pravda eru í miðju mannvirðinga- stigans hjá KGB. Reuter Melina í borgarstjóraframboð Bæjar- og sveitarstjórnakosningar fara fram í Grikklandi næstkom- andi sunnudag og mun athyglin einkum beinast að kosningum í Aþenu þar sem tveir fyrrum ráðherrar bítast um borgarstjórastólinn; Melina Mercouri fyrrum kvikmyndastjarna og menningarmálaráðherra og Antonis Tritsis, fyrmm tugþrautarhetja og umhverfis- og menntamála- ráðherra í tíð sósíalistastjómarinnar. Þau eru fyrmm flokkssystkin og nýtur Mercouri stuðnings sósíalista og kommúnista en Tritsis hefur söðlað um og er frambjóðandi hægri flokksins Nýja lýðræðisflokksins sem tók við völdum í Grikklandi sl. apríl. Er litið á sveitarstjórnakosn- ingarnar að vissu leyti sem prófstein á vinsældir ríkisstjórnar hægri manna. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur frú Mercouri stuðnings 47% kjósenda en Tritsis 41%. Á myndinni má sjá fullorðna Aþenukonu ganga fram hjá risastórri götuauglýsingu um framboð Mercouri. Diskótekið, er nefnist Clangor, var sneisafullt af fólki er sprengjan sprakk en atburðurinn átti sér stað klukkan 3:30 í fyrrinótt. Að sögn lögreglu leikur grunur á að tvær konur sem fómst í sprengingunni hafi haft því hlutverki að gegna að koma sprengjunni fyrir á bak við hátalara í diskótekinu. Af þeim 50 sem slösuðust vom sjö enn í lífshættu í gær. Sprengjur spmngu á fímm öðrum stöðum í Pontevedra-héraðinu í Galisíu, í banka, kaffihúsi, bílasölu og verksmiðju. Aðskilnaðarsamtök Galisíumanna, Skæraliðaher hinna fijálsu Gaiisíumanna (EGPCG), lýstu ábyrgð á hendur sér á þeim öllum nema sprengingunni í diskó- tekinu. Talsmaður lögreglunnar í Sant- iago de Compostela sagði að ekkert hefði komið fram sem bent gæti ti þess að tengsl væru á milli spreng- Dauðinn bíður mörg þúsund munaðarleysingja í Rúmeníu - segir í skýrslu EB-þingmanna er hvetja bandalagið til að bæta úr neyðinni Strassborg. Reutcr ÞING Evrópubandalagsins (EB) hvatti í gær til þess að þegar í stað yrði skipulögð neyðarhjálp til handa þúsundum munaðar- lausra barna í Rúmeníu. í ályktun þingsins var fram- kvæmdanefnd Evrópubandalags- ins hvött til þess að leggja fram fjármuni til að unnt yrði að koma í veg fyrir meiriháttar harmleik í Rúmeníu. í skýrslu sem nokkrir þingmenn, er nýlega vom á ferð í Rúmeníu, lögðu fram sagði að þúsundir munaðarlausra barna hefðust þar við í heilsupillandi húsnæði og biði þeirra ekkert ann- að en dauðinn ef ekki yrði þegar í stað gripið til viðeigandi aðgerða. Var framkvæmdanefndin hvött til þess að leggja fram fjármuni til að unnt yrði að bæta aðbúnaðinn. Munaðarleysingjahælin væra óupphituð og þrengslin óskapleg. Allt að tíu þúsund börn kynnu að deyja á næstu mánuðum af völdum sjúkdóma, kulda og hungurs. Constantin Parvutoiu, sendi- herra Rúmeníu hjá Evrópubanda- laginu, sagði að neyðaraðstoð vegna munaðarlausra bama í Rúmeníu, sem sögð em vera um 120.000, myndi ekki kosta minna en 20 milljónir Bandaríkjadala (tæplega 1,2 milljarða ÍSK). Níu milljóna dala væri þörf til að bæta húsnæðið en kostnaðurinn við að leggja hitalagnir inn í munaðar- leysingjahælin yrði um sex milljón- ir dala. Við þetta bættist síðan kostnaður vegna matvæla sem nema myndi 4,6 milljónum dala á mánuði. Evrópubandalagið hefur alls veitt Rúmeníu rúmar 15 milljónir dala í aðstoð frá því að einræðis- herranum illræmda Nicolae Ceau- sescu og eiginkonu hans, Elenu, var steypt af stóli í desember í fyrra. George Bush óánægður með fjárlagaumræðuna: Segir þingmenn verða að koma sér að verki Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti segir að vinnubrögð við fjárlaga- gerð á Bandaríkjaþingi séu fáránleg og vísar allri ábyrgð á hendur meirihluta demókrata. „Það sem er að gerast á þingi er óþolandi," sagði forsetinn á styrktarfundi fyrir frambjóðanda repúblikana í . Georgíu-ríki. Forsetinn tók hins vegar ekki af skarið í vangaveltum um það hvort hann myndi sætta sig við hærri tekjuskatt á hátekju- fólk, eitt helsta deiluatriðið í fjárlagaumræðunum. Bush sagði að fjárlagaumrajðan á þingi minnti á risastóra vél sem framleiddi ekkert nema „hávaða, reyk og hita en ekkert ljós.“ Á þriðjudag sagði Bush að hann gæti sætt sig við að hátekjuskattar yrðu hækkaðir gegn því að skattar á fjár- magnstekjur yrðu lækkaðir. Forset- inn hefur lengi barist fyrir því að skattar af síðastnefnda taginu yrðu lækkaðir. Síðar sama dag sögðust þingmenn repúblikana, sem eru andvígir tekjuskattshækkun, hafa talið forsetanum hughvarf á ný. Er gengið var á Bush á fundi í Florída og hann beðinn að gera grein fyrir afstöðu sinni svaraði hann. „Við skulum láta þingið gera upp hug sinn. Við viljum að þingið leggi fram heildarlausn og viljum ekki heita neinu fyrirfram um ákveðna þætti málsins." Óljós afstaða forsetans er sögð hafa valdið miklum erfiðleikum við undibúning fjárlagatillagna á þingi en þar er nú keppst við til að ekki komi á ný til þess að stöðva þurfi ýmiss konar opinbera starfsemi vegna þess að fjárlög hafa ekki verið samþykkt. Slík-stöðvun varð um síðustu helgi er Bush neitaði að undirrita bráðabirgðalög til að hægt yrði að greiða laun en mála- miðlun náðist í bili eða fram til 19. þ.m. Fulltrúadeildin hafði þá fellt tillögur forsetans sem náðst hafði samkomulag um milli stjómvalda og helstu þingleiðtoga. Bush vill að hallinn á fjárlögum verði lækkaður um samanlagt 500 milljarða dollara á fimm ára tímabili. Hann segist munu beita neitunarvaldi gegn bráðabirgðafjárveitingum geti þingmenn ekki komið sér gaman um fjárlög er byggist í megindrátt- um á hugmyndum stjórnarinnar um áðurnefndan niðurskurð hallans. Reuter Hamskipti ítalskra kommúnista Líkt og margir bræðraflokkar sínir hefur ítalski kommúnista- flokkurinn nú fengið nýtt nafn: „Lýðræðisflokkur vinstri manna“.Á myndinni sem tekin var í Rómaborg í gær sýnir formaðurinn, Achille Occhetto, hið nýja merki flokksins; eik með hið gamalkunna tákn kommúnista við rætur sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.