Morgunblaðið - 12.10.1990, Side 46
46
MOK(;UNftIAPH> FfoSTUDAGUR 1% OKTÓRKR 19j)0
mmmn
,, é(j hetc/aá/>á s'ert báihn.A& fcL nóg ! A
ebJei ah bringja. á biL -pyrir- þig ? "
TM Reg. U.S. Pat Off —all rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Nei, þú ert ekki sver, óneit-
anlega feitur ...
HÖGNI HREKKVlSI
Vanhæfni og kunnáttuleysi
Til Velvakanda.
Mánudaginn 8. október var á
dagskrá útvarpsstöðvarinnar
Stjörnunnar þáttur, sem bar heitið
„A bakinu með Bjama“. Stjórnandi
þáttarins, Bjarni Haukur Þórsson,
leiddi þar umræður um það sem
hann kallaði kynþáttamisrétti.
Hlustendum Stjörnunnar var boðið
upp á að hringja inn og_ lýsa yfir
skoðun sinni á því hvort íslending-
ar ættu að leyfa fólki af öðrum lit-
arhætti, trúarbroti eða menningar-
heimi að flytja til landsins og hvort
slíkt gæti haft ófyrirsjáanleg
vandamál í för með sér. Þátturinn
var kynntur sem umræðuþáttur,
þar sem öllum var heimilt að láta
í ljós skoðanir sínar. Stjórnandi
þáttarins tíundaði það í þættinum
að skoðanir hans væru ekki til
umfjöllunar.
Ég vona að þeir, sem láta sig
ábyrga fjölmiðlun varða, láti ekki
framkomu Bjarna Hauks Þórssonar
hjá líða athugasemdalaust. Það
segir sig sjálft að þegar umræðu-
efni sem þetta er annars vegar,
verður stjórnandi að sýna nær-
gætni og varkárni þegar hann
varpar fram sínum spurningum eða
athugasemdum til hlustenda.
Það er skemmst frá því að segja,
að þættinum var stjórnað af stór-
felldri vanhæfni og kunnáttuleysi,
þar sem kynþáttafordómar og hlut-
drægní stjórnanda virtust ráða
ferðinni. Tæpast var hægt að
álykta annað, af máli Bjarna
Hauks, en að hann væri mótfallinn
öllum búferlaflutningum annarra
kynstofna eða þjóðarbrota til lands-
ins. Af orðum hans mátti t.d. ráða,
að múhameðstrúarmenn „væru
hundruðum ára á eftir okkur“ og
stórfelldir kvenhatarar. Hann sagði
að Grænlendingar á öldurhúsum
borgarinnar væru „óþjóðalýður“ og
lét þá skoðun þráfaldlega í ljós að
„þessu fólki“ (þ.e. lituðum eða fólki
framandi trúar) fylgdi ógrynni „fé-
lagslegra vandamála", sem íslend-
ingar gætu ekki tekið á sig. Þetta
eru aðeins nokkur dæmi um orðav-
al hans í þættinum.
Aðfarir hans við stjórnun þáttar-
ins voru slíkar að ómögulegt var
að skilja afstöðu hans á annan veg.
Hann gagnrýndi ekki þá, sem á
einhvern hátt voru sammála honum
en mótmælti og „rökræddi“ með
útúrsnúningum við þá, sem voru
honum ekki sammála. Hugtök eins
og „trúfrelsi“, „lýðræði“ og „vest-
ræn menning" fengu nýja merk-
ingu í meðförum hans, sem ég hef
aldrei heyrt áður.
Raunar væri það of langt mál
að tíunda allt það bull, sem upp
úr Bjarna Hauki vall, en áhugasam-
ir geta snúið sér til Stjörnunnar
og beðið um afrit af þessum merka
þætti. Enda eru umdeilanlegar
skoðanir Bjama Hauks ekki kjami
málsins. Bjami Haukur Þórsson er
ungur og hress piltur, sem hefur
sinn rétt til fijálsrar skoðanamynd-
unar, rétt eins og allir þegnar
landsins. Ef hann vill loka eyrum
og augum fyrir áhrifum framandi
menningarheima (sem hann aug-
Ijóslega skilur ekki), þá er það hon-
um einum viðkomandi. En ef Bjarni
Haukur Þórsson kemur fram sem
dagskrárgerðarmaður Stjörnunnar
í þætti, þar sem frjáls skoðana-
skipti eiga sér stað milli hlustenda,
þá ber honum sem hlutlaus stjórn-
.andi þáttarins, að halda sínum
skoðunum fyrir utan þáttinn. Ef
hann vill flíka sínum fordómum,
þá verður hann að láta öðrum eftir
stjóm þáttarins. Þetta er grundvall-
arregla fjölmiðlunar, sem Bjarni
Haukur virðist ekki þekkja.
Til Velvakanda.
Ágætu bændur. í guðanna bæn-
um finnið aðra lausn á rúllubagga-
notkuninni en að drita þessum
hvítu böggum um allar jarðir. Er
ekki hægt að koma böggunum í
hús eins og heyinu forðum? Eða
að minnsta kosti að fjarlægja það
af túnunum þar sem baggarnir eru
bara látnir liggja þar sem vélin
skildi þá eftir. Þetta er hirðuleysi
og tillitsleysi í hámarki. Menn mega
kalla þetta fallegu nafni eins og
sjónmengun, en þetta er hreint út
sagt algjör hryllingur.
Og fáein orð til seljenda plasts-
ins, hvort sem það er nú framleitt
hér á landi eða innflutt. Er ekki
hægt að framleiða plastið í grænum
l't? Það væri þó skárra að sjá bögg-
unum staflað við hlöðuvegginn til
bráðabirgða ef þeir væru samlitari
umhverfinu. En aðeins meðan verið
er að koma böggunum í hlöðu.
Vonandi hefur honum gengið
það eitt til, í einfeldni sinni, að
skapa „krassandi" og „umdeilt"
útvarpsefni með furðulegri stjórn-
un sinni. Það vekur þó mesta undr-
un mína, að útvarpsstjóri og for-
svarsmenn Stjörnunnar hafi falið
dagskrárgerðarmanni það verk-
efni, að stjóma umræðuþætti um
jafn viðkvæmt mál og kynþáttamis-
rétti er, án þess að tryggja það að
hann væri til þess hæfur. Kannski
höfðu þeir ekki hugmynd um efni
þáttarins. eða tilgang Bjarna
Hauks. Ég vona þó að þeir sjái
sóma sinn í því, sem fagmenn og
merkisberar „fijáls útvarps", að
láta það ekki henda Stjörnuna aft-
ur að verða áróðurstæki óhæfs
dagskrárgerðarmanns.
Hver svo sem ætlun Bjarna
Hauks Þórssonar hefur verið með
þætti sínum „Á bakinu með
Bjarna“, þá tókst honum að sann-
færa mig og vonandi fleiri gagn-
rýna hlustendur Stjörnunnar um
eitt. Að hann hafi ekki nógu breitt
bak til að axla þá ábyrgð, sem
hvílir á herðum stjómanda mál-
efnalegs umræðuþáttar.
Þorsteinn H. Gunnarsson
Þeir eiga hvergi heima utandyra.
Ég skora á bændur og seljendur
plastsins að nota nú veturinn til
að finna aðra lausn á þessu máli.
Forðið okkur frá því að sjá þessa
bagga út um öll tún næsta sumar.
Að nokkrum heilvita manni skuli
detta í hug að skilja þetta bara
eftir á víðavangi og það svo vikum
skiptir. Ekki bara á einu túni eða
í einni sveit, nei, út um allt land,
takk fyrir. Það hljóta að vera tak-
mörk fyrir því hve langt má ganga
í hirðuleysinu. Sjá menn virkilega
ekki fram fyrir nef sitt? Og eru
engar nefndir í sveitarfélögunum
sem eiga að fjalla um mengun af
þessu tagi, umhverfísnefndir, heil-
brigðisnefndir eða hvað þær gætu
nú heitið? Ég ætla bara að vona
að úr þessu verði bætt hið snar-
asta. Burt með rúllubaggana af
túnunum!
Samferðamaður
Hvítir plastbaggar
„ H ANN El? HÉR INNI, AO FÁ SéR 00LLA
Ar riSKi."
Yíkveiji skrifar
Heimsókn Landsbergis forseta
Litháens til Islands hefur
vakið verðskuldaða athygli. Það er
tilbreyting að fá til landsins þjóð-
höfðingja sem hefur boðskap að
flytja. Ávarp Landsbergis til
íslenzku þjóðarinnar er stórmerki-
legt. Ástæða er til að hvetja alla
íslendinga til þess að lesa ávarpið,
en það birtist í heild á miðsíðu
Morgunblaðsins í gær. í ávarpinu
segir Landsbergis að fjölmargar
þjóðir hafí tekið sér stöðu í biðröð-
inni í von um að verða næstfyrstar
að viðurkenna Litháen sem sjálf-
stætt ríki. ísland hefur óumdeilan-
lega verið í forystu á alþjóðavett-
vangi í sjálfstæðisbaráttu Litháa.
íslendingar eiga að taka á sig rögg
og verða fyrstir þjóða til að viður-
kenna sjálfstæðí Litháens. Þannig
myndi ísland veita Litháum ómet-
anlegan styrk um leið ogþað.fengi
sess í heimssögunni.
Islandsmótið í handknattleik er
hafið fyrir nokkru. Leikjum í
1. deild hefur verið fjölgað stórlega
og reynslan verður að skera úr um
hvort þetta nýja iýrirkomulag er til
bóta.
Hinn nýi landsliðsþjálfari, Þor-
bergur Aðalsteinsson, hefur verið
hvetjandi þess að fjölga leikjunum.
Hann segir það nauðsyn ef landslið
íslands á að geta haldið sér í hópi
þeirra beztu. Mikilvæg verkefni
bíða landsliðsins og samið hefur
verið um marga landsleiki fram að
næstu B-heimsmeistarakeppni.
Landsliðsþjálfarinn glímir við sama
vanda og forverar hans, þ.e. að
flestir beztu landsliðsmenn okkar
Ieika í útlöndum. En Víkvetji hefur
tröllatrú á Þorbergi Aðalsteinssyni
og efast ekki um að hann eigi eftir
að koma Islandi í A-heimsmeistara-
keppnina. Þar á ísland heima og
hvergi annars staðar.
xxx
Ríkissjónvarpið hefur verið sein-
heppið með tvær síðustu út-
sendingar frá landsleikjum íslands
í Evrópukeppninni. Ekki náðust
nema síðustu mínúturnar í leiknum
gegn Tékkum og í fyrradag leit út
fyrir að ekkert yrði af útsendingu
frá landsleiknum við Spán vegna
deilna milli sjónvarpsstöðva í Evr-
ópu. Var frá þessu skýrt í fréttum
fram eftir degi. Víkveiji taldi víst
að leikurinn yrði ekki sýndur og
ráðstafaði tíma sínum í annað. Von-
brigðin urðu því mikil þegar hann
frétti seinna um kvöldið að hann
.hefði misst af útsendingunni. Næsti
leikur verður gegn Albaníu næsta
vor og vonandi verður RUV búið
að kippa málunum í liðinn þegar
að honum kemur!