Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 47

Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 47 í»essir hringdu .. . Tannlækningar Borgari hringdi: „I skrifum um tannlækningar í Búlgaríu sem birst hafa að und- anförnu er klifað á því að þar séu tannlæknastofur 10 til 20 árum á eftir því sem hér gerist. Ég skil satt að segja ekki alveg hvað höfundar þessara greina eiga við. Aðstæður á tannlæknastofum hafa ekkert breyst hér á síðustu árum og engar nýjungar komið til og satt að segja gildir það líka þó maður tali um tuttugu ár. Það er kjánalegt að halda allt sé betra nú en fyrir stuttum tíu árum. Ekkert veit ég um tannlækningar í Búlgaríu enda aldrei komið til þess ágæta lands. En hitt veit ég Tannlækningar í Búlgaríu Til Velvakanda. Fyrir stuttu skrifaði Jóhanna Guðmundsdóttir í Velvakanda um hrakfarir sínar hjá tannlækni í Búlgaríu. Af því tilefni langar mig að leggja tva-r spurningar fyrir Jóhönnu. 1) Hve langur tími leið frá því að hún fékk brúna sína þangað til hún fékk tannrótarbólgu? 2) Hvar í Búlgaríu fékk hún sína brú? Ég er mjög forvitin vegna Jh*ss að ég var í Búlgaríu í byijun sept- ember, á stað sem heitir Eleníte, og fékk brýr á aðeins 19 þúsund krónur eða 33 dollara stykkið. Eg er sammála þér, Jóhanna, að tann- lu'knastofan var 10 til 20 árum á eftir þvf sem við erum vön í snyrti- mennsku og útliti. Minn tannlæknir hendurnar og notaði hrein áhöld. Við höfðum indælan túlk sem heitir Ægir. Hann aðstoðaði okkur öll eins og þörf var á. Þeir sem þurftu að láta taka úr sér tennur voru deyfðir en við hinir sem ætluðum að fá brýr fengum frekar ruddalega meðferð. Hjá okkur var jaxlinn hreinsaður, þ.e. allt silfur í burt, þar sem brúin átti að fara yfir. Þetta þýddi kul í 3 til 4 daga þar lil brýrnar voru tilbúnar. Jóhanna, mér þykir leiðinlegt að heyra hvernig fór fyrir brúnni þinni. Er það örugglega tannlækninum í Búlgaríu að kenna? Við vitutn báðar að tannlæknar á íslandi eru mis- jafnir og þannig er það einnig með tannlækna f öðrum töndum. Einn Íslendingurinn hjá okkur var alltaf sem var rótfyllt á íslandi). Þegar okkar tannlæknir úti fór að athuga málið kom f Ijós úldin bómull í tönn- inni. Læknirinn reyndi að bjarga tönninni en það tókst ekki. Verkur- inn vildi ekki fara svo að endalokin voru þau að tönnina varð að fjar- lægja. Okkar lækni fannst við öll hafa alltof gamlar fyllingar. Skýringin er auðvitað sú að tannviðgerðir eru alltof dýrar á íslandi. Eitt var ég1 ekki ánægð með f Búlgaríu. Tann- la*knirinn tók engar röntgenmynd- ir. Tannskemmd getur leynst í tönn- inni, sem brúin ódýra er látin yfir, og fer hún þá fyrir Iftið. Jóhanna, ég vona aö þú sjáir þér fa*rt að fra*ða mig og fieiri, sem völdum |H‘Ssa leið. að tannlækningar eru alltof dýrar hér á íslandi, svo dýrar að lág- launafólk hefur alls ekki efni á þeim.“ Næla Silfumæla, smíðuð hjá Jens, tapaðist fyrir nokkru, sennilega á Laugarvegi. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 676901. Ulpa Ljósbrún úlpa með tveimur hettum tapaðist á Hótel Borg 29. október. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 33161. Viðkvæmar félagsverur Til Velvakanda. Eg er gamall skáti og eins og máltækið segir: Eitt sinn skáti ávallt skáti. En ég er líka hundaeig- andi og dýravinur og þessvegna finn ég mig knúða til þess að láta frá mér heyra. Hingað til hef ég notað hvert það tækifæri sem gefist hefur til þess að styrkja skátahreyfinguna og þá bæði í orði og verki. En nú bregður svo við að ég get með engu móti gert það. Sú hugmynd þeirra að vera með lifandi dýr, þ.e. hunda sem happdrættisvinninga, brýtur svo í bága við siðferðiskennd mína sem manneskju, dýravinar og síðast en ekki síst gamals skáta. Því skáti er dýravinur — það er eitt af því sem Baden-Powell, stofnandi skáta- hreyfingarinnar, kenndi og hafði í hugmyndafræði sinni þegar hann mótaði starfsemi hreyfingarinnar. Eg efast ekki um að þessi ákvörð- un, að hafa hunda í happdrættis- vinninga, er tekin í mikilli fljót- fæmi og af vanhugsuðu máli og væru skátarnir meiri menn ef þeir tækju þessa hvolpa af vinninga- skránni. I stað þess læði ég að þeim þeirri hugmynd að þeir fái Hjálpar- sveit skáta í lið með sér og hafi helgarferð með hjálparsveitinni upp á Langjökul í staðinn. Það væri frumlegur og spennandi vinningur því fáir hafa tækifæri til að veita sér slíka upplifun. Og kostnaður fyrir skátana væri sennilega minni. Hvað hundana varðar eru þeir viðkvæmar félagsverur og mjög vandmeðfarnir. Þessir yndislegu vinir okkar eiga svo sannarlega betra skilið en að vera happdrættis- vinningur sem getur lent hjá hveij- um sem er. Því hvernig ætla skátar að geta stjómað því hvar þeir lenda og hvernig eigendur þeir fá ef vinn- ingshafi vill taka við þeim en velur ekki vöruúttektina? Unglingar og áfengi Að vera hundaeigandi er ábyrgð- arfullt og vandasamt starf og sést það best á eiganda þessarar tíkur, móður væntanlegra happdrættis- hvolpa, sem er annað hvort nýgotin eða rétt ógotin að það er ekki á hvers manns færi. Mér þykir það miður en ég verð að sleppa því að styrkja skátana í þetta sinn — nema að þeir sjái að sér og taki hvolpana af vinninga- skránni. Og ég er sannfærð um að þá muni fleiri en ég endurskoða hug sinn og kaupa miða. Solveig Til Velvakanda. Gera unglingar sér almennt grein fyrir því hvað áfengi getur verið hættulegt? Og hvar er fræðslan sem ætti að vera til staðar? Nóg er af fræðsluefni í sjónvarpi en kannski ekki það rétta fyrir unglinga. Á vissum aldri em þau mótanleg og þann tíma ætti að nota til hins ýtr- asta. Ég tel brýnt að einhver taki af skarið og leiði þau í allan sann- leikann um áfengi og önnur vímu- efni. Unglingar eru framtíð lands og þjóðar. Ég segi ekki að allir ungl- ingar kunni ekki að nota áfengi rétt. En þau eru heldur of ung þeg- ar þau byija að nota það. Það sem fékk mig til að skrifa þessar línur var það sem hent frænda minn á unglingsaldri, hann var fiuttur ofur- ölvi á gjörgæslu. Púlsinn var vart merkjanlegur og varir og hendur Urval af vinsælu barnaskón- um frá portúgalska fyrirtækinu JIP komnir aftur Henta vel fyrir íslenska barnafætur, enda mælum við með þeim heilshugar. Skórnir, sem myndin er af, fást í hvítu, dökk bláu, bleiku, rauðu og brúnu. St. 18-24. Póstsendum. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Kringlunni, sími 689212 Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 TOPF ®*5SKÚR BÍN VELTUSUNDI 1 21212 KVENKULDASTIGVEL úrleðri með rennilás Litur: Svartur 5% staðgreiðsluafsláttur Verð 3.995,- Póstsendum samdægurs TOPP Kringlunni, sími689212 Oomus Medica S. 18519. ---ŒORINN VELTUSUNDI 1 21212 orðnar helbláar. Þetta skeði eftir skóladag. Hann væri ekki á lífi í dag nema fyrir tilstuðlan skóla- hjúkrunarkonu í viðkomandi skóla. Vií ég þakka henni fyrir allt sem hún gerði til þess að aðstoða hann. Kæru foreldrar. Leiðið börn ykk- ar í allan sannleikann um Bakkus og hversu hættulegur hann getur verið. Þau hafa nægan tíma til þess að komast í kynni við hann. Flestir foreldrar hafa eflaust gert það sama og unglingarnir í dag; prufa og fikta. Slökkvið þið nú á sjónvarpinu og setjist niður með börnunum ykkar eina kvöldstund. Þau eiga það inni hjá ykkur. Og lítið í eigin barm áður en þið dæmið þau. Við vorum nú einu sinni unglingar sjálf. Krakkar: Bakkus er böl. 3693-8544 Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur frá kl. 10-12. Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum ogábendingum. Allir borgarbúar veikomnir. Laugardaginn 13. október verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar, í borgarráði, hafnarnefnd, stjórn sjúkrastofnana, stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins og bygginganefnd aldraðra, og Hulda Valtýsdóttir, formaður menningarmálanefndar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.