Morgunblaðið - 12.10.1990, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 12.10.1990, Qupperneq 49
ocei HaaoT>i(7 sifauDMoa^ffiJlil il3W™“ (iuj/ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 KNATTSPYRNA Cruyff „njósnaði um Fram- arana Johann Cruyff, þjálfari Barc- elona, sem mætir Fram í Evrópukeppni bikarhafa, og að- stoðarmaður hans Tony Bruins Slot, fóru sér- FráAtla staka ferð til Hilmarssyni Cádiz og Sevilla áSpáni til að „njósna“ um leikmenn Fram, sem léku með 21 árs liði íslands og a-landsliðinu. Þeir félagar sáu þrjá Framara leika með 21 árs landsliðinu - Steinar Guðgeirsson, Anton Björn Markússon og Ríkharð Daðason og tveir léku með landsliðinu í Sevilla, Kristján Jónsson og Pétur Ormslev, sem kom inná sem varamaður. „Það er lítið hægt að leggja mat á Framliðið með því að sjá leik- menn þess leika með landsliðun- um, en aftur á móti var gott að sjá þá leikmenn sem koma til með að leika gegn okkur - kynnast hreýfingum þeirra á veilinum,“ sagði Cruyff. Mm FOLX ■ GUÐMUNDUR Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Blaksambands íslands. Hann tekur við starfmu af Þor- varði Sigfússyni. ■ HIBS í Skotlandi keypti í gær skoska landsliðsmanninn Murdo MacLeod frá Dortmund í V- Þýskalandi á 350 þús. sterlings- pund. ■ LAURENT Jaccard, fyrrum landsliðsmaður Svisslendinga í knattspyrnu, fékk í gær fjögurra ára fangelsisdóm vegna þátttöku í hátt í fimmtíu ránum sem voru framin til að fjármagna eiturlyfja- kaup. Jaccard, sem lék með Neuc- hatel, er 29 ára. Hann varð að leggja knattspyrnuskóna á hilluna fyrir fjórum árum vegna meiðsla. ■ FRAMARAR fá senda mynd- bandsspólu frá Spáni, sem hefur að geyma leik Barcelona og Bilbao um sl. helgi, sem Barcelona vann, 4:0. ■ MIKIÐ hefur verið skrifað um Fram í blöðum á Spáni að undan- förnu og í_ gær var opnugrein um Fram og ísland í stærsta blaðinu í Barcelona. ■ SAGT var sérstaklega frá glæsilegnm árangri Asgeirs Elías- sonar með Framliðið og knatt- spyrnuferill hans rakinn. Sagt er frá því að hann hafi leikið með Fram gegn Real Madrid 1974. Þorgrímur Þráinsson í leik gegn Frökkum á Laugardalsvellinum. Hann hefur gætur á Cantona, leikmanninum sókndjarfa hjá Marseille. Þorgrímur Þráinsson ætlar að taka sér árs frí: Ætlar í brúðkaups- terd til Indlands „ÉG ákvað það í vor að taka mér alfarið frí frá knattspyrn- unni næsta sumar. Það er ág- ætt að hætta núna eftir gott tímabil," sagði Þorgrímur Þrá- insson, hægri bakvörður lands- liðsins og fyrirliði bikarmeist- ara Vals, eftir leikinn í Sevilla. Þorgrímur sgaðist ætla að taka sér frí í eitt ár og svo væri aldrei að vita nema að hann tæki fram skóna á ný. „Ég er búinn að vera í þessu á fullu í fimmtán ár, þijú ár með Víkingi 01- afsvík og tólf ár með Val. Þó ég hafi ofsa- lega gaman af knattspyrnu þá verð- ur ákvörðun minni ekki haggað. Það er ágætt að skilja við Valsliðið núna og ég veit að það kemur maður í mann stað. Það ec ekki þar með sagt að ég sé alveg hættur í íþróttum - það Valur Jónatansson skrifar frá Spáni get ég aldrei. Nú fer maður í líkams- ræktina og spjótkastið og eitthvað fleira skemmtilegt," sagði Þorgrím- ur. Þorgrímur gifti sig í sumar og ætlar að fara í brúðkaupsferð til Indlands á næsta ári. „Það verða viðbrigði fyrir mig að eiga frí frá knattspyrnunni um hveija helgi næsta sumar.“ „Vona að Þorgrímur leiki með okkur áfram“ orgrímur Þráinsson er góður félagsmaður. Ég vona að hann endur- mÞ skoði ákvörðun sína og haldi áfram að leika með okkur,“ sagði Helgi R. Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Vals, þegar hann var spurður um ákvöðun Þorgríms að leggja skóna á hilluna. Helgi sagði að viðræður stæðu yfir við Inga Björn Albertsson um að hann verði áfram þjálfari Vals. „Ég sé ekki annað en svo verði.“ Gunnlaugur Einarsson, leikmaður 21 árs landsliðsins, sem lék með Grindavík í sumar, hefur ákveðið að ganga aftur til liðs við Val og einnig Jón Helgi Sigurðsson, sem lék með Leiftri. Valsmenn vona einn- ig að Jón Grétar Jónsson, sem hefur leikið með KA tvö sl. keppnistíma- bil, komi á ný til Vals. Færeyingar fjölmenntu til Kaupmannahafnar GÍFURLEGT knattspyrnuæði braust út í Færeyjum eftir hinn frækilega sigur, 1:0, Færeyinga yfir Austurríkismönnum í Evr- ópukeppni landsliða. Þegar Færeyingar léku gegn Dönum í Kaupmannahöfn Alls voru 6600 Færeyingar á meðal áhorfenda. Um 1600 Færeyingar flugu og fóru með Smyrli til Danmerkur, en um 5000 Færeyingar sem eru búsettir í Dan- mörku voru á leiknum. Ferðaskrifstofa Færeyjar sá um skipulagðar flugferðir frá Þórshöfn til Kaupmannahafnar með Atlantic Airways og má segja að loftbrú hafi myndast milli Færeyjar og Danmörku. Reiknað er með að Færeyingar hafi borgað rúmlega 60 millj. ísl. kr. í ferðakostnað og uppihald í Kaupmannahöfn. Þess má til gamans geta að rúmlega tvö prósent Færeyinga búsettum á eyj- unum, hafi farið til Kaupmanna- hafnar til að sjá leikinn. Færeyingar töpuðu, 1:4, og voru þeir ánægðir með leik sinna manna. „Að leika gegn Dönum var eins og að glíma við stóra bróðir," sagði Joanne Jakobsen, leikmaður Færey- inga. „Þetta voru ekki slæm úrslit fyrir okkur. Grikkir töpuðu hér, 1:7, og Svíar máttu þola skell, 0:6, fyrir stuttu. Þrátt fyrir þetta tap er ég stoltur af frammistöðu minna manna. Við náðum að bijóta niður sóknarleik danska liðsins og þá sköpuðum við okkur mörg góð marktækifæri," sagði Páll Guð- laugsson, þjálfari landsliðs Færey- inga. GOLF / LEK Bændaglíma Bændaglíma Landssambands eldri kylfinga verður haldin á golfvellinum á Hellu á laugardag- inn. Ræst verður út frá kl. 10-12. LEK er eitt fjölmennasta íþrótta- samband aldraðra og þar eru allir gjaldgengir sem orðnir eru 55 ára. Stefnt er að því að sem flestir kylf- ingar af öllu landinu mæti til Bændaglímu, það eykur kynni manna á milli og eflir samstöðuna. Bændur verða: Guðmundur Ófeigsson, GR, og Gísli Halldórs- son, Nes. Mótstjóri er Eyjólfur Bjarnason. ■Fjórða og síðasta Aloha-styrktar- mót GK verður haldið á laugardag- inn. Ræst verður út frá kl. 9. Skrán- ing í síma 53360. Þetta er síðasta opna mót sumarsins. Sigtryggur. Halldór. Ufðm FOLK- ■ HALLDÓR Ingólfsson, örv- henta skyttan í liði Gróttu, er einn- ig illa fjarri góðu gamni og munar um minna. Halldór er handarbrot- inn. ■ SIGTRYGGUR Albertsson, einn efnilegasti markvörður lands- ins, leikur ekki með Gróttu um þessar mundir. Hann er á sjó. KARFA LétthjáKR ÆT Islandsmeistarar KR áttu ekki í vandræðum með ÍR-inga í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í gær- kvöldi - lokatölur urðu, 80:67, eft- ir að staðan hafði verið, 45:23, í leikhléi. KR-ingar notuðu ekki sína sterkustu menn stóran hluta leiks- ins. Um 30 áhorfendur sáu leikinn, sem fór fram í Laugardalshöllinni. í kvöld Handknattleikur: Þrir leikir verða leiknir í handknattleik í kvöld. ÍBV fær Val í heimsókn í 1. deild karla. Selfoss leikur gegn iBV í 1. deild kvenna og Grótta b - HK leika í bikarkeppni karla. Leikimir hetjast kl. 20. Deildarbikarkeppnin Dregið var í ensku deildarbikarkeppninni í knattspyrnu, en ekki bikarkeppninni, eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Beðist er velvirð- ingar á mistökunuin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.