Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
235. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóadeilan:
„Niimberg-réttar-
höld“ yfir Saddam?
Nikosíu. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti varaði í gær Saddam Hussein íraks-
forseta og hershöfðingja hans við stríði og sagði að þeir ættu yfir
höfði sér réttarhöld vegna grimmdarverka sem framin hefðu verið
í Kúvæt.
„Munið að þegar stríði Hitlers
lauk hófust Nurnberg-réttarhöld-
in,“ sagði Bush og vísaði til réttar-
haldanna yfir þýskum stríðsglæpa-
mönnum eftir heimsstyijöldina
síðari. Nokkrir þeirra voru hengdir.
Stjórnvöld í Bagdad sögðust ekki
Nýstárleg
ágræðsla
París. Daily Telegraph.
FRANSKIR skurðlæknar
hafa beitt þeirri nýstárlegu
aðferð að græða fót sjúklings
við hönd hans til að þeir gætu
gert að sködduðum fótlegg
hans. Eftir sjö mánaða aðgerð
saumuðu þeir síðan fótinn við
fótlegginn.
Læknarnir sögðu að þetta
væri í fyrsta sinn sem þessari
aðferð væri beitt og að sjúkling-
urinn gæti gengið eðlilega á ný
eftir ár.
Sjúklingurinn hafði dottið af
brautarpalli í neðanjarðarstöð í
París og orðið fyrir lest með
þeim afleiðingum að hann missti
fótinn. Læknarnir töldu að fót-
leggurinn hefði skaddast of mik-
ið til að hægt væri að græða
fótinn við hann þegar í stað.
Þeir ákváðu þess vegna að
græða hann við úlnliðinn. Þeir
tengdu fótinn ,við blóðrás hand-
arinnar og bættu skinni við hann
til að koma í veg fyrir vefjaþorn-
un. Þannig gafst þeim tími til
að gera að fótleggnum og
stækka hann um 15 sentimetra
til að hægt yrði að sauma fótinn
við hann.
hræðast hótanir Bandaríkjaforseta
og sögðu að írakar færu ekki úr
Kúvæt þótt það kynni að kosta
langvarandi styijöld.
Bandarískir embættismenn
sögðu að stjórn Bush væri, í sam-
ráði við bandamenn sína í Persa-
flóadeilunni, að búa sig undir að
leggja fram tillögu um nýja ályktun
fyrir Sameinuðu þjóðirnar þar sem
grimmdarverk íraka í Kúvæt eru
fordæmd og krafist er stríðsskaða-
bóta.
Jevgeníj Prímakov, sendimaður
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta,
kom í gær til Rómaborgar til að
ræða við Giuliano Andreotti, for-
sætisráðherra Ítalíu, um Persaflóa-
deiluna. Hann sagði að sovésk
stjórnvöld væru vongóð um að unnt
yrði að leysa deiluna með friðsam-
legum hætti. Hann bætti við að
„mögulegt og nauðsynlegt" væri
að írakar færu úr Kúvæt. Prímakov
fer einnig til Frakklands og Banda-
ríkjanna til að ræða við þarlenda
ráðamenn en áður hafði hann rætt
við Saddam Hussein.
Reuter
Friðarverðlaunum Gorbatsjovs mótmælt íMoskvu
Sovésk kona heldur á mótmælaspjöldum við múra Kremlar í gær. Á einu þeirra er mynd af syni hennar sem
féll í Armeníu árið 1970. Á spjöldunum stendur: „Við getum ekki þagað öllu lengur" og „Éinn fær friðar-
verðlaun, annar líkkistu á friðartímum“.
Jeltsín hafnar áætlun Gorb-
atsjovs um markaðsbúskap
Segir að Rússar kunni að hafna samvinnu við Sovétstjórnina og stofna eigin her
Moskvu. Reuter, Daily Telegraph.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti
Sovétrílyanna, kynnti í gær nýja
áætlun um efnahagslegar umbæt-
ur, þar sem stefnt er að því að I Áætlunin verður lögð fyrir þing
innleiða markaðsbúskap í Sov- landsins, Æðsta ráðið, á fimmtu-
étríkjunum innan tveggja ára. I dag eða föstudag. Borís Jeltsín,
Verst er þessi endalausa óvissa
og þetta stöðuga aðgerðarleysi
- segir þýskur gísl Saddams Husseins íraksforseta í samtali við Morgunblaðið
Bagdad. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, bladainanni Morgunblaðsins.
„ÞAÐ VÆRI ekki sannleikanum samkvæmt að segja að illa sé far-
ið með mig. En þessi endalausa óvissa um hvar maðurinn minn er
og stöðugt aðgerðarleysi er að gera mig ruglaða," sagði þýsk kona
í samtali við Morgunblaðið, en hún og eiginmaður hennar eru í
hópi þeirra fjölmörgu útlendinga sem stjónvöld í írak halda í
gíslingu þótt viðbáran sé jafnan sú að þeir séu „gestir" Saddams
Husseins íraksforseta.
Konan bað þess lengstra orða
að nafn hennar yrði ekki birt og
hið sama gerði breskur hagfræð-
ingur sem hefur unnið í Kúvæt í
þrjú ár. Hann var fluttur til
Bagdad, höfuðborgar íraks, fyrir
þremur vikum, kona hans er farin
úr landi og hann sagði að sér hefði
verið sagt að hann yrði síðar færð-
ur á „hernaðarlega mikilvægan
stað“, en hann vissi ekki hvenær.
Líkt og fram hefur komið í fréttum
hafa írösk stjórnvöld sagt að er-
lendir karlmenn, sem haldið er í
gíslingu verði fluttir á þá staði sem
taldir eru líkleg'skotmörk í hugs-
anlegum ófriði og segja írakar að
með þessu móti geti „gestir" Sadd-
ams forseta tryggt friðinn.
Þeir gíslanna sem ekki hafa
verið fluttir til hugsanlegra skot-
marka dveljast á hótelum í
Bagdad. Þeir hafa mjög takmarkað
frelsi til að fara út og reynt er að
fylgjast með því að þeir hafi ekki
samband við erlenda blaðamenn.
Oft tekst það þó á einn eða annan
máta og blaðamennirnir taka bréf
frá þeim til ættingja í Evrópu eða
Bandaríkjunum.
Þýska konan kvaðst hafa sent
bréf með hollenskum blaðamönn-
um nokkrum dögum áður, en hún
hefði aðeins viljað láta vita af sér
og gætt þess að segja ekkert sem
hefði komið viðkomandi blaða-
mönnum í koll ef bréfið hefði fund-
ist í fórum þeirra'.
Hún sagði það vera mjög sér-
kennilega reynslu að lifa í raun
algeru lúxuslífi en geta ekki farið
fijáls ferða sinna. Henni væri sýnd
fyllsta kurteisi og starfsmenn
þýska sendiráðsins fengju að hafa
tal af henni í viku hverri í viður-
vist fulltrúa iraska upplýsinga-
máiaráðuneytisins. „Mér líður bet-
ur á eftir þó við getum svo sem
lítið talað,“ sagði hún og var
hálfklökk í rómnum. „Veistu, hér
áður fómm við maðurinn minn
alltaf til Spánar í þijár vikur á
hveiju sumri, sleiktum sólina og
slöppuðum af. Það sérkennílega
er að það er einmitt þetta sem ég
er að gera núna. Munurinn er sá
að ég get ekki farið þegar ég vil
og ég er hrædd um manninn minn.
Munað á borð við þennan vonast
ég til að þurfa ekki að upplifa lengi
enn og aldrei oftar.“
Sjá frétt á bls. 20.
forseti Rússlands, stærsta lýð-
veldis Sovétríkjanna, sagði að
áætlun Gorbatsjovs væri dæmd til
að mistakast. Rússar gætu þurft
að bregðast við henni með því að
stofna eigin her og hafna allri
samvinnu við sovésk stjórnvöld.
í áætlun Gorbatsjovs er gert ráð
fyrir að komið verði á markaðskerfi
í fjórum áföngum innan eins og
hálfs árs til tveggja ára. Stefnt er
að hraðri og viðamikilli einkavæð-
ingu og „hámarks frelsi í efna-
hagslífinu". Þá boðar forsetinn að
einokun ríkisfyrirtækja verði afnum-
in og einkaeign lögleidd.
„Ástandið er orðið svo alvariegt
að nauðsynlegt er að grípa tafar-
laust til aðgerða,“ segir í formála
áætlunarinnar, sem virðist samsuða
úr róttækum tillögum hagfræðings-
ins Stanislavs Sjatalíns og hófsam-
ari tillögum Níkolajs Ryzhkovs for-
sætisráðherra. Æðsta ráðið hafnaði
báðum tillögunum og fól Gorbatsjov
að leggja fram nýja áætlun.
Jeltsín sagði að áætlunin væri til-
raun til að „varðveita gamla skrif-
ræðið“. Hann sagði það út í hött að
ætla sér að blanda saman tillögum
Sjatalíns og Ryzhkovs og líkti því
við að para saman snák og brodd-
gölt. Rússar kynnu að koma eigin
efnahagsáætlun í framkvæmd 1.
nóvember, innleiða markaðsbúskap
á 500 dögum og stofna eigin her.