Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
33
Slátrun lokið á Húsavík:
Slátursala meiri en áður
Morgunblaðið/Silli
F.v. Finnur Kristjánsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, Þorgeir Hlöð-
versson, sláturhússtjóri, Þormóður Asvaldsson, verkstjóri og Hreiðar
Karlsson, kaupfélagsstjóri.
Húsavík.
í SLÁTURHÚSI Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík lauk
slátrun síðastliðinn fimmtudag
og hafði þá verið slátrað í því
húsi í 20 haust og nú rúmlega
42 þúsund fjár og meðalþungi
dilka reyndist rúm 15 kg.
Fyrir 50 árum varð mikil breyt-
ing á slátrun sauðfjár á Húsavík,
því um það leyti breyttist útflutn-
ingsmarkaðurinn mjög og farið var
að flytja út fryst kjöt en áður var
ríkjandi saltkjötsmarkaður í Noregi
og um það leyti opnaðist freðkjöt-
markaður í Englandi og var hann
mikill og góður um langan tíma.
Þá varð einnig mikil breyting á
sláturhúsamálum því þá komu
frystihúsin í stað saltkjötstunnanna
og byggði KÞ þá slátur- og fiysti-
hús, sem tekið var til notkunar
1931 og var þá eitt af beztu húsum
landsins og hefur KÞ ávallt verið í
fremstu röð með verkun á kjöti og
kjötafurðum. Fyrir rúmum 20 árum
var eldra slátur- og frystihúsið orð-
ið of lítið og sérstaklega vantaði
frystigeymslur. Þá var hafist handa
um byggingu nýs húss, sem þá var1
að nýjustu kröfum tímans og lauk
nú í því 20. sláturtíðinni. Síðan
hefur verið fylgst með öllum nýj-
ungum og húsið endurbætt, svo það
hefur um árabil verið í röð þriggja
besþu sláturhúsa á landinu.
Á þessu hausti hófst svokölluð
grófstykkjun kjöts og það flokkað.
Þetta gerir kjötið aðgengilegra í
sölu, auk þess, sem það sparar
nokkuð í rekstri, það frýs fyrr og
sparar því rafmagn, tekur minna
geymslurými, sparar umbúðir, því
það er selt í stærri einingum.
Að sögn sláturhússtjórans, Þor-
geirs Hlöðverssonar, gekk slátrun
vel í haust og var slátursala mikil,
meiri en hún hefur áður verið. Nú
er farið að undirbúa reykingu á
Húsavíkurhangikjötinu frá KÞ sem
hefur rutt sér mjög rúms á jóla-
markaðnum á höfuðborgarsvæðinu.
- Fréttaritari.
3M
rWiiuiwiiiiiiinMu
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SlMI 687222 -TELEFAX 687295
Rykgrímur fyrir allar
aðstæður
Dagsbrún vill
endurskoð-
un á gjald-
þrotalögum
STJÓRN og trúnaðarráð Dags-
brúnar gerði nýlega eftirfarandi
ályktun:
„Viðgengist hefur árum saman
að ýmsir aðilar í þjóðfélaginu leiki
sér að því að velta skuldbindingum
sínum yfir á almenning með því að
gera fyrirtæki sín gjaldþrota. Ríkis-
ábyrgð tekur þá við launaskuldum
fyrirtækisins.
Síðan stofna sömu aðilar annað
fyrirtæki undir öðru nafni og halda
jafnvel áfram að stofna fleiri fyrir-
tæki, allt í skjóli hlutafélagaforms-
ins. Engin haldgóð ákvæði virðast
vera í lögum sem hindra þetta
svívirðilega brask, sem að verulegu
leyti fer fram á kostnað ríkisins,
almennings, starfsmanna og við-
skiptamanna þessara svikafyrir-
tækja.
Dagsbrún skorar á Alþingi að
setja lög sem komi í veg fyrir að
framhald verði á þessum gjörning-
um.“
■ ZEN-HÓPURINN mun standa
fyrir námskeiði í hugleiðslu.
Áhersla verður lögð á hugleiðslu í
hóp. Zen-hópurinn hefur verið
starfræktur í 5 ár hér á landi og
hefur haldið námskeið og kynning-
arfundi. Kennari hópsins, Jakusho
Kwong, hefur heimsótt Zen-iðk-
endur á íslandi árlega, einnig hafa
einstakiingar úr hópnum dvalið á
aðsetri hans í Sonoma í Kali-
forníu. Námskeiðið hefst þriðju-
daginn 23. október kl. 20.30. Leið-
beinandi verður Vésteinn Lúðvíks-
son. Námskeiðið verður þtjú þriðju-
dagskvöld í röð en þátttakendur
geta síðan stundað hugleiðslu með
hópnum og fengið áframhaldandi
leiðbeiningar. (Frcttatilkynning)
mýTT SlMANlÚNAER
PRENTMYNDAGERÐAR'.
i^YMDAMOT)
6SM39
ftÚMFAT*- .
MARGT A tZ If/ffipi
<WNV£L
muxúM, öoÉz
IÓK mSSfFB/ -----.
\FURU S7P. 70*J90ctt ~~-1
MAVen/þ 'S
AKi
mRtaem úf t
MAWPRi
sreRKieG
Rúm
.# __o
KA55ARÚM
ÚR, . .
MA55/PR/
fURU
ÚR
m&pRi
PURU
r*—
•l',
MAHútt
GERÐIR
mm mm
SPftT/óPiWW (Sggs&
oGr ■'
13900
, Auöbrekku2, Skeifunni 1
Akureyri Kopavogi Reyk|avik