Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1990
15
Uppsagnarbréf sem aldrei hefur verið skrifað
eftir Svavar Gestsson
Ragnar Björnsson tónskáld fjall-
ar um fyrstu tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á nýju starfs-
ári í Morgunblaðinu 13. október sl.
og nefnir jafnframt að framkvæmd-
astjóri hljómsveitarinnar hafi ekki
verið viðstaddur til að taka á móti
gestum. Ragnar telur ástæðu fyrir
ijarveru þessari geta hafa verið
nýmóttekið uppsagnarbréf frá
menntamálaráðherra.
Hér er um einhvern misskilning
að ræða af hálfu Ragnars, því slíkt
bréf hefur aldrei verið skrifað.
Skv; lögum um Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands nr. 36/1982, 4. gr.,
er stjórnin skipuð fimm mönnum,
einum tilnefndum af Reykjavíkur-
borg, einum tilnefndum af starfs-
mannafélagi hljómsveitarinnar, ein-
um tilnefndum af fjármálaráðu-
neytinu og einum tilnefndum af
Ríkisútvarpinu. Menntamálaráðu-
neytið skipar formanni án tilnefn-
ingar. í 5. gr. sömu laga segir svo:
„Stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar
ræður sér framkvæmdastjóra og
ber hann ábyrgð á störfum sínum
gagnvart henni. Hann skal ráðinn
til 4 ára í senn en endurráðning er
heimil." í lögunum er ekki kveðið
á um að stjórnin þurfi að bera
ákvarðanir sínar varðandi ráðningu
framkvæmdastjóra undir mennta-
málaráðherra. Núverandi stjórn
hefur ákveðið að endurnýja ekki
samning við framkvæmdastjóra. Sú
ákvörðun var samþykkt samhljóða
í stjórninni. Menntamálaráðherra
situr ekki í þeirri stjórn. Það er því
alrangt að framkvæmdastjórinn
hafi fengið uppsagnarbréf frá
menntamálaráðherra og það hefði
Ragnar Björnsson átt að vita.
Það er útbreidd skoðun að ævi-
ráðning í æðsta embætti stofnana
ríkisins sé óheppileg. Sérlega mikil-
vægt hefur þótt að tryggja end-
Ævar Petersen
fuglafræðingur:
Friðun þyrfti
að fylgja
eftir með
rannsóknum
ÆVAR Petersen fuglafræðing-
ur segir að rjúpnastofninn hafi
verið í lægð að undanförnu og
nái botni á næsta ári eða jafnvel
í ár. Héðinn Ólafsson á Fjöllum
í Kelduhverfi, sem talið hefur
rjúpu i landareign sinni í fjöru-
tíu ár, hefur lagt til að stofninn
verði friðaður í tíu ár. Ævar
segir að ef friða eigi rjúpuna,
þurfi að gera það í að minnsta
kosti tíu til fimmtán ár og
fylgja friðuninni eftir méð vel
undirbúnum rannsóknum.
Ævar sagði að fyrr á öldinni,
þegar lítið hafi verið af íjúpu, hafi
stofninn oft verið friðaður. Þá hafí
farið að fjölga en tjúpunni hafi
fjölgað hvort sem var vegna
sveiflna í stofninum. Menn væru
engu nær um ástæður sveiflnanna.
Sagði Ævar því að ekki þýddi að
friða ijúpnastofninn nema hefja
viðamiklar rannsóknir. Hann sagði
að litlar rannsóknir væru nú í
gangi. Reynt væri að telja ijúpu á
afmörkuðum svæðum á hveiju ári
til að mæla breytingar á stofn-
stærð.
Ævar sagði að samkvæmt taln-
ingum fyrr á öldinni hefði stofninn
verið í lágmarki þegar 90 karrar
voru í Hrísey. í vor hefðu fundist
140 karrar og benti það til þess
að botninum yrði náð á næsta ári.
Sagði Ævar hugsanlegt að breyt-
ingar á gróðurfari í Hrísey hefðu
þau áhrif að eyjan bæri fleiri fugla
en áður þegar stofninn hefur verið
í lágmarki og að stofninn væri þá
jafnvel í lágmarki í ár.
urnýjun yfirmanna menningar-
stofnana. Þess vegna eru svipuð
ákvæði í lögunum um Þjöðleikhúsið
og um Listasafn íslands, þar er að
vísu einungis heimilt að endurráða
forstöðumann einu sinni, þannig að
10 ár er hámarkstími.
Æðstu menntastofnanir landsins
hafa hliðstæða reglu, þannig að
rektorar Háskóla íslands og Kenn-
araháskóla íslands eru kjörnir til
fárra ára. í Kennaraháskóla íslands
er endurkjör einungis heimilt einu
sinni án lotuskila.
í frumvarpi til laga um Ríkisút-
varpið sem lagt hefur verið fram á
Alþingi eru sams konar reglur um
ráðningu yfirmanna og eins í frum-
varpi til laga um Kvikmyndastofnun
íslands. Þess má geta að Reykjavík-
urborg' hefur sett sér slíkar reglur
„Það er útbreidd skoð-
un að æviráðning í
æðsta embætti stofnana
ríkisins sé óheppileg“
um forstöðumann listasafna
Reykjavíkurborgar, hann er ráðinn
til sex ára í senn og heimild til
endurráðningar. Tilhneigingin er
því greinileg í þessa átt og hingað
til hafa ekki heyrst hávær mótmæli.
í lögunum um Listasafn íslands
og Þjóðleikhúsið er tekið fram að
menntamálaráðherra ráði forstöðu-
mann/leikhússtjóra að fengnum
umsögnum safnráðs/þjóðleikhúss-
ráðs. I lögunum um Sinfóníuhljóm-
sveit íslands eru hins vegar engin
slík ákvæði. Menntamálaráðherra
Svavar Gestsson
hefur hreinlega ekkert um málið
að segja. Akvörðun um ráðningu
framkvæmdastjóra liggur algjör-
iega hjá stjórninni.
í greininni segir Ragnar: „Ráð-
herra segir ástæður sér ókunnar,
hafi aðeins framkvæmt ákvörðun
annarra, óvenju ráðþæginn ráð-
herra, en kannski gildir annað þeg-
ar um uppsagnir er að ræða en
þegar skipað er í stöður?“ Hér hlýt-
ur Ragnar að misminna, ráðherra
hefur einfaldlega ekkert „fram-
kvæmt“ í þessu máli og ber heldur
ekki að gera það. Ummæli Ragnars
um afskipti ráðherra af málum
framkvæmdastjóra Sinfóníunnar í
annars ágætri umfjöllun um fyrstu
tónleika hljómsveitarinnar á nýju
starfsári eru því á misskilningi
byggð.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
Ströng þjálfun krefst kalks og próteins
MUNDU EFHR OSTINUM
Hann er kalk og próteinríkur
°c