Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
Viðræður Kóreuríkjanna:
Hvatt til djörf-
ungar og sáttfýsi
Pyongyang, Panmunjon. Reuter.
FORSÆTISRÁÐHERRA kommúnistastjórnarinnar í Norður-Kóreu,
Yon Hyong-muk, hvetur til þess að samningamenn Kóreuríkjanna
sýni „djörfung og sáttfýsi" í sögulegum viðræðum rikjanna sem
hafnar eru. Forsætisráðherra Suður-Kóreu, Kang Young-hoon, sótti
starfsbróður sinn í norðri heim í gær en fyrir skömmu funduðu þeir
í Seoul, höfuðborg S-Kóreu.
Ummæli Yons féllu í veislu til
heiðurs Kang og sagði hinn fyrr-
nefndi að fólk frá báðum ríkjunum
hefði fagnað jafnt íþróttamönnum
frá suður- sem norðurhlutanum á
Asíuleikunum í Peking og nýlegur
knattspyrnuleikur liða ríkjanna í
Grænland:
Sérstakur
skattur á
flugfar-
höfuðborg N-Kóreu, Pyongyang,
hefði sýnt að Kóreumenn vildu ein-
dregið sameiningu, vildu „tengja
þær æðar sem skornar vou í sundur
fyrir 40 árum.“ Ekki mætti þó
gleyma þeirri staðreynd að enn
væru þúsundir ungra Kóreumanna
á landamærunum sem beindu byss-
um hver að öðrum.
Kommúnistaforinginn Kim II-
sung hefur stjómað Norður-Kóreu
með harðri hendi síðan í stríðslok.
Á sjötta áratugnum háðu ríkin tvö
þriggja ára styrjöld og veittu
Bandaríkjamenn S-Kóreu lið en
Sovétmenn og Kínveijar studdu
N-Kóreu.
Tugþúsundir Jemena lýsa yfir stuðningi við Saddam íraksforseta:
Reuter
Kang Young-hoon (t.v.), forsætisráðherra S-Kóreu, heilsar fulltrúa stjórnvalda í N-Kóreu í landamæra-
bænum Panmunjom á hlutlausa beltinu milli ríkjanna.
gjöld
Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara
Morgunblaösins.
SÉRSTAKUR skattur verður
lagður á flugfarseðla í innan-
landsflugi í Grænlandi frá og
með næstu áramótum og er til-
gangurinn að afla sjóðum
heimastjórnarinnar tekna.
Haft í hótunum við Mubarak
og viðskiptabann SÞ fordæmt
Sanaa í Jemen. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
MÓTMÆLI brutust út í Sanaa, höfuðborg Jemens, í gærmorgun
er mikill mannfjöldi kom saman til að lýsa yfir stuðningi við
málstað Palestínumanna og biðja þeim ríkjum bölvunar sem styðja
viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna gagnvart írökum. Þetta er í
fyrsta skiptið frá því Persaflóadeilan blossaði upp sem alvarleg
mótmæli með tilheyrandi fjöldahandtökum bijótast út hér í landi
en stjórnvöld í Jemen treguðust lengi við að lýsa yfir andúð sinni
vegna innrásar íraka í Kúvæt eins og kunnugt er.
Skatturinn verður 230 krónur á
hvem miða, jafnvirði 2.200 ÍSK,
en hann verður þó ekki lagður á
farmiða þar sem farþegar eru
fluttir milli staða á þyrlum, enda
hlutfallslega dýrara að ferðast
með þyrlum en flugvélum. Einka-
fyrirtækið Nuna Air hefur undan-
farið veitt Gronlandsfly samkeppni
á gjöfulustu flugleiðunum, þ.e.
milli Nuuk og Syðri Straumfjarð-
ar. Á þeirri leið notar Gronlands-
fly DÁSH-7 flugvélar og til að
mæta samkeppninni frá Nuna Air
og halda í farþegana hefur félagið
lækkað fargjöld á þeirri leið.
Reiknað er með að skatturinn
færi ríkissjóði 9 milljónir króna,
jafnvirði 85 milljóna ISK.
Ríki þau sem stutt hafa við-
skiptabannið voru fordæmd með
öllu auk þess sem haft var í hótun-
um við Hosni Mubarak, forseta
Egyptalands, en líkt og komið
hefur fram í fréttum var forseti
egypska þingsins myrtur í Kairó
á föstudag í síðustu viku. „Þið
látið böm svelta og veika þjást“
og „Þú verður næstur, Mubarak“
stóð á borðum þeim sem stuðn-
ingsmenn Saddams forseta hlupu
með um borgina.
Jambia brugðið
Göngumenn komu víða saman
í borginni og sameinuðust síðan á
aðaltorgi Sanaa en þar trónir
skriðdrekinn sem fyrstur réðst inn
fyrir múra hallar Ahmeds imams
er honum var velt úr valdastóli í
byltingunni árið 1962. Giskað var
á að tugir þúsunda manna hefðu
tekið þátt í mótmælunum. Margir
veifuðu jambia - jemenska rýt-
ingnum íbjúga til að leggja áherslu
á hróp sín og varð ekki betur séð
en mikill hiti væri í mönnum.
Forseti Jemens, Ali Saleh, hefur
ekki dregið úr þeim siðferðislega
stuðningi sem hann hefur veitt
Yasser Arafat, leiðtoga Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO) en hann
er tíður gestur hér þessar vikurn-
ar. Með þessum stuðningi eiga
Jemenar þó á hættu að missa fjár-
stuðning þann sem þeir hafa þeg-
ið frá Saudi-Aröbum. Að mótmæl-
unum loknum sagði embættismað-
ur í innanríkisráðuneytinu í sam-
tali við Morgunblaðið að nokkur
olíuvinnsla væri nú hafin í landinu.
„Jemenar eru ekki jafn háðir
Saudi-Aröbum og fyrr og var tími
til kominn,“ bætti hann við.
Ljóst hvar Jemenar standa
Ólíklegt er talið að stjóm Ali
Salehs forseta sé í fallhættu því
það virðist ekki fara á milli mála
hvar Jemenar standa þótt Saleh
hafi orðið að láta undan ákveðnum
þrýstingi Arabaþjóða einkum
ríkjanna við Persaflóa. Þannig var
öllum hátíðarhöldum hér á bylting-
ardaginn 14. október frestað
vegna fjöldamorðanna í Jerúsalem
í síðustu viku.
Þrír Bandaríkjamenn deila
Nóbelsverðlaunum í hagfræði
Stokkhólmi, Chicago. Reuter.
SÆNSKA vísindaakademían
skýrði frá því í gær að þrír
Bandaríkjamenn fengju Nób-
elsverðlaunin í hagfræði á
þessu ári. Mennirnir eru
Harry Markowitz, prófessor
við Baruch College í borgar-
háskólanum í New York, Will-
iam Sharpe, prófessor við
Stanford-háskóla í Kaliforníu
og Merton Miller, prófessor
við Chicago-háskóla.
Bengt Naslund, prófessor og
talsmaður akademíunnar, sagði
að hagfræðingamir hefðu fengið
verðlaunin fyrir framlag sitt til
fjármálahagfræði og hefðu rann-
sóknir þeirra og kenningar haft
mikil áhrif á þróun fjármála-
markaða. Ingemar Stahl prófess-
or sagði kenningar þremenning-
anna hafa bætt starfsemi nútíma
markaða og gert mörgum ein-
Keuter
Nóbelsverðlaunahafar í hagfræði árið 1990. Frá vinstri Harry Markowitz, fæddur 1927, William
Sharpe, fæddur 1934, og Merton Miller, fæddur 1923. Mennirnir eru allir bandarískir prófessorar.
staklingum og fyrirtækjum kleift
að minnka áhættuna sem tekin
væn við fjárfestingar.
í tilkynningu akademíunnar
sagði að Markowitz hefði sett
fram snjalla kenningu er notuð
væri til að velja á milli íjárfest-
ingarmöguleika. Hún væri byggð
á þeirri grandvallarforsendu að
fjárfestar skyldu reyna að dreifa
áhættunni sem mest. „Helsta
framlag Markowitz er að hann
setti fram skýrt afmarkaða og
nýtanlega kenningu um fjárfest-
ingarmöguleika við aðstæður þar
sem óvissa er mikil.“
Hagfræðingurinn Assar Lind-
beck sagði verk þeirra Sharpe
og Millers byggjast á kenningum
Markowitz, þeir hefðu þróað þær
en störf allra þriggja væru nauð-
synlegir hlutar af heildinni.
Sharpe setti fram svonefnda
CAPM-kenningu um verðmynd-
un á fjármálamörkuðum en Mill-
er aðra kenningu um tengslin
milli eiginfjármyndunar fyrir-
tækja og stefnu í arðsgreiðslum
annars vegar og áhrif þessara
þátta á gengi hlutabréfa fyrir-
tækisins á markaði hins vegar.
Sænski þjóðbankinn kom hag-
fræðiverðlaununum á laggirnar
árið 1968 til að minnast Alfreds
Nobels, er fann upp dýnamítið
og arfleiddi sjóð, sem við hann
er kenndur, að eignum sínum.
Nóbelsverðlaunin eru fjármögn-
uð með vöxtum sjóðsins og nema
nú um 40 milljónum ÍSK.