Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Unnið við gróðursetningu á lóð Fjölbrautaskólans.
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
Nemendur dagskóla 620
í hálfbyggðu húsnæði
Selfossi.
NEMENDUR Fjölbrautaskóla Suðurlands eru nú 620 í dagskóla og
150 í öldungadeildum. Þessi fjöldi í dagskólanum er jafn mikill og
gert er ráð fyrir að verði í skólahúsnæðinu fullbyggðu en eftir er
að byggja síðari áfanga skólans.
Nemendafjöldinn hefin- sprengt
utan af sér húsnæðið sem kemur
fram í stærri námshópum en ann-
ars væri og að kennt er í aukastof-
um á lóð skólans og í aðalkennslu-
húsinu, Odda, er hver kimi nýttur
til kennslu.
Umræður eru hafnar um stækk-
un skólans og hefur staða mála í
skólanum verið kynnt þingmönnum
og sveitarstjómamönnum á Suður-
landi. Framkvæmdir við frágang
lóðarinnar í kringum skólann hófust
í sumar. í því efni hafði starfsmann-
afélag skólans vaðið fyrir neðan sig
og setti niður 3000 græðlinga fyrir
nokkrum árum.
Þessir græðlingar komu sér vel
á dögunum þegar starfsfólk og
stúdentsefni skólans tóku sig til og
gróðursettu stóran hluta þessara
græðlinga sem voru orðnir mann-
hæðar háir.
Sig. Jóns.
Aðalfundur smábátaeigenda:
Brýnt að standa vörð
um banndagakerfið
„BRÝNA nauðsyn ber til þess að standa vörð um banndagakerfið í
fiskveiðilöggjöfinni, sem kemur til framkvæmda 1. janúar 1991,
þannig að ekki komi til þess að bátarnir í því kerfi verði reiknaðir inn
í kvótakerfið 1. september 1994. Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
þegar lýst yfir vilja sinum til að stuðla að því að svo megi verða
og lýsir Landssamband smábátaeigenda fullum vilja til samstarfs í
því máli,“ segir í ályktun sjávarútvegsnefndar á aðalfundi Landssam-
bands smábátaeigenda (L.S.), sem haldinn var fyrir skömmu.
í ályktuninni segir einnig að
ýmsar aðferðir séu hugsanlegar til
að viðhalda banndagakerfinu og
megi til dæmis benda á þá leið að
setja þak á banndagabátana miðað
við stærð þeirra og gera kvóta
þeirra óframseljanlegan með öllu
ef til uppreiknings kæmi árið 1994.
Landssamband smábátaeigenda
telur banndagakerfið nauðsynlegan
þátt í smábátaútgerð. Það hefur
þungar áhyggjur af röskun á sókn-
armunstri flotans miðað við stærð-
arsamsetningu skipanna. Á sama
tíma og öflugustu skipum sé leyft
að skarka innan landhelgi og uppi
í fjörum alls staðar í kringum
Vsk á erlend-
um náms- og
fræðibókum
HÁSKÓLARÁÐ hefur samþykkt
einróma að erlendar náms- og
fræðibækur verði undanþegnar
virðisaukaskatti.
í samþykkt háskólaráðs segir að
allt prentað mál sé nú undanþegið
virðisaukaskatti nema bækur á er-
lendri tungu. Nær allar náms- og
fræðibækur sem notaðar eru við
Háskóla Islands og aðra skóla á
háskólastigi eru á erlendri tungu.
Háskólaráð telur brýnt að erlendar
náms- og fræðibækur séu undan-
þegnar virðisaukaskatti.
landið sæki smábátarnir æ lengra
á haf út.
„Þessari þróun mótmælir Lands-
sambandið kröftuglega og bendir á
þversögnina, sem i henni felst gagn-
vart öryggissjónarmiðum," segir
orðrétt í ályktuninni. „L.S. vill
benda á að svo virðist sem að hinn
upprunalegi tilgangur kvótakerfis-
ins sé gleymdur og grafinn. Allt tal
um fiskfriðun og vernd er horfíð í
skuggann af karpi manna um upp-
skiptingu veiðiheimilda og verð-
mæti þeirra. L.S. beinir þeim til-
mælum til félaga og hagsmunasam-
taka innan sjávarútvegsins að þau
taki upp opna umræðu um árangur
kvótakerfísins og hvert það er að
skila þessari mikilvægust atvinnu-
grein þjóðarinnar."
Aðalfundurinn samþykkti einnig
eftirfarandi: „Mikil og almenn
óánægja er með gegndarlausa of-
notkun dragnótar. Nær sú óánægja
langt út fyrir raðir smábátaeigenda.
Meðal annars er það álit margra
að dragnót hafí skaðvænleg áhrif
á hrygningu staðbundinna fiski-
stofna.“
Landsambandið leggur því til að
engar dragnótaveiðar verði leyfðar
innan fjarða og aðeins minni bátar
frá viðkomandi svæði fái að veiða
innan landhelgi að grunnlínu.
Möskvastærð dragnótar skuli þó
aldrei vera minni en 155 mm. Enn-
fremur leggur L.S. til að dragnóta-
veiðar verði einungis leyfðar á kola
á þeim svæðum, þar sem þessar
veiðar skaða á engan hátt lífríki
sjávar og klak fískistofna, sam-
kvæmt óyggjandi niðurstöðum
rannsókna.
Sjúkrahúsið á Húsavík 20 ára:
Starfsfólkið bauð bæjar-
búum að skoða starfsemina
Frá vinstri: Gunnar Rafn Jónsson, yfirlæknir, Aldís Friðriksdóttir,
hjúkrunarforsljóri og Gísli G. Auðunsson, svæfingarlæknir.
verandi Sjúkrahúss á Húsavík,
bauð starfsfólki þess bæjarbúum
að kynnast starfseminni og þró-
un á liðnum árum. Þessu var vel
fagnað og fjölmenntu bæjarbúar
til þeirrar skoðunar síðastliðinn
laugardag. í þessu sambandi er
vert að rekja í stórum dráttum
sögu þess þáttar heilbrigðismái-
anna, sem hjúkrun sjúkra hefur
verið á Húsavík frá upphafi.
Árið 1912 gerðist það á Húsavík,
að ekkja í þorpinu, María Guð-
mundsdóttir í Vallholti, „tók að sér
geymslu á nokkrum sjúklingum, er
þurftu nauðsynlega hér að vera til
lækninga" en treystist síðan ekki
til að halda þeirri starfsemi áfram
„fyrir það gjald eitt er hægt var
að leggja á sjúklingana". Varð
þetta til þess, að á næsta ári veitir
sýslunefnd SuðUr-Þingeyjarsýslu
100 kr. styrk til þessarar starfsemi
gegn jafnháum styrk samanlagt frá
næriiggjandi hreppum. Þetta verður
upphaf sjúkrahúshalds á Húsavík,
sem síðan varð framhald á. í Vall-
holti, en svo hét hús ekkjunnar, var
þetta sjúkraskýli rekið með 5-6
sjúkrarúmum í rúman áratug eða
til ársins 1924. Vallholt var byggt
um aldamótin og er eitt fárra gam-
alla sögufrægra húsa, sem enn
stendur á Húsavík og nú nýuppgert.
Vorið 1924 höfðu læknishjónin á
Húsavík, Lovísa Sigurðardóttir og
Bjöm Jósefsson komið sér upp veg-
legu íbúðarhúsi og svo rúmgóðu,
að þau sáu sér fært að taka að sér
að reka á heimili sínu 8 rúma sjúkr-
askýli fyrir sýsluna og var svo um
samið, að þau tækju þetta að sér
næstu 10 árin, „eða á meðan verið
væri að koma upp varanlegu sjúkra-
húsi“. Að þeim tíma liðnum hafði
ekkert áunnist í byggingamálunum,
svo þau hættu þeim rekstri og
leigðu það húsnæði, sem sjúkraský-
lið hafði. En tóku eitt herbergi íbúð-
ar sinnar fyrir sjúklinga, sem bráða
sjúkrahúsvistar þurftu, til dæmis
vegna botlangabólgu eða slíkrar
uppákomu.
Þetta varð til þess að þegar var
hafist handa um byggingu sjúkra-
húss og var mjög ötullega að því
unnið af öllum héraðsbúum, undir
kjörorðinu „berið hvers annars
byrðar".
I suðausturhomi túns Húsavíkur-
prestakalls, var svo vígt hinn 17.
nóvember 1936, nýtt og þá talið
nokkuð fullkomið sjúkrahús, sem
rúmaði 14 sjúklinga og starfsfólkið
þá var ein lærð hjúkrunarkona,
gangastúlka, ráðskona, þvottakona
og læknir, sem jafnframt var hér-
aðslæknirinn og aðstoðarlæknir
hans 'við stærri aðgerðir var héraðs-
læknirinn á Breiðumýri, sem er í
um 40 km 'fjarlægð frá Húsavík.
Með stækkun þorpsins kom í ljós
knýjandi þörf fyrir stærra og full-
komnara sjúkrahús og árið 1964
var hafíst handa um smíði nýs
sjúkrahúss, sem fyrst átti að rýma
30 sjúklinga og vera tvær hæðir
og kjallari. En á byggingartímanum
var ákveðið að bæta þriðju hæðinni
við svo að þá það var tekið í notkun
1970 rúmaði það 62 sjúklinga og
er skipun nú þessi: Á efstu hæðinni
er öldrunardeild eða hjúkrun lang-
legusjúklinga. Önnur hæðin er fyrir
bráðaveikindi og þar leggjast inn
sjúklingar til lyflækninga, hand-
lækninga, skurðlækninga og þar er
fæðingardeild. Á fyrstu hæðinni er
skurðstofa, skiptistofa, röntgen og
heilgugæslustöðin, — læknamið-
stöðin, sem svo var kölluð þá hún
tók til starfa fyrir 24 ámm og var
sú fýrsta í landinu, stofnuð fyrir
forgöngu tveggja þá ungra lækna,
sem starfa þar enn. í kjallara er
svo eldhús, matstofa og ungbarna
eftirlit, sem býr við mjög þröngan
kost, en úr verður bætt, þá hin
nýja heilsugæslustöð, sem er í smíð-
um, verður tekin til afnota en gert
er ráð fyrir að það verði gert á
næsta ári. Skrifstofur og ýms önnur
þjónusta er svo í gamla sjúkrahús
inu, sem til stendur að skipuleggja
til nýrrar þjónustu.
Þegar heilsugæslustöðin er full-
gerð og nýtt skipulag komið á húsa-
kost þann, sem hún nú er starfandi
í, má segja að húsakostur heilbrigð-
isþjónustunnar sé mjög góður á
Húsavík.
- Fréttaritari.
aáau.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bátaflokkurinn við nýja gúmmíbátinn sem ber nafn Arnar heitins.
Bj örgnnar s veitinni Tryggva á
Selfossi gefírni nýr gúmmíbátur
Selfossi.
Björgunarsveitinni Tryggva á Selfossi var fyrir nokkru afhent-
ur nýr gúmmíbátur til minningar um Orn Arnarson, ungan mann
sem fórst í Ölfusá fyrr á þessu ári. Gjöfina afhentu aðstandendur
Arnar og vinir.
Báturinn kemur sér mjög vel
fyrir björgunarsveitina sem átti
einn bát fyrir. Með þessari viðbót
segjast þeir Tryggvamenn geta
einbeitt sér meira og betur að því
að þjálfa upp mannskap á bátana.
Það þarf töluverða þjálfun og
kunnáttu til að vinna í gúmmíbát-
unum við leit og önnur verkefni
sem til falla. Ennfremur gefur
þetta björgunarsveitinni tækifæri
til að öðlast þekkingu á Ölfusánni
og öllum aðstæðum við hana.
Slíka þekkingu er dýrmætt að
hafa ef til leitar kemur við ána
eða í henni.
- Sig. Jóns.