Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTOBER 1990
17
HVER Á ÍSLAND?
eftirHrafnkel Á.
Jónsson
Ríkisstjórn íslands framkvæmir
í dag fiskveiðistefnu sem er beint
framhald gamla lénsfyrirkomulags-
ins. Það byggðist á því að örfáir
jarðeigendur, lénsherrar, áttu jarð-
eignir og landseta með húð og hári.
Hið nýja lénsfyrirkomulag byggir á
því að örfáir stórir aðilar eignist
allar veiðiheimildir og þar með land-
setana, það er að segja sjómenn og
fiskverkafólk sem lifir á auðlindinni.
Mér er það ljóst að þeir sem
mótað hafa fiskveiðistefnuna, hafa
reynt að gera það með heildarhags-
muni í huga. Afleiðingin er þrátt
fyrir það skelfileg. Svo slæm að ef
ekki verður. snúist til varnar munu
mörg byggðarlög leggjast af. Auk
þess sem fólkið sem mest á i húfi,
sjómenn og fiskverkafólk, deilir
hart um skiptingu arðsins af auð-
lindinni. í mínum huga er það nauð-
synlegt hinum dreifðu sjávarpláss-
um með ströndum landsins að það
takist fullar sættir með sjómönnum
og landverkafólki um nýtingu þess-
arar undirstöðuauðlindar íslend-
inga.
En hvað er þá til bragðs að taka?
Það þarf að upplýsa hvers vegna
óunninn ferskur fiskur er fluttur út
Hrafnkell Á. Jónsson
„Kaup og sala á óveidd-
um fiski í sjó stríðir
gegn minni réttlætis-
kennd.“
í vaxandi mæli. Svarið er augljóst
segja menn. Það fæst einfaldlega
hærra verð fyrir fiskinn á mörkuð-
um erlendis. Svona einfalt er þó
svarið ekki. Það er nefnilega ekki
nema hluti fisksins seldur óunninn
til neytandans.
Það er staðreynd að stór hluti
þess afla sem fluttur er út fer í
vinnslu þar og síðan á markað í
samkeppni við fisk sem unninn er
á íslandi^. Þetta segir mér að verð-
lagning aflans innanlands er röng.
Ef erlend vinnsla getur greitt tvö-
falt og jafnvel þrefalt verð fyrir
afla, sem síðan er seldur unninn
erlendum neytanda á sama verði
og íslensk vara, segir það mér eitt,
að einhvers staðar eru maðkar í
mysunni. Ef til vill er lausnin fólgin
í því að gera það að skyldu að allur
afli fari í gegnum íslenskan markað.
Kaup og sala á óveiddum fiski í
sjó stríðir gegn minni réttlætis-
kennd og þeim kaupskap verður
einfaldlega að linna.
Ef fram fer sem horfir endar það
á einn hátt. Undirstaða heilu byggð-
arlaganna verður seld í burtu og
eftir situr fólk án atvinnu með verð-
lausar eignir. Verndun og skipu-
legri nýtingu fiskistofna verðum við
að ná fram með öðrum hætti.
Höfundur er formaður vmf.
Arvakurs á Eskifirði og tekur
þátt íprófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi.
LÁRA MARGRÉT RAGNARSDÓTTIR
hagfræðingur
Stuðningsmenn
Kosningaskrifstofa Láru Margrétar
er í Hafnarstræti 20, 4. hæð (lyfta).
Skrifstofan er opin virka daga frá
kl. 16:00—22:00 og kl. 14:00—20:00 um helgar.
Símar 27804, 27810, 28817 og 28847.
Frumkvæði og fyrirhyggja
— ráða úrslitum
Metsölubloð á hverjum degi!
Sameinum Sjálf-
stæðisfiokkinn
Nokkur orð um prófkjör
eftirHelenu
Albertsdóttur
Kæru vinir á gamla góða Fróni,
nú er prófkjör stendur fyrir dyrum
reikar hugurinn til ykkar. Óneitan-
lega væri gaman að vera með í
þessari tímamóta prófkjörsglímu.
Ég segi tímamótaglímu, því mikið
vatn hefir runnið til sjávar frá kosn-
ingunum 1987. öll gerum við okkur
grein fyrir, að íslenskt þjóðfélag
þolir ekki meiri sundrung. Með Inga
Björn Albertsson, bróður minn, í
huga, rita ég þessi orð, en hann
hafði kjark, manndóm og síðast en
ekki síst forsjá, til þess að stíga
það skref að ganga til liðs við sjálf-
stæðismenn og þar með að stuðla
að sameiningu flokksins.
Ég get mælt með Inga Birni,
ekki vegna þess að hann er bróðir
minn, því oft erum við ekki á eitt
sátt, heldur vegna kosta hans,
trygglyndis, heiðarleika og hjarta-
gæsku. Ingi Björn kom að mestu
óreyndur inn á völl stjórnmálanna
fyrir þremur árum og ekki þarf að
tíunda frammistöðu hans þennan
tíma, sem er honum til sóma og
hveijum flokki heiður og styrkur
að eiga slíkan mann innan sinna
raða.
Sameiginlegt markmið okkar
hlýtur að vera að fá fólk til að taka
þátt í íslenskum stjórnmálum, sem
er með hugsjónir fyrir land og þjóð,
fólk sem vill og getur þjónað af
hreinlyndi og vilja. Fólk sem þekkir
hjartslátt þjóðfélagsins og þegna
Helena Albertsdóttir
þess, því stjórnmál eru þjónustu-
starf og enginn hægðarleikur og
oft og tíðum sár. Ingi Björn hefur
ekki farið varhluta af þessu. Hann
er allur af vilja gerður til að þjóna
landi og þjóð og búa komandi kyn-
slóð betri tíma. Sjálfstæðismenn,
treystum Inga Birni sem nú þegar
hefur sýnt hvað í honum býr. Sam-
einumst um Inga Björn Albertsson
í komandi prófkjöri.
Baráttukveðja.
Höfundur er búsettur í
Bandaríkjunum.
NOTAÐU HEILANN BETUR
Laugavegi 163
Föstud. 19.okl. kl.19.00.
Kvöldnámskeið sem byggir á
nýjuslu rannsóknum í dáleiðslu,
' djúpslökun, Hugefli og Neuro
Linguistic Programming
aðferðafræðinni (NLP).
"Opnar aðgang að feiknarmiklum
ónotuðum hæfileikum."
Námskeiðið er haldið á hverju
föstudagskvöldi í 4 vikur.
Leiðbeinandi er Garðar
Garðarsson. Hann útskrifaðist
með practitioners gráðu í NLP frá
Grinder, DeLozier & Associates í
Bandaríkjunum árið 1988. Skráðu
þig NÚNA og fáðu nánari uppl.
hjá Betra Líf, sími: 62 33 36.
Libby’/
Stórgóða tómatsósan
AUK hf. 103.2/SlA