Morgunblaðið - 17.10.1990, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.10.1990, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990 Morgunblaðið/Ámi Sæborg Vegakerfið við Öskjuhliðina hefur tekið miklum stakkaskiptum á skömmum tíma. Um þessar mund- ir er verið að leggja veg að Perlunni, en á myndinni er verið að tyrfa meðfram aðalumferðaræð- inni yfir Öskjuhlíðina. Útsýnishúsið á Öskjuhlíð: Samið við Óðinsvé BORGARRÁÐ hefur staðfest samning við eigendur Hótels Óðinsvéa um leigu á veitinga- sölu og annarri þjónustu í út- sýnishúsinu á Öskjuhlíð. í samningnum er gert ráð fyr- ir að leigutaki leggi til 40 milljón- ir króna til innréttinga og kaupa á búnaði í eldhús og í veitinga- sali. Búnaðurinn skal valinn í samráði við arkitekt leigusala. Þá skal leigutaki greiða í leigu 4% af mánaðarlegri veltu að frá- dregnum virðisaukaskatti. Leiguprósentu skal endurskoða í árslok 1995 og síðan á tveggja ára fresti. Samningurinn gildir til ársins 2001 en framlengist um fimm ár í senn hafi annar hvor samningsaðilinn ekki sagt honum upp með eins árs fyrir- vara. Forsetar Alþingis: Stefnt er að því að þing starfi í einni málstofu FORMENN þingflokkanna á Alþingi hafa myndað nefnd til að at- huga breytingar á stjórnskipunarlögum og starfsháttum Alþingis, stefnt er að því að Alþingi starfi framvegis í einni málstofu. Forseti sameinaðs Alþingis, Guð- rún Helgadóttir, kvaddi sér hljóðs í neðri deild í gær þegar til umræðu var frumvarp fjögurra þingmanna Kvennalistans um að að fella niður heimild forseta og framkvæmda- valdsins til útgáfu bráðabirgðalaga. í máli Guðrúnar kom fram að for- setar Alþingis skrifuðu fyrir nokkru formönnum þingflokkanna bréf þar sem þess var farið á leit að þeir athuguðu möguleika á því að ná samstöðu um að afnema skiptingu Alþingis í efri og neðri deild. Forset- arnir telja að um brýnt mál sé að tefla og benda á, að yfirstandandi þing sé hið síðasta á kjörtímabilinu og því sé gott tækifæri tii að ná fram umbótum á starfsháttum Al- þingis því þingrof það sem fylgi í kjölfar stjórnarskrárbreytinga geti fallið saman við starfslok þingsins að vori. Fijálst verð á bræðslusíld og loðnu Formenn þingflokkanna hafa komið saman og skipað nefnd til að vinna að framgangi málsins. Næsti fundur er fyrirhugaður í næstu viku. Nefndin er undir for- sæti Ólafs G. Einarssonar formanns þingflokks sjálfstæðismanna. Nefndin hefur nú þegar tekið til starfa en einnig hefur hún safnað, athugað og yfírfarið ýmis gögn varðandi stjómskipun og starfs- hætti Alþingis. Leitast er við að gera tillögur um þær umbætur sem ætla má að full samstaða geti tek- ist um. Nefndin hraðar störfum eft- ir því sem frekast er kostur og að sögn Ólafs G. Einarssonar er stefnt að því að semja frumvarp sem yrði lagt fram á þessu þingi og sam- þykkt fyrir þinglok í vor. Þar sem um stjómarskrárbreytingu sé að ræða yrði svo að samþykkja frum- varpið á nýjan leik að afstöðnum kosningum. Sjá einnig þingfréttir á bls. 26. Saltverksmiðja Sjóefnavinnslunnar: Danskir aðilar taka við rekstrinum ÍSLENSKA saltfélagið, sem er fyrirtæki í eigu danskra aðila, hefur undanfarið verið að taka við rekstri saltverksmiðju Sjóefnavinnslunn- ar. Sjóefnavinnslan, sem er í eigu Hitaveitu Suðumesja, mun leigja íslenska saltfélaginu tækjabúnað og selja það sem þarf til framleiðsl- unnar, þ.e. rafmagn, gufu, jarðsjó og ferskt vatn. Saltverksmiðjan var sett á lagg- irnar í kjölfar stofnunar undirbún- ingsfélags um saltverksmiðju á Reykjanesi árið 1976 sem síðan breyttist í Sjóefnavinnsluna hf. árið 1981. Hún hætti rekstri 1988 ogtók þá fyrirtækið Jarðvarmi við rekstrin- um þar til samkomulag tókst um yfirtöku danska félagsins fyrr á þessu ári. Júlíus Jónsson, hjá Hitaveitu Suð- urnesja, sagði hitaveituna hafa sam- ið við danskt fyrirtæki, Sodenol Products, og hefðu Danirnir síðan stofnað Islenska saltfélagið. Hefði Islenska saltfélagið nú þegar að mestu tekið við rekstrinum og danskur verkfræðingur verið stadd- ur hér á landi meira og minna síðan í vor til að fylgjast með. Enn ætti þó endanlega eftir að ganga frá ýmsu varðandi t.d. fjármögnun og starfsleyfi og myndi það skýrast á næstu dögum. Hann sagði að uppistaðan í fram- leiðslu íslenska saltfélagsins yrði heilsusalt og að fyrirtækið hefði gert samning við stóran aðila í Evr- ópu um framleiðslu og dreifingu. Aðspurður um hversu hagstæður samningurinn væri fyrir Hitaveitu Suðurnesja sagði Júlíus að það færi ~eftir afkomu íslenska saltfélagsins. Viss lágmörk væru þó í samningnum sem ættu að tryggja stærstan hluta fastakostnaðar. „Það blasti hins veg- ar ekkert annað við en lokun ef þeir hefðu ekki komið. Ef þeim geng- ur vel gæti þetta líka orðið ágætt fyrir okkur,“ sagði Júlíus. HækkunSVR vísað til borg- arsljórnar TILLÖGU frá sljórn SVR um 8,2% hækkun á gjaldskrá vagnanna var vísað til borgarstjórnar á fundi borgarráðs í gær. Fyrir fundinum lá jafnframt ályktun frá stjórn Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar, þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til borgarráðs að heimila ekki hækk- un á fargjöldum SVR. Minnt er á forsendur fyrir síðustu kjarasamn- ingum og telur stjómin að hækkun- in grafi undan þeim markmiðum sem samningunum var ætlað að ná. Samheni kaupir hlut Hagvirkis SAMHERJI hf. á Akureyri hefur keypt hlutabréf Hagvirkis hf. og Jóns S. Friðjónssonar í Hvaleyri hf. í Hafnarfirði. Fyrir kaupin átti Samherji 50 milljóiia króna hlut í Hvaleyri hf., Jón S. Frið- jónsson, forstjóri Hvaleyrar, 5 milljóna króna hlut og Hagvirki 50 milljóna króna hlut. Hvaleyri hf. á togarann Víði HF og frystihús í Hafnarfirði, sem í Hvaleyri Hagvirki kaupir af Samheija en ætlar sér að selja aftur. Hins vegar verður rekstur Hvaleyrar hf. óbreyttur til að byija með og Víðir HF því gerður út frá Hafnarfirði fyrst um sinn, að sögn Kristjáns Vilhelmssonar hjá Samheija. Víðir HF er með 2.200 tonna aflakvóta í þorskígildum og afli skipsins hefur aðallega verið seldur á fiskmarkað- inum í Hafnarfirði. Guðmundur Arni gef- ur kost á sér í 1. sæti GUÐMUNDUR Árni Stefánsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar hefur ákveðið að gefa kost á sér í fram- boði Alþýðuflokksins í Reykja- neskjördæmi í komandi kosning- um. Guðmundur Árni lýsti þessari ákvörðun sinni á fundi með alþýðu- flokksmönnum í Hafnarfirði í fyrra- kvöld. „Komi til prófkjörs, eins og flest bendir til, þá gef ég kost á mér í fyrsta sæti listans," sagði Guð- mundur Árni. Hann sagði að næði hann kjöri hefði hann ekki í hyggju að segja af sér sem bæjarstjóri. „Eg tel að með góðum viíja og skipu- lagningu geti það mjög vel farið saman,“ sagði Guðmundur Árni. Morgunblaðið/Sigurður Steinar Ketilsson Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút- vegsins í gær, þriðjudag, var samkomulag um fijálst verð á síld og loðnu á þessari vertíð. Verðlagsráðið heldur annan fund næstkomandi mánudag um verð á síld til frystingar og söltunar. Fijálst verð hefur verið á síld og loðnu til bræðslu undanfarin ár. Gröfupramminn ófundinn Myndimar voru teknar úr lofti sl. fimmtudag þegar dráttarbáturinn Orion II var með tvo dýpkunarpramma Köfunarstöðvarinnar hf. í togi á Faxaflóa áleiðis til Reykjavíkur. Ann'ar prammanna, gröfuprammi sem sést á myndinni til vinstri, slitnaði tvívegis frá dráttarbátnum aðfaranótt laugardags og er jafnvel talið að hann sé nú sokkinn. Fram- ar á hægri myndinni er flutningaprammi sem einnig slitnaði frá Ori- on. Danska varðskipið Vædderen fylgdi dráttarbátnum, sem leki hafði komið að, til Reykjavíkurhafnar og náði síðan í flutningaprammann og dró til hafnar. TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flaug í gær yfir Faxaflóa þar sem líklegast er talið að gröfupramminn sé á reki sé hann enn ofansjávar. Ekkert sást til prammans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.