Morgunblaðið - 17.10.1990, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
Hvíti víkingurinn kvikmyndaður
Unnið er að tökum á Hvíta víkingnum, kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar þessa dagana, meðal annars í Straumsvík. A mynd-
inni má sjá leikmynd af torfbæ og fornmenn Ieggja fleyi að
landi. í baksýn er Straumur, Menningarmiðstöð Hafnarfjarðar-
bæjar. I samtali við Morgunblaðið sagði Hrafn: „Þetta gengur
eins og í sögu, þ.e.a.s. í íslendingasögu."
Fúlsað við gestum Púlsins
Jazz
Guðjón Guðmundsson
JAZZVAKNING fagnaði 15 ára
afmæli sínu um síðustu heigi í
nýjum tónlistarbar á Vitastíg,
Púlsinum. Púlsinn gæti með
tímanum orðið gott athvarf fyr-
ir tónelskandi menn, þar er
rými allgott og hljómburður í
stakasta lagi. Síðastliðið laug-
ardagskvöld fór þó lítið fyrir
ánægjunni hjá jazzunnendum
sem vildu eiga þarna kvöld-
stund því tvær af fjórumhljóm-
sveitum sem áttu að leika þetta
kvöld létu ekki sjá sig.
Hvorki Gammarnir né Kuran-
Swing-bandið mættu til leiks þó
framlag þeirra hefði verið auglýst
í fjölmiðlum. Engu að síður létu
forsvarsmenn Jazzvakningar sig
hafa það að rukka 900 kr. af
gestum við innganginn en ekki
buðust þeir til að endurgreiða
aðgangseyrinn þegar helmingur
auglýstrar dagskrár féll niður. Ef
slíkt framferði flokkast ekki undir
ólögmæta viðskiptahætti þá er
það í það minnsta bein lítilsvirð-
ing, sérstaklega í ljósi þess að
ekki vildi kynnir kvöldsins dveljast
mikið við þetta lítilræði en kynnti
þess í stað eins og ekkert hefði í
skorist breytta dagskrá. Síðan var
Þórir Baldursson píanisti, Tómas
R. Einarsson kontri og Guðmund-
ur R. Einarsson trommari fengnir
til að redda kvöldinu. Það var að
vísu ágætlega til fundið en þetta
voru ékki Gammarnir og ekki
heldur Kuran-Swing sem eflaust
margir komu til að hlusta á.
Annars hófst kvöldið með leik
hljómsveitar Árna ísleifs, létt og
góð sveifla og ágæt upphitun.
Sömuleiðis var gaman að heyra í
Birni R. og félögum, Björn R.
með vítt tónsvið og fallegan tón
en hann blés veikt og drukknuðu
tónar hans oft í þungum slætti
Guðmundar R.
En þetta var ekki nóg, eftir
upphitun eiga að koma átök.
Lýsuhóll í Staðar-
sveit:
Stórskemmd-
ir á félags-
heimilinu af
völdum elds
Hlíðarholti, Staðarsveit.
LITLU munaði að félagsheimilið
á Lýsuhóli í Staðarsveit brynni
til grunna aðfaranótt síðastliðins
mánudags, en þar fer fram
kennsla á grunnskólastigi fyrir
tvo hreppa, Staðarsveit og
Breiðuvík.
Þegar kennarar og nemendur
komu í skólann á mánudagsmorgun
var aðkoman ekki góð. Eldur hafði
komið upp i eldhúsi og var þar allt
sviðið og svart og allt húsið mengað
af sóti og reyk. En eldurinn var þá
slokknaður af sjálfu sér vegna loft-
leysis þvi að allir gluggar í húsinu
höfðu verið lokaðir.
Greinilegt var að upptök eldsins
hafa verið í uppþvottavél sem ný-
lega hefði verið sett upp í eldhúsi.
Var allt borðið umhverfis vélina
brunnið til ösku en eldurinn hafði
ekki náð til skápa yfir eldhúsborði
en ef svo hefði farið hefði hann átt
greiða leið í loftklæðningu og hefði
þá ekki þurft að spyrja um örlög
hússins.
Rúður í eldhúsgluggum voru
sumar sprungnar en höfðu ekki
brotnað sem betur fór. Allar inn-
réttingar og aðrir munir í eldhúsi
eru ónýtir og verulegar skemmdir
urðu annars staðar í húsinu. Heima-
fólk vann í gær við að þvo og
hreinsa félagsheimilið eftir því sem
kostur er á en eldhúsið þarf að inn-
rétta að mestu að nýju. Menn frá
Rafmagnseftirliti voru þar einnig
að kanna eldsupptök. Ekki hefur
enn farið fram neitt mat á bruna-
skemmdum en umboðsmaður Vá-
tryggingafélags íslands kom á stað-
inn á mánudagsmorgun og kannaði
skemmdirnar.
Ekki er vitað nú hve langan tíma
tekur að koma húsinu í nothæft
ástand til kennslu en fyrst um sinn
mun hún fara fram í gistiheimilinu
í Görðum. p g
-------------
Opinn fundur
Sögufélags
SöGUFÉLAG Árnesinga heldur
opinn fund á Borg í Grímsnesi
fimmtudaginn 18. október kl.
21.00.
Á fundinum verður kynnt fyrsta
hefti af söguritinu Árnesingi og
skipulögð sala þess í héraðinu.
Lýður Pálsson sagnfræðingur frá
Litlu Sandvík flytur fyrirlestur um
sögu verslunar í Árnessýslu frá
1900 til 1930. Kaffiveitingar. Fé-
lagar í Sögufélagi Árnesinga og
allir aðrir áhugamenn um sögu hér-
aðsins eru hvattir til að mæta. Nýir
félagar velkomnir.
(Frcttatilkynning)
Vidskiptahugbúnaóurinn vinsæli, sem geróur
er fyrir MS-D0S, OS/2, UNIX, AIX og
netkerfi. Nýtt gluggakerfi.
♦ Fjárhagsbókhald,
skuldunautar og lánardrottnar.
♦ Sölu- og birgðakerfi.
♦ Launakerfi.
♦ Pantanakerfi, tollkerfi og
verðútreikningur.
♦ Verkbókhald og tilboðskerfi.
♦ Framleiðslukerfi og
framleiðslustýring.
♦ Bifreiðakerfi.
♦ Útflutningskerfi.
♦ Strikamerkjakerfi.
Samhæfð kerti, sem notandinn
á auðvelt með að læra á.
KERFISÞRÓUN HF.
SKEIFUNNI 17, 108 REYKJAVfK
SÍMAR 688055/687466
(yrr.i psjánd
HIMNASENDING í R0KKSÖGU ÞESSA LANDS
.MIIH
ii Himwifm
Glettin saaa
" um sálina
hans Jóns
oq Gullna
hliðið
á HÓTEL ÍSLAND LAUGARDAGSKVÖLD
Landsfrægir rokklistamenn sjá um söng, dans og hljóðfæraleik
Glæsilegur
9 rétta matseöill.
Forréttir:
Regnbogafiskipoté
leer fjollosópo með higlokjöli
Sérrýlögoð
fjömosvepposúpo
Aðalréttir:
lombodrottning með lyngberjosósu
Soðið loxofiðríldi
Austurlenskui kjötréttur með súrsstri sósu
Eftirréttir:
Móiort is
Jorðorberjorjómorönd með jorðorberjum
Koffi með konfektköku
Miðasala og borðapantanir í síma 687111
SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR -
GEYMIÐ GALLABUXURNAR HEIMA
Dýrgripurinn f r«
er hljöðlátur
og þvær vel
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
SUIÚDABORG 13-104 REYKJAVÍK - SÍMI688 588
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-12