Morgunblaðið - 17.10.1990, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1990
23
PlínrpriiMrói
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Friðarverðlaun
til Gorbatsjovs
Mikhaíl Gorbatsjov, forseta
Sovétríkjanna, hefur verið
sýndur sá óumdeildi heiður að
fá friðarverðlaun Nóbels. Þessi
verð laun hafa hingað til verið
veitt íbúum Sovétríkjanna og
kommúnistaríkjanna í Austur-
Evrópu í óþökk húsbændanna í
Kreml. Nægir í því sambandi að
minna á þá Andrej Sakharov og
Lech Walesa, sem hvorugur fékk
að veita friðarverðlaununum við-
töku við hina hátíðlegu athöfn í
Ósló. Engar slíkar ferðahömlur
verða lagðar á Gorbatsjov en
hins vegar er ljóst að fögnuður
heima fyrir vegna verðlaunanna
er minni nú en þegar Sakharov
og Walesa voru heiðraðir. Þá var
viðurkenningin túlkuð sem
stuðningur við almenna baráttu
fólksins gegn alræðinu nú lítur
almenningur sér nær og telur
að Gorbatsjov sé hylltur fyrir
frið annars staðar en í Sovétríkj-
unum sjálfum.
Fyrir réttu ári var þess
minnst, að 40 ár voru liðin frá
því að Þýska alþýðulýðveldið var
stofnað. Gorbatsjov var þá við
hátíðarhöld í Austur-Berlín og
gaf afdrifaríka yfirlýsingu um
að vandi Austur-Þýskalands yrði
leystur í Austur-Þýskalandi.
Hann sagði að sovéskum herafla
yrði ekki beitt í deilum innan
Austur-Þýskalands. Þessi sögu-
lega yfirlýsing sýndi, að Gorb-
atsjov ætlaði ekki að feta í fót-
spor forvera sinna sem sendu
herafla inn í Búdapest 1956 og
Prag 1968 til að treysta sovésk
ítök. Þegar þetta var ljóst tók
þróunin í Austur-Þýskalandi þá
stefnu að nú hefur Þýskaland
verið sameinað með friðsamleg-
um hætti og kommúnisminn er
á hröðu undanhaldi hvarvetna í
Austur-Evrópu. Fyrir þetta eitt
á Gorbatsjov friðarverðlaunin
skilim.
Skoðanir eru skiptar um
hvaða ástæður eru fyrir ákvörð-
unum Gorbatsjovs um afvopnun-
arsamninga við Vesturlönd,
brottflutning sovéska heraflans
frá Afganistan og afskiptaleysi
í ríkjum þriðja heimsins þar sem
Sovétmenn létu áður að sér
kveða með stuðningi við upp-
reisnaröfl. Sumir segja að hann
hafi í einlægni viljað breyta
heimsmyndinni með þessum
hætti. Aðrir eru þeirrar skoðunar
að honum hafi verið nauðugur
einn kostur. Sovétríkin hafi verið
að hruni komin þegar hann tók
við æðstu völdum og stjórnin þar
eigi nóg með vandamálin heima
fyrir. Hver svo sem skýringin
er blasir niðurstaðan við öllum:
undir forystu Gorbatsjovs hefur
Sovétstjórnin kúvent og ógnar
ekki lengur heimsfriði með sama
hætti og áður. Þetta sýnir allt
að Gorbatsjov verðskuldar heið-
urinn fyrir þessa þætti heims-
málanna. Málið hefur einnig aðr-
ar hliðar og ein sem snýr sér-
staklega að okkur, Kólaskagi.
Ekki hefur Sovétleiðtoginn feng-
ið friðarverðlaunin frá nágrönn-
um sínum í Noregi fyrir hernað-
aruppbygginguna þar, en hún
er ekki laus við ögrun gegn
Norðmönnum og friði á Norður-
Atlantshafi. Verðlaunin mega
ekki verða eins og svefnþorn
fyrir okkur sem búum á norður-
slóðum.
Innan Sovétríkjanna líta menn
almennt öðrum augum á það
sem hér hefur verið sagt en við
á Vesturlöndum. Á forsíðu
Morgunblaðsins í gær var þetta
haft eftir ungum kennara í
Moskvu sem ræddi um nefndina
er úthlutar friðarverðlaunun-
um:„Hún ætti að dvelja hérna í
nokkra mánuði til að kynnast
lífi Rússa og viðhorfum þeirra.
Er friðurinn aðeins fyrir útlend-
inga? Við þörfnumst friðar héma
— ekki bara á Vesturlöndum."
í Staksteinum Morgunblaðs-
ins í gær er sagt frá ræðum sem
Mikhaíl Voslenskí og Tomas Ri-
es, tveir sérfróðir menn um mál-
efni Sovétríkjanna, fluttu á fundi
Samtaka um vestræna samvinnu
og Varðbergs á laugardaginn.
Báðir eru þeirrar skoðunar að
síður en svo horfi friðvænlega í
Sovétríkjunum. Gorbatsjov haldi
forsetavöldum með samvinnu við
her og lögreglu en manna á
meðal og í blöðum beri mjög á
kvíða yfir yfírvofandi borgara-
styijöld og eigi Evrópuríki að
búa sig undir neyðarhjálp og
hættuástand vegna hennar.
Þetta viðhorf endurspeglast í
lýsingum á því, hvernig brugðist
er við friðarverðlaununum til
Gorbatsjovs í Sovétríkjunum.
Hér skal engu spáð um hvað
gerist á næstu vikum og mánuð-
um í Sovétríkjunum. Ljóst er að
perestrojkan er dauð sem efna-
hagsstefna. Tæki Gorbatsjov
jafn sögulega ákvörðun um af-
skiptaleysi af þróun mála í ein-
stökum lýðveldum Sovétríkjanna
og af breytingunum í Austur-
Þýskalandi myndu Sovétríkin
liðast í sundur á örskömmum
tíma. Líklega væri það besta
framlag friðarverðlaunahafans
til friðar á þessari stundu um
leið og hann gæfí þeim öflum
lausan tauminn, sem helst hafa
kraft til að bæta hag sovéskrar
alþýðu, markaðsöflunum.
Fréttabréf VSÍ um námslán á síðasta skólaári;
Yaxtaleysi og afföll jafngilda
1.600 milljóna króna styrk
Námslán hafa hækkað um 60% á meðan laun hafa hækkað um 16,9%
VAXTALEYSI námslána ásamt afföllum af endurgreiðslum jafngilda
því, að um 50% af lánunum sé hreinn styrkur, eða rúmlega 1.600 milljón-
ir króna á síðasta námsári, sem er töluvert meira en framlag ríkissjóðs
til Háskóla íslands. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði fréttabréfs
Vinnuveitendasambands íslands, Af vettvangi. Þar er einnig rætt um
að vegna hagstæðra námslána, sé hætta á að alvarlegur skortur verði
á fólki í öðrum greinum en þeim, sem krefjast lánshæfs náms, einkum
•ðnaðarmönnum.
í greininni „Námslánakerfi á villi-
götum?“ segir að hlutfallið milli
námslána og launa sé einn stærsti
áhrifavaldurinn þegar ungmenni
meti hvort hagkvæmt sé að hefja
langskólanám. Fjallað er um stöðugt
vaxandi eftirspurn eftir námslánum
undanfama áratugi. Meðfylgjandi
myndir, sem byggðar eru á upplýs-
ingum frá VSI, sýna þessa þróun.
Ein helsta skýring vaxandi eftir-
spumar er sögð, að námslán eru
vaxtalaus, en verðtryggð, „og borgar
sig því að taka allt það fé að láni
sem býðst. Skólagjöld eru nær engin
hér á landi og því kostnaðarlítið að
reyna fyrir sér í námi. Eftirspurn
eftir ókeypis gæðum er jafnan mikil
og þegar þau fara saman með rausn-
arlegra stuðningskerfi við námsmenn
en víðast þekkist er niðurstaðan gef-
in,“ segir í greininni.
Fram kemur að námsmaður sem
býr utan foreldrahúsa fær 53.900
krónur í lán á mánuði, að auki séu
tvisvar á ári veitt lán til bókakaupa,
9.500 til 15.900 krónur, og ferða-
styrkur til þeirra sem stunda nám í
meira en 100 kílómetra fjarlægð frá
lögheimili. Hjón, bæði í námi og með
tvö börn, fá 161.700 krónur á mán-
uði. „Til að ná sömu tekjum með
launavinnu þurfa þau að hafa sam-
tals í tekjur 187.000 kr. á mánuði,"
segir í greininni.
Þá segir að námslán séu orðin það
há, að miðað við upplýsingar um
tekjur fjölda starfsstétta, geti fjöl-
margir aukið ráðstöfunarfé sitt stór-
lega með því að hverfa af vinnumark-
aði og hefja lánshæft nám. Á sama
tíma og laun hafa hækkað um 16,9%
hafa námslán hækkað um 60%, þetta
er árin 1989 og 1990.
„Svo mikil hlutfallsleg hækkun
námslána miðað við laun veldur því,
að sífellt fleiri störf standast ekki
kjaralegan samanburð á við náms-
lánin. við það bætist, að nýlega var
aukin skerðing á lánunum með aukn-
um vinnutekjum námsmanns. Allt
er þetta til þess fallið að draga úr
atvinnuþátttöku og skapa falska eft-
irspurn eftir margvíslegu námi,“ seg-
ir í greininni.
Gagnrýnt er stjórnleysi í málefn-
um Lánasjóðs íslenskra námsmanna
og það einkum, að sjóðurinn sé látinn
mæta allri fjölgun námsmanna und-
anfarin ár með lántökum, til þess
að ekki þurfi að hækka framlag ríkte-
sjóðs. Fjárþörf sjóðsins hafi aukist í
sífellu, fólk sæki í dýrara og lengra
nám, umsækjendum fjölgi og lántök-
ur fjármagni starfsemi sjóðsins.
Reiknað er með að um 90% lán-
anna skili sér með afborgunum, en
í greininni segir að með dýrara og
lengra námi lækki það hlutfall. Sagt
ert að lánin á síðasta námsári jafn-
gildi 1.600 milljóna króna styrk til
námsmanna. „Spyija má, hvort ekki
sé tímabært að endurskoða þetta
kerfi með kröfur um aukið aðhald,
ábyrgð og árangur að leiðarljósi,“
segir í greininni.
496 viðskiptafræðingar og 19
múrarar
í annarri grein sama blaðs, „Stöð-
ugt fleiri sækja í háskóla nám,“ kem-
ur fram að á áiðustu tíu árum hafi
skráðum nemendum á haustmisseri
við Háskóla íslands fjölgað um
1.200, eða 33%. Síðan haustið 1987
hefur umsækjendum hjá LÍN fjölgað
úr um 7.000 í liðlega 9.000. Fram
kemur að spáð er að eftir tíu ár verði
fjöldi nem enda á háskólastigi kom-
inn yfir 11 þúsund. Sama tíma mun
aldurshópurinn 20-24 ára haldast
óbreyttur að fjölda. 1989 taldi sá
hópur um 21.000 manns.
Ráðstöfunarfé LIN 1978-1990
(milljónum króna á verðlagi í júní 1990
Endurgreiöslur
Lántökur
fl I III I I
__ E I I I I I I I
I I I I I I I I I I I
| 79 | 80 II 82 | 83 | 84 | 85 | 86 | 87 | 88 | 89 |
-1500
hiooo
1500
í framhaldi af þessum tölum, er
spurt hvort þessi þróun sé í ein
hveiju samræmi við þarfir og óskir
atvinnulífsins um vinnuafl og hvort
þessi fjöldi langskólagenginna muni
eiga möguleika á starfi við hæfí.
Tekin eru dæmi af fjölda útskrifaðra
í ýmsum greinum. Á síðustu fimm
árum hafa brautskráðst frá HÍ 496
viðskiptafræðingar, 254 verkfræð-
ingar og 213 lögfræðingar. Á sama
tíma hafi Iðnskólinn í Reykjavík
brautskráð 101 rafvirkja, 34 vél-
virkja og 19 múrara. „Hér er fremur
um að ræða stjórnlausa þróun, þar
sem umfram eftirspurn eftir faglærð-
um og ófaglærðum verður sífellt al-
varlegra vandamál á sama tíma og
fjöldi atvinnulausra og brottfluttra
háskólamanna eykst stöðugt. Nú
þegar við stöndum frammi fyrir
byggingu nýs álvers kemur til dæm-
is í ljós, að skortur verður á ýmsum
iðnaðarmönnum og verður því að
flytja inn erlenda iðnaðarmenn þegar
þar að kernur," segir í greininni.
• Morgunblaðið/Árni Sæberg
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Guðjón Magnússon skrifstofustjóri í
heilbrigðisráðuneytinu kynna hugmyndir um breytta skipan samstarfs sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Tillögur um nýtt skipulag á samstarfi sjúkrahúsanna í Reykjavík:
Sameiginleg yfirstjórn fjármála
á að spara hundruð milljóna á ári
Heilbrigðisráðherra flytur fljótlega frumvarp um breytinguna á Alþingi
SAMSTARFSRÁÐ sjúkrahúsanna í Reykjavík verður komið á fót, ef
frumvarp það verður að lögum, sem Guðmundur Bjarnason heilbrigð-
isráðherra hyggst flytja fljótlega á Alþingi um breytta skipan þess-
ara mála. I dag hafa sjúkrahúsin með sér margvíslegt samstarf, en
með lagabreytingu á að koma því í fast form og verður hlutverk
samstarfsráðsins einkum að skipta sameiginlegri fjárveitingu milli
sjúkrahúsanna og samræma starfsemi þeirra og ákveða hvar sérhæf-
ing verður á hverju sviði. Samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrum-
varpi fyrir næsta ár, er um að ræða á tíunda milljarð króna, sem
veitt er til þessara þriggja stofnana, Ríkisspítala, Borgarspítala og
Landakotsspítala.
Guðmundur Bjarnason heilbrigð-
isráðherra kynnti þessar fyrirhug-
uðu breytingar á blaðamannafundi
í vikunni, ásamt þeim Finni Ingólfs-
syni aðstoðarmanni sínum og Guð-
jóni Magnússyni skrifstofustjóra í
heilbrigðisráðuneytinu. Guðmundur
sagði þetta mál hafa verið í vinnslu
um nokkurn tíma á vegum ráðu-
neytisins og með aðild fulltrúa frá
sjúkrahúsunum þremur, en frum-
kvæðið sagði hann vera frá fulltrú-
um Landakots og Borgarspítala.
I ijárlagafrumvarpinu er gerð
grein fyrir því að fjárlagaliður sem
hingað til hefur verið skipt niður á
hvert sjúkrahúsanna þriggja, er
núna settur saman í einn fjárlaga-
lið sem er ósundurliðaður. í greinar-
gerð frumvarpsins segir: „Tilgang-
urinn er sá að ná fram hagræðingu
í rekstri þeirra með markvissri
verkaskiptingu. Til að ná slíku fram
þarf að skipta fjárveitingu milli
sjúkrahúsanna með öðrum hætti en
gert hefur verið.“
Nefnd hefur starfað síðan í febr-
úar 1989 til þess að fjalla um þetta
mál og hefur nefndin lokið störfum.
„Þar náðist samstaða um að gera
breytingar á lögum um heilbrigðis-
þjónustu þar sem kveðið er á um
sérstakt samstarfsráð þessara
þriggja sjúkrahúsa, sem hafí það
hlutverk að móta framtíðarstefnu
sjúkrahúsanna, gera þróunar- og
fjárfestingaráætlanir og stuðla að
sem hagkvæmastri verkaskiptingu
Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1991:
Batnandi hagnr miðað við óvissar forsendur
„NÚ ERU horfur á að samdráttarskeiðið í þjóðarbúskapnum sé á
enda.“ Svo segir í þjóðhagsspá fyrir næsta ár, sem unnin er af Þjóð-
hagsstofnun og forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þar seg-
ir að umskipti hafi orðið til hins betra á þessu ári í afkomu atvinnu-
veganna, eftir þrengingar í þjóðarbúskapnum á siðustu tveimur árum.
Spáð er að hagur þjóðarinnar standi í stað á þessu ári og fari batn-
andi á því næsta. Þróun olíuverðs og hugsanlegar álversframkvæmd-
ir valda þó mikilli óvissu um spá næsta árs.
Efnahagsstefna ríkisstjórnarinn-
ar er kynnt í þjóðhagsáætlun og
um hana segir svo: „Efnahags-
stefna ríkisstjórnarinnar miðar að
því að varðveita þann mikilsverða
árangur sem náðst hefur á síðustu
misserum í átt til betra jafnvægis
í þjóðarbúskapnum og koma í veg
fyrir að þensla myndist á ný. í því
efni er mikilvægast að staðfesta
árangurinn í viðureigninni við verð-
bólgu, stuðla áfram að umbótum í
hagkerfinu, leta nýrra framleiðslu-
tækifæra og leggja þannig traustan
grunn að hagvexti og batnandi
iífskjörum í framtíðinni. Eitt brýn-
asta verkefnið er að auka fram-
leiðslu og verðmætasköpun í þjóðfé-
laginu þannig að hagvöxtur hér á
landi verði ekki minni en í nálægum
löndum.“
Kaupmátturinn upp
Umskiptin til hins betra eru eink-
um rakin til betra jafnvægis í þjóð-
arbúskapnum, lækkunar verðbólgu
og batnandi viðskiptakjara. Um
þrengingar síðustu ára segir svo:
„Óhjákvæmilegt var að lífskjör
þjóðarinnar versnuðu á síðustu
tveimur árum vegna aflabrests og
viðskiptahalla á fyrri árum. Kaup-
máttur ráðstöfunartekna á mann
rýrnaði um 3% á árinu 1988, 10%
1980 og talið er að hann rýrni um
3,5% á milli áranna 1989 og 1990.
Á þessu ári hefur kaupmáttur hins
vegar haldist nokkurn veginn
óbreyttur."
Á næsta ári er spáð um 1,5%
aukningu Iandsframleiðslu og tæp-
lega 2% aukningu þjóðartekna.
Gert er ráð fyrir að kaupmáttur
aukist í hátt við landsframleiðslu
og að viðskiptahallinn minnki nokk-
uð vegna betri viðskiptakjara.
Reiknað er með að verðbólgan verði
um 7% og ráðstöfunartekjur í heild
hækki um 8%.
Fiskeldið skilar tekjum
Sjávaraflinn er nokkru minni á
þessu ári en í fyrra að veðrmætum
samkvæmt þjóðhagsáætlun. Fyrstu
átta mánuðina var verðmæti afla
án loðnu 2,8% minna en á sama
tíma í fyrra á föstu verðlagi. Mestu
munar um rúmlega 6,5% samdrátt
í þorskafla. Á grundvelli upplýsinga
sjávarútvegsráðuneytis um veiði-
heimildir og mati Hafrannsókna-
stofnunar á ástandi fiskistofna
áætlar Þjóðhagsstofnun að heildar-
aflinn í ár verði 4,5% minni en í
fyrra á föstu verðlagi. Annar afli
en loðna er talinn minnka enn meir,
eða um 6,5%. Á móti samdrætti í
afla er gert ráð fyrir að komi betri
nýting aflans og því verði samdrátt-
ur í heild um 3,5% á föstu verð-
lagi, miðað við síðasta ár. Álfram-
leiðsla er talin munu dragast lítil-
lega saman á árinu. Útflutnings-
framleiðsla annarra greina en sjáv-
arútvegs og stóriðju er talin aukast
á þessu ári um 4,5% og munar þar
mest um afurðir fískeldis, en án
fiskeldis er framleiðslan óbreytt frá
fyrra ári.
Skatthlutfall vanmetið
Á þessu ári er talið að ráðstöfun-
artekjur hafi hækkað um 11% frá
fyrra ári að teknu tilliti til skattend-
urgreiðslna, en launatekjur eru
áætlaðar hækka um 13,5%. Skatt-
byrði hefur þyngst um 1,5% frá því
í fyrra. og það sem af er þessu ári
nemur staðgreiðsla skatta 18% af
tekjum.
í þjóðhagsspánni er borið saman
hlutfall heildarskatta á íslandi og
I aðildarríkjum OECD. „Þann fyrir
vara verður að hafa á samanburði
af þessu tagi að munur getur verið
á útreikningi hlutfallsins eftir lönd-
um og jafnframt hefur gerð efna-
hagslífsins áhrif á hlutfallið. Hér
má m.a. benda á að fjármögnun
almannatrygginga er með nokkuð
öðrum hætfí hér á landi vegna
lífeyrissjóða sem felur í sér að skatt-
hlutfall hér á landi er vanmetið,“
segir í þjóðhagsáætlun.
Samkvæmt samanburðinum,
með framangreindum fyrirvara, er
hlutfall heild^rskatta á Islandi 1989
34% af landsframleiðslu, samanbo-
rið við 38% meðalskatthlutfall
OECD ríkja.
Yiðskiptajöfnuður neikvæður
Búist er við neikvæðum við-
skiptajöfnuði við útlönd á þessu ári
sem nemi um 6.700 milljónum
króna. Gert er ráð fyrir að vöru-
skiptajöfnuður ársins verði jákvæð-
ur um 4.200 milljónir, en vaxtajöfn-
uður neikvæður um 15.000 milljón-
ir króna.
Erlendar lántökur á árinu verða
alls tæplega 21.000 milljónir króna.
Afborganir af erlendum skuldum
verða 11.000 milljónir, þannig að
nettó lántaka erlendis verður um
9.500 milljónir. Samkvæmt því
hækka löng erlend lán úr 51,3%
af landsframleiðslu í 51,6%, en
greiðslubyrði semn hlutfall af út-
flutningstekjum lækkar úr 19,9% í
19,6%. Að raungildi hækkar hrein
erlend skuld um 0,5% milli ára þeg-
ar tillit er tekið til erlendrar verð-
bólgu.
Óvissuþættir og hættumerki
Þegar horfur á næsta ári eru
metnar, eru í þjóðhagsspá fyrst
rakin ýmis ytri sk.ilyrði, þar á með-
al olíuverð. Gengið er út frá 26
dollurum fyrir hráolíutunnuna, sem
er mjög svipað því sem helstu al-
þjóðastofnanir gera. Þó er tekið
fram að mikil óvissa ríki um þessa
spá vegna hins ótrygga ástands við
Persaflóa.
Fleira veldur óvissu og hættu-
merki sjást víðar en við Persaf-
lóann. „Þannig bendir margt til
þess, að ástand efnahagsmála í
Bandaríkjunum sé lakara en reikn-
að hafði verið með,“ segir í spánni,
en ekki er rakið frekar hvaða afleið-
inga sé að vænta úr þesasri átt.
Gert er ráð fyrir að sjávarafli
verði jafn mikill á föstu verðlagi
næsta ár og hann er á þessu ári.
Gert er ráð jýrir 3,5% aukningu
álframleiðslu hjá ÍSAL og óbreyttri
framleiðslu kísiljárns á Grundart-
anga. Þá er reiknað með að önnur
útflutningsframleiðsla aukist um
tæp 5%.
Gert er ráð fyrir svipuðu atvinnu-
leysi 1991 og á þessu ári, eða um
2%. Meðalatvinnuleysi í OECD
ríkjum í maímánuði síðastiiðnum
var 6% en nær 8,5% í aðildarríkjum
EB.
Ekki er tekið með í forsendur
þjóðhagsspár að framkvæmdir við
álver verði hafnar á næsta ári, þar
sem samningar þar um liggja ekki
fyrir. En þó eru reiknuð dæmi sem
taka tillit til framkvæmdanna og
greint _frá helstu niðurstöðum
þeirra. hrif álversframkvæmda eru
einkum talin verða 1992 til 1994.
1 athugasemdum segir svo um ál-
versframkvæmdir og áhrif þeirra á
ríkisbúskapinn: „Æskilegast væri,
verði farið út í þessar framkvæmd-
ir á annað borð, að hliðra til fram-
kvæmdum, draga úr þeim á árunum
1991-1993, en framkvæma þess í
stað meira 1994 og síðar. Þetta
mundi jafna eftirspurn í áldæminu
og draga úr sveiflum í hagvexti.
Slíkar ráðstafanir eru sérstaklega
æskilegar vegna þess að eftirspurn
vegna framkvæmdanna beinist
fyrst og fremst að byggingastarf-
semi. Það er raunar veikleiki þess
líkans sem notað er við þessa reikn-
inga að ekki er möguleiki á að taka
tillit til þessarar staðreyndar og því
er hætta á að verðbólguáhrif séu
vanmetin."
milli þeirra,“ sagði Guðmundur
Bjarnason.
Ágreiningur varð innan nefndar-
innar um hvernig skipa skuli í sam-
starfsráð sjúkrahúsannna. Meiri-
hluti nefndarinnar leggur til að ráð-
ið skipi fimm menn, einn fulltrúi
frá hverri stjórn sjúkrahúsanna,
einn frá fjái-veitinganefnd Alþingis
og einn fulltrúi frá heilbrigðisráð-
herra, ráðið skipti sjálft með sér
verkum. Fulltrúar Ríkisspítalanna í
nefndinni skiluðu séráliti hvað þetta
varðar. Þeir leggja til að í ráðinu
verði níu menn, fjórir skipaðir af
Alþingi, formenn stjórna spítal-
anna, einn frá borgarstjórn og einn
frá ráðherra. „Mér sýnist að eðlilegt
sé að Alþingi komi að þessu máli.
Hér er um að ræða stórar tölur,
níu miiljarða í fjárlagafrumvarpinu
eins og það liggur fyrir í dag, sem
þarf að skipta milli þessara stofn-
ana og það hlýtur að vera eðlilegt
að Alþingi eigi fulltrua í þeirri nefnd
sem þar kemur að máli,“ sagði
Guðmundur. „Ég geri því að tillögu
minni að tveir fulltrúar verði kosnir
af Alþingi, formenn stjórnanna
skipi þennan hóp, landlæknir eigi
aðild að honum sem sérfræðilegur
ráðunautur og síðan skipi heilbrigð-
isráðherra formann samstarfsráðs-
ins. Þetta yrði sjö manna nefnd ef
þessi niðurstaða verður ofan á,“
sagði heilbrigðisráðherra.
Hann sagðist telja að kveða
þyrfti nánar á um vekefni ráðsins.
„Það er að vísu sagt hér í tiliögun-
um að þau eigi að vera að móta
framtíðarstefnuna og gera þróunar-
og fjárfestingaráætlanir, en mín
hugmynd var sú að þetta ráð fjalli
nánar um fjárveitingarnar, fjalli um
fjárveitingabeiðnirnar þegar fjár-
lagafrumvarpið er í vinnslu og geri
síðan tillögu um skiptingu fjáiveit-
inganna á milli stofnananna. Mec
því móti sé auðveldara að ná utar
um þessa verkaskiptingu, gæti
fyllstu hagkvæmni og samhæfingai
og, kannski ekki síst, halda utar
um það hvaða sérfræðiþjónusts
verði veitt á hveiju sjúkrahúsannr
fyrir sig.“
Guðmundir sagði að á þessu stig
væri ekki hægt að svara því játand
hvort líta bæri á þessar tillögur sen
skref í þá átt, að setja sjúkrahúsir
í Reykjavík alfarið öll undir ein?
stjórn. „Við getum sagt að þetfc
sé skref í þá átt að um verði ein-
hvern tíma síðar að ræða eina stofn-
un, en við höfum séð það í þessi
nefndarstarfi að slíkt er ekki fyrii
hendi eins og er og um það ekkeri
samkomulag og það sé þess vegm
mikilvægt að koma slíku sam-
starfsráði á eins og hér er gerð til-
laga um,“ sagði hann. „Ég sé þa<
ekki fyrir mér í næstu framtíð aí
ein stjórn verði yfir þessu og þett:
verði orðin ein stofnun.“
Búist er við að hin nýja tilhögui
kalli á einhveijar viðbótarfjái'veit
ingar í byijun, þar sem ýmsar breyt
ingar þarf að gera á sjúkrahúsunun
í tengslum við breyttar áherslur
verkaskiptingu þeirra. En til lengf
tíma litið, segir Guðmundur Bjarna
son, ættu að sparast með þessi
fyrirkomulagi hundruð milljóna
króna á ári.
Hin nýja skipan takmarkar
reynd ekki vald einstakra stjórna
sjúkrahúsanna, að sögn ráðherra
en samstarfsráðið hefur þó yfii
þeim að segja varðandi skiptingu
fjármagns um leið og það hefui
eftirlit með mannaráðningum og
fjárfestingum. Náist ekki samstaðs
innan samstarfsráðsins, er gert rác
fyrir að ráðherra úrskurði um
ágreining.
Háskólinn á Akureyri;
Rannsókn á lífi og
kjörum inuka hafin
RANNSÓKNIR, sem Háskólinn á Akureyri er þátttakandi í ásamt
Mannfræðistofnuninni í París, um lifnaðarhætti á Norðurslóðum, eru
hafnar, en á vegum skólans vinnur dr. Magnús Magnússon atferlis-
fræðingur að verkefninu.
Haraldur Bessason rektor Há-
skólans á Akureyri sagði það mjög
mikilvægt fyrir skólann að vera
með í þessari rannsókn, þetta væri
gott tækifæri fyrir skólann að
kynna sig á erlendum vettvangi.
Rannsóknin er afar umfangsmik-
il, að sögn Haraldar, en á vegum
Háskólans á Akureyri er unnið að
einum þætti hennar. Sá þáttur nær
til lífs og kjara inuka á Austur-
Grænlandi. „Þetta verkefni er kom-
ið í gang og verður unnið stíft að
því á næstu sex mánuðum,“ sagð
Haraldur. »
Á síðasta ári var haldin í háskó-
lanum ráðstefnan Líf undir leiðar-
stjörnu og fjallaði m.a. um líf i
norðlægum slóðum. Á ráðstefnunn
kom til tals að vert væri að skólinr
léti meira að sér kveða varðand
þessi mál og er verkefnið m.a. til
komið í framhaldi af því.
Landsbanki íshnds hefur veít
háskólanum 200 þúsund krón;
styrk vegna rannsóknarinnar.