Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 4
4 FRETTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990
ERLENT
INNLENT
Ríkisstjórn
stendur tæpt
vegna
BHMR-laga
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
hefur ákveðið að greiða atkvæði
gegn frumvarpi til staðfestingar
bráðabirgðalögunum, sem sett voru
á samning BHMR í sumar.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra boðar þingrof og
kosningar falli bráðabirgðalögin á
þingi. Hann segíst ekki trúa því
að ábyrgir þingmenn felli frum-
varpið. Þorsteinn Páisson formað-
ur Sjálfstæðisflokksins segir að
ríkisstjórnin eigi nú þegar að fara
frá, þar sem hún hafi glatað meiri-
hluta á Alþingi. Mynda eigi nýjá
ríkisstjórn sem leita eigi eftir við-
ræðum við BHMR og aðra aðila
vinnumarkaðarins til að leysa
vandamál sem upp kynni að koma
öðlist samningur BHMR og ríkisins
gildi. Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins segir að
verði þing rofið sitji ríkisstjórnin
áfram sem starfsstjóm og geti sem
slík sett á ný bráðabirgðalög á
BHMR-samninginn. Forystumenn
samtaka atvinnurekenda gangrýna
þingflokk sjálfstæðismanna. Einar
Oddur Kristjánsson formaður
VSÍ segir að öllu starfi aðiia vinnu-
markaðarins til að hemja verðbólgu
sé stefnt í voða verði bráðabirgða-
.lögin ekki staðfest.
Kvóti fellur í verði
Verð á aflakvótum hefur fallið
vegna gæftaleysis og lélegrar veiði
i haust en samkvæmt lögum um
stjóm fiskveiða sem taka gildi um
áramót verður ekki hægt að færa
aflakvóta milli ára. Fyrir kíló af
þorskkvóta fást nú 25 krónur í stað
40 þegar verð var hæst.
Eidur í Landssímahúsi
Á annað hundrað milljóna tjón
varð í í bruna í Landssímahúsinu
við Austurvöll á laugardag. Þak
hússins brann en slökkvilið varnaði
því að eldurinn breiddist niður á
hæðir. Tækjabúnaður skemmdist
nokkuð af völdum vatns og urðu
talsverðar truflanir á símsambandi.
Mangan í hafinu
Margt bendir til að mikið finnist
af mangani í hafínu um 110 kíló-
metra suður af Reykjanestá. Fjár-
skortur stendur í vegi rannsókna
en leiðangurinn þar sem mangan
kom fram í sýni var kostaður af
útlendingum. • Eyjólfur Konráð
Jonsson alþingismaður segir að
strax verði að veija nægilegu fé
til rannsókna á því hvort mangan-
fundurinn geti haft hagnýtt gildi.
Tveggja sjómanna saknað
Dagbjarts M. Jónssonar, 45 ára og
Jónasar Sigfússonar, 18 ára, er
saknað með Jóhannesi HU 127,
4,5 tonna trillu sem lét úr höfn frá
Hvammstanga um hádegi á sunnu-
dag. Klukkan 18 sendi báturinn frá
sér neyðarkali og síðan hefur ekk-
ert til mannanna spurst þrátt fyrir
víðtæka Ieit en brak úr bátnum
hefur fundist.
ERLENT
Saddam Huss-
ein veittur
lokafrestur
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti á fimmtudagskvöld
ályktun þar sem írökum er veittur
frestur til 15. janúar til að kalla
innrásarlið sitt heim frá Kúvæt.
Verði þeir ekki við þessari áskorun
er Bandaríkjamönnum og banda-
mönnum þeirra við Persaflóa
heimilt að hrekja_hersveitir Sadd-
ams Hussein Iraksforseta frá
landinu með hervaldi í nafni Sam-
einuðu þjóðanna. Tólf ríki studdu
þessa ályktun, Kínveijar sem hafa
neitunarvald í Öryggisráðinu sátu
hjá, en Kúbanir og Jemenar
greiddu atkvæði gegn henni. Irak-
ar lýstu yfir því að þeir myndu
virða samþykktina að vettugi og
sögðu að áfram bæri að freista
þess að leiða Persaflóadeiluna til
lykta með friðsamlegum hætti.
Nýr forsætisráðherra í
Bretlandi
John Major
sigraði í seinni
umferð leiðtoga-
kjörs breska
íhaldsflokksins
sem fram fór á
þriðjudag. Hann
skorti aðeins tvö
atkvæði til að fá
hreinan meiri-
hluta og þegar sú niðurstaða lá
fyrir drógu keppinautar hans þeir
Michael Heseltine, fyrrum varn-
armálaráðherra, og Douglas
Hurd, utanríkisráðherra, sig í hlé.
Major tók við embætti forsætis-
ráðherra á miðvikudag og gerði
þá nokkrar breytingar á ríkis-
stjórninni. Heseltine var skipaður
ráðherra umhverfísmála og mun
í krafti þess embættis geta gert
breytingar á nefskattinum svo-
nefnda, sem Margaret Thatcher
kom á í forsætisráðherratíð sinni.
Hurd verður áfram utanríkisráð-
herra og Norman Lamont fjár-
málaráðherra en hann var áður
nánasti aðstoðarmaður Majors.
Þá var Chris Patten fyrrum
umhverfísráðherra skipaður form-
aður íhaldsflokksins í stað Ken-
neths Bakers sem hreppti emb-
ætti innanríkisráðherra.
Þjóðverjar veita
Sovétmönnum neyðaraðstoð
Þjóðveijar
hrundu á mið-
vikudag af stað
umfangsmikilli
áætlun um neyð-
araðstoð viið
Sovétríkin. Mik-
ið fé safnaðist
fyrstu dagana og fyrstu matar-
pakkarnir voru sendir til Moskvu
á fimmtudag. Að auki hafa yfír-
völd ákveðið að senda þúsundir
tonna af matvælum frá Beriín til
Sovétríkjanna en birgðum þessum
var á sínum tíma safnað vegna
ótta við Sovétmenn hefðu uppi
áform um að halda borgarbúum
í herkví líkt og gert var 1948-
1949. Míkhaíl Gorbatsjov, for-
seti Sovétríkjanna, fór á miðviku-
dag fram á það að afhendingu
friðarverðlauna Nóbles yrði fre-
stað en þeim átti hann að veita
viðtöku í Ósló 10. desember.
Ríkisstjórn Búlgaríu segir af
sér
Stjórn Andrejs Lúkanovs , for-
sætisráðherra Búlgaríu, sagði af
sér á fimmtudag eftir fjölmenn
mótmæli og verkföll stjórnarand-
stæðinga. Alvarlegur matvæla-
og eldsneytisskortur þjakar lands-
menn en sjálfur sagði forsætisráð-
herrann að verkalýðsfélög og and-
stæðingar Sósíalistaflokksins, áð-
ur Kommúnistaflokksins, hefðu
sameinast gegn umbótáætlun
ríkisstjórnarinnar.
Alnæmi:
Smituðum konum og
börnum fjölgar mest
Lundúnum. Reuter.
ALNÆMI er ekki lengur aðeins sjúkdómur homma og eiturlyfja-
sjúklinga - konum og börnum, sem smitast af honum, fjölgar nú
meira en öðrum hópum.
*
Iskýrslu Alþjóðaheilbrigðismála
stofnunarinnar (WHO), sem
gefin var út í gær, kemur fram
að þeim, sem smitast við kynmök
við maka af gagnstæðu kyni, fjölg-
ar nú meira en þeim sem taka
sjúkdóminn með öðrum Ieiðum.
Konur eru nú um þriðjungur
þeirra 8-10 milljóna manna um
heim allan sem smitast hafa af
alnæmisveirunni. Talið er að eftir
fimm ár verði jafn margar smitað-
ar konur og karlar.
„Talið er að nú séu þeir, sem
smitast hafa við kynmök við maka
af gagnstæðu kyni, meira en 60%
þeirra sem smitast hafa af alnæm-
isveirunni. Hins vegar er áætlað
að þetta hlutfall verði komið í
75-80% fyrir aldamót," segir í
skýrslunni.
Fjölgun smitaðra kvenna leiðir
til þess að þeim bömum sem smit-
ast fjölgar einnig, þar sem um 30%
barna þeirra fá veiruna. Um
400.000 böm em nú á skrám yfir
alnæmissjúklinga, segir í skýrslu
WHO. Stofnunin áætlar að 15-20
milljónir fullorðinna og 10 milljón-
ir bama muni hafa smitast fyrir
aldamót. Alnæmi verði ein af
helstu dánarorsökunum á næsta
áratug.
Afsögn Lúkanovs fagnað á götum Sofíu. Reuter
Sósíalistar í Búlgaríu
hrökklast frá völdum
ANDREJ Lúkanov, forsætisráðherra Búlgaríu, sagði galvaskur
fyrir viku að hann ætlaði að stjórna Iandinu áfram og ekki láta
mótmæli og verkföll fæla sig frá völdum. Þingið hafði samþykkt
fjárlagafrumvarp stjórnarinnar og vantrauststillaga stjórnarand-
stöðunnar hafði verið felld. En andstæðingum sfjórnarinnar var
nóg boðið. Hlutlausa verkalýðshreyfingin Podkrepa fór í verk-
fall á mánúdag, eins og hún hafði hótað ef Lúkanov yrði enn við
völd eftir helgina, og atvinnulíf í landinu lamaðist að hluta. Alþýð-
usambandið gekk til liðs við hreyfinguna á fimmtudag og þá
voru dagar Lúkanov-stjórnarinnar taldir. Mikil fagnaðarlæti brut-
ust út í höfuðborginni, gunnfánum Lýðræðisbandalagsins var
veifað og búlgarskir kommúnistar, sem nú kalla sig sósíaiista,
hrökkluðust loks frá völdum.
ingkosningarnar í Búlgaríu í
júní lægðu ekki ólguna sem
hafði ríkt í landinu siðan í nóv-
ember þegar Todor Zhívkov, leið-
togi Komm únistaflokksins, sagði
af sér éftir 35 ára valdasetu. Só-
síalistaflokkurinn, flokkur gömlu
kommúnistanna, hlaut meirihluta
í kosningunum. Talið er að stuðn-
ingur eldri kjósenda sem óttuðust
um ellilífeyrinn
og afleiðingar
of skjótra efna-
hagsaðgerða
hafi komið
honum til góða
auk þess sem
gamlir gæðingar Zhívkovs úti á
landi hafí sannfært marga um
ágæti þess að þeir yrðu áfram við
völd. Stúdentar og andkommún-
istar sættu sig ekki við úrslitin
og mótmæli af ýmsu tagi hafa
stöðugt átt sér stað í Sofíu, höfuð-
borg landsins, síðan í sumar.
Lúkanov var falið að mynda
stjórn eftir kosningamar en hann
hafði gegnt embætti forsætisráð-
herra frá því í febrúar. Stjórn
hans varð lítil ágengt og vanda-
mál þjóðarinnar jukust dag frá
degi. Matarskortur er verulegur,
rafmagn og olía eru af skornum
skammti, verðlag hækkar, atvinn-
uleysi eykst og félagskerfið er í
molum svo heilbrigðisþjónustunni,
til dæmis, hrakar óðfluga. Bilið
milli ríkra og fátækra í landinu
hefur breikkað og andstæðingar
stjómarinnar segja að gamla for-
réttindastéttin
njóti enn lífsins
á meðan
óbreyttir borg-
arar megi
þakka fyrir að
fá kjöt í soðið.
Lúkanov sagði fyrst eftir kosn-
ingarnar að hann ætlaði að mynda
samsteypustjórn en honum tókst
ekki að fá stjórnarandstöðuna til
samstarfs við sig. Stoyan Ganev,
talsmaður Lýðræðisbandalagsins,
sagði að fulltrúar flokka og hreyf-
inga í því kærðu sig ekki um að
eiga sæti í sömu stjórn og ein-
staklingar sem hefðu tekið þátt í
einræðisstjóm ríkisins. Lúkanov
gegndi mörgum embættum í tíð
Zhívkovs og var meðal annars
höfundur stefnu stjórnar hans í
utanríkisviðskiptum. Hún reynd-
ist ekki betur en svo að þjóðin
situr nú uppi með 10 milljarða
dollara (540 milljarða ÍSK)
skuldabagga sem henni er ókleift
að greiða. Hann er sagður hafa
verið umbótasinni í Kommúnista-
flokknum og verið einn af þremur
sem boluðu Zhívkov frá. Hinir
tveir voru Dobri Dzhurov, fv.
varnarmálaráðherra, og Petar
Mladenov, fv. forseti. Lúkanov
lagði ráðherralista sinn loks fyrir
þingið í lok september. Aðeins 3
af 18 ráðherrum voru óflokks-
bundnir, hinir voru allir úr gamla
Kommúnistaflokknum.
Lýðræðisbandalagið kom einn-
ig í veg fyrir samsteypustjórn með
því að krefjast þess að það fengi
forsætisráðheiraembættið, mikil-
vægustu ráðherraembættin og að
stjórnin fylgdi efnahagsumbóta-
stefnu þess sem er í anda skjótra
aðgerða eins og í Póllandi. Sósíal-
istaflokkurinn, sem hefur meiri-
hluta á þingi þó nýjustu skoðana-
kannanir sýni að vinsældir hans
hafi dvínað, gekk ekki að þessu.
Nú hefur hann gefist upp við að
stjórna landinu og flokkarnir
komið sér saman um að óflokks-
bundinn aðili myndi nýja stjórn
fram að kosningum sem ákveðið
hefur verið að halda í vor. Atvinn-
ulíf hófst að nýju á föstudag en
vandi þjóðarinnar er langt frá því
að vera leystur og má fullyrða
að erfiður vetur sé framundan.
BflKSVIÐ
eftir Önnu Bjamadóttur