Morgunblaðið - 02.12.1990, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 02.12.1990, Qupperneq 43
43 18.18 Að utan. (Einnig útvarpaö eftir fréttir kl. 22.07.) 18.30 Auglýsingar. Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.35 Um daginn og veginn. Jóna Höskuldsdóttir hjúkrunarfræðingur talar. 19.50 islenskt mál. Gunnlaugur Ingólfsson flytur. TONLISTARUTVARP KL. 20.00 - 22.00 20.00 i tónleikasal. Frá tónleikum Tríós Reykjavíkur og félaga þeirra Ronalds Neals, Gayane Mana- sjans og Unnar Sveinbjarnardóttur i Hafnarborg 2. september siðastliðinn. Seinni hluti. - Kvintett i C-dúr ópus 163, eftir Franz Scbu- bert. 21.00 Sungið og dansaö í 60 ár. Svavar Gests rekur sögu íslenskrar dægurtónlistar. (Endurtek- inn þáttur frá sunnudegi.) KVOLDUTVARP KL. 22.00 - 01.00 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. (Endurtekinn frá 18.18.) 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Orð kvöldsins. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Árdegisútvarp liðinnar viku. (Endurtekið efni.) 23.10 Á krossgötum. Þegar alvara lifsins tekur við, þéttur fyrir ungt fólk. Umsjón: Þórarinn Eyfjörö. 24.00 Fréttir. 0.10 Miðnæturlónar. 1.00 Veöurfregnir. 1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. RÁS2 FM 90,1 7.03 Morgunútvarpiö. Vaknað til lifsins. Leifur Hauksson og félagar hefja daginn með hlustend- um. Upplýsingar um umferð kl. 7.30 og litið í blöðin kl. 7.55. 8.00 Morgunfréttir. Morgunútvarpið helduráfram. „Útvarp, ÚWarp", útvarpsstjóri: Valgeir Guðjóns- son. 9.03 Niu fjögur. Dagsútvarp Rásar 2, fjölbreytt dægurtónlist og hlustendaþjónusta. Umsjón: Jóhanna Harðardóttir og Magnús R. Einarsson. 11.30 Þarfaþing. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Niu fjögur. Dagsútvarp Rásar 2 heldur áfram. 14.10 Gettu beturl Spurningakeppni Rásar 2 með verðlaunum. Umsjónarmenn: Guðrún Gunn- arsdóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir og Gyða Dröfn Tryggvadóttir. 16.03 Dagskrá. Starfsmenn dásgurmálaútvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál dagsins. 18.03 Þjóðarsálin — Þjóðfundur í beinni útsend- ingu, simi 91 - 68 60 90. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Gullskifan. 20.00 Lausa rásin. Útvarp framhaldsskólanna. Aðal tónlistarviðtal vikunnar. Umsjón: Hlynur Hallsson og Oddný Eir Ævarsdóttir. 21.00 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. 22.07 Landiö og miðin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar víð hlustendur til sjávar og sveita. (Úr- vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.) 0.10 I háttinn. 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Sunnudagssveiflan. Endurlekinn þáttur Gunnars Salvarssonar. 2.00 Fréttir. Sunnudagssveiflan Þáttur Gunnars Salvarssonar heldur áfram. 3.00 í dagsins önn - Bókasöfnin, hugans auð- lind. Umsjón: Hallur Magnússon. (Endurtekinn þáttur frá deginum áður á Rás 1.) 3.30 Glefsur. Urdægurmálaútvarpimánudagsins. 4.Ó0 Vélmennið. leikur næturlög. 4.30 Veðurfregnir. Vélmennið heldur áfram leik sínum. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 5.05 Landið og miöin. Sigurður Pétur Harðarson spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur- tekið úrval frá kvöldinu áður.) 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Morguntónar. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland. AÐALSTÖÐIN FM 90,9 / 103,2 7.00 Á besta aldri. Umsjón Ólafur Tr. Þórðarson. Kl. Létt tónlist i bland við gesti í morgunkaffi. 7.00 Morgunandakt. Sérs Cesil Haraldsson. 9.00 Morgunverk Margrétar. Umsjón Margrét Hrafnsdóttir. Kl. Heiðar, heilsan og hamingjan. 9.30 Húsmæðrahorniö. Kl. 10.00 Hvað gerðir þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér. Kl. 10.30 Mitt útlit - þitt útlit. Kl. 11.00 Spak- mæli dagsins. kr. 11.30 Slétt og brugðið. 12.00 Hádegisspjall. Umsjón Helgi Pétursson. 13.00 Strætin úti að aka. Umsjón Ásgeir Tómas- son. Kh 13.30 Gluggað í síðdegisblaðið. Kl. 14.00 Brugð- ið á leik j dagsins önn. Kl. 14.30 Saga dagsins. 15.00 Topparnir takast á. Kl. 15.30 Efst á baugi vestanhafs. Kl. 16.15 Heiðar, heilsan oghamingj- an. (Endurtekið frá morgni). 16.30 Akademian. Kl. 16.30 Mitt -bjartans mál. Kl. 18.30 Smásögur. Inger Anna Aikman les valdar smásögur. 19.00 Kvöldtónar. Umsjón Halldór Baokman. Ljúfir kvöldtónar. 22.00 í draumalandi. Umsjón Ragna Steinun Ey- jólfsdóttir. Draumar hlustenda ráðnir. 24.00 Nærurtónar Aðalstöðvarinnar. Umsjón Rand- ver Jensson. ALFA FM 102,9 8.45 Morgunbæn. Tónlist. 10.00 ísrael - landið. Ólafur Jóhannesson. 13.30 Alfa-fréttir. Tonlist. 16.00 „Svona er lifið" Ingibjörg Guönadóttir. 17.00 Dagskrórlok. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Eirikur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar. 9.00 Páll Þorsteinsson. Starfsmaður dagsins val- inn kl. 9.30. 11.00 Valdis Gunnarsdóttir. Afmæliskveðjur og óskalögin. Hódegisfréttir sagðar kl. 12. 14.00 Snorri Sturluson. Vinsældarlistapopp. 17.00 ísland í dag. Jón Ársæll Þórðarson. Viðtöl og simatímar hlustenda. Kl. 17.17 Siðdegisfréttir. 18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson og kvöldmatar- tónlistin. 22.00 Kristófer Helgason. Oskalög og kveðjurnar. MOHGCJNULAÐID xmiARPisiómAÉfmméVÆ i DESEMBERI >1990 23.00 Kvöldsögur. Siminn er opinn og frjálst að tala um allt milli himins og jarðar. 24.00 Kristófer Helgason áfram á vaktinni. 2.00 Þráinn Brjánsson á næturvakt. EFF EMM FM 95,7 7.30 Til í tuskið. Jón Axel Olafsson og Gunnlaug- ur Helgason. 8.00 Morgunfréttir. Gluggað í morgunblöðin. Kl. 8.20 Textabrotið. Kl. 8.40 Frá hinu opinbera. Kl. 8.£0 Stjörnuspá. Kl. 8.55 Frá hinu opinbera. 9.00 Fréttayfirlit. Kl. 9.20 Textabrot. Kl. 9.30 Kvik- myndagetraun. Kl. 9.50 Frá hinu opinbera. Stjörnuspáin endurlekin. Kl. 10.00 Fréttir. KL 10.03 ívar Guðmundsson, seinnihálfleikur morg- unsins. Kl. 10.30 Getraun. Kl. 11.45 Hvað er að ske? 12.00 Hádegisfréttir. Kl. 13.00 Ágúst Héðinsson. Kl. 14 Fréttayfirlit. Kl. 14.30 Getraun Kl. 15.00 Úrslit í getraun dagsins. 16.00 Fréttir. Kl. Anna Björk Birgisdóttir. Kl. 16.30 Fyrrum topplag leikið og kynnt sérstaklega. Kl. 17.00 Áttundi áratugurinn. Kl. 18.00 Fréttayfirlit dagsin Kl. 18.30 Flytjandi dagsins. Hljómsveit eða listamaður tekinn fyrir, ferillinn kynntur og eitt vinsælt lag með viðkomandi leikið. Kl. 18.45 I gamla daga. sérstaklega. 19.00 Breski og Bandariski listinn. Vilhjálmur Vil- hjálmsson kynnir 40 vinsælustu lögin í Bretlandi og Bandarikjunum. 22.00 Jóhann Jóhannsson á rólegu nótunum. ÚTVARP RÓT FM 106,8 10.00 Fjör við fóninn. 12.00 Tónlist. 14.00 Daglegt brauð. Birgir örn Steinarsson. 17.00 Tölvurót. Tónlístarþáttur. 19.00 Nýliðar. Umsjónarmenn að þessu sinni Vign- ir og Kjartan. 20.00 Óreglan. Hljómsveitin Pandóra kemur i heim- sókn og nýjasta plata þeirra verður kynnt. Um- sjónarm. Friðgeir Eyjólfsson. 22.00 Kiddi i Japis með þungarokkið á fullu. 24.00 Næturtónlist. STJARNAN FM 102/104 7.00 Dýragarðurinn. Klemens Arnarson. 11.00 Bjarni Haukur með splunkunýja tónlist. 11.00 Geðdeildin II. Umsjón: Bjarni Haukur og Sig- urður Helgi. 12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. 14.00 Sigurður Ragnarsson. 17.00 Björn Sigurðsson. Klukkan 18.00-19.00 á bakinu með Bjarna! 20.00 Jóhannes B. Skúlason, Vinsældarpopp. 22.00 Arnar Albertsson. ÚTRÁS FM 104,8 16.00 MS 18.00 Framhaldsskólafréttir. 20.00 MH 18.00 FB 22.00 IR Stöð 2= Tony Campise og félagar ■B Alt-saxófónleikarinn 00 Tony Campise var unglingur þegar ferill hans hófst. Hann er fæddur í Houston, Texas og lék með skólahljómsveitum meðan hann var í menntaskóla auk þess sem hann nam hjá Byron Hester. Þjálfun og nám Tony í sígildri tónlist og óslökkvandi áhugi hans á jass tónlist urðu til þess að hann hlaut mjög ijölbreytta þjálfun með ýmsum ólíkum hljómsveitum. Tony tókst að vekja athygli Jimmy Ford sem mælti með honum við Stan Kenton. í kjölfar nokkurra tónleika um heimsbyggðina ávann Tony sér að- dáun gagnrýnenda sem og annarra tónlistarmanna í jassgeiranum. Hann gaf út tvær plötur ásamt hljómsveit Stan Keatons auk þess sem hann gaf út lagið „Hog Fat Blues“ á eigin vegum. Hann yfir- gaf Stan Keaton-bandið og gerðist forstöðumaður jass-deildarinnar við Houston háskólann. Þetta gaf honum tíma til að sinn sínum eig- in lögum auk þess sem hann lék með Söruh Vaughan, Court Basie og Ellis Marsalis. í þessum þætti leikur Tony Campise af fingrum fram ásamt þeim Bill Ginn á píanó, Evan Arredeondo á bassa og AlBuffMannion á trommur. Seinni hluti er á dagskrá mánudagskvöldið 17. desember. Öllum þeim, sem komu til okkar eða sýndu okkur hlýhug á annan hátt í tilefni áttrœbisaf mœlisins, sendum við bestu þakkir og kveÖjur. GuÖ blessi ykkur öll um ókomna tíð. Karl ogAnna, Giljaseli 5. Gerist sjálfboðaliðar hjá UFF í Skandinavíu „U-landshjælp fra Folk til Folk" stuðlar að atvinnu, heilbrigði og menntun í sunnanverðri Afríku UFF í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi leitar að: ★ Vöruflutningabílstjórum til að safna saman gjafafötum. ★ Fólki til að flokka föt til Afríku. ★ Fólki til að flokka föt í verslanir UFF með notuð föt og fl. ★ Umboðsmönnum til að kynna UFF. ★ Fólki til viðgerða á fatasöfnunargám- um. ★ Fólki til afgreiðslu íverslunum með notuð föt og fl. Gerist sjálfboðaliðar í ár. Skrifaðu á ensku eða dönsku og sendu með upplýsingum um nafn, heimiiisfang, síma- númer, aldur, menntun, reynslu og hversvegna þú vilt gerast sjálfboðaliði hjá UFF, til: Frivillig i UFF, Manufaktur- gatan 2, 417 07 Göteborg, Sverige. Gárur eftir Elínu Pólmadóttur Barist við tölvumyllur „Byrjar nú þessi andskoti aft- ur?“ varð norskum skósmið að orði er hann sá að hann hafði fengið stóra vinninginn í happ- drættinu. Slíkan vinning hafði hann hlotið einu sinni áður. Þá lagt frá sér leista og hamar og tekið til við að eyða og njóta lífsins. Eftir eitt allsheijar kallass um langan tíma var féð uppurið og skósmiðurinn gat aftur tekið í rólegheitum til við sína iðju. „Byijar nú þessi andskoti aft- ur“, hraut nú af vörum Gáruhöf- undar. Af allt öðru tilefni. Ánægjan er þó blandin, eins og hjá skó- smiðnum. Kitlai; obbo- lítið hégóma- taugina þeg- ar óvænt kemur fram að gömul af- rek reynast ógleyman- leg. Mættu þó vel geym- ast í minn- ingargreinina eða sjálfshólið í ævisögunni. Þótt bardagi Donkí- kóta við vindmyllur sé skemmti- legur aflestrar, þá skortir þennan skrifara hugsjónaeld og úthald þess mæta riddara til ámóta gagnslausrar viðureignar við tölvumyllurnar. Hremmingin hófst líklega á árinu 1983 eða 1984. Þá tók að berast í háhýsið við Aðalstræti 6, þar sem auk Morgunblaðsins eru til húsa aðskiljanleg stórfyrir- tæki, gluggapóstur frá skatt- stjóra einum í nágrannabyggðar- lagi. Hann var merktur Reykja- nesfólkvarigur. Ekki kannaðist Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna við að reka slíkt frystihús. Heldur ekki saltfiskframleiðendur. Og ekki fundu tryggingarfélagið eða lögfræðiskrifstofan slíkan við- skiptavin. Þegar bréfin komu til Morgunblaðsins könnuðust menn við að einn af starfsmönnum fyr- irtækisins, Elín Pálmadóttir, hafði í mörg ár staðið í stórræð- um við að stofna fólkvang með því heiti og verið þar um árabil stjórnarformaður. Þar lentu bréf- in. Upplýstist semsagt að Reykjanesfólkvangur er rekinn í samvinnu 13 sveitarfélaga á Reykjanesskaga og á ábyrgð jafnmargi'a sveitarstjórna. Ekk- ert þeirra með heimilisfang í Aðalstræti. Og Morgunblaðið hafði aldrei tekið áð sér rekstur hans, þótt seinna væri farið að merkja póstinn blaðinu — engum ákveðnum aðila þar. Af alkunnri stillingu trítlaði undirrituð í fyrstu jafnóðum með póst Reykjanesfólkvangs inn í Skúlatún, til Björns Höskulds- sonar verkfræðings hjá borgar- verkfræðingi, sem sá óg sér enn um umsýslu fyrir téðan fólkvang. Fyrstu árin var haft fyrir því að hringja og leiðrétta þessa villu og loks að skrifa i viðkomandi stofnanir. Þeim óstýrilátu appír- ötum tölvum um kennt og lofað leiðréttingu. Loks með hvassyrtu bréfi með endursendingu á gluggabréfunum. Iuoks virtust tölvustjórar hafa lært að taka út úr tölvum það sem þeir einu sinni höfðu fundið af hugviti sínu upp á að setja inn í þær. Loks linnti í nokkur ár. Þar til einn morgun í sumar að bunki af stjórnunartímariti einu lá á skrifborðinu, merkt Reykjanes- fólkvangur. Því var komið til skila, þótt eigandi skrifborðsins sé löngu hættur formennsku stjórnar í téðum fólkvangi. Með skammdeginu æstist leikurinn. Reynslunni ríkari varð nú við- bragðið strax harðara. Enda riddarinn ákveðinn í verða ekki ævilangt bréfberi aðskiljanlegra opinberra stofnana. Fyrsta eða öðru bréfínu í bréfaröðinni var því ekki ekið inn í Skúlatún held- ur endursent til skattstjóra í Reykjavík með heldur hvassyrtri nótu. En það reynist bara byijun- in. Á eftir koma bréf frá Hita- veitu, Landssíma og guð má vita hvað, öll send í húsið þar sem vinnuveitandi löngu fráfarins formanns er til húsa og ratar þaðan leið til hans. Nú mun þeim bréfum, hótunarbréfum sem öðr- um, verða stungið í umslag og send Birni Höskuldssyni, hótun- arbréfunum vísast allt of seint eftir allan flækinginn á þeim. En þótt það hlýi obbolítið um hjarta- rætur að öll þessi fyrirtæki skuli ekki geta gleymt því að á því herrans ári 1973 beitti þessi skrifari sér fyrir stofnun Blá- fjallafólkvangs og í kjölfarið að ná sveitarfélögunum saman um stofnun Reykjanessfólkvangs, þá stígur riddarinn hérmeð af hest- inum og hættir að beijast við vindmyllur. Birtist fleiri slík bréf fara þau í bréfakörfuna.’ Þessi skrifari er lagstur í jólabækurnar hveija lausa stund. Það er svo miklu skemmtilegra. í fyrstu jólabók þessa hausts var ekki í kot vísað. Byijað var á bókinni hennar Fríðu Á. Sigurð- ardóttur, „Meðan nóttin líður“, sem segir_ frá fimm kynslóðum kvenna á íslandi. Sagan svo vel ofin og vel skrifuð að ég vil kalla hana mefstaraverk. Sem minnir á annað verk þessa hausts, leik- rit Hrafnhildar Hagalín Guð- rnundsdóttur, Meistarann. Þótt lítt miði íslenskum konum á öðr- um vettvangi í samkeppninni, þá er óneitanlega gaman að í bók- menntunum skuli koma fram eft- ir konur á íslandi slík verk, sem gnæfa upp úr. Þótt höfundar flokki verk sín sjálfsagt ekki sem kvennabókmenntir, sem þau raunar eru ekkert endilega, þá sýna þær báðar hávaðalaust og væluláust betur en flest önnur, innlend og erlend verk, hvernig staða kvenna verður alltaf ein- hvern veginn undir, hvernig sem aðstæður þeirra og viðbrögð voru eða eru í nútímanum. Svo heldur maður áfram að ráðast á bun- kann. Og horfir með tilhlökkun fram á að tvær heilar helgar hanga á jólum og áramótum með góðum tíma til lestrar jólabók- anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.