Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 8
&
W6I ÍJ
M0RGUNBLADID DAGBOK luNNL'DAGUR 2. DE5EMBER
Í99Ö
\ /^sunnudagur 2. desember, fyrsti sunnudagur í
i UlWJ jólaföstu/aðventa. Árdegisflóð í Reykjavík kl.
5.49 og síðdegisflóð kl. 18.12. Pjara kl. 12.10. Sólarupprás
í Reykjavík kl. 10.47 og sólarlag kl. 15.46. Myrkurkl. 16.57
Sólin er í hádegisstað í Reykjavík kl. 13.17 og tunglið er í
suðri kl. 0.56 (Almanak Háskóla íslands.)
Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt, og þeim er
við engri hrösun hætt. (Sálm. 119,165.)
ÁRNAÐ HEILLA
HJÓNA-
BAND. Gefin
hafa verið
saman í hjóna-
band í Víði-
staðakirkju
Rannveig
Grétarsdóttir
og Sigmund-
ur Jóhannes-
son. Heimili
þeirra er í
Breiðvangi 5,
Hafnarfirði.
Sr. Sigurður
Heigi Guð-
mundsson gaf
þau saman.
(Ljósm. Sigr.
Bachmann)
FRÉTTIR/MANNAMÓT
í DAG er fyrsti sunnudagur
i jólaföstu/aðventu. Jóla-
fastan eða aðventan hefst
með 4. sunnudegi fyrir jóla-
dag, þ.e. 27. nóv. — 3. des.
segir í Stjömufræði/Rím-
fræði. Þar segir að nafnið
aðventa sé dregið af latneska
orðinu adventus: koma Krists,
og skírskotar til jólanna, sem
framundan eru.
LAUNASJÓÐUR rithöf-
unda. Hinn 31. desember
rennur út umsóknarfrestur
um starfslaun úr Launasjóðí
rithöfunda, segir í frétt frá
sjóðsstjóminni í Lögbirtinga-
blaðinu. Sjóðurinn er í tengsl-
um við menntamálaráðuney-
tið og þar eru eyðublöðin sem
umsækjendur eiga að fylla
út. Rétt til greiðslu úr sjóðn-
um eiga íslénskir rithöfundar
og höfundar fræðirita. Heim-
ilt er að greiða laun fyrir
þýðingar á íslensku segir í
tilkynningu sjóðsins. Starfs-
laun era sömu og byijunar-
laun menntaskólakennara og
veitt frá 2 og lengst 9 mán-
uði í senn.
FÉLAG eldri borgara. í dag
er opið hús í Goðheimum við
Sigtún kl. 14. Frjáls spila-
mennska og tafl, og dansað
kl. 20. Mánudag er opið hús
í Risinu, Hverfisgötu 105, frá
kl. 14. Skáldakynning kl. 15.
Nokkur skáld lesa úr verkum
sínum, sem út koma um jólin.
Miðvikudagskvöldið kemur
verður umræðufundur í Ris-
inu. Rætt verður um lífeyris-
málin og almannatryggingar.
Benedikt Davíðsson mun
svara fyrirspumum varðandi
málið.
SKJÖL í 800 ár, sem er sýn-
ing Þjóðskjalasasfnsins í
Bogasal Þjóðminjasafnsins,
er opin um þessa helgi kl.
11-16 og á sama tíma þessa
daga til 9. des: þriðjud.
fimmtud. og um næstu helg-
ar, laugard. og sunnud.
BÚÐARDALUR í tilkynn-
ingu í Lögbirtingi frá heil-
brigðis- og tryggingaráðu-
neytinu segir að Sigurbirni
Sveinssyni lækni, hafí verið
veitt lausn frá störfum heilsu-
gæslulæknis i Búðardal frá
næstu áramótum að telja, að
eigin ósk.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 hremmum,
5 hús 8 hafa orð á, 9 álíti,
11 kistan, 14 þegar, 15 fúi,
16 bein, 17 sefa, 19 mergð,
21 hina, 22 sælgæti, 25 bekk-
ur, 26 aula, 27 kyrri.
LÓÐRÉTT: — 2 reykja, 3
sár, 4 álítur, 5 hrygla, 6 ílát,
7 þreyta, 9 drembilætis, 10
era falin, 12 undirokaðir. 13
synjaði, 18 beltið, 20 svik, 21
árið, 23 á fæti, 24 frumefni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 ágæta, 5 sálar, 8 íraks, 9 öldum, 11 raska,
14 ala, 15 vogar, 16 1 ærir, 17 ill, 19 náin, 21 efað, 22
náttaði, 25 aka, 26 átt, 27 nýr.
LÓÐRÉTT: - 2 gil, 3 tíu, 4 armari, 5 skrall, 6 ása, 7 ask,
9 örvænta, 10 döggina, 12 skrefin, 13 afræður, 18 létt, 20
ná, 21 eð, 23 tá, 24 at.
KVENFÉLAG Laugarnes-
sóknar. Jólafundur fyrir fé-
lagsmenn og gesti þeirra
verður annaðkvöld og hefst
með helgistund í kirkjunni kl.
20. Bjöllukór kirkjunnar kem-
ur fram, undir stjóm Ronalds
Turnes. Félagskonur skipt-
ast á dálitlum jólapökkum.
TVÍBURAMÖMMUR ætla
að hittast á mánudaginn með
börn sín í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn í Grafarvogshverfi
kl. 15-17. Guðfinna Eydal
mun ræða um málefni-
tvíbura. Þessi samverastund
er öllum opin sem áhuga hafa.
Kaffi verður borið fram.
BREIÐFIRÐINGAFÉL. Fé-
lagsvist verður spiluð í dag í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14, kl. 14.30.
TANNLÆKNAR. í tilkynn-
ingu heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins í Lög-
birtingablaðinu segir að tann-
læknamir Guðbjartur Hólm
Guðbjartsson og Kristín J.
Geirmundsdóttir hafi fengið
leyfí til að stunda tannlækn-
ingar.
KÓPAVOGUR. Kvenfélaga-
samband Kópavogs heldur
jólakökubasar í dag í Hákoti,
sem er í félagsheimili Kópa-
vogs. Jafnframt verður á
samatímakl. 15-18 jólakaffí-
sala. Ágóðinn rennur til lista-
verks eftir Gerði Helgadóttur,
en nú er verið að vinna við
það.
HVÍTABANDSKONUR
halda árlegan jólafund nk.
miðvikudagskvöld kl. 19.30 á
Hallveigarstöðum. Félags-
konur eru beðnar að tilkynna
þátttöku til: Kristínar s.
17193, Elínar s. 615622 eða
til Rutar s. 76719.
GARÐABÆR. Kvenfél.
Garðabæjar heldur jólafund-
inn nk. þriðjudagskvöld kl.
20.30 í Garðaholti.
HÁTEIGSSÓKN. Kvenfél.
Háteigssóknar heldur jóla-
fund nk. þriðjudagskvöld í
Sjómannaskólanum og hefst
kl. 20 með því að jólamatur
verður borinn á borð. Félags-
konur ætla að skiptast á jóla-
pökkum. Stjórnarkonur gefa
nánari upplýsingar.
FRÍKIRKJAN, Reykjavík.
Jólafundur Kvenfélags
Fríkirkjunnar í Reykjavík
verður haldinn í Lækjargötu
14 nk. fímmtudagskvöld kl.
19.30 og hefst með borð-
haldi. Þar verður skipst á jóla-
pökkum og fram fer skyndi-
happdrætti.
SJÁLFSBJÖG. í dag kl.
14r17 verður jólabasar í Há-
túni 12.
HAFNARFJÖRÐUR. Kven-
fél. Fríkirkjunnar heldur jóla-
fundinn í kvöld kl. 20 í Skút-
unni. Jólakaffí, jólahapp-
drætti og skemmtiatriði.
ITC-deildir. ITC-deildin íris,
Hafnarfírði, heldur jólafund-
inn mánudagskvöld kl. 20.15
á Hjallabraut 9. Skipst verður
á jólapökkum. Fundurinn er
öllum opinn og veitir Karen
Gústavsdóttir s. 52574 nánari
upplýsingar. ITC-deildin Ýr
heldur jólafund í Síðumúla 17
mánudagskvöld kl. 20.30 og
er hann öllum opinn. Nánari
upplýsingar veita Anna s.
611413 eðaVigdís s. 667622.
KVENFÉL. Heimaey heldur
jólafundinn nk. fímmtudags-
kvöld kl. 19.30 í Holyday Inn
og hefst með jólahlaðborði.
Efnt til skyndihappdrættis.
Þær Sísí s. 73967, Björk s.
52134 eða Halla s. 656242
taka á móti þátttökutilkynn-
ingum.
HJÁLPRÆÐISHERINN
heldur flóamarkað nk. þriðju-
dag og miðvikudag, fata-
markaður kl. 10-17 báða dag-
ana.
HEIMILISIÐNAÐARFÉ-
LAG íslands heldur jólafund-
inn í dag á Laufásvegi 2 og
hefst hann kl. 14.
SLYSAVARNAKONUR í
Reykjavík ætla að hittast í
húsi SVFÍ á Grandagarði
mánudagas- og þriðjudags-
kvöld kl. 19 til að baka laufa-
brauð og til undirbúnings
jólamarkaðar sem verða á um
næstu helgi.
KÖKU- og jólabasar
Hringsins í Hafnarfirði er í
dag í Góðtemplarahúsinu og
hefst hann kl. 15.
KIRKJA_______________
ÁRBÆJARKIRKJA:
Æskulýðsfélagsfundur í
kvöld kl. 20. _ Foreldrar
ungra barna í Ártúnsholti.
Opið hús þriðjudagsmorgna
kl. 10-12 í safnaðarheimili
Árbæjarkirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í dag kl. 5.
GRENSÁSKIRKJA: Fundur
í Æskulýðsfélagi Grensás-
sóknar í kvöld kl. 20.
NESKIRKJA: Æskulýðs-
starf mánudag fyrir 13 ára
og eldri kl. 19.30.Þriðjudag:
Mömmumorgun. Opið hús
fyrir mæður og börn þeirra
kl. 10-12. Dóra Ingvarsdóttir
ijallar um fjárhagslegt sjálf-
stæði kvenna. Æskulýðs-
starf fyrir 10-12 ára þriðju-
dag kl. 17.
FELLA- og Hólakirkja.
Fundur í æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30.
SELJAKIRKJA: Mánudag:
Fundur KFUK, yngri deild
kl. 17.30, eldri deild kl. 18.
Æskulýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Opið hús fyrir
10-12 ára mánudag kl. 17.
Opið hús fyrir foreldra ungra
barna þriðjudag kl. 15-17.
MIIMIMINGARSPJÖLD
MINNINGARKORT Fél.
velunnara Borgarspítalans
fást í upplýsingadeild í and-
dyri spítalans. Einnig eru
kortin afgreidd í síma
696600.
MINNINGARKORT Minn-
ingarsjóðs sr. Páls Sigurðs-
sonar til styrktar Hólskirkju
í Bolungarvík eru til sölu hjá
formanni Bolvíkingafél. í
Reykjavík s. 52343.
ORÐABOKIN
Fótaferðartími
Eftirfarandi má lesa í DV
18. okt. 90, þar sem segir
frá innbrotum í mannlausár
bifreiðir: „Ungur maður er
talinn hafa brotið rúður og
stolið úr sjö bílum sem stóðu
við Skeifuna 17 um kvöld-
matarleytið í gær.“ Frá-
sögnin endar svo á þessum
orðum. „Innbrotin eru flest
framin á fótaferðartíma" —
Ljóst er, að blm. á við þann
tíma, sem menn eru al-
mennt á ferli. Hins vegar
hefur fótaferðartími verið
skilinn sem sá tími, þegar
menn faraá fætur að
morgni, að vetrinum á sjö-
unda eða áttunda tímanum,
segir Guðbjörg Jónsdóttir í
Broddanesi á Ströndum í
minningum sínum. Elzta
frá Fjölnismönnum 1835 og
mörg eftir það. Dæmi era
til um fótaferð = fótavist
frá 17. öld og allt fram á
hina 20., en einnig táknar
orðið það að fara á fætur
að morgni, enda segir svo
beinlínis í OM. Þannig held
ég líka flestir skilji þetta orð
enn í dag. Þess vegna er
ótækt, þegar fjölmiðlafólk
fer að nota no. fótaferð í
annarri merkingu en tíðkazt
hefur. Hér hefði blm. t.d.
hæglega getað sagt sem
svo: Innbrotin eru flest
framin á þeim tíma, sem
fólk er á ferli, enda gerðist
áðurgreindur atburður svo
seint á degi sem um kvöld-
matarleytið. — JAJ