Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDÁGUR 2. DESEMBER 1990
Víðast 'hvar er unnið á tvískiptum vöktum í síldinni - samtals 18 tíma á sólarhring og allar helgar. Morgunbiaðið/Svernr
ÞROTLAUS VINNA OG SÉRKENNILEGT ANDRÚMS-
LOFT YFIR SÍLDARVERTÍÐINNIÁ AUSTFJÖRÐUM
eftir Ómar Fríðriksson
„SÍLDARSÖLTUNIN hefur brugðist. Ef
ekki tekst að semja við Rússa um kaup á
saltsíld er þetta síldarævintýri búið að vera,“
g-ellur í ungnm pilti á lyftara, sem keppist
við löndun úr Hólmatindi SU á Eskifirði.
Skipið var að koma inn með 80 tonna afla,
mestmegnis þorsk, og öll vinnsla í húsinu í
fullum gangi. En það er síldin og loðnan sem
allt snýst um í sjávarplássunum á Austfjörð-
um þegar við vorum þar á ferð á dögunum.
Óvissa í loðnuveiðum veldur þó meiri
áhyggjum en síldarkaup Rússa enda afger-
andi undirstaða í atvinnurekstrinum víðast
hvar. Margar stærstu vinnslustöðvarnar söð-
luðu um þegar síldarsöltunin brást og kepp-
ast við að frysta síld á Japansmarkað. Verka-
fólkið vinnur á tvískiptum vöktum - byrjar
klukkan fjögur á nóttunni og svo er unnið
til tíu á kvöldin.
Inokkrum fiskvinnsluhús-
um hafa menn ekki gef-
ið sér tíma til að taka
niður tilkynningar um
uppsögn starfsfólks
vegna verkfallsboðunar
yfirmanna á flotanum.
„Það biðu allir spenntir
eftir fréttum hvort verkfalli yrði
aflýst. Fyrst því var forðað er ljóst
að flestir munu hafa atvinnu fram-
undir jól,“ segir Hrafnkell A. Jóns-
son, formaður Verkalýðsfélagsins
Árvakurs á Eskifirði. „Sumir urðu
nú samt svolítið spældir. Höfðu
ráðgert að skella sér til Reykjavík-
ur um helgina,“ segir kona á Eski-
firði þegar við horfum á eftir loðn-
uskipinu Jóni Kjartanssyni sigla
út fjörðin.
Ekki verður fundið fyrir mikilli
síldarstemmningu á söltunarstöð-
unum. Á Reyðarfirði voru starf-
rækt fjögur síldarplön á síðustu
vertíð ' Nú eru tvö eftir. „Það versta
við þetta er óvissan," segir Vil-
bergur Hjaltason verkstjóri í Fisk-
verkun Gunnars og Snæfugls.
„Þetta gengur best hjá þeim sem
eru með frystingu og söltun sam-
hliða. Þar er mikil vinna i gangi
og vantar fólk,“ segir hann.
Óvissa á Seyðisfirði
Á síðasta vetri gekk fjöldi
manns atvinnulaus á Seyðisfirði.
Þrátt fyrir mikla óvissu vegna síld-
arsölu er ólíkt bjartara yfír atvinn-
ulífinu í haust. Ástæðan felst í
stofnun Dvergasteins hf. 18. ágúst
sl. sem tók yfír eignir þrotabús
Fiskvinnslunnar hf. og keypti
Norðursíld.
Síldarverksmiðjur ríkisins eru
líka á lokaspretti við byggingu
nýrrar loðnuverksmiðju á Seyðis-
firði. Um er að ræða einhverja
fullkomnustu loðnubræðslu r Evr-
ópu, að sögn kunnugra. Þar hafa
50 manns atvinnu við byggingu
verksmiðjunnar og er stefnt að
því að hún verði gangsett í janúar.
Svanbjöm Stefánsson er nýráð-
inn framkvæmdastjóri Dverga-
steins hf. „Nú vantar fleira fólk
til starfa,“ segir hann. Verið er
að frysta síld fyrir Japansmarkað
og er unnið alla daga fram á kvöld
og um helgar og starfa 60 manns
hjá fyrirtækinu í dag. „Frystingin
gengur þokkalega. Við höfum salt-
að í 1230 tunnur af síld. í fyrra
var saltað í 8500 tunnur og við
ætluðum að endurtaka það í haust
svo það sjá allir hvaða umskipti
hafa orðið í síldarsöltun. En við
höfum fiyst um 500 tonn af síld
og megum fara upp í 950 tonn í
sölu til Japan,“ bætir hann við.
Hann kveðst eiga von á að fyrir-
tækið geti veitt öllu starfsfólkinu
vinnu eftir áramót við frystingu
og söltun á bolfíski. „Við kaupum
fiskinn á markaði og höfum vil-
yrði frá útgerðinni Gullberg hf.
að togarinn Gullver landi hér afla,
en við þurfum á meiru að halda.
Það er verið að vinna í að afla