Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990
19
Tinhjörtun tifa
Bækur
Kjartan Ámason
Oskar Árni Óskarsson: Tindátar
háaloftanna. Ljóð, 61 bls. Norð-
an° Niður 1990.
„Lausamálsvísur" væri hægt að
kalla ljóð þessarar bókar útúr neyð.
Þetta með vísurnar gefur þó til
kynna tilhæfulausan skyldleika við
ferskeytluna. „Hæka“ kemst nær
því að gefa hugmynd um hvað hér
sé á ferð — endaþótt orðið sé jap-
anskt. Hækur og tönkur eru að
ýmsu leyti sambærilegar við
íslensku ferskeytluna, t.d. hvað
varðar strangleika forms. Hvorugt
fyrirbærið er því hægt að kalla vísur
i lausu máli. Óskar Árni er ekki að
yrkja japanskar hækur, hann bind-
ur sig ekki af hinni ströngu at-
kvæðaskiptingu sem þær gera
kröfu um. Hann gerir „vísur“ í lausu
máli og liðugu.
Það sem aftur á móti kveikir
þessa hugmynd um hækuna er and-
blærinn í ljóðum Óskars Árna í
Tindátum háaloftanna. Einstök
andartök eru einsog fönguð af auga
ljósmyndavélar og fryst í eilífðinni.
Verða að svipmyndum, sprelllifandi
kyrralífsmyndum sem margar
hveijar þrykkja sér fastar í vitund
lesandans — beinstífir tindátar í
fullu fjöri.
í bókinni kennir allmargra grasa.
í fyrsta hluta, ljóðaflokknum Tin-
dátum háaloftanna, kemur tin og
allrahanda tindátar eðlilega mikið
við sögu, tindátar sem eiga sér
sögu, segja sögur og eru sagðar
sögur.
Kaupmannahöfn 1807:
tinklessur
á logandi gluggakistum
Eða þessi dáti sem minnir á dverg-
vaxinn mann með hönd undir
frakkaboðungi:
október 1848:
með blaut frakkalöf
á leið yfir Evrópu
Háaloft þessarar bókar eru
vistarverur minninganna en um leið
ímyndunaraflsins. Þegar háalofts-
hurð fellur að stöfum veit enginn
Kirkjan að Stærri Árskógi í Eyja-
firði prýðir kápu bókarinnar.
Ensk bók
um Island
ÚT ER komin i London ferðabók
in „Iceland - The Traveller’s Gu-
ide.“ Bókin er á fimmta hundrað
blaðsíður með fjölbreyttum upp-
lýsingum um land og þjóð og fylg-
ir henni íslandskort. Forseti Is-
lands, Vigdís Finnbogadóttir,
skrifar formála að bókinni.
Höfundur bókarinnar er Tony Es-
critt, en hefur mikið verið hér á
landi. Þetta er önnur bók hans um
ísland, sú fyrri kom út fyrir fimm
árum og var fyrst og fremst ætluð
þeim Bretum, sem leggja leið sína
hingað til lands.
Iceland Review mun sjá um dreif-
ingu bókarinnar hér á landi.
maður hvað fram fer handan henn-
ar en vísast taka þá að hrærast tin-
limir, auga verður deplað í máluðu
andliti og tinhjörtun fara að slá.
Þetta gæti líka gerst ef lítill dreng-
ur hyrfi inní heim háaloftsins, dauð-
ir hlutir vöknuðu til lífsins og stirt
yrði liðugt.
bregður upp tinkíkinum
og rannsakar hattskúfinn
á Mackintoshdollunni---------
skyndilega
gegnum gólfijalirnar
Stravinsky
tindátum háaioftanna
berst enginn póstur
aðeins lágt laufskijáfið
í rennunni
vindsveipur
flettir ævintýrum
H.C. Andersens
Um síðir leggjast þó dátarnir
í dvala, a.m.k. um hríð, og allt
hljóðnar nema tinhjörtun taktvísu
og regnið sem bylur á þakinu.
Þegar tindátunum sleppir taka
við í kafla sem heitir 22 eftir fjölda
ljóðanna, ljóð sem geyma einstakar
stemmningar, sumar hveijar virð-
ast æskuminningar, aðrar atvik úr
hversdagslífínu.
skautar iengra og lengra
frá skónum sínum
einn í myrkrinu
tjásur úr skýi
á nýþvegnum stuðaranum
Bókinni lýkur á Ferðaskissum
úr Skagafirði ortum í- Norðurleið-
arrútunni síðastliðið sumar.
Óskar Árni Óskarsson
í rútunni
drukkið whisky
og bijóstamjólk
Komið er við á Sauðárkróki — eða
hvað:
skúr fombóksalans
aðeins ryk og ryðgaðir
naglar í hillum
Ljóð Óskars Áma eru iðulega
myndræn og hafa oft í sér dularblæ
sem orkar seiðandi á lesandann.
Sjálft formið, svo knappt sem það
er en um leið lifandi og stundum
þrungið merkingu, er út af fyrir sig
seiðandi, jafnvel sefjandi. Minn-
ingablær hvílir yfir allri bókinni og
æskan er ekki fjarri tindátunum.
Smáljóð Óskars Árna eru
kannski ekki öll jafn áhrifarík en
þau bestu em þokkafull. Það kæmi
mér ekki á óvart þótt margar af
„hækum“ Óskars Árna yrðu fleygar
og ættu langt líf fyrir höndum.