Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 30
áö
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMÁ Æíííií/AGit 2
DESKMBKR 1990
Hjúkrunar
fræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast til afleysinga við
heilsugæslustöðina á Laugum.
Uppiýsingar veitir hjúkrunarforstjóri heilsu-
gæslustöðvar Húsavíkur í síma 96-41333.
Heilsugæslustöðin á Húsavík.
Sölumaður
* Óskum að ráða sölumann nýrra bifreiða hjá
traustu, deildaskiptu innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík.
Starfssvið sölumanns: Dagleg sala, skipu-
lagning og afhending bifreiða. Aðstoð við
gerð pantana.
Við leitum að röskum og drífandi sölu-
manni. Enskukunnátta nauðsynleg. Laust
strax.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónstu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um, sem liggja frammi á skrifstofu okkar,
Hagvai ngurhf
Grensósvegi J3 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
RIKISSPITALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Kópavogshæli
Hjúkrunarfræðingur
og/eða þroskaþjálfi
Óskum að ráða hjúkrunarfræðing og/eða
þroskaþjálfa á næturvaktir. Starfshlutfall er
samkomulagsatriði. Starfið felst í eftirliti, að-
stoð og ráðgjöf við næturvaktir deilda.
Starfsfólk
Óskum að ráða starfsfólk í umönnun á deildum
Kópavogshælis. Starfið felur í sér þátttöku í
þjálfun, umönnun og útiveru með heimilisfólki.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefa
Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, og Sigríð-
ur Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri, alla virka
daga frá kl. 8.00 til 16.00 í síma 602700.
Geðdeild'Landspítala
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
athugið
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða vantar á deild
33-C, móttökudeild á Landspítalalóð. Starfs-
hlutfall samkvæmt samkomulagi. Morgun-,
kvöld- og helgarvaktir. Fastar næturvaktir.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf
við mjög góða vinnuaðstöðu. Skipulagður að-
lögunartími.
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar á göngu-
deild á Kleppi. Starfshlutfall samkvæmt sam-
komulagi. Um er að ræða dagvinnu að mestu
en þátttaka í kvöld- og helgarvinnu á bráða-
þjónustu geðdeildar Landspítalans.
Hjúkrunarfræðingar í 100% starfi geta sótt
um íbúð á hagstæðum kjörum og við höfum
aðgang að mjög góðu barnaheimili.
Verið velkomin til frekari kynningar.
Upplýsingar gefur Nanna Jónasdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri í símum 602600 eða
602646.
Skammtímavistun,
Álfalandi 6
Starfskraftur óskast í eldhús. Um er að ræða
40% starf, þ.e. mánudaga ög fimmtudaga,
frá kl. 16.00 til 20.00 og aðra hverja helgi
frá kl. 11.00 til 19.00.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
32766.
Stórt, deildaskipt fyrirtæki með sölustaði
víða um höfðuðborgarsvæðið vill ráða
verslunarstjóra
til að annast daglegan rekstur á nýjum stað,
sem opnar nú fyrir jól. Viðkomandi þarf að
vera vanur verslunarstörfum, hafa stjórnun-
arhæfileika, vera þjónustusinnaður og eiga
gott með að umgangast fólk. Áreiðanleiki,
ásamt góðri framkomu, er skilyrði. Vakta-
vinna.
Einnig er ieitað eftir verslunarfólki á sama
stað.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu okkar til 6. des. nk.
Gudnt Tónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCARPJÓN USTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKfAVÍK, SÍMI62 13 22
Globusi
Markaðsfulltrúi
Óskum að ráða markaðsfulltrúa hjá Glóbus
hf. Glóbus hf. er stórt, deildaskipt innflutn-
ings- og þjónustufyrirtæki með fjölþætta
starfsemi. Vegna skipulagsbreytinga og auk-
inna umsvifa, þarf að ráða í þessa nýju stöðu
hjá fyrirtækinu. Um er að ræða fjölþætt,
stefnumótandi og krefjandi starf hjá traustu
fyrirtæki.
Starfssvið markaðsfulltrúa:
★ Skipulagning og undirbúningur markaðs-
og söluherferða.
★ Samskipti við auglýsingastofur.
★ Skipulagning, hönnun og undirbúningur
á „direct mail“.
★ Gerð markaðs- og söluáætlana.
★ Umsjón með Glóbus fréttum, textagerð
o.fl.
★ Þátttaka í samhæfingu sölu- og þjónustu-
deilda.
★ Hönnun og vinnsla smærri auglýsinga.
★ Ýmissa fleiri verkefna tengt markaðs-
starfseminni.
Við leitum að manni með:
★ Menntun á sviði markaðsfræða.
★ Hæfileika til að tjá sig í rituðu máli.
★ Frumkvæði.
★ Samstarfshæfileika.
★ Enskukunnáttu.
★ Skipulagshæfileika.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar „Markaðsfulltrúi Glóbus 614“,
fyrir 8. desember nk.
Hagva rmirhf
I 4-^ Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Góð laun - „au pair“
Við búum á Eyrarbakka. Okkur vantar vand-
aða manneskju til að gæta tveggja drengja,
3ja og 7 ára. Eldri strákurinn á við andlegan
vanþroska að stríða og þarf því talsverða
umönnun. Með starfinu fylgir fæði og hús-
næði og allt að tvöföld „au pair“ laun. Sveigj-
anlegur vinnutími. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf uppúr áramótum.
Upplýsingar í síma 98-31191.
Framkvæmdastjóri
Fyrirtækið er verslunar- og þjónustufyrirtæki
á Norðurlandi. Velta ca 400 milljónir. Starfs-
mannafjöldi 50 manns.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun
daglegs reksturs. Fjármálastjórnun. Gerð
rekstrar- og greiðsluáætlana. Samninga-
gerð. Mannaráðningar og starfsmannahald.
Rekstrareftirlit.
Við leitum að manni, sem hefur haldgóða
þekkingu á fjármálum fyrirtækja og bókhalds-
þekkingu. Reynsla af stjórnunarstörfum og
viðskiptamenntun æskileg. Þekking á sam-
vinnurekstri æskileg. Húsnæði til staðar.
Laust 1. febrúar 1991.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Framkvæmdastjóri 659“, fyrir 15. des. nk.
Hagva neurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Yfirsjúkraþjálfari -
sjúkraþjálfarar
Yfirsjúkraþjálfari óskast frá 1. janúar 1991 á
öldrunarlækningadeild í Hátúni. Yfirsjúkra-
þjálfari sér um faglegan rekstur sjúkraþjálfunar
á þremur legudeildum og dagspítala. Umsækj-
andi hafi starfsréttindi í sjúkraþjálfun. Reynsla
í endurhæfingu aldraðra æskileg.
Einnig óskast tveir deildarsjúkraþjálfarar á
sömu deild. Starfið felst í því að sjá um sjúkra-
þjálfun á þremur legudeildum og dagspítala.
Reynsla í sjúkraþjálfun aldraðra nauðsynleg.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir Sigríður
Gísladóttir, yfirsjúkraþjálfari, í síma 602256.
Meinatæknir
Meinatæknir óskast í 50% stöðu á kvenna-
deild Landspítalans sem fyrst. Um er að ræða
starf á rannsóknastofu í ófrjósemi.
Þeir, sem áhuga hafa, eru beðnir um að hafa
samband við Jón Hilmar Alfreðsson, yfirlækni,
sem veitir nánari upplýsingar í síma 601189
eða 601000.
Matartæknar
Matartæknar óskast sem fyrst í matsal
Landsprtala. Vinnutími er frá kl. 16.00-20.00.
Matartæknir óskast í eldhús að Kleppi. Starf-
ið felst í því að bera ábyrgð á eldhúsi og
matsal. Vinnutími er frá kl. 8.00-16.00.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir
Jóhanna Ingólfsdóttir, forstöðumaður, í síma
601540.