Morgunblaðið - 02.12.1990, Qupperneq 35
MORGlf NBI^AÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNITPAGURÍ2. DESEMBER 1990 35
Frá menntamálaráðuneytinu
Styrkirtil náms
íDanmörku, Finnlandi
og Svíþjóð
1. Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki
handa íslendingum til háskólanáms í Dan-
mörku námsárið 1991-1992. Styrkirnir
eru ætlaðir þeim, sem komnir eru nokkuð
áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við
9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur
að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjár-
hæðin er áætluð um 3.820 d.kr. á mánuði.
2. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingum til háskólanáms eða rann-
sóknastarfa í Finnlandi námsárið 1991-
1992. Styrkurinn erveitturtil níu mánaða
dvalar og styrkfjárhæðin er 3.000 finnsk
mörk á mánuði
3. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingi til háskólanáms í Svíþjóð
námsárið 1991-1992. Styrkfjárhæðin er
5.760 s.kr. á mánuði í 8 mánuði. Jafnframt
bjóða sænsk stjórnvöld fram tvo-þrjá
styrki handa íslendingum til vísindalegs
sérnáms í Svíþjóð á sama háskólaári.
Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar en skipt-
ing í styrki til skemmri tíma kemur einnig
til greina.
Umsóknum um framangreinda styrki skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar
nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknum fylgir staðfest afrit prófskír-
teina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
28. nóvember 1990.
KENNSLA
Verzlunarskóli
íslands
öldungadeild
Innritun á vorönn öldungadeildar Verzlunar-
skóla íslands fer fram á skrifstofu skólans
dagana 3.-6. desember kl. 08.30-18.00.
Eftirtaldar námsgreinar eru í boði á vorönn:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Hagræn lándafræði
Reksturshagfræði
Stofnun og rekstur
Fyrirtækja
Vélritun
Ritvinnsla
Danska
Enska
Franska
Þýska
Bókmenntir
íslenska
Ritun
Líffræði
Mannkynssaga
Stærðfræði
Tölvufræði
Þjóðhagfræði
Farseðlaútgáfa
Landafræði og
saga íslands
Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt
að safna saman og láta mynda:
Próf af bókhaldsbraut
Próf af ferðamálabraut
Próf af skrifstofubraut
Verslunarpróf
Stúdentspróf
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1.
KVÓTI
Kvóti - kvóti
Okkur vantar framtíðarkvóta fyrir togarana
okkar, Arnar og Örvar.
Upplýsingar í síma 95-22690.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
M'm mÓm'Æ/ Fiskimenn
| p J#^_kvóti
Vantar báta í viðskipti útvegum kvóta.
Upplýsingar hjá Fiskiðju Sauðárkróks hf. í
síma 95-35207.
Framtíðarkvóti til sölu
Tilboð óskast í framtíðarkvóta, 80 tonn
þorskur og 4 tonn ýsa, miðað við slægðan
fisk.
Tiiboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„F - 8774“, fyrir 7. des. nk.
5JÁLFSTIEDISFLOKKURINN
FÉI.AGSSTARF
Keflavík
Stjórn og varastjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Keflavík,
er boðuó til sérstaks fundar ásamt nýkjörnum fulltrúum Heimis til
fulltrúaráðs.
Fundarstaður: Hringbraut 92, efri hæð.
Fundartími: Þriðjudagur 4. desember kl. 20.00.
Stjórnin.
Akureyri - Akureyri
Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginri 3. desember kl. 20.30
í Kaupangi.
Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Jólafundur Hvatar
mánudaginn 3. desember
Hinn árlegi jólafundur Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavik.
verður haldinn í Átthagasal Hótels Sögu mánudaginn 3. desember
og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Jólahugvekja, séra Pálmi Matthíasson. Ræða Lára Margrét Ragnars-
dóttir, hagfræðingur. Einsöngvari Anna Júlíana Sveinsdóttir og undir-
leikari Gyða Halldórsdóttir. Jólahappdrætti. Kynnir Hrefna Ingólfs-
dóttir. Allt sjálfstæðisfólk velkomiö.
Stjórnin.
□ GIMLI 599003127 = 1
I.O.O.F. 3 = 1721238 =
D MlMIR 599012037 -1 AtkFrl
□ HELGAFELL 59901237 VI 2
I.O.O.F. 10=172123872 = 9.111.
3.n.
Hvítasunnukirkjan í
Keflavík
Sunnudagaskóli i dag kl. 13.30.
Almenn samkoma í dag kl. 16.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Auðbrekka 2 • Kópavogur
Sunnudagur: Almenn samkoma
í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur: Samkoma kl. 20.30.
Paul Hansen prédikar.
Miðvikudagur: Samkoma kl.
20.30. Paul Hansen prédikar.
Laugardagur: Samkoma kl.
20.30. Paul Hansen prédikar.
Svölur
Jólafundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 4. desember í
Siðumúla 25 kl. 19.00. Jólahlað-
borð, jólabolla og ýmis annar
jólaglaðningur.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Dagsferö sunnudaginn
2. desember:
Kl. 13.00 Kjalarnes -
Músarnes
(stórstraumsfjara)
Ekið að Brautarholti á Kjalarnesi
og gengið þaðan um Músarnes
og síðan eftir fjörunni að Ár-
túnsá. Skemmtileg og fjölbreytt
fjöruganga fyrir alla fjölskylduna.
Utivera og holl hreyfing f göngu-
ferð með Ferðafélaginu er góð
tilbreyting í skammdeginu.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir börn að 15 ára
aldri. Verð kr. 1.000,-
Mánudagskvöldið 3. des. kl. 20.
Tunglskinsganga og blysföri
Setbergshlíð. Tilvalin fjölskyldu-
ganga. Nánar auglýst í sunnu-
dagsblaði.
Miðvikudaginn 5. desember er
næsta myndakvöld F.í. Myndir
úr sumarleyfisferð nr. 9 i áætl-
un.
Ferðafélag íslands.
fbmhiólp
Almenn samkoma verður í
Þríbúðum í dag kl. 16.00. Sam-
hjálparkórinn syngur. Vitnis-
burðir verða fluttir. Ræðumenn:
Brynjólfur Ólason og Þórir Har-
aldsson. Barnagæsla. Kaffi eftir
samkomu.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Miðvikudagur 5. des.
Myndakvöld
Ferðafélagsins
Myndakvöldið er að venju í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og
hefst kl. 20.30. Mætið vel á
þetta siðsta myndakvöld ársins.
Myndefni: Gunnar Guðmunds-
son sýnir myndir úr sumarleyfis-
ferð Ferðafélags Islands og
Ferðafélags Akureyrar í Fjörður,
Náttfaravík og Flateyjardal.
Svæði milli Eyjafjarðar og Skjálf-
anda sem virkilega er þess virði
að kynnast.
Eftir hlé sýnir Jón Viðar Sigurðs-
son frá hinu fjölbreytta fjalllendi
sunnan Langajökuls. Áhuga-
verðar sýningar, sem enginn
ætti að missa af. Góöar kaffiveit-
ingar í umsjá félagsmanna í hléi.
Ferðafélagsspilin verða að
sjálfssögðu til sölu. Nú er um
að gera að næla sér í splla-
stokka til að setja ( jólapakk-
ana. Myndakvöldið er tilvalin
vettvangur til að kynnast starf-
semi F.l.
Ferðafélag íslands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Skipholti 50b, 2. hæð
Samkoma í dag kl. 11.00.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Mánudagur 3. des. kl. 20.
Aðventuganga
Tungskinsganga og blysför um
Setbergshlfð. Fjölskylduganga
um Lækjarbotna, hina einu
sönnu Setbergshlið, skógrækt-
arsvæði Hafnfiröinga og viðar.
Áning við kertaljós og söng í
Kershelli. Verð 500 kr., frítt f.
börn 15 ára og yngri með foreld-
rum sínum. Blys kr. 100. Brott-
för frá BSI, austanmegin.
Stansað m.a. á Kópavogshálsi
og við kirkjug. Hafnarfj.
Áramótaferð Ferðafélags-
ins í Þórsmörk
29. des.-1. jan.
Brottför kl. 08. Nú fer hver að
verða síðastur að panta í þessa
sívinsælu ferð. Pantanir óskast
staðfestar sem fyrst. Frábær
áramótabrenna, kvöldvökur o.fl.
til skemmtunar.
Upplýs. og farm. á skrifst.
Ferðafélag (slands.
VEGURINN
v KrístiO samfélag
Þarabakki 3
Kl. 11.00: Samkoma og barna-
kirkja. Lifandi tónlist.
Kl. 20.30: Kvöldsamkoma. Préd-
ikun orðsins. Fyrirbænir. „Fyrir
hans (Jesú) benjar urðum vér
heilbrigðir".
Verið hjartanlega velkomin.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Safnaðarsamkoma í dag kl.
11.00. Ræðumaður: Svanur
Magnússon. Barnagæsla.
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Ræðumaður: Garðar
Ragnarsson. Sunnudagaskóli á
sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Völvufelli
Sunnudagaskóli í dag kl. 11.00.
ÚTIVIST
'ÁFIHHI I • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSV«114601
Sunnudagsganga
Kl. 13.00,2. des. Gengin strönd-
in frá Kollafirði meðfram Þern-
eyjarsundi og í Víðines. Skoðað-
ar gamlar mannvistaminjar og
fjárborg. Hressandi strand-
ganga fyrir alla fjölskylduna um
mjög skemmtilegt svæði. Brott-
för frá BSÍ-bensinsölu. Stansað
við Árbæjarsafn. Einnig hægt
að koma í rútuna i Mosfellsbæ.
Sjáumst!
Útivist.
Félag austfirskra
kvenna
Jólafundur mánudaginn 3. des-
ember kl. 20.00 á Hallveigar-
stöðum.
Trú og I ■ T
Samkoma í iþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði, 2. hæð,
kl. 15.00. Charles Griffin predik-
ar. Barnagæsla.
Allir velkomnir.
Sunnudagaskóli kl. 14.00. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30.Reidun
og Káre Morken majórar stjórna
og tala. Mánudag kl. 16.00.
Heimilasamband. Þriðjudag og
miðvikudag. Flóamarkaður frá
kl. 10.00.
¥kfuk
KFUM
Basarsamkoma KFUK
i kvöld kl. 20.30 i Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58. Vitn-
isburöur: Vera Guðmundsdóttir.
Happdrætti. Hugleiðing:
Málfríður Finnbogadóttir.
Allir velkomnir.
KENNSiA
Námskeið í nuddi
Helgina 8.-9. des. Upplýsingar
og skráning í símum 15766
(Anna Maria), 29936 (Gitte).