Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 14

Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 14
14 C T^/Ji i/ririsov MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 Björn ó Löngumýri segir frn eftir Gylfn Gröndnl rithöfund / EQ HEF LIFAÐ MERTILGAMANS MEÐAL nýútkominna bóka þessar vikurnar eru minningar Björns Páls- sonar, fyrrv. alþingis- manns og bónda á Löngu- mýri. Höfundurinn er Gylf i Gröndal og er þetta fimmtánda ævisaga þessa fjölhæfa rithöfundar. Björn segir í bókinni frá uppruna sínum og ættum, námi og ferðalögum á unga aldri yfir hnöttinn. Heimkominn hefur hann búskap á ættaróðali sínu og stundar jafnframt umsvifamikla útgerð. Hann segir frá sigursælli kosningaglímu sinni við kempuna Jón Pálmason á Akri 1959 og störfum sín- um á Alþingi um 15 ára skeið. Þannig segist Birni frá um lífið á þingi: Reiðir mælskumenn f yy tundum var dá- V lftið skemmtilegt í þinginu; en oftar var þó vistin þar t dauf og tilþrifalítil. ÉL W Þegar litið er yfir r þingbekki, sérstaklega í néðri deild, eru auðu sætin mörg, og til þess liggja ærnar ástæður. Oft hefur verið ákveðið löngu fyrirfram í þingflokkunum og um það samið, hvemig mál verða af- greidd, svo að til lítils er að flytja ræður eða fylgjast með skoðana- skiptum manna; það breytir engu. Einnig verða þingmenn þreyttir á að sitja lengi á hörðum bekkjum, ekki síst eldri menn; nauðsynlegt er að teygja úr sér og liðka sig öðm hveiju, og þá bregða menn sér gjarnan í hliðarherbergin. Ef snjall maður steig í stólinn og spenna lá í loftinu, þustu þing- menn inn í salinn til að hlusta á hann; þá gat orðið góð stemmning og eftirminnileg. Einkennandi var fyrir marga af okkar sterkustu ræðumönnum, að þeim þurfti að renna í skap til að menn veittu ræðum þeirra sérstaka athygli. Bjarni Benediktsson var yfirleitt ekki skemmtilegur ræðumaður, ef hann reiddist aftur á móti varð hann flugmælskur, rökfastur og grimmur; þá sátu allir í sætum sín- um og hlustuðu; við vildum ekki missa af slíkum sennum. Bjarni hafði hæfíleika til að stjórna; líklega hefði viðreisnin ver- ið lengur við völd, ef hann hefði ekki fallið frá með voveiflegum hætti á Þingvöllum; hann var hug- rakkur og beitti hörku og aga í flokknum hjá sér, menn voru hálf smeykir við hann og þorðu ekki að gera honum á móti skapi. Dugnaður hans minnti mig á móður mína, það var ómögulegt að ganga með honum úti á götu; hann tuddaðist áfram og gaf sér ekki tíma til að tala fyrir ákafanum. Það voru ólíkir stjórnmálamenn, hann og Ólafur Thors; Ólafur var glaður og góðlyndur, í kaffistofunni í þinginu sat Bjami oft einn úti í horni, en ævinlega var margt fólk í kringum Ólaf. En menn báru óskorað traust til Bjama, þótt hann laðaði ekki að sér fólk; hann var vitur og gat orð- ið tilkomumikill í ræðustóli, ef þykknaði í honum. Hið sama var að segja um Ólaf Jóhannesson; hann gat flutt þmm- andi ræður og látið að sér kveða, ef honum hitnaði í hamsi. Magnús Kjartansson var af- burðagóður ræðumaður; hann und- irbjó sig vel, áður en hann sté í stólinn; ég veit ekki, hvort hann skrifaði ræður sínar niður, en hann var ábyggilega oftast búinn að semja þær í huganum. Hann talaði sjaldan lengi, en málfar hans var kjarnyrt og gott, og hann gat verið meinlegur. Honum tókst ósjaldan að velgja Bjama undir uggum. Ég taldi Magnús með bestu ræðumönnum þingsins. Lúðvík Jósefsson talaði líka vel, en hann flutti sjaldan inn- blásnar og upptendraðar ræður, því að hann varð eiginlega aldrei reið- ur; hann er lundgóður. Gísli Guðmundsson var enn einn þingmaðurinn, sem ekki gat talað almennilega, nema blóðið rynni örar í æðum hans. Hann var ofurlítið haltur og var því lengi að koma sér í ræðustólinn; og áður en hann byijaði að tala, þurfti hann að gretta sig; þegar hann hóf svo loks- ins ræðuna, hafði hann svo langt á milli orðanna, að fáir entust til að hlusta á hann. Gísli krafðist þess jafnan, að við- komandi ráðherra væri í salnum, þegar hann talaði. Ég man, að eitt sinn þurfti Ingólfur Jónsson, þáver- andi landbúnaðarráðherra, að sitja undir ræðu hans, og ég tók eftir, að honum leiddist afskaplega; hann tók út þrautir, enda var þá afar langt á milli orðanna hjá Gísla. Eg læddist aftan að Ingólfi og spurði hann, hvort honum þætti ekki gaman að hlusta á Gísla. Þá leit ráðherrann upp eins og varnarlaus fugl og svaraði: ,jÞað er bara alls ekki hægt!“ Ég hef sjaldan séð jafn átakan- legt augnaráð. En eitt sinn tekst Þorvaldi Garð- ari Kristjánssyni að gera Gísla reið- an; hann verður kafijóður í framan; og þá bregður svo við, að hann gerist flóðmælskur. Þingmenn leggja undrandi við hlustir, því að Gísli talar reiprennandi og leikandi létt; málfar hans er svo þróttmikið og rökvísin slík, að Þorvaldur Garð- ar verður að láta í minni pokann; hann hafði ekki roð við Gísla í þess- um ham. Bjarni Benediktsson er viðstadd- ur, því að hann sótti fundi yfirleitt vel; ég stend við hlið honum og segi við hann: „Finnst þér ekki Gísli tala vel?“ „Jú,“ svarar Bjarni og brosir. „Það þarf ekki að bíða lengi eftir- orðunum hjá honum núna.“ Síðustu árin, sem ég sat á þingi, ,fór samkomulagið að versna innan nýja flokksins, Samtaka fijáls- lyndra og vinstri manna; einkanlega tókust þeir á, Hannibal Valdimars- son og Bjami Guðnason. Bjarni gat ekki séð Hannibal í friði; þurfti að skjóta á hann alltaf öðru hveiju. Við Hannibal sátum saman einn vetur, og eitt sinn tók ég eftir, að hann kipptist til og roðnaði í vöng- um undir ádrepum Bjarna. „Þú verður að mótmæla þessu,“ hvíslaði ég að honum. Þá vatt karl sér í pontuna og svaraði fyrir sig; ég dáðist að því, hve vel honum mæltist, því að hann hafði ekkj búist við að þurfa 'að munnhöggvast við samheija sinn; hapn gjörþekkti það málefni, sem Bjarni gagnrýndi, og flutti snjalla ræðu. Svipurinn á Lúðvík og Magnúsi Kjartanssyni var ánægjulegur, á meðan fóstbræðurnir deildu, því að þeir höfðu lítla ást á þeim, þótt þeir sætu saman í stjórn; það leyndi sér ekki. Ég velti því oft fyrir mér, hvers vegna Hannibal klyfí alla flokka, sem hann væri í; og ég gat ekki komist að annarri niðurstöðu en þeirri, að hann yrði að fá að vera formaður, hann var ekki ánægður nema hann fengi að vera fremstur í hveijum flokki, ef það gekk ekki, ja, þá klauf hann bara og fór sína leið. En alltaf stóð karl sig eins og hetja í kappræðum; fljótur að hugsa og mælskur. Við höfðum góða skemmtun af karpi þeirra félaga í þinginu. Það var líka fjörugt hjá okkur út af nýjum lögum um barnavemd, sem Gylfí Þ. Gíslason ætlaði að setja; hann var svo duglegur að skipa nefndir og láta semja fyrir sig frumvörp; þetta voru stærðar lagabálkar. Eitt af ákvæðunum í þessu barnaverndarfrumvarpi fjallaði um vinnutíma barna; hann mátti ekki vera nema stuttur; það var unnt að dæma foreldra í tveggja ára fangelsi, ef börn voru látin vinna eftir klukkan fimm á daginn. Ég minntist á búskapinn í sveit- um landsins og hvemig hann ætti að geta gengið, ef gamlir foreldrar yrðu að basla við það einir að mjólka á kvöldin, en stálpaðir krakkar þeirra mættu ekki einu sinni reka kýrnar út fyrirtúngirðinguna. Engu var líkara en þeir, sem sömdu þetta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.