Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDIlÍlWNitlWateii, jPESEMBER 1990 CU 33,. Jón Hjartarson fræðslustjóri. Soffía Guðrún Kjartansdóttir nemi. sérstök nauðsyn á þessu vegna við- skiptalífsins. Auglýsendur þurfa að vita hveijir eru að hlusta. Það er alveg pottþétt að ef sunnlenskt landshlutaútvarp er í gangi þá eru Sunnlendingar að hlusta, fólk sem maður vill ná til með auglýsingum," sagði Valtýr Pálsson bakari og mál- ari. „Það er vitað að auglýsingafé Sunnlendinga er að hluta til kastað á glæ með því að auglýsa í útvarp- inu. í þessu efrii gjöldum við nálægð- ar við Reykjavík. Útvarpið í heild sinni er ein allsherjar auglýsing. Heimafréttir eru nauðsynlegar „Mér finnst að landshlutaútvarpið þurfi að vera sem mest sér ef það verður sett upp og ekki að útiloka rás tvö á meðan það er í gangi. Það er nauðsynlegt að fá fréttir úr sinni heimabyggð og það er alltaf spenn- andi að heyra til þeirra sem maður þekkir til,“ sagði Sofía Guðrún Kjartansdóttir nemi. „Ég myndi örugglega hlusta á landshlutaútvarp, í það minnsta at- huga hvað væri í boði. Ég hlusta mest á Bylgjuna en landshlutaút- varpið mundi toga mig frá henni.“ Vil fréttir úr kjördæminu „Það væri sjálfsagt allt í lagi með landshlutaútvarpið ef það skemmdi ekki vinsælustu þættina á rás tvö. Ég tel slíkt útvarp mjög gott til þess að koma fréttum á milli byggð- arlaga innanhéraðs. Það getur virk- að þannig að fólk viti meira um það sem er að gerast á svæðinu,“ sagði Helga R. Einarsdóttir afgreiðslu- stúlka. „Ég hlusta mikið á rás tvö og mundi örugglega leggja eyrun við ef sunnlenskt efni væri í boði. Ég vil fá fréttir af því sem er að gerast í öllu kjördæminu en ekki bara frá þeim stað þar sem fréttamaðurinn býr. Fréttir koma öllum við og eru fyrir alla.“ Hlusta betur á þá sem ég þekki „Það væri mjög æskilegt að fá landshlutaútvarp hingað því á öllum stöðvunum sem senda út þa ' miðast allt við Reykjavík. Ég mundi örugg- lega hlústa á landshlutaútvarpið. Það er mjög gaman að hlusta á fólk úr sinni heimabyggð. Það er þannig með mig að ef ég heyri í einhveijum frá Selfossi þá legg ég við hlustirn- ar. Maður hlustar til dæmis betur á þá fréttamenn hjá Ríkísútvarpinu sem ættaðir eru héðan,“ sagði Sigríður Björnsdóttir afgreiðslu- stúlka. „Það gildir alveg það sama með héraðsblöðin að maður les þau með meiri athygli en hin. Landshlutaút- varpið á alvegjafn mikinn rétt á sér og þau blöð. Eg vil heyra fréttir af Suðurlandi og héðan frá Selfossi einnig létta tónlistarþætti og viðtöl við Sunnlendinga. Það er örugglega af nógu að taka. Annars er það nú svo með útvarp- ið að þar finnst mér aldrei almenni- legt efni fyrir börnin. Það eina sem er fýrir þau er sagan á morgnana á rás eitt. Það er aldrei tónlist fyrir þau sem þau geta hrifist af og sung- ið með. Þetta er athugunarefni fýrir útvarpsmenn því það er nauðsynlegt að kenna börnunum að hlusta.“ — Sig. Jóns Islenskt mál Umfjöllun um íslenskt mál og ekki hvað síst um daglegt mál í dagblöðum og öðrum fjöl- miðlum þykir mér bæði fræðandi og skemmtileg. Um það efni fjalla oftast prýðismenn en nokkra vil ég þó sérstaklega nefna en það eru Gísli Jónsson, Helgi Hálfdan- arson, Sigurður G. Tómasson og nú sá yngsti, Mörður Árnason. Mjög þótti mér vænt um að Mörð- ur skyldi taka til meðferðar ávarpsorðið „þú“, sem tröllríður mæltu og rituðu' máli, bæði í fjöl- miðlum og auglýsingum. Þá er sagt „þú“, enda þótt ávarpið eigi við fjölda fólks. Veit ég vel að þetta er komið úr ensku en ég spyr, samrýmist þetta íslensku máli? Skemmtileg þótti mér tilvitnun Marðar 22. nóvember um frétta- manninn og sýningarstúlkuna. Þá hlýt ég að minnast á hve mér hefur þótt einkennilegt ef ég hef hlustað á orð kvöldsins sem eru: Guð gefi þér góða nótt. Þá hefi ég hugsað, hver væri sá eini sem kost ætti á góðri nótt. V.G. Osamræmi Til Velvakanda. Svo sem flestir vita var það 1. október síðast liðinn- að mönn um var gert skylt að nota bílbelti einnig í aftursætum. Vissulega má segja að hér hafi verið gott mál á ferðinni sem eykur öryggi allra, en gleymdist ekki eitthvað? Ekki minnist undirritaður þess að hafa heyrt um beltaskyldu í fram- sætum svokallaðra rútubíla sem eru þó mjög hættuleg sæti svo sem oft hefur komið í ljós. Ekki hefur heldur verið minnst á farþegasæti vörubíla, man ekki einhver eftir stórslysi vegna árekstus rútu og vörubíls í slæmu skyggni í Kolla- firði hér um árið? Eða stúlku sem kastaðist með framrúðuna á herð- unum úr framsæti rútu sem hafði ekið út í skurð austur í Flóa? Og að lokum. Hver er ástæðan . fyrir því að farþega í leigubílum þarf ekki að binda? Það væri fróð- legt að fá svör við framangreind- um atriðum frá umferðaráði. Jón Gunnarsson, Þverá. „ /AuL'mrt þinn' [\Jú hefurSu cxféur ■Plet/jb íyizLunum ba&herberginu J " Ég hreinsaði olíu úr fiðri hans í síðustu viku ... Með morgimkaffmu Hann er svo ánægður með piparsveinagleðskapinn að hann er hættur við gifting- una ... Ekkí hug'sað um þjóðarhag’ Til Velvakanda. * Eg vil þakka Þórami Sveinssyni yfirlækni fýrir tímabært inn legg í umræðuna um mengunar- varnir, og fyrir bættum þjóðarhag á íslandi, í grein sem birtist hér í blaðinu 6. nóvember. Dregur hann fram ýmsar gruggugar staðreyndir, sem dyljast bakvið hið saklausa nafn hins „íslenska" stálfélags. Við lifum nú á þeim tímum, þar sem þær raddir verða æ háværari, sem kreíjast aðhalds, sparnaðar og auk- inna mengunarvama hérlendis. Á sama tíma er verið að kynda undir bruðl manna á fjármagni þjóðarinn- ar og jafnframt á náttúru landsins. Stjórnvöld virðast kynda undir þessa óráðsíu, a.m.k. mæla þau ekki á móti. Því eins og Þórarinn bendir á, þá mun ekki verða minni mengun af málmbræðslu Stálfé- lagsins, heldur en af fyrirhuguðu álveri á Keilisnesi. Þar fyrir utan sem ljöslega er bent á að framtíð hins nýstofnaða félags og rekstrar- grundvöllur er vægast sagt ótrygg- ur. Auk þeirra staðreynda, að ra- forkuverð sem félagið fær er það lágt, að ekki mun einu sinni takast að bdrga rafstrenginn fyrir þá upp- hæð. Áf þessu ályktast, að það er a.m.k. ekki þjóðarhagur sem hugs- að er um hér í þessu dæmj. Og Til Velvakanda. Sunnudaginn 25. nóvember birt- ist grein hér í blaðinu um nátt úruvernd sem nefnist í skugga geirfulgsins. Höfundur er Hulda Valtýsdóttir. Eru þar taldir upp þeir fuglar sem eru í útrýmingar- hættu í nokkrum löndum Evrópu. Á íslandi er einn fugl talinn í útrým- ingarhættu, þ.e. örninn. Hér er nokkuð vantalið, því ég veit ekki betur en keldusvínið sjáist, varla mun líklega draga dilk á eftir sér, að við, hin íslenska þjóð, mun verða látin borga upp þennan skrípaleik aðstandenda hins „íslenska" Stálfé- lags, sem er að meirihluta í eigu erlendra aðila. Ó.K. núorðið og Ævar Petersen vill meina að þessi fugl sé alveg hættur að verpa hér á landi. Einnig mun vera orðið lítið um þórshana. Orsak- ir fækkunar þessara fugla eru að mínu áliti tvær. Minkurinn og gengdarlaus framræsla mýrlendis. Eg hripa þessar líur til að minna náttúruverndarmenn á að það þarf að gæta að fleiri fuglum en emin- um. Gestur Sturluson Fuglar í útrýmingarhættu HOGNI HREKKVISI „ éG GBT BKKI CSERT VIE> 0f?OST/E? HJAIZTA-"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.