Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 16
16 C MORGUNBLÁÐÍÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 - efíir Vernharó Linnet ÞAÐ ríkti mikil gleði í hugum djassuiinenda þegar tilkynnt var að danski djassbassasnillingur- inn Niels-Henning 0rsted Ped- ersen hefði fengið Tónlistarverð- laun Norðurlandaráðs fyrstur rýþmískra tónlist armanna og fyrstur einleikara. Þegar til- kynnt var að Niels-Henning hefði verið útnefndur til verðlaunanna af hálfu Dana var ég nokkuð efins um að hann hlyti verðlaun- in, þó að ég teldi að enginn nor- rænn hljóðfæraleikari ætti frek- ar skilið að fá þau. Hinir æðri unnendur tónlistar, einsog Jon Múli kallar þann hóp er skipar tónlist til hásætis eftir tegund en ekki innihaldi, hefur löngum ráðið slíkum verðlaunum víða um heim en nú er öldin önnur — í það minnsta á Norðurlöndum. Danir veittu Miles Davis Sonn- ingtónlistarverðlaunin, þeir út- nefndu Palle Mikkelborg til Tón- listarverðlauna Norðurlandaráðs í fyrra og nú hefur Niels-Henn- ing hlotið þau. að hafa skipst skin og skúrir í lífi Niels-Hennings þennan mánuð. Fyrst var einka- vini hans og tryggum förunaut stolið á Kastr- upflugvelli. Bass anum 150 ára sem hann hefur ekki skilið við sig í tuttuguogsjö ár. Síðan kom bassinn í leitirnar tveimur dög- um áður en kappinn fékk Tónlistar- verðlaun Norðurlandaráðs. Ég spjallaði við Niels daginn sem tilkynnt var um verðlaunaafhending- una og hann var svo glaður í rödd- inni að það fyrsta sem ég spurði hann um eftir að hafa óskað honum til hamingju með heiðurinn var hvort hann hefði fengið bassann aftur. Eftir að hafa játað því sagði hann mér alla sólarsöguna. „Það var starfsmaður á Kastrup- flugvelli sem stal bassanum og þeg- ar ég gerði mér grein fyrir að bass- anum hefði verið stolið leið mér eins- og ég hefði misst annan handlegg- inn. Við höfum þolað sætt og súrt saman í tuttuguogsjö ár og þetta var einsog að missa náinn vin. „Ég hljóma einsog þessi bassi og það hefði verið mjög erfítt að endurskapa tóninn á annað hljóðfæri. Trygging- arféð hefði engu breytt þar um. Eg Morgunblaðið/Einar Falur Niels-Henning Orsted Pedersen, fyrstur rythmiskra tónlistarmanna og einleikara til að hljóta Tónlistar- verðlaun Norðurlandaráðs. á að vísu annan bassa sem er tvö- hundruðogfimmtíu ára, en hann er svo veikburða að ég get ekki ferðast með hann. Þjófurinn reyndi að selja bassann en væntanlegur kaupandi hafði sam- band við sérfræðing sem þekkti grip- inn samstundis og hringdi í lögregl- una. Það er fleira á himni og jörð en apdann grunar og eftir að bassanum var stolið sótti að mér mikið þung- lyndi, en að fá hann aftur og tónlist- arverðlaunin í kjölfarið var einsog að fara frá helvíti til himna. Ég er bæði stoltur og glaður, hrærður og fullur auðmýktar er mér var tilkynnt að ég hefði þótt þess verður að fá Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, en ég lít einnig á þau sem mikla viðurkenningu fyrir þá tónlist sem ég leik og hef mesta ánægju af.“ Niels-Henning er trúlega vinsæl- astur allra djassleikara hér á íslandi þegar gömlu meisturunum sleppir. Hann kom hingað fyrst 1977 og hélt þrenna tónleika í Norræna hús- inu ásamt Ole Kock Hansen og Aleks Riel. Síðan hefur hann leikið hér með Philip Catarine og Billy Hart, dúó með Tönju Maríu, Tete Montoliu- og Philip Catarine. Tríó með Ole Kock og Pétri Östlund og léku þeir einnig með söngkonunni Ettu Cam- eron og íslenskum strengjakvartetti. Síðast kom hann 1986 og lék þá með Palle Mikkelborg og Kenneth Knudsen. Níels er nú ijörutíuogfjögurra ára gamall og fæddist í smábænum Osted fyrir sunnan Hróarskeldu. Þar ólst hann upp við hefðir hins grundv- íska lýðháskóla og lærði dönsku söngbókina utanað. Hann hóf ungur píanónám, en þegar bræður hans ásamt Ole Kock Hansen og bræðrum hans stofnuðu hljómsveit vantaði bassaleikara og Niels var skipað að læra á það hljóðfæri. Snemma bar hann af öðrum og fjórtán ára hljóð- ritaði hann með Bent Axen. „Það var dálítið merkilegt að standa þarna í hljóðverinu og leika með atvinnumönnum. Ég hafði hugsað mér að taka magisterpróf í dönsku og sögu en þarna flaug mér í hug að trúlega yrði ég atvinnuhljóð- færaleikari.“ Ári síðar hljóðritaði Niels með Bud Powell og síðan hefur hann hljóðrit- að plötur í hundraðavís með flestum höfuðsnillingum djassins. „Mér finnst dálítið gaman að hlusta á útvarpsupptökur með Dext- er Gordon og Ben Webster sem hafa verið að koma út undanfarin ár og ég er bassaleikari á. Sérstaklega skífurnar með Ben sem Sonet hefur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.