Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.12.1990, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 ÞRIRMENN OG LÍTILDAMA Þrír menn og bam („Three Men and a Baby“) varð metsölumyndin í Bandaríkj- unum 1987 og nú á að endur- taka leikinn með framhaldinu Þrír menn og lítil dama eða „Three Men and a Little Lady“, jólamynd Bíóhallar- innar í ár. Með aðalhlutverkin fara eins og áður Tom Selleck, Ted Danson og Steven Guttenberg ásamt Nancy Travis, sem leikur móðurina. „í fyrstu myndinni var igororð piparsveinanna þriggja þetta: Svo margar konur, svo lítill tími,“ segir nýi leiksljórinn, Emile Ardol- ino („Dirty Dancing"), sem tekur við af Leonard Nimoy. „Núna hafa þeir þroskast dálítið og fólk fær að sjá hvemig bamið hefur haft áhrif á þremenningana og hvemig þau fást við ólík vand- amál saman. Þessi mynd er • mun flóknari tilfinningalega en áhersla er lögð á ástar- samband á milli Sellecks og Nancy Travis. Leikurínn endurtekinn; Þrír menn.... David Lean; erfiður undirbúningur. TAFIRÁ NOSTROMO David Lean, stórmynda- leikstjórinn breski, hefur nú í fjögur ár unnið að gerð myndarinnar „Nost- romo“ eftir samnefndri sögu Joseph Conrads en tafir hafa orðið á verkinu m.a. vegna samstarfsörðugleika og nú síðast veikinda Leans. En hann er stiginn uppúr þeim, ætlar að kvænast í fimmta sinn á næstunni og áætlað er að tökur hefjist á myndinni hans nk. mars. Lean ,er orðinn 82 ára og veit að „Nost- romo“ gæti orð- ið hans síð- asta mynd. Sagan gerist á nítjándu öldinni og segir frá ævintýramanni, Nostromo, sem fenginn er til að bjarga stórurrí silfurfarmi undan uppreisnaröflum í tilbúnu S-Ameríkuríki. Undirbúningur myndar- innar hefur verið erfiður og samstarfsmennimir hafa komið og farið. Steven Spi- elberg átti að vera framleið- andi í fyrstu en dró sig út úr verkefninu, leikritaskáld- ið Christopher Hampton fékk nóg af því sem hann áleit smásmugulega leit leikstjórans að fullkomnun, kvikmyndatökumaðurinn hans, John Alcott, lést og Ioks leitaði Lean aðstoðar gamals félaga síns, Robert Bolts, (Arabíu Lárens, Sívagó læknir), til að ljúka með sér handritinu. Það var ekki hlaupið að því að gera handrit eftir bókinni. Það er ekki einu sinni hlaupið að því að lesa hana. „Hún er hræðilega erfið bók,“ segir leikstjór- inn. En af hveiju þessi saga? „Hetja hennar er ekki.gallalaus, það heillar mig alltaf, landslagið er frábært og sagan er stór- kostleg." FORNIN AFTUR Á ÍSLANDI Fómin eftir Andrei Tarkovskíj með Guð rúnu S. Gísladóttur verður ein af átta myndum í fúllri lengd sem Regnboginn sýnir í samvinnu við franska sendi- ráðið og franska kvikmynda- fyrirtækið Argos dagana 1. til 10. desember. Kvikmyndaáhugafólki, sem missti af myndinni þeg- ar hún var sýnd hér á landi í örfá skipti á sama tlma og leiðtogafundur stórveldanna var haldinn í Höfða í október 1986, gefet því einstakt tæk- ifæri til að sjá þessa sérstöku og ásæknu mynd leiksijór- ans, sem hann gerði I Svíþjóð i samvinnu við Argos. Fómin reyndist síðasta mynd Tarkovskíjs en með helstu hlutverk í henni fara Erland Josephson, Susan Fleetwood, Valérie Meiresse, Allan Edw- aJl, Guðrún, og Sven Wolter. Fómin er hluti af afmæl- isdagskrá Argos fyrirtæk- Guðrún S. Gísladóttir í Fóminni. isins sem sett er upp um allan heim í tile&ú af flömtíu ára afmæli þess í fyrra. Alls er um að ræða átta myndir í fullri lengd og 12 stutt- myndir að auki, sem ýmist em sýndar sérstaklega eða hnýtt aftan í lengri myndimar. Hinai’ myndimar I fullri lengd, sem verða á dag- skránni, em Paris, Texas eftir Wim Wenders frá 1984 með Harry Dean Stanton, Dean Stockwell og Nastasju Kinski, Náðarhöggið eftir Volker Schlöndorff ffá 1976 með Matthias Habich og Maigarethe von Trotta, A valdi ástríðunnar eftir Nág- isa Oshima frá 1978 með Kazuko Yoshiyuki og Tatsu- ya Fuji, Af tilviljun Balthazar eftir Robert Bresson frá 1966 með Anne Wiazemski og Francois Lafarge, Karl- kyn, kvenkyn eftir Jean-Luc Godard frá 1966 með Mar- lene Jobert og Jean-Pierre Léaud, Ringulreið um tvítugt eftir Jaques Baratier frá 1966 með Antonin Artaud og Jacques Audiberti og loks Hiroshima ástin mín eftir Alain Resnais frá 1959 með Emmanuelle Riva og Eji Okada. FÓLK I L\\l MStórkostlega stúlkan, Julia Roberts, mætir á hvíta tjaldið um jólin í myndinni „Flatlin- ers“ í Stjömubíói, sem fyallar á dulítið spennandi hátt um dauðann. Þar er Julia undir leikstjóm Joel Schumachers, sem einnig gerir hennar nýj- ustu mynd, „Dying Young“, en hún er líka um dauðann. Roberts leikur konu sem tekur að sér að sjá um dauðvona mann og þau verða ástfangin. MNyjasta mynd Bette Midl- ers heitir „For the Boys“ en eins og áðumefndar myndir er hún.enn í framleiðslu. Hún leikur skemmtikraft á ámnum milli seinni heimstyijaldarinn- ar og Víetnamstríðsins en myndin lýsir sambandi hennar við kollega sinn, leikinn af James Caan. Leikstjóri er Marík Rydell, sem leikstýrði Midler í Rósinni („The Rose“), sælla minninga. MEnn ætlar. poppgoðið Ma- donna að reyna að ná á topp- inn í Hollywood en henni hef- ur ekki vegnað sérlega vel í kvikmyndaborginni hvað sem hún selur af hljómplötum. Nýjasta myndin hennar heitir KVIKMYNDIR""™ Hvemig er nýjasta mynd Brians De Palma? Á BÁLKESTINUM ÞEGAR bandaríski leikstjórinn Brian De Palma (Hinir vammlausu) tók að sér að leikstýra bíómynd eftir einni frægustu sögu sem skrifuð hefur verið vestra hin síð- ustu ár, Bálköstur hégómans eða „Bonfire of the Van- ities“ eftir Tom Wolfe, sagðist hann stefna á yfirgengi- lega túlkun með ríka áherslu á kaldhæðnislega gaman- semi. Það virðist eina rétta leiðin. Metsölubók Wolfes er bráð- fyndin háðsádeila á milljóneralífið í New York á níunda ára- wmmmm—mmt tugnum, græðgina, stéttamun- inn, kyn- þáttaf- ordómana, frétta- mennsku gulu press- unnar og pólitíska sýndarleiki. Hún lýsir hremmingum hins moldríka verðbréfasala Shermans McCoys þegar hann einn daginn villist af leið með viðhaldinu sínu, keyrir niður svertingja í fá- tæktarhverfinu Suður- Bronx og brunar í burtu. Uppúr því tekur veröld hans smá saman að hrynja þar til ekki stendur steinn yfir eftir Arnald Indriðason steini. Bálköstur hégómans verður ein af jólamyndunum vestra í ár en þijú ár eru liðin frá því Warner Bros. kvikmyndaverið keypti kvikmyndarétt sögunnar dýrum dómum. Peter Guber og Jon Peters byijuðu sem framleiðendur en hættu þegar þeir urðu yfirmenn Columbia. De Palma kom inn í myndina eftir að m.a. Norman Jewison, Adrian Lyne og Oliver Stone höfðu verið nefndir sem hugsan- legir leikstjórar. Hann hafði mjög sterkar skoðanir á hvemig myndin skyldi líta út. „Þetta er meistaraverk gamanseminnar, við skulum aldrei gleyma því,“ sagði hann. Það skýrir að einhveiju leyti óvænt leikaraval hans. Fyrir þá sem lesið hafa sög- una virðist Tom Hanks, ágætur gamanleikari en varla þungaviktarmaður, ómögulegur í hlutverkið en De Palma sá í honum ná- kvæmlega réttu blönduna af gamni og alvöm. Bruce Willis leikur blaðamanninn Fallow sem er gerður að mun þýðingarmeiri persónu í myndinni en í bókinni, Melanie Griffith leikur við- hald McCoys og Morgan Freeman er dómarinn Ko- vitskí. Meðai annarra leik- ara má nefna F. Murray Abraham. „Stíll myndarinn- ar einkennist af ofurraun- sæi,“ segir De Palma. „Allt er yfirdrifíð.“ Leik- myndahönnuður- inn er Richard Sylbert (Dick Tracy) en kvik- myndatökumað- ur er Vilmos Zsigmond . sem einnig tók mynd De Palrnas, „Blow Out“. Sagan var um- deild á sínum tíma og'má gera ráð fyrir að Bruce Willis sem blaðamaðurinn Fallow; mun stærra hlutverk en í bók- inni. myndin verði það líka, sérs- taklega er varðar neikvæðar lýsingar á svertingjum Suð- ur-Bronx-hverfisins (leik- stjórinn Spike Lee hefur m.a. lýst áhyggjum sínum af því), en í myndinni eru þeir allir ofbeldisfullir lög- leysingjar. Mikið fjölmiðla- fár varð úr þessu þegar tök- ur stóðu yfir í New York í sumar, kvikmyndaliðinu var meinað að taka upp í ýmsum opinberum byggingum og þurfti borgarstjórinn, David Dinkins, á endanum að skerast í leikinn. „Leda and the Swan“ og er hún spennumynd. Framleið- andi er hasarmaðurinn Joel Silver en myndinni hefur ver- ið lýst sem e.k. kvenkynsútg- áfu af „Lethal Weapon" því í henni leika Madonna og Demi Moore lögreglukonur í eltiftg- arleik við bófa. IBIO óð aðsókn hefur verið VJT á myndina Draugar („Ghost") í Háskólabíói. Alls höfðu um 23.000 manns séð myndina þeg- ar búið var að sýna hana í fjórar vikur, samkvæmt upplýsingum frá bíóinu. Draugar er orðin sölu- hæst yfir árið í Bandaríkj- unum, komin í yfír 190 milljón dollara. Hefur hún þar með felit Stórkostlega stúlku („Pretty Woman") úr efeta sætinu. Það sama verður varla uppá teningunum hér á landi því samkvæmt upp- lýsingum frá Bíóhöllinni er Stórkostleg stúlka komin yfír 50.000 manns í aðsókn á árinu og þótt Draugar geti kannski slagað hátt upp í það með tímanum er ekki nema mánuður til áramóta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.