Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 17
Sitthvad
um
nóvember
mánub
ÍJ^L
Niels-
Hennings
ogfleira
sent á markaðinn. Þar leikum við
m.a. Old folks með strengjum og
það er ekkert erfiðara en að leika
ballöðu vel. Ég er kannski frægastur
fyrir að leika hratt en ekkert reynir
eins á mann og að leika fáa tóna í
hljómaröð — tóna sem eiga að segja
allt sem segja þarf.“
Count Basie var svo hrifinn af
Niels ungum að hann bauð honum
að ganga til liðs við hljómsveit sína
en pilturinn vildi heldur ljúka
menntaskólanámj en að flytjast til
Bandríkjanna — svo hefði ég heldur
aldrei getað húgsað mér að gegna
herskyldu þar.
Niels lék lengi í tríói Oscar Peter-
sons og þar öðlaðist hann mesta
frægð í Bandaríkjunum. En nú vill
hann ráða tíma sínum meira sjálfur
og satt að segja höfum við aðdáend-
ur hans oft óskað þess að hann hljóð-
ritaði meira undir eigin nafni.
„Ég var á ferð og flugi hálft árið
en hinn helminginn dvel ég heima
og hjálpa Sólveigu við að ala upp
dæturnar okkar þijár. Það er dálitið
erfitt að ala þær upp gegnum síma.
Að vísu er ég duglegur að skrifa
heim og þær hafa kynnst mörgu
gegnum reynslu mina. Nú höfum
við Philip verið að taka upp plötu
og svo er ég að fara í ferðalag um
Spán með sænska gítaristanum Ulf
Wakenius og bandariska trommar-
anum Alvin Queen. Við ætlum að
fara í tónleikaferð um Norðurlönd í
mars eða apríl og þá langar mig
mikið til að koma til Islands og leika
þar aftur.“
Niels hefur verið mikill íslands-
vinur frá barnsaldri. Hann las frá-
sagnir af hetjum ísiendingasagn-
anna ungur og síðan hefur Sögueyj-
an verið draumalandið — en hvenær
draumurinn um að ferðast yfir há-
lendið rætist veit enginn. Það er svo
mikið að gera í tónlistinni.
Vonandi kemur Niels hingað með
tríóið sitt. Það eru engir smákallar
sem leika þar með honum. Ulf Wak-
enius hóf feril sinn í rokki og blús.
Lék síðan flamenkó, klassík og djass.
Hann hefur hljóðritað með jafn ólík-
um tónlistarmönnum og brasilíska
harmónikkuleikaranum Sivuca og
danska fiðlaranum Svend Assmusem
og er talinn einn helsti virtúós í evr-
ópskum djassgítarleik. Alvin Queen
spilaði m.a. með Horace Silver, Ge-
orge Benson og Milt Jac.kson áður
en hann settist að í Sviss 1979 og
er af skóla Elvins Jones. Kannski
endurtekur frægðarsagan frá Há-
skólabíóstónleikunum 1978 sig er
þeir kappar spila með Niels í stað
Philips og Billy Harts. í það minnsta
er víst að engum mun leiðast á tón-
leikunum þeim.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990
Félagsheimilið í Efri-Ey.
Morgunblaðið/Vilhjálmur Eyjólfsson
Fyrsta athöfn í Séra
Friðriks kapellu
NÝLEGA fór fram fyrsta at-
höfn innan veggja Séra Frið-
riks kapellu sem nú er verið
að reisa að Hlíðarenda í
Reykjavík. Styrktarmenn
samtaka um byggingu kapell-
unnar komu þá saman í tilefni
eins árs afmælis samtakanna.
Séra Valgeir Ástráðsson flutti
hugleiðingu og fór með bæn.
Framkvæmdir við byggingu
Séra Friðriks kapellu hafa
gengið mjög vel. Lokið er við að
steypa upp útveggi og vinna við
þak er hafin. Um eitthundrað ein-
staklingar greiða reglulega styrk
til kapellubyggingarinnar auk fyr-
irtækja sem veitt hafa kapellunni
stuðning í formi fjárframlaga og
efnisgjafa.
Arkitekt kapellunnar er Nikulás
Úlfar Másson, verkfræðingur er
Þórður Búason og byggingaraðili
er Álftárós hf.
Félagsheimilið
í nýjan búning
Meðallandi.
FÉLAGSHEIMILIÐ í Efri-Ey í
Meðallandi hefur nú verið klætt
og einangrað að utan. Sá bygg-
ingarfyrirtækið Hagur hf. á
Kirkjubæjarklaustri um þetta.
Má segja að þarna lofi verkið
meistarann. Var húsið mjög
óhijálegt að utan og talið það
ljótasta í Meðallandi. Hefur þetta
nú snúist í andhverfu og talið að
ekki sé nú annað hús hér fal-
legra. Er þó eftir að mála þakið,
þar sem ekki var tíð til þess, og
smámunir ófrágengnir.
f
Húsið var byggt um 1930 og
notað í það að miklum hlut
efni úr gamla samkomuhúsinu á
Bakkakotsrima sem þá var rifið.
Tvisvar var byggt við húsið eftir
1950 og þá á vegum Félagsheimila-
sjóðs en í byijun var húsið byggt
sem skólahús og einnig ætlað til
samkomuhalds. Þarna var skóli
fram undir 1970 að hrepparnir hér
sameinuðust um kennslu á Kirkju-
bæjarklaustri.
Tvær veislur eru minnisstæðar
úr húsinu. Þær héldu Bretar okkur
1955 og 1956. Strönduðu þátogar-
amir King Sol og Crispin. Var þetta
viðurkenning fyrir að bjarga áhöfn-
unum. Þarna voru ræður fluttar og
þess minnst að þetta voru ekki
fyrstu áhafnir af breskum skipum
sem bjargað var á Meðallandsfjör-
um sem frá öndverðu hafa verið
mesti strandstaður landsins. Veittu
Bretar vel og fór allt fram í mesta
bróðerni, þótt þjóðirnar ættu þá í
landhelgisdeilu.
í Kaupmaitnahöfn
» FÆST
i BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUQVELLI
OG A RÁOHÚSTORGI
Á Efri-Eyjarbóli þar sem félags-
heimilið er, og mýrinni austan við,
var áður löggiltur áningarstaður á
meðan hesturinn var alls ráðandi á
þjóðvegunum. Og þarna í gamla
félagsheimilinu ér vinsæll áningar-
staður ferðamannahópa sem fara
Meðallandshringinn. Er það vel við-
eigandi, því þarna hefur verið áð
frá ómunartíð.
- Vilhjálmur.
Sr. Valgeir Ástráðsson flytur bæn í Séra Friðriks kapellu.
* tSSri
T
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI18, SÍMI91 -25188
MARTA ÖIIEST
DORIS LESSING
Ein frægasta skáldsaga Doris Lessing og fyrsta bókin í sagnabálki
hennar um Mörtu, uppreisnargjarna sveitastúlku af breskum ættum
í Afríku. Hún tvístígur á mörkum bernsku og þroska og á sér drauma
um réttlátara samfélag og frelsi hinnar fullorðnu konu. En hvað veit
Marta um lífið? Um þá baráttu mannanna að lifa í samræmi við hug-
sjónir sínar - að takast á við ranglætið í stað þess að tala um það - að
vera sjálfstæð kona í heimi sem stýrt er af hvítum karlmönnum?
Marta Quest er ástríðufull þroskasaga sem byggir að miklu leyti á lífi
skáldkonunnar - saga nútímakonu í átökum við samvisku sína og
samtíð. Birgir Sigurðsson þýddi. isbn 9979-53-008-1 innb.
ISBN 9979-53-006-5 kilja
Meðalland:
AUK k507-39