Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 02.12.1990, Síða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1990 m m Morgunblaðið/Ámi Sæberg Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, Margrét Heinreksdóttir, stjórnarformaður, og Jóhannes Tómasson, frétta og fræðsiufulltrúi, kynna landssöfnunina, sem hefst nú um helgina. Hjálparsöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar að hefjast: Verja á 13 milljónum til hjálparstarfs á næsta ári ÁRLEG landssöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, Brauð handa hungruðum heimi, hefst í byrjun desember, og hafa um 90 þúsund söfnunarbaukar og gírós- eðlar verið sendir til lands- manna. Söfnunin hefst formlega með aðventuhátíð í Hallgríms- kirkju sunnudaginn 2. desember kl. 16.30, að viðstöddum forseta Islands, forsætisráðherra og biskup. Söfnunin í ár fer fram undir slagorðinu „40 þúsund börn deyja daglega vegna nær- ingarskorts og sjúkdóma“. Und- anfarin tvö ár hefur Hjálpar- stofnun kirkjunnar einkum sinnt verkefnum í Asíu og Afríku, og var um 7 milljónum króna varið til þeirra á þessu ári, en rúmlega 4 milljónum var varið til verk- efna innanlands. Á næsta ári er áætlað að verja um 13 milljónum til þeirra verkefna sem stofnunin vinnur að. af sparifé þínu Ymsar eignir eru undanþegnar eignaskatti9 t.d. innstœða á BAKHJAKLI sparisjóðsins. BAKHJARL sparisjóðsins hentar þeim mjög vel sem vilja njóta hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. BAKHJARL ber háa vexti umfram verðtryggingu, nú 6.5%, og er aðeins bundinn í 24 mánuði. Með BAKHJARLI opnast einnig ýmsar leiðir hjá sparisjóðnum til hagsbóta fyrir þig og þína. Jafnframt er vert að hafa í huga að talsverður munur getur orðið á skattbyrði þeirra sem eiga um áramót inneign á BAKHJARLI, og hinna sem eiga á sama tíma álíka fjárhæð í verðbréfum og svipuðum eignum. Athugaðu kostina sem fylgja því að ávaxta fé þitt á BAKHJARLI sparisjéðsins. Haföu sparisjóðinn að bakhjarli SPARISJÓÐURINN SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR, SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS, SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA. Að sögn Jónasar Þórissonar, framk'væmdastjóra Hjálpar stofnunar kirkjunnar, berast stofn- uninni stöðugt beiðnir um aðstoð, bæði innanlands og erlendis frá. Hann sagði að áhersla hefði verið lögð á að sinna afmörkuðum verk- efnum, sem væru ekki umfangs- meiri en það að auðvelt væri að halda utan um þau og sjá fyrir endann á. Jónas sagði að meðal helstu verk- efna sem unnið verður að á næsta ári væri áframhaldandi verkefni í Indlandi, þar sem byggja á lítið sjúkrahús með aðstöðu fyrir 20 rúmliggjandi sjúklinga. Fram- kvæmdir við þá byggingu eru þegar hafnar, og er áætlað að þeim verði lokið næsta haust. Hjálparstofnunin hefur ákveðið að aðstoða 100 mun- aðarlaus börn á Indlandi með því að fæða þau og klæða og kosta skólagöngu þeirra. Það kostar um eitt þúsund krónur á mánuði fyrir hvert barn, og er hugmyndin að leita eftir föstum styrktarmönnum í þetta verkefni. Þá hefur Hjálpar- stofnunin lagt fram um 3 milljónir króna til byggingar sjúkraskýlis sem verið er að reisa í Suður- Eþíópíu, og á næsta ári verða lagð- ar fram 3,5 milljónir til að ljúka því verki. Jónas sagði að Hjálparstofnun kirkjunnar styddi verkefni sem unn- ið væri að í Nairobi í Kenýju, sem fólgið væri í því að styðja fátækar konur, sem lent hefðu í erfiðleikum vegna áfengis- og eiturlyfjaneyslu eða vændis. Hann sagði að 10-12 konum yrði kenndur saumaskapur og þeim sköpuð aðstaða til að geta framfleytt sér og börnum sínum. „Þetta er grasrótarstarf, sem ör- ugglega ber árangur ef við fáum frið til að sinna þessu verkefni,“ sagði hann. Áætlaðúr kostnaður við þau verkefni sem Hjálparstofnun kirkj- unnar ætlar að vinna að á næsta ári er samtals um 13 milljónir króna, og er stefnt að því að afla þess fjármagns að miklu leyti í söfn- uninni í desember, en þá fer einnig framm sala á friðarkertum stofnun- arinnar. Undanfarin ár hafa um 80% af því fé sem Hjálparstofnunin hefur varið til hjálparstarfa safnast í landssöfnuninni, og á næsta ári er áætlað að um 2 milljónir króna safnist að auki í gegnum styrktar- mannakerfi stofnunarinnar. Pennavinir Sautján ára vestur-þýskur piltur með áhuga á tónlist, dansi, íþróttum o.fl.: Stefan Schaffer, Sonnenstrasse 8, 8451 Hahnbach, West-Germany. Sextán ára menntaskólapiltur í Ghana með áhuga á körfubolta, ferðalögum o.fl.: Osman Minia, P. O. Box 1027, Tema, Ghana, West-Africa. Sextugur japanskur bílaverk- smiðjuhagfræðingur og frímerkja- safnari: Toshio Terawaki, 197-8, Chome Showa Minami- dori, Amágasaki-660, Japan. Sextán ára Austur-Þjóðveiji með áhuga á íþróttum og frímerkjum m.a.: Veit Wagner, Lutherstrasse 13, 6-20, Sonneberg, DDR-6412.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.