Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
ÞÓRIR AÐALSTEINSSON,
lést af slysförum mánudaginn 3. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Aðalsteinn Þórðarson, Sigríður Þórisdóttir,
Ólöf Aðalsteinsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Skeiðarvogi 79,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. desember
kl. 15.00.
Einar Jóhannsson,
Jóna Sigurðardóttir,
Kristinn Auðunsson
og barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
vélstjóri,
Birkimel 10,
Reykjavík,
lést i Landspítalanum að morgni 29. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðbjörg Halldórsdóttir,
Árni B. Guðmundsson, Guðrún Bergmann,
Stella Guðmundsdóttir, Jónas B. Birgisson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Syðri-Gegnishólum,
Álftahólum 6,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 7. desember
kl. 13.30.
Birgir Sigurðsson, Björn Ólafsson,
Sigríður G. Ólafsdóttir, Jökull Ólafsson,
Sigurður Ólafsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Útför
ÓLAFS PÁLS BETÚELSSONAR
fyrrv. strætisvagnastjóra,
Langhoitsvegi 156,
Reykjavfk,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 6. desember kl. 13.30.
Kristján Ólafsson, Kolbrún Óðinsdóttir,
Hrafnhildur, Hrund og Hulda Sigriður Kristjánsdætur.
Guðbjartur Betúelsson, Guðmundur Betúelsson,
Pálína Betúelsdóttir, Anna Betúelsdóttir.
+
Útför sonar míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GESTS GEIRSSONAR,
Smyrilshólum 4,
fer fram í Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 5. desember,
kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans,
er góðfúslega bent á Krabbameinsfélagið.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Möðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGVELDUR FJELDSTED
ÓLAFSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
andaðist laugardaginn 1. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elfsabet Hannesdóttir, Sveinn Skaftason,
Sigurjón Þ. Hannesson, Guðrún Hallvarðsdóttir,
Eggert Ó. F. Hannesson, Þórey Valgeirsdóttir,
Auðbjörg Hannesdóttir, Gabriel Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Hannes Þórólfsson
fv. lögregluþjónn
Fæddur 8. desember 1922
Dáinn 24. nóvember 1990
Fæddur var hann að bænum
Litlu-Ávík við rætur Reykjanes-
hyrnu á Ströndum norður og alinn
}iar upp af ömmu sinni, Sigríði
Ágústínu Jónsdóttur og móðurbróð-
ur, Guðjóni Jónssyni. Foreldrar
hans voru Jóhanna Guðbjörg Jóns-
dóttir og Þórólfur Jónsson .bóndi.
Ungu hjónin fengu til ábúðar
hluta af jörð föður hennar og
bjuggu þar uns hún lést. Þá var
Hannes tæpra 6 ára gamall. Leyst-
ist þá heimilið upp og börnin fimm
fóru víðs vegar í fóstur í sveitinni.
Hannes kvæntist 3. _desember
1949 Guðrúnu Kjartansdóttur
Klemenssonar frá Sveinatungu í
Norðurárdal. Vegir þeirra skildu.
Seinni kona hans er Steinunn Ax-
elsdóttir Jóhannessonar frá Ytra-
Hóli, Fnjóskadal, S-Þingeyjarsýslu.
Dætur Hannesar og Guðrúnar
eru Hafdís, félagsráðgjafi í Kópa-
vogi, og Þórey, hjúkrunarfræðingur
og menntaskólakennari á Egilsstöð-
um. Bam Þóreyjar er Nína Guðrún
Baldursdóttir, f. 10. maí 1989, og
sambýlismaður Þóreyjar er Baldur
Pálsson frá Aðalbóli í Jökuldal.
Þar sem góðir menn fara eru
guðs vpgir.
Eg kveð Hannes með söknuði og
þökk fyrir liðna daga sem við áttum
samleið. í hugann kemur svo margt
þegar leiðir skilja, allt riijast upp á
svipstundu, æðir fram stjórnlaust í
huga manns og líður fyrir hugskots-
sjónum.
Það var margt í fari Hannesar
sem laðaði mann að honum, hóg-
værðin, einlægnin. Svo átti hann
svör við mörgu sem um var rætt
enda víðlesinn. Hann átti sér mörg
áhugamál, t.d. ættfræði, bóklestur,
einkum vísindaskáldsögur og
frímerkjasöfnun.
Systkini Hannesar eru: Ólafur f.
1918, Pálína f. 1921, Magnús f.
1927. Látin eru Guðrún Lilja og
Guðfinnur Ragnar.
Að skólagöngu lokinni vann hann
ýmis störf. 1940 réðst hann til
starfa hjá breska hernum, síðan hjá
Bandaríkjaher sem tók við árið
1941.
Hannes var mikill málamaður og
var túlkur hjá verkfræðingunum
sem sáu um úppsetningu olíustöðv-
arinnar í Hvalfírði og aðstoðarmað-
ur við mælingar. Á Keflavíkurflug-
velli vann hann sem lögregluþjónn
og um 1947 réðst hann til lögregl-
unnar í Reykjavík og gegndi þar
ýmsum störfum. Með fram aðal-
starfi stundaði hann akstur leigu-
bifreiðar og hann var einn af fyrstu
félögum bifreiðastöðvarinnar Bæj-
arleiða. Einnig hafði hann lengi
með höndum ökukennslu. Hannes
varð sökum heilsubrests að takast
á hendur önnur störf innan lögregl-
unnar. Starfsferli sínum lauk hann
á skrifstofu lögreglunnar á gömlu
stöðinni í Pósthússtræti.
Heilsu Hannesar hrakaði mjög
ört. Síðustu tvö æviár sín dvaldist
hann í Hátúni lOb. Sérstakar þakk-
ir til hjúkrunarfólks, lækna og ann-
ars starfsfólks fyrir frábæra hjúkr-
un og umhyggju.
Allra faðir, örlög veist þú mín.
í angist hrópa ég í bæn til þín.
Þú, sem skilur dulinn hugarharm,
hjarta mínu lyft að þínum barm.
Leiði mig þín blessuð hjálparhönd
heim á bjarta ódauðleikans strönd.
Þar er hvíldin þreyttu bami vís
þegar sól á efsta degi rís.
Ólöf J. Jónsdóttir
HEFUR ÞÚ
KYNNTÞÉR
HAMAX
SNJÓÞOTUR
í
KAUPFÉLAGINU
OG
SPORTVÖRUVERSLUNUM
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÖRÐUM • SÍMI 6812 66
Lokað
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur verður lokað í dag
frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HANNES ÞÓRÓLFSSON
fyrrverandi lögregluþjónn,
Brekkustíg 6b,
Reykjavík,
er lést í Hátúni 10b 24. nóvember, verður jarðsunginn frá nýju
kapellunni í Fossvogi í dag, miðvikudaginn 5. desember, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á MS-félag íslands.
Steinunn Axelsdóttír,
Hafdís Hannesdóttir,
Þórey Hannesdóttir, Baldur Pálsson,
Nína Guðrún Baldursdóttir.
+
Bróðir okkar, ^
INGIMAR ÓLAFSSON,
Jaðarsbraut 39,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 6. desember
kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans,
er bent á dvalarheimilið Höfða eða Sjúkrahús Akraness.
Þórunn Ólafsdóttir,
Kristmundur Ólafsson,
Stefán Ólafsson.
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR GUÐFINNU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Króksstöðum,
Miðfirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vigdfs Þorsteinsdóttir, Guðmundur Guðjónsson,
Ingibjörg Eggertsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og bróður,
GÍSLA GUÐMUNDSSONAR
bifreiðastjóra,
Teigaseli 3,
Reykavík.
Sérstakar þakkir til bifreiðastjóra á Hreyfli.
Guðmundur Gíslason, Sigurlaug Steingrimsdóttir,
Ragna Gisladóttir,
barnabörn og systkini hins látna.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
KARLS VILHJÁLMSSONAR,
Bólstaðarhlfð 41.
Lára Sigurðardóttir,
Sigurður Karlsson,
Ásmundur Karlsson, Guðbjörg Alfreðsdóttir,
Guðrfður Karlsdóttir, Guðni R. Eyjólfsson,
Hólmfríður Karlsdóttir, Gunnar M. Sandholt
og barnabörn.