Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
Verkalýðshreyfingin og lýðræðis-
ást hinnar sjálfkjörnu forystu
eftir Níels Alvin
Níelsson
25. október sl. birtist í Morgun-
blaðinu grein eftir Þóri Karl Jónas-
son, verkamann, þar sem hann velt-
ir upp ýmsum merkilegum spurn-
ingum varðandi stjórnarhætti og
lýðræði í verkalýðsfélagi sínu,
Dagsbrún. Hann kemur meðal ann-
ars inn á hluti sem ég hef löngum
gagnrýnt innan verkalýðshreyfing-
2 arinnar, eins og hið óvirka lýðræði,
virkni hins almenna félaga og þaul-
setu forystumanna í valdastólunum.
í mörgum, ef ekki allflestum,
verkalýðsfélögum, situr forysta sem
heita má sjálfkjörin, sama fólkið
skipar sömu stjórnarsætin árum og
jafnvel áratugum saman. Það er
síðan á valdi stjórnar að skipa í
hinar og þessar nefndir og ráð (það
er þó breytilegt eftir félögum, sum
félög kjósa í hinar ýmsu nefndir á
aðalfundum en þá oftast samkvæmt
tillögu stjómar og er undantekning
ef koma fram einhver andmæli) og
má ganga út frá því sem vísu að
þar setjist sama fólkið í þau sæti
sem það hefur vermt undanfarin
ár. Endurnýjun er í lágmarki, stöðn-
unin er algjör. Hér má náttúrulega
spyija að því hvers vegna hlutunum
er svo fyrir komið. Er það vegna
þess að verkalýðshreyfigin sé ólýð-
ræðislega uppbyggð, vinnubrögð
forystunnar vafasöm, eða liggur
sökin hjá verkafólkinu sjálfu, vegna
dræmrar þátttöku í starfí verka-
lýðsfélaganna? Ég held að svarið
liggi að einhvetju leyti í öllum þess-
um þáttum. Athugum það nánar.
I grein sinni segir Þórir Karl
eftir Matthías
Eggertsson
í GATT-viðræðunum, sem nú eru
á lokastigi, og samningum EB og
EFTA um evrópskt markaðssvæði
hefur því verið haldið fram að
íslenska þjóðin megi ekki minnka
hlut matvælaframleiðslu sinnar til
eigin þarfa. Eins og málum er hátt-
að framleiðir þjóðin aðeins um
helming þeirra matvæla sem hún
neytir, mælt í hitaeiningum, en
flestar þjóðir framleiða mun hærra
hlutfall af eigin neyslu.
A hinn bóginn hefur verið bent
á að aukið viðskiptafrelsi auki vel-
megun, þar sem hvert land beini
kröftum sínum að því að framleiða
það sem það hefur best tök á út
frá náttúrulegum skilyrðum og
þekkingu. ísland er það norðariega
á hnettinum að hér hlýtur margs
konar matvælaframleiðsla að vera
mun óhagkvæmari heldur en sunn-
ar þar sem allur gróður vex hraðar
og skilar meiri uppskeru, hvort sem
það er gróður sem notaður er beint
til manneldis eða handa búfé. Að
vsu megi reikna með að einstaka
vörutegund, svo sem nýmjólk, sé
hentugt að framleiða innanlands,
vegna þess að hún þurfi að vera
fersk og nokkurra sólarhringa
flutningur með skipi sé auk þess
dýr. Þeim viðbárum að ótryggt sé
að vera öðrum háður um mat er
svarað þannig að þjóðin hafi upplif-
að tvær heimsstyrjaldir á þessari
öld og sloppið jafn vel eða betur frá
þeim en aðrar þjóðir hvað aðgang
að mat varðar, með allan sinn fisk.
Niðurstaðan sé því sú að öryggis-
þátturinn í matvælaframleiðslu inn-
anlands vegi ekki mjög þungt og
leyfa megi innflutning ýmissa mat-
vælategunda sem hingað til hefur
ekki verið Ieyfður eða mjög tak-
markaður, gegn því að felldir verði
m.a.: „Er það eðlilegt að í 4.000
manna félagi sé eining um alla
stjórnarmenn félagsins, jafnvel í
áratugi?“ Getur nú hver svarað sem
honum sýnist en óneitanlega virðist
ákveðið tregðulögmál vera að verki
þegar kemur að endurnýjun stjórn-
armanna Dagsbrúnar. Það hefur
leitt til þess að mótframboð hefur
verið ákveðið og er svo sem ekkeit
við það að athuga. Hinsvegar vekur
það furðu (og þó) að þegar aðstand-
endur mótframboðsins, sem eru all-
ir virkir félagar í Dagsbrún og hafa
að öllum líkindum greitt sín félags-
gjöld, fara fram á það við skrif-
stofu félagsins að fá aðgang að
félagaskrám, þá skuli því vera neit-
að. Halldór Björnsson, varaformað-
ur Dagsbrúnar, skýrir það svo að
félagaskráin sé eingöngu til stuðn-
ings sitjandi stjórn við uppstillingu
framboðslista og við daglegt starf
en viðurkennir í leiðinni að ekki sé
til nein stoð fyrir því í lögum félags-
ins að neita mótframboði um að-
gang að skránni. Hann viðurkennir
ennfremur að slíkt sé aðstöðumunur
og segir það „fullkomlega eðlilegt"
og má nú spyija um lýðræðisást
varaformannsins. Annar hluti af
þessu sama máli, þ.e.a.s. lýðræðis-
umræðunni, er virkni félaganna
sjálfra. Mæting á félagsfundi er
ákaflega lítil og líklega má þar finna
að einhveiju leyti orsök fyrir þeirri
stöðu sem mörg verkalýðsfélög eru
komin í. Það er orðið ansi alvarlegt
mál þegar einungis 30 manns mæta
á fund í 6-700 manna félagi og af
þessum 30 manna hópi er kannski
helmingur sitjandi í stjórn og trún-
aðarmannaráði. Þessi þróun getur
niður eða lækkaðir tollar erlendis á
fískútflutníngi okkar.
Gagnstæðum sjónarmiðum er
einnig haldið fram. Þar er bent á
að það sé fyrsta öryggiskrafa hverr-
ar sjálfstæðrar þjóðar að vera sjálfri
sér nóg um mat eftir því sem nátt-
úruskilyrði leyfa. Eigin matvæla-
framleiðsla er hluti af landvörnum
hvers ríkis og varðveislu þjóðernis.
Hugsanlegan aukakostnað við eigin
matvælaöflun megi telja með öðrum
tryggingakostnaði, sem einstakl-
ingur og fyrirtæki taka á sig. Fólk
tryggir sig gegn hvers kyns skakka-
föllum og tekur á sig útgjöld vegna
þess að eitthvað það er í húfi sem
það vill veija sig gegn.
Spyija má hvað það er í húfi sem
þjóðin vill tryggja sig gegn með þvi
að taka á sig aukakostnað af eigin
matvælaframleiðslu. Eitt er það að
matvælaframleiðsla í heiminum er
engin föst óumbreytanleg stærð.
Þessi framleiðsla hefur verið mikil
og meiri en eftirspurn nú í um þijá
áratugi en það er erfitt að gefa
tryggingu fyrir því að hún verði það
að þremur áratugum liðnum. Ymsar
blikur um að svo verði ekki eru
farnar að stíga upp á himininn. Þær
heita gróðurhúsaáhrif, rányrkja,
mengun o.fl. Gróðurhúsaáhrifin
svokölluðu, eða m.ö.o. hækkun hita-
stigs á jörðinni, hefur einkum
tvenns konar óheillavænleg áhrif.
Annars vegar gera þau stór svæði
ónýtanleg sem nú eru notuð til
ræktunar vegna þurrka og hita og
hins vegar hækkar sjávarstaða og
sjór flæðir yfir ræktunarlönd vegna
bráðnunar jökulíss. Rányrkja veldur
því að jarðvegur fýkur eða skolast
burt og mengun hefur margs konar
ill áhrif, ónýtir land til ræktunar,
spillir grunnvatni, veldur súru regni
og eyðir ózonlagi himinhvolfsins.
Þá eru ónefndar þær náttúru-
hamfarir sem við eigum yfir höfði
okkar og ísienska þjóðin þekkir
„Eg tel að almennt hafi
verkafólk misst álit og
traust á forystumönn-
um ASÍ og VMSÍ vegna
ósannfærandi fram-
komu gagnvart at-
vinnurekendum og
ríkisvaldi.“
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
hreyfinguna og allt verkafólk. I
fyrsta lagi er afar ólíklegt að nokk-
ur andstaða komi fram gegn tillög-
um stjórnar ef fylgismenn hennar
í nefndum og ráðum skipa meiri-
hluta á félagsfundum. Skiptir þá
engu máli hversu óánægt verkafólk
kann að vera. í öðru lagi getur sú
þróun átt sér stað að forystumenn
félagsins fari að líta á það sem „fé-
lagið sitt“ og einfaldlega kæfa öll
andmæli með yfirgangi, þekkingu
og rökfími sem beitt er óspart til
að sá eða þeir sem ekki sætta sig
við stefnu félagsins fái sem háðu-
legasta útreið. Þetta er náttúrulega
varasamt. En þá er komið að því
að við spyrjum okkur hvernig slík
þróun geti átt sér stað. Hvað hefur
orðið til þess að fólk sem í raun á
að stjóma verkalýðshreyfingunni
sýnir henni svo takmarkaðan áhuga
sem raun ber vitni? Við þessari
spurningu eru varla til einhlít svör
en hluta svarsins má kannski fínna
í þeirri þróun sem hefur átt sér
stað innan hreyfingarinnar. Það
sem áður var nokkuð virk fjölda-
hreyfing er í dag orðin einskonar
stofnun, miðstýrt skrifstofuvald
„Eitt af því sem tryggir
stöðu hverrar þjóðar er
að ekki sé unnt að beita
hana því vopni að hún
hafi ekki mat handa
þegnum sínum. Matar-
vopnið er skæðast allra
vopna.“
betur úr sögu sinni en margar aðr-
ar þjóðir.
Náttúrufræðingar eru farnir að
átta sig þeim hættumerkjum sem á
lofti eru, en hagfræðingar ekki eða
treglega.
A sama tíma og þannig horfir
er áætlað að jarðarbúum fjölgi um
u.þ.b. 85 milljónir á ári. Á móti því
kemur að vænta má að farið verði
að nota korn beint sem fæðu í
meiri mæli en áður, en ekki sem
fóður búfjár, og ýmsar framfarir
séu framundan í erfðatækni sem
með aðsetur í Reykjavík. Þar birtist
ásjónan útávið okkur í andlitum
þeirra hagfræðinga sem starfa á
vegum ASÍ, þar sem kjörorðið er
samflot og litlu félögin úti á Iandi
eru_ bundin á klafa „þjóðarsáttar"
ASÍ-forsetanna. Það mætti einnig
nefna óhóflega yfirvinnu verka-
fólks, sem ekki einungis eykur veik-
inda- og slysatíðni landsmanna
heldur stendur einnig í vegi fyrir
því að verkafólki geti notað frítíma
sinn til annars en hvíldar og heimil-
isstaffa _ og geti mætt á félags-
fundi. Ég er sannfærður um að
takist að stytta vinnutíma lands-
manna muni það skila ser í aukinni
virkni verkalýðsfélaga.
Ég tel að almennt hafi verkafólk
misst álit og traust á forystumönn-
um ASÍ og VMSÍ vegna ósannfær-
andi framkomu gagnvart atvinnu-
rekendum og ríkisvaldi, meðal ann-
ars vegna setu þessara manna í
bankaráðum og á Alþingi. Þarna
komum við að því sem sumir vilja
kalla „samtryggingu“, (sem er
ákaflega dónalegt, ég er viss um
að samningamakk fjórflokkanna á
ASÍ-þingum um skiptingu mið-
stjórnarsæta hefur ekkert með að
gera hversu sáttfúsir allir eru þegar
sest er við samningaborðið). í
margra augum og þar á meðal
mínum fer það einfaldlega ekki
saman við hlutverk „leiðtoga verka-
lýðsins" að sitja beggja vegna
borðsins, semja um launakjör t.d.
bankastarfsmanna og vera á sama
tíma í bankaráði, æðsta ráði bank-
ans. Þarna stangast hagsmunir
nefnilega á, því hagsmunir atvinnu-
nýtist til aukinnar matvælafram-
leiðslu.
Það er í eðli manna og þjóða að
leitast við að tryggja stöðu sína.
Oftast gerist það á friðsamlegan
hátt en með beitingu hervalds þeg-
ar verst gegnir. Eitt af því sem
tryggir stöðu hverrar þjóðar er að
ekki sé unnt að beita hana því vopni
að hún hafi ekki mat handa þegnum
sínum. Matarvopnið er skæðast
allra voþna. Þegar Litháen lýsti
yfir sjálfstæði beittu Sovétríkin því
vopni að stöðva flutning matvæla
og orku til landsins. Fyrir því urðu
Litháar að beygja sig. Sovétríkin
sjálf eru illa stödd um þessar mund-
ir hvað varðar matvælaöflun og
efnahag almennt. Þau hafa m.a.
leitað til'Japana um aðstoð en Jap-
anir hafa svarað því til að Sovétrík-
in verði fyrst að skila japönskum
eyjum sem þau lögðu undir sig í
heimsstyijöldinni 1939-45, áður en
til viðræðna um efnahagsaðstoð
komi. Nú er spurning hvað skortur
Sovétmanna einkum matarskortur,
knýr þá til að gera.
Það er vitað að margar tegundir
matvæla sem nú er ekki leyft að
flytja inn væri hægt að fá keyptar
erlendis á mun lægra verði um þess-
ar mundir heldur en það kostar að
framleiða þær innanlands. Ef sá
innflutningur yrði leyfður legðist
mestur hluti íslensks landbúnaðar
niður, verulegur hluti dreifbýlis
legðist í eyði og verkkunnátta og
staðþekking á náttúrufari víða um
land tapaðist. Hér skulu öll tilfinn-
ingaleg sjónarmið um menningarafl
og annað í því sambandi látin liggja
á milli hluta. Því verður hins vegar
að svara hvort slíkt borgaði sig
þegar til lengdar léti og hvort staða
Islands sem fullvalda ríkis hefði hag
af því.
Höfundur er ritstjóri
Búnaðarritsins Freys.
Níels Alvin Níelsson
rekenda geta aldrei verið þeir sömu
og launafólks. Og þar með erum
við komin inn á annað atriði sem
minnst var á í grein Þóris Karls,
en það er hinn ýmsi rekstur atvinnu-
fyrirtækja sem ASÍ stendur fyrir
eins og eignaraðildin að íslads-
banka, Samvinnuferðum-Landsýn
og annað af svipuðum toga. En það
er önnur saga og verri.
Að endingu vil ég nota tækifær-
ið, án þess að vilja blanda mér sérs-
taklega í málefni Dagsbrúnar enda
ekki félagi þar, til þess að benda
fólki á að verkalýðshreyfingin þarf
eimitt fólk eins og Þóri Karl, vilji
hún ekki stirðna upp og staðna með
þeim afleiðingum að hreyfingin
breytist (enn frekar en orðið er) í
þá átt að fólkið sé til vegna hreyf-
ingarinnar en ekki hreyfingin vegna
fólksins, en það er viðhorf sem ég
hef orðið var við. Ég vil þess vegna
óska Þóri Karli og félögum góðs
gengis í janúar næstkomandi.
Höfundur er verkamaður.
Steve Guttenberg og Jami Gertz
í hlutverkum sínum.
Háskólabíó
sýnir mynd-
ina „Ekki
segja til mín“
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til
sýninga myndina „Ekki segja til
mín“. Með aðalhlutverk fara
Steve Guntenberg, Jami Gertz
og Shelley Long. Leikstjóri er
Malcolm Mowbray.
Gus er að ná sér eftir geislameð-
ferð en við hana hefur hann misst
allt hárið. Lizzie systur hans er
mikið í mun að fá hann til að ger-
ast virkur þátttakandi í lífinu á ný,
einkum þó að finna stúlku við sitt
hæfi. Lizzie skrifar ástarsögur og
þykist vita allt um mannlegt eðli.
Hún kynnist í gegnum starf sitt
blaðakonunni Elise sem á að eiga
viðtal við hana. Lizzie sér í hendi
sér að þar sé komið hið vænsta
konuefni fyrir bróður sinn. Efnir
hún því til kvöldverðar fyrir Gus
og Elise sem mistekst hrapallega.
Það verður því að samkomulagi
milii þeirra systkina að Gus dulbúi
sig sem vélhjólahrotta og þykist
vera frá Nýja-Sjálandi. Þau sjá svo
til að fundum þeirra beri saman á
mjög óvæntan hátt og eins og við
var búist fellur Elise fyrir vélhjóla-
garpinum.
Öryggi í öflun matvæla