Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 4 Aðgerðir aðstoðarlækna: Hafa lítil áhrif enn á rekstur spítalanna AÐGERÐIR aðstoðarlækna á sjúkrahúsum höfðu í gær ekki valdið teljandi vanda í rekstri spítalanna, en framkvæmdasljórar sjúkrahús- anna I Reykjavík, sem aðgerðirnar ná til, töldu að ekki mætti drag- ast lengi að finna lausn í málinu. Aðstoðarlæknar hafa meðal annars mótmælt löngum vinnuvöktum og ákváðu að frá og með síðastliðnum mánaðamótum skyldu þeir ekki vinna lengur en 14 stundir á sólar- hring og ekki meira en 90 yfirvinnustundir í mánuði. Davíð Á. Gunnarsson forstjóri Ríkisspítala segir að sérfræðingar og yfirlæknar hafi komið í veg fyrir að aðgerðir unglækna yllu vandræð- um um helgina, en ljóst væri að ef lausn málsins drægist þá yrðu vand- ræði í rekstri Landsspítalans. „Ég treysti því að menn muni setjast nið- ur og reyna að semja á allra næstu dögum, helst á næstu klukkustund- um,“ sagði Davíð. Jóhannes Pálmason framkvæmda- stjóri Borgarspítalans sagði í gær að vandræði væru fyrirsjáanleg ef aðgerðimar dragast á langinn. Helg- in hefði ekki verið erfið fyrir Borg- arspítalann, þar sem spítalinn hafði ekki neyðarvakt og ekkí var mikið um slys. í gær var neyðarvakt á Borgarspítala, en Jóhannes sagði ástandið enn vera í jafnvægi. „Að mínu mati fer þetta fljótt að valda vandræðum. Það hlýtur að fara að draga úr innstreymi sjúklinga, því að það er takmarkað hvað menn sem eru kannski komnir á efri ár treysta sér í miklar vaktir," sagði Jóhannes. Á Landakotsspítala hafa aðgerð- imar engin áhrif, að sögn Loga Guð- brandssonar framkvæmdastjóra, þar sem annað vinnufyrirkomulag gildir þar og beinast því aðgerðir læknanna ekki að þeim spítala. Morgunblaðið/Emilía Ráðhúsið hýsir bíla Það hillir undir það að ráðhúsið í Reykjavík verði tekið í notkun en í gær var hluti bílastæðageymslu í kjallara hússins opnaður. Tekin vom í notkun 60 stæði en alls er þar gert ráð fyrir 140 stæðum þeg- ar framkvæmdum við húsið lýkur í apríl á næsta ári. Bflastæðin verða opin frá kl. 7.30-18.30 alla virka daga. í desember og janúar á næsta ári verð- ur engin gjaldskylda í bflageymsluhúsinu. Myndin var tekin þegar Davíð Oddsson borgarstjóri ók bif- reið sinni í geymsluna að viðstöddu fjölmenni. VEÐUR Könnun Félagsvísindastofnunar: VEÐURHORFUR IDAG, 5. DESEMBER YFIRLIÍ í GÆR: Yfir vestanverðu Grænlandshafi er vaxandi lægð sem þokast austnorðaustur. Skammt vestur af (rlandi er 1.038 mb hæð. Fremur hlýtt verður um allt land í kvöld og nótt en á morgun kólnar, fyrst vestanlands. SPÁ: Suðvestlæg átt, víða hvöss um vestanvert landið en hægari austantil. Éljagangur um allt vestanvert landið og sums staðar rign- ing austanlands fram eftir degi, en léttir síðan til. Hiti 1-4 stig vestanlands en 4-7 stig austanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðlæg átt, víða nokkuö hvöss. Snjó- koma um allt norðanvert landið en él syðra, síst á Suðausturlandi. HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi noröan- og norðvestanátt. Él norðantil en víða léttskýjað syðra. Talsvert frost um allt land báða dagana. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / 7 / / / Rigning / / / * / * r * r * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * -|Q Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir = Þoka =r Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 0 snjókoma Reykjavik 7 súld Björgvin 1 snjóél Helsinki 4 léttskýjað Kaupmannahöfn 5 léttskýjað Narssarssuag 44 snjókoma Nuuk '40 skafrenningur Ósló 3 skýjað Stokkhólmur 2 léttskýjað Þórshöfn 4 hálfskýjað Algarve 16 rignlng Amsterdam 8 skýjað Barcelona 12 heiðskírt BerKn 5 skýjað Chlcago 45 snjókoma Feneyjar 8 þokumóða Frankfurt 7 skúr Glasgow 9 skýjað Hamborg 6 skýjað Las Paimas 25 skýjað London 7 mistur Los Angeles 16 helðskírt Lúxemborg 5 súld Madrfd 9 léttskýjað Malaga 16 súld Mallorca 14 léttskýjað Montreal 41 ískorn NewYork 15 rigning Orlando 19 alskýjað París 7 skýjað Róm 11 heiðskfrt Vín 1 snjókoma Washington 12 skúr Winnipeg 415 léttskýjað Þríðjungnr nemenda vinnur með náminu RÚM 33% nemenda vinna að jafnaði með námi og 5% að auki vinna í tengslum við það nám sem þeir stunda. Vinna nemenda fer einkum fram um helgar en meðalvinnutími þeirra er 15 klukkustundir á viku. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði í Iok mars og byrjun apríl 1990 fyrir menntamálaráðuneytið. Valdir voru 11 skólar af handa- hófi og 1.300 nemendur úr þeim skólum. 1.035 nemendur svöruðu eða 79,6%. Fram kom að konur vinna í meira mæli en karlar og nemendur fjölbrautaskóla meira en nemendur menntaskóla. Þá unnu 42,5% nemenda með námi einhvern tíma um veturinn og rúm 5% að auki í tengslum við það nám sem þeir stunda. Meðalvinnutími þeirra sem vinna er 15 klukkustundir á viku og 15% þess hóps vinnur 20-30 klukku- Stundir á viku. Karlar vinna að jafn- aði talsvert lengri vinnuviku en konur oghafa því hærri heildarlaun á mánuði þrátt fyrir að tímakaup karla og kvenna sé að jafnaði svip- að. Könnunin leiddi í ljós að vinna nemenda með námi fer einkum fram um helgar. Rúmlega 80% þeirra sem vinna með námi segjast vinna um helgar en um fjórðungur daglega virka daga. Flestir aðspurðra sögðust vinna til að afla sér vasapeninga. Þeir yngstu vinna í mun meira mæli en þeir eldri í þessum tilgangi en þeir eldri frekar til að sjá fyrir sér eða afla heimilinu tekná. Þá segjast þeir landsbyggðarbúar sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu einkum vinna til að sjá fyrir sér en allir aðrir til að afla sér vasapeninga. í ljós kom að konur stunda eitt- Ræsir hf.: hvert annað nám með skólanum í meira mæli en karlar, en karlar leggja stund á eitthvað annað, sér- staklega íþróttir, í meira mæli en konur. Þátttaka í félagslífi í skóla fer mikið eftir því hve langt menn eru komnir í námi, þannig að þeir sem eru að byija 'eða eru um mitt nám taka meiri þátt í því en þeir sem eru að ljúka námi. Þeir sem lengst eru komnir í námi starfa hins vegar mest að stjómun og í nefndum á vegum skólanna. Þeir sem vinna mikið stunda skóla og heimanám minna en aðrir. Ólympíuskákmótið: Island í átt- unda sæti íslenzka skáksveitin várð í 8. sæti á Ólympíuskákmótinu í Novi Sad í Júgóslavíu, sem lauk í fyrra- dag. ísland varð í 8-12. sæti með 32,5 vinninga ásamt Þýzkalandi, Indlandi, Svíþjóð, Hollandi og B- sveit Júgóslavíu en hafði flest stig og telst því í 8. sæti. Sovétríkin urðu í 1. sæti, Bandaríkin í 2. sæti og England í 3. sæti. Fyrstu Mözdumar á leiðinni til landsins FYRSTU Mazda bílarnir til Ræsis hf. eru nú á leiðinni til landsins og eru væntanlegir síðari hluta mánaðarins. Um síðastliðna helgi tók Ræsir við varahlutasölu í Mazda og er nú öll varahlutaþjón- usta þar. Hallgrímur Gunnarsson forstjóri Ræsis sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að fyrstu bflarnir af Mazda gerð hefðu verið væntanleg- ir til Antwerpen frá Japan í gærdag og verða þeir settir í skip til'Islands eftir fáeina daga. Hallgrímur kvað ekki enn ljóst nákvæmlega hvenær verður hægt að afhenda fyrstu bílana, enda ætti meðal annars eftir að sjá hversu fljótt gengur að gerðarskoða bflana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.