Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 ikllll M»V ASEA BROWN BOVERI Rafhlöðuverkfærin frá ABB STOTZ-KONTAKT leysa vandann • Gott jafnvægi • Stillanlegt átak • Tveir hraðar • Báðarsnúningsáttir • Fylgihlutir • Gott verð Vatnagörðum 10 Símar 685854 og 685855 Opið í kvöld - eldhúsið opið frá kl. 18-24 Sérstakir gestir fj kvöldsins kl. 22 Trió Guómundar Ingólfssonar | Aðgangseyrir: FRÍTTINN í KVÖLD Velkomin til Ömmu Lú matsölu- og skemmtistaður Kringlunni 4, sími 689686 Glens og gaman Bókmenntir Erlendur Jónsson Árni Johnsen og Sigmund: ÞÁ HLÓ ÞINGHEIMUR. 198 bls. Hörpuútgáfan. 1990. I bók þessari eru myndir eftir Sigmund, smásögur af þingmönn- um, eða J)ingmönnum tengdar, skráðar af Árna, og vísur eftir þing- menn, og um þingmenn. Árni lætur þann sjálfsagða fyrirvara fylgja stökunum að þær »áttu við á einum stað og einu sinni.« En svo kvað ágætur hagyrðingur um eigin vísnasmíð. Þingmenn gera sér stundum glaðan dag. Það er ekkert leyndar- mál. Hefð mun fyrir því að í þing- veislum svo kölluðum leyfist mönn- um því aðeins að taka til máls að þeir fari með bundið mál frum- samið. Hér er meðal annars bragur mikill sem Brynhildur, kona Alberts Guðmundssonar, flutti í einni þing- veislunni. Þá er birt Þingtíðindator- rek sem önnur kona flutti við annað sams konar tækifæri. Dável eru kvæði þessi ort en hafa vafalaust notið sín betur á þeim eina stað og við þau einu tækifæri þar sem þau áttu við. Sýnishorn er hér af kveð- skap Skúla Guðmundssonar, en hann var hinn ágætasti hagyrðing- ur og — eftir að órímuð ljóð komust í tísku — eldheitur forsvarsmaður' ríms og ljóðstafa. Það var löngum einkenni kveðskapar Skúla að væri hann lesinn eins og laust mál fann enginn að um bundið mál væri að ræða, svo eðlileg var orðaröðin. Jón Pálmason var líka bráðsnjall hagyrðingur. Ennfremur Bjarni Ásgeirsson. Þessir mætu menn settu svip á Alþingi áratugum sam- an og áttu þátt í að skapa þá já- kvæðu hugmynd sem alþýða manna gerðksér þá um þessa æðstu stofn- un þjóðarinnar. Meðal þeirra, sem nú sitja á Al- þingi, munu vera margir hagyrðing- ar og eru sýnishorn þau, sem birt eru í bókinni, af fjölbreytilegasta tagi. En eins og Árni segir í inn- gangi: »Oft er það svo með tækifær- isvísur að þær geyma skemmtilegar uppákomur þótt þær kunni að vera misjafnlega gerðar, en að þeim steðjar sama hætta og sögunni sjálfri sem skolast til á stundum.« Munurinn á kveðskap hinna yngri og eldri sýnist helst vera sá að nú leggja menn minni áherslu á orðavalið, hagmælskuna; leggja því meira upp úr skemmtuninni, fyndn- inni; viðleitninni að segja eitthvað sniðugt! Vinnustaðabrandarar ganga hvarvetna þar sem fólk deilir kjör- um langtímum saman. Mun Alþingi Árni Johnsen ekki vera nein undantekning frá þeirri reglu. Oft tjóir lítt fyrir ókunnuga að reyna að botna í vit- leysunni. En höfundar bókar þess- arar gera ráð fyrir að lesendur átti sig á forsendum þar sem Alþingi er daglega í fréttunum og fjölmiðlar henda gjarnan á lofti fleyg um- mæli þingmanna. Hér gildir þó enn og aftur það sem sagt var um stund og stað. Það eru aðstæðurnar, til- efnið, hópurinn, hugblærinn, sem kveikir stemmninguna; ekkert eitt, heldur allt þetta saman. Að láta dauðan bókstafinn endurvekja þvílíka stemmningu, jafnvel löngu SUMAR á Sólheimum heitir bók sem Bókaútgáfan Hildur hefur gefið út eftir höfund sem ekki hefur áður kvatt sér hljóðs, Ágústu Ágústsdóttir, söngkonu og prestsfrú að Holti í Onundar- firði. í kynningu útgefanda segir m.a.: „I bókinni lýsir höfundur við- burðaríku sumri krakkanna í daln- um, sem er á mörkum sveitar og þorps við vestfirskan fjörð. Hugð- næm og sérlega skemmtileg bók fyrir alla aldurshópa." Bókina prýðir fjöldi teikninga eftir Sigrúnu Sætran. Bókin er 120 bls. Sigmund síðar, er hægara sagt en gert. I raun er bók þessi eins konar innanhússalbúm þingmanna. Hún kann líka að vekja forvitni með þeim sem áhuga hafa á þingmönn- um og þingmennsku, að ekki sé talað um hina sem eiga sér þá ósk heitasta að bætast .í þennan dýrlega hóp sjálfir. Myndir Sigmunds vekja alltaf verðskuldaða athygli. Sigmund er lagið að teikna svo mannsandlit að svipmót þekkist á augabragði þó ýkt sé. Að öðru leyti skal myndlist- argagnrýnendum látið eftir að gefa honum þá einkunn sem gilda skal. Ágústa Ágústsdóttir Bók eftir Agústu Águstsdóttur Stórkostlegt nýárskvöld á Breiðvangi Breiðvangur mun halda stórkostlega veislu á nýárskvöld til að fagna nýju ári. Sérstaklega verður vandað til og mun allt verða gert til að gera þetta kvöld að einni veglegustu veislu ársins. II5IIÍVAMIÍ iMJérr Borðapantanir tí Breiövaugi alla virka claga frá kl. 13—1B í síma 77500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.