Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
Vegir eru færir víð-
ast hvar um landið
VEGIR um nánast allt land eru nú færir öllum bílum, en hálka er
þó víða á Norðurlandi og á heiðum uppi. I fyrrinótt snjóaði á Vest-
fjörðum og í gær voru því heiðar á leiðinni frá Patreksfirði til Isa-
fjarðar aðeins færar jeppum og stærr;i bílum. Samkvæmt upplýsing-
um vegaeftirlits Vegagerðarinnar er ástand á vegum nú svipað og
það var á sama tíma í fyrra, en þá voru hlýindi á landinu svipuð og nú.
Samkvæmt upplýsingum Veður-'
stofunnar var nóvember síðastliðinn
fjórði hlýi nóvembermánuðurinn í
röð. Talsvert hlýrra var í nóvember
1987 en nú, hitastig var mjög svip-
að í nóvember 1988 og nú, en ívið
kaldara var í nóvember í fyrra en
nú. Meðalhitinn í Reykjavík var 3,7
gráður og er það 2,1 gráðu yfir
meðallagi. Á Akureyri varð meðal-
hitinn 2,6 gráður, en -2,6 gráður á
Hveravöllum.
Úrkoma í Reykjavík mældist 70
mm og er það 12% minna en í
meðalári. Á Akureyri mældist úr-
koman 20 mm, sem er nálægt 40%
af meðalúrkomu. Svipað úrkomu-
hlutfall varð í Hjarðarnesi_, en úr-
koma þar mældist 55 mm. A Hvera-
vöilum mældust 33 mm. í Reykjavík
mældust 23 sólskinsstundir í nóv-
ember og er það 14 stundum færra
en að meðaltali. Á Akureyri voru
sólskinsstundirnar 25 eða 13 fleiri
en í meðalári.
Þorskveiðar:
Verðmæti meira þótt
aflinn hafi minnkað
Framleiðsluverðmæti þorsks á þessu ári verður trúlega 2% meira en
í fyrra, miðað við að einungis verði veidd um 300 þúsund tonn af þorski
í ár, eða 15% (54 þúsund tonnum) minna en í fyrra. Míeðalverð á ölium
botnfiski á erlendum mörkuðum hefur hækkað um 16% frá því í ,'yrra
og reiknað er með að það verði 17% hærra í ár en síðastliðnu ári.
Búist er við að heildarbotnfiskaflinn verði 10% (um 70 þúsund tonn-
um) minni í ár en í fyrra, eða 630 þúsund tonn, þannig að framleiðslu-
verðmæti aflans verði 7% meira en í fyrra.
Útflutningsverðmæti botnfisks
var 43,2 milljarðar króna í fyrra en
reiknað er með að verð á botnfiski
verði 30% hærra í lok þessa árs en
meðalverð á botnfiski á erlendum
mörkuðum í fyrra. Útflutningsverð-
mæti sjávarafurða var um 56,8 millj-
arðar króna árið 1989 og 43,8 millj-
arðar árið 1988.
Miðað við að þorskaflinn verði 310
þúsund tonn í ár og loðnuaflinn 200
þúsund tonn á þessari haustvertíð
verður útflutningsverðmæti sjávar-
afurða á þessu ári trúlega um 70
milljarðar króna, eða 13,2 millj-
örðum (23%) meira en í fyrra. Miðað
við sömu forsendur verður fram-
leiðsluverðmæti sjávarafurða í ár um
67,5 milljarðar. Þá er reiknað að
veitt verði að meðaltali 6,6% minna
af botnfiski, rækju og humri í ár en
í fyrra.
Áætlað útflutningsverðmæti
Lést í flugslysi
FLUGMAÐURINN sem lést er
TF-TIU fórst á Mosfellsheiði í
fyrradag hét Þórir Aðalsteins-
son, 22 ára gamall.
Þórir var fæddur 1. janúar 1968
og bjó í foreldrahúsum í Reykási 2
í Reykjavík.
Loftferðaeftirlit vinnur að rann-
sókn á tildrögum slyssins en orsak-
ir þess eru enn óljósar.
Tími endurskinsmerkjanna
Morgunblaðið/Þorkell
Um árabil hefur lögreglan í Reykjavík heimsótt
dvalarheimili aldraðra í borginni í vetrarbyrjun,
rætt við íbúana um ýmislegt sem umferðinni viðkem-
ur og dreift endurskinsmerkjum jafnframt því að
ráðleggja um notkun þeirra. Endurskinsmerkja er
mest þörf í skammdeginu, ekki síst þegar jörð er
auð. Myndin var tekin þegar Arnþór Ingólfsson að-
stoðaryfírlögregluþjónn og Þorgrímur Guðmundsson
varðstjóri heimsóttu heimili aldraðra í Norðurbrún
á dögunum.
Alþingi:
frystrar rækju í ár er 4,2-4,3 millj-
arðar og frysts hörpudisks 700-800
milljónir en í fyrra var útflutnings-
verðmæti frystrar rækju um 4,3
milljarðar og frysts hörpudisks um
540 milljónir. Búið var að flytja út
humar fyrir 614 milljónir í lok sept-
ember síðastliðins en í fyrra var
fluttur út humar fyrir 566 milljónir.
Einungis hafa verið veidd um 60
þúsund tonn af loðnu á þessari vertíð
og hugsanlegt er að þorskaflinn
verði einungis 300 þúsund tonn á
þessu ári, eða 54 þúsund tonnum
minni en í fyrra. Ef ekki verða veidd
meira en 60 þúsund tonn af loðnu
á þessari haustvertíð verður loðnu-
aflinn um 670 þúsund tonn í ár, eða
mjög svipaður og í fyrra en þá var
hann um 667 þúsund tonn. Útflutn-
ingsverðmæti þessa 670 þúsund
tonna loðnuafla yrði hins vegar 250
milljónum (um 5%) minna en loðnu-
aflans í fyrra, eða um 4,6 milljarðar.
Útflutningsverðmæti 200 þúsund
tonna loðnuafla er nú um 1,5 millj-
arðar króna en 60 þúsund tonna
loðnuafla um 450 milljónir. Útflutn-
ingsverðmæti 10 þúsund tonna af
þorski er hins vegar um einn millj-
arður króna. Útflutningsverðmæti
sjávarafurða í ár yrði því væntanlega
um 68 milljarðar, eða 11,2 miiljörð-
um (20%) meira en í fyrra, ef þorsk-
aflinn verður einungis 300 þúsund
tonn í ár og ekki tekst að veiða
meira af loðnu á þessari haustvertíð
en þau 60 þúsund tonn, sem þegar
eru komin á land.
Bráðabirgðalögin verða
afgreidd frá nefnd í dag
Málið áfram rætt á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks í dag
PALL Pétursson, formaður
fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deildar Alþingis segir að
nefndin muni skila nefndaálit-
um í dag. „Við héldum fund í
morgun, en sjálfstæðismennirn-
ir í nefndinni báðu um að frum-
varpið yrði ekki afgreitt form-
lega úr nefndinni fyrr en í
fyrramálið, þar sem þeir ættu
eftir að skrifa nefndarálit,"
sagði Páll í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Páll sagði að umræðum um
málið væri lokið í nefndinni, og
aðeins væri éftir að taka það form-
lega út úr nefndinni og leggja
nefndarálitin fram, sem yrði gert
í dag.
„Eg ætlaði að afgreiða málið í
dag, svo hægt væri að ræða það
á morgun, en sjálfstæðismennim-
ir, þeir Friðrik Sophusson og Matt-
hías Bjarnason færðust undan því
að það yrði gert. Þetta varð því
að samkomulagi og verður málið
rætt í neðri deild á fimmtudag,
eftir að fundi í Sameinuðu þingi
lýkur,“ sagði Páll.
Friðrik Sophusson, annar full-
trúi Sjálfstæðisflokksins var
spurður í gær hvort fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins myndu skila sam-
eiginlegu áliti í nefndinni: „Ég hef.
ekki hugmynd um það, því Matt-
hías Bjamason er veikur,“ sagði
Friðrik. Ekki tókst að ná í Matt-
hías í gær.
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær, að þingflokksfundi þeim
sem frestað var í fyrrakvöld, áður
en umræðum um afstöðu þing-
flokksins til bráðabirgðalaganna
var lokið, yrði fram haldið á venju-
legum þingflokksfundartíma í dag.
Borgarráð:
Nefnd sérfræðinga um
vatn frá Nesjavöllum
SIGRÚN Magnúsdóttir hefur lagt fram tillögu í borgarráði um að
skipuð verði fimm manna nefnd sérfræðinga er kanni vandamál
sem upp hafa komið hjá Hitaveitu Reykjavíkur vegna Nesjavalla-
veitu.
Arnarflug innanlands hf.:
Fjórðungi starfsfólks hef-
ur verið sagt upp störfum
Dornier-vélinni skilað, önnur 19 sæta keypt
ARNARFLUG innanlands hf. hefur skilað Domier-flugvélinni sem
félagið hefur haft á ieigu frá Dornier-verksmiðjunum í Þýska-
landi undanfarið hálft ár. Hefur verið ákveðið að kaupa eldri
vél, sömu gerðar, sem á að taka í notkun í byrjun næsta árs, að
sögn Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra. Þá hefur fimm
starfsmönnum, tveimur flugmönnum og þremur flugvirkjum,
verið ságt upp störfum hjá Amarflugi innanlands en um 20 manns
hafa starfað hjá fyrirtækinu.
Ástæða uppsagnanna eru
breytingar sem fyrirhugaðar eru
hjá fyrirtækinu og hafa eigend-
umir í hyggju að halda úti tveim-
ur 19 sæta vélum í innanlands-
fluginu í framtíðinni.
Ástæða þess að Domier-vélinni
hefur verið skilað er að sögn
Magnúsar sú, að félagið fékk ekki
úthlutað flugleiðinni á milli
Reykjavíkur og Húsavíkur.
Ámarflug innanlands heldur
uppi áætlunarflugi til átta staða
á landsbyggðinni ðg á Twin Otter-
vél, Cessnu og vél af gerðinni
Piper Chieftain. Breytingamar
miðast að því að hafa færri og
stærri vélar í rekstri í framtíðinni.
Magnús sagði að rekstur Am-
arflugs innanlands hefði gengið
þokkalega en stjómendur þess
hefðu einkum augastað á fyrir-
hugaðri opnun á innanlandsflug-
inu, samkvæmt áætlun sam-
gönguráðherra, sem gerir ráð fyr-
ir samkeppni í áætlunarflugi til
allra stærri flugvalla landsins eft-
ir áramótin 1991-92.
í greinargerð með tillögunni
kemur fram að í fyrstu hafi verið
talið að óhreinindi stífluðu inntaks-
síur á kerfi Hitaveitunnar eftir að
Nesjavallaveita var tengd. í ljós
hafi komið að sú skýring er ekki
einhlít, þar sem kísill, magnesium
og brennisteinn finnst í vatninu.
Bent er á að í skýrslu Orkustofn-
unar frá 1983 er varað sérstaklega
við hættum af úrfellingum þegar
blandað er saman fersku vatni og
hitaveituvatni. í lokaorðum skýrsl-
unnar kemur fram að niðurstöður
kalli á mun nákvæmari líkantil-
raunir, þar sem fyrir dyrum standi
frekari virkjanir á háhitasvæðum
landsins þar sem ferskvatn yrði
notað sem varmamiðill, svo sem
virkjun Hitaveitu Reykjavíkur á
Nesjavallasvæðinu en þar séu
vísbendingar um vandamál vegna
úrfellingu magnesíumsilikata.
Gunnar H. Kristinsson, hita-
veitustjóri, vildi ekki tjá sig um
tillöguna að svo stöddu en sagði
að borgarstjóra yrði afhent skýrsla
um málið í dag.
Hilda hf. gjaldþrota
Skuldir taldar um 300 milljónir króna
BÚ Hildu hf. var í gær tekið til gjaldþrotaskipta að ósk stjórnar
félagsins. 1 ágústlok námu skuldir félagsins 300 milljónum króna,
samkvæmt milliuppgjöri en eignastaða er ekki ljós, að sögn Andra
Árnasonar hdl, sem hefur búsljórn með höndum, og veldur því
meðal annars að óvíst er að hve miklu leyti reynist unnt að inn-
heimta útistandandi kröfur, sem nema tugum milljóna króna.
Auk starfsemi hér á landi, á fyrir-
tækið 8 dótturfyrirtæki í rekstri í
Bandaríkjunum, og á Hilda hf. mikl-
ar skuldir útistandandi hjá þeim.
Hilda hf. var að stærstum hluta í
eigu Tómasar Holton og fjölskyldu
hans. Fyrirtækið á fasteignir, meðal
annars í Borgartúni 22 í Reykjavík.
Bústjóra var í gær ekki fullljóst hve
margir starfsmenn væru en starf-
semin hafði dregist talsvert saman
áður en til gjaldþrots kom. Þrota-
búið mun halda uppi rekstri fram
yfir áramót.