Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 1
72 SIÐUR B/C/D
296. tbl. 78. árg._________________________________FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bonner varar við
kúgnn með auknum
völdum Gorbatsjovs
Boston. Reuter.
JELENA Bonner, ekkja sovéska andófsmannsins Ándrei Sakharovs,
spáði því í gær að her og lögregla ættu eftir að efna til herferðar
gegn andstæðingum Mikhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. Lagði hún
til að Bandaríkjamenn hættu stuðningi við Gorbatsjov en tækju í
staðinn afstöðu með Eystrasaltsríkjunum og öðrum lýðveldum sem
segja vildu sig úr sovéska ríkjasambandinu.
Bonner lét þessi ummæli falla í
viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð
sama daginn og sovéska þingið
samþykkti að veita Gorbatsjov stór-
aukið framkvæmdavald. „Gorb-
atsjov er ekki að stuðla að auknu
lýðræði heldur er hann að hverfa
aftur til grimmilegrar alræðis-
stjórnunar. Og við getum átt von á
því sama frá henni og öðrum alræð-
isstjórnum, óviðjafnanlégum vanda-
Persaflóaríkin:
Brottflutn-
ingur banda-
rískra þegna
undirbúinn
Washington, Amman. Reuter.
BANDARÍSKA varnarmála-
ráðuneytið er nú að ljúka gerð
áætlunar um brottflutning rúm-
lega 30.000 óbreyttra banda-
rískra þegna frá Miða'usturlönd-
um fyrir 15. janúar nk., að sögn
CAW-sjónvarpsstöðvarinnar, en
þann dag rennur út sá frestur
sem írakar hafa til að hverfa
með innrásarlið sitt frá Kúvæt.
Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar
gerir áætlunin ráð fyrir því að all-
ir óbreyttir bandariskir þegnar
sem dveljast í löndum við Persa-
flóa verði fluttir burt frá svæðum
sem liggja að hugsanlegu átaka-
svæði komi til bardaga við íraka
eftir 15. janúar.
í fyrradag fyrirskipaði banda-
ríska utanríkisráðuneytið starfs-
mönnum sendiráðanna í Jórdaníu
og Súdan og skylduliði að koma
sér úr landi „löngu“ fyrir 15. jan-
úar vegna. Aðeins örfáir sen.di-
ráðsmenn verða eftir til þess að
sinna nauðsynlegustu störfum.
Aðrir bandarískir þegnar voru
sömuleiðis hvattir til að koma sér
strax frá þessum löndum. Jórd-
önsk yfirvöld sökuðu Bandaríkja-
menn um að valda óþarfa spennu
með þessari ákvörðun. Sjálf und-
irbúa þau sig þó af kappi undir
hugsanleg átök á Persaflóasvæð-
inu því undanfarna daga hefur
viðbúnaður jórdanska hersins ver-
ið stórefldur meðfram ísraelsku
landamærunum. Jórdanskir emb-
ættismenn sögðu í gær að óttast
væri að ísraelar myndu dragast
inn í stríð við Persaflóa og að
þeir myndu þá ráðast inn í Jórd-
aníu til árása á Irak.
Sjá „íraksher verði kvaddur
frá Kúvæt“ á bls. 20.
málum fyrir íbúa heilu svæðanna
[lýðvelda] sem áður voru hluti af
einu og sama ríkinu."
Frú Bonner hvatti til þess að lýð-
veldunum yrði send matvæla- og
lyfjaaðstoð sem mikil og knýjandi
þörf væri fyrir. Sagði hún að til-
gangurinn með glasnost-stefnu
Gorbatsjovs hefði verið að skella
skuldinni vegna efnahagsörðug-
leika Sovétmanna á fyrri ráðamenn.
Leiðtoginn hefði ekki séð afleiðing-
ar stefnunnar fyrir. og hálfpartinn
misst hana úr böndum. Skapast
hefði pólitískt andrúmsloft og opn-
ari umræða sem hundruð þúsunda
borgara hefðu fært sér í nyt. „Það
var aldrei ráð fyrir því gert og þess
vegna má búast við mikilli kúgun,“
sagði Jelena Bonner.
Gennadí Janajev varaforseti í ræðustól í sovéska þinginu.
situr Míkhaíl Gorbatsjov forseti.
Reuter
Að baki
Sviss:
Afhenda ber
innstæður
Mareosar
Genf. Reuter.
ÆÐSTI dómstóll Sviss kvað í gær
upp þann úrskurð að afhenda
bæri ríkisstjórninni í Maníla á
Filippseyjum 330 milljóna dollara
innstæðu af svissneskum banka-
reikningum Ferdinands Marcosar
fyrrum Filippseyjaforseta og ætt-
menna hans.
Til þess að fá peningana þarf
stjórn Corazon Aquino Filippseyja-
forseta að fá.dómstóla heimafyrir
til þess að samþykkja kröfu um að
þeir verði gerðir upptækir.
Úrskurðurinn er talinn mikilvæg-
ur sigur fyrir stjórn Aquino í þeim
tilraunum að komast yfir íjármuni
sem Marcos mun hafa flutt úr landi
á síðustu dögum sínum i embætti í
febrúar 1986. Úrskurðurinn nær
einungis til reikninga í Ziirich og
Friborg. Búist er við að tekið verði
tillit til hans við málarekstur í kant-
ónunum Genf, Vaud og Luzerne þar
sem einnig er að finna bankainn-
stæður á nafni Marcosar-íjölskyld-
Míkhaíl Gorbatsjov um deilur við leiðtoga Rússlands um stefnu í efnahagsmálum:
Sovétríkin liðast í simdur
náist ekki samkomulag
Mn«kvn. Rpnlor.
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétfor-
seti sagði í gær að yrðu ekki deil-
ur stjórnvalda í Kreml og leiðtoga
Rússlands, stærsta lýðveldis Sov-
étríkjanna, um stefnu í efnahags-
málum til lykta leiddar myndu
Sovétríkin liðast í sundur. So-
véska þingið hafnaði Gennadí
Janajev varaforsetaefni Gorb-
atsjovs við fyrstu atkvæða-
greiðslu í gær en þar sem fá at-
kvæði vantaði á að hann næði til-
skildum lágmarksfjölda atkvæða
fór forsetinn fram á að atkvæða-
greiðslan yrði endurtekin og náði
Jánajev þá kjöri. Gorbatsjov lét í
ljós greinilega vanþóknun með
úrslit fyrri atkvæðagreiðslunnar
í varaforsetakjörinu og sagði í
tilfinningaþrunginni ræðu að nú
gæfist síðasta tækifærið til þess
að tryggja umbætur. Komið væri
að tímahvörfum og fengi hann
ekki mann sér við hlið sem hann
gæti treyst til að fylgja stefnu
sinni fram yrði stjórninni vikið
frá.
Gorbatsjov hvatti leiðtoga Rúss-
lands til að undirrita bráðabirgða-
samkomulag sem þingið veitti
Kremlarstjórninni og yfirvöldum
Sovétlýðveldanna frest til að ljúka
fyrir 10. janúar en því er ætlað að
koma í veg fyrir að efnahagslíf
stöðvist vegna deilna um yfirráða-
rétt yfir auðlindum. Rússar lýstu
yfir fullveldi í maí sl. og yfirráðum
yfir auðlindum sínum en nær allar
auðlindir Sovétríkjanna er að finna
í lýðveldinu. Samþykktu þeir síðan
eigin áætlun um innleiðingu mark-
aðskerfis á 500 dögum og stofnuðu
Walesa leggur að Mazo-
wiecki að sitja áfram
Víirsiú. Rpntor
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa forseti Póllands
lagði hart að Tadeusz Mazo-
wiecki starfandi forsætisráð-
herra að sitja áfram, að því er
háttsettur embættismaður
skýrði frá í gær.
Walesa og Mazowiecki ræddust
við í forsetahöllinni í Varsjá í gær
og eftir fund þeirra sagðist Wal-
esa vongóður um að þrátt fyrir
hatrammar yfirlýsingar og átök í
nýafstöðnum forsetakosningum
gætu sættir tekist þeirra í millum.
„Ég á erfitt með að ímynda mér
að forsætisráðherrann muni hafna
því að vinna með mér og þjóðinni
við að endurreisa Pólland. Pað er
útilokað. Til þess er þjóðernisást
hans of mikil,“ sagði Walesa í sam-
tali við pólsku fréttastofuna PAP.
Heimildarmenn töldu þó ólíklegt
að Mazowiecki breytti afsagnar-
ákvörðun sinni en PAP-fréttastof-
an sagði að hann hefði þó ekki
hafnað bón Walesa. „Þetta voru
könnunarviðræður, hinar fyrstu,
og það eru margir möguleikar á
borðinu," sagði forsætisráðherr-
ann við PAP eftir fundinn. Stjórn
hans mun ræða óskir Waiesa á
fundi í dag, föstudag, en sam-
kvæmt stjórnarskránni verður
waiesa ao gera tmogu um forsæt-
isráðherraefni sitt á þingfundi 4.
janúar nk.
Mazowiecki baðst lausnar frá
starfi forsætisráðherra að lokinni
fyrri umferð forsetakosninganna í
lok nóvember en þar fékk hann
aðeins 18% atkvæða og hafnaði í
þriðja sæti á'eftir Walesa og Stan-
islaw Tyminski, burtfluttum kaup-
sýslumanni. í síðustu viku sagði
Walesa að sér hefði mistekist að
finna nýtt forsætisráðherraefni og
bað Mazowiecki og stjórn hans að
sitja fram yfir þingkosningar á
næsta ári.
með því til enn frekari átaka við
Sovétstjórnina um efnahagsmálin.
Tilraunir Rússa til að innleiða
markaðskerfi biðu þó hnekki í gær
er Borís Fjodorov, hinn 33 ára gamli
fjármálaráðherra Rússlands, sagði
af sér vegna óánægju með að enginn
árangur hefði náðst í þeim efnum.
Hann sagði að í stað markaðskerfis
væru Rússar aftur á hægri leið inn
í hið gamla miðstýringarkerfi komm-
únista.
Deila Sovétstjórnarinnar og Rússa
lýtur að yfirráðum yfir auðlindum
og útflutningi á olíu, gasi, gulli og
demöntum. Gorbatsjov vill að auð-
lindirnar og útflutningurinn heyri
að öllu leyti undir stjórn sína og 40%
af gjaldeyristekjunum renni til
greiðslu erlendra skulda Sovét-
manna.
1 seinni atkvæðagreiðslu um vara-
forsetaefni Gorbatsjovs hlaut
Janajev 1.237 atkvæði eða 117 at-
kvæðum meira en nauðsynlegt var
til þess að tilnefning hans yrði sam-
þykkt. I fyrri atkvæðagreiðslunni
hlaut hinn 53 ára fyrrum leiðtogi
sovésku verkalýðssamtakanna 1.089
atkvæði og vantaði því 31 atkvæði
til að ná kjöri. í fyrra kjörinu greiddu
583 mótatkvæði en 563 í seinni
kosningunni. Janajev sagði við fjöl-
miðla að hann væri kommúnisti í
húð og hár en hann hefur m.a. átt
sæti í stjórnmálaráði sovéska komm-
únistaflokksins.
Sjá „Gorbatsjov . valdamesti
Sovétleiðtogi ...“ á bls. 22.