Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 36
m
MQKr.y.NBWApifí, FpSTjUPAfiUfl^-! DfíSJyMliKR l!)j)l),
t
Ástkær móðir okkar,
ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Arnarholti,
Hrísateigi 13,
Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum 26. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
+ Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
SÓLVEIG ÁSA JÚLÍUSDÓTTIR,
Bugðulæk 2,
andaðist á annan dag jóla í Borgarspítala. -
Steinar Freyson
og synir.
+ Elskuleg eiginkona mín,
INGUNN THORODDSEN,
Fjólugötu 19
lést miðvikudaginn 19. desember á öldrunarlækningadeild
Landspítalans. Útförín fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. janúar
kl. 13.30. Þorvaldur Thoroddsen.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN EGGERTSDÓTTIR WAAGE,
Hamraborg 18,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum þann 24. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Valur Waage, Helena Brynjólfsdóttir,
Guðrún Lind Waage, Stefanía Lind Stefánsdóttir.
t
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁRNI MATHIESEN JÓNSSON,
lögfræðingur,
Álftamýri 48,
lést 25. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Hrefna Herbertsdóttir,
Herbert Árnason, Herdís Érla Magnúsdóttir,
Ólafía Árnadóttir, Reynir Olsen,
Hertha Árnadóttir, Ólafur K. Ólafsson.
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ERLENDUR INDRIÐASON,
Skúlaskeiði 18,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi þann 25. desember.
Vilhelmina Arngrimsdóttir,
Sigurfljóð Erlendsdóttir,
Anna Erlendsdóttir, Kristján J. Ásgeirsson,
Davíð Erlendsson,
Vignir Erlendsson, Inga Áróra Guðjónsdóttir,
Arngrimur Erlendsson,
Steinar Erlendsson,
Erla M. Erlendsdóttir, Ólafur Örn Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, mágur og tengda-
sonur,
FRIÐRIK BRYNLEIFSSON,
Tjarnargötu 10,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 22. desember sl.
Útför hans veröur gerð frá Dómkirkjunni í dag, 28. desember,
kl. 15.00.
Ólöf Halldórsdóttir,
Halldór H. Guðmundsson,
Brynleifur H. Steingrímsson, Hulda Guðbjörnsdóttir,
Guðrún H. Brynleifsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson,
Helga Brynleifsdóttir, Jón G. Hauksson,
Brynja Blanda Brynleifsdóttir,
Steingrímur Brynleifsson,
Sjöfn Jónasdóttir, Halldór Gunnarsson.
Arni Sæmundsson
Bala - Minning
Fæddur 27. júní 1897
Dáinn 17. desember 1990
Hann afi er látinn á 94. aldursári.
Við ætlum ekki að tíunda ævifer-
il hans hér, heldur aðeins að minn-
ast hans í örfáum orðum.
Við systkinin vorum svo lánsöm
að alast upp í sama húsi og afi og
amma, heimilishald var þó aðskilið.
Það var gott að leita til þeirra þeg-
ar leysa þurfti einhver vandamál.
Þó svo að afi væri ekki hrifinn af
glysi heimsins og teldi að fólk hefði
það allt of gott nú til dags var
hann fús að lána okkur í bíó þegar
hann var beðinn.
Afi var mjög trúaður. Hann fór
alltaf til messu þegar messað var.
Og alltaf hlustaði hann á guðsþjón-
ustuna í útvarpinu á sunnudögum.
Hann hafði þá sálmabókina í hönd-
unum og söng jafnvel með. Við
gættum þess að trufla hann ekki þá.
Eftir að amma dó fyrir rúmum
9 árum var afi í fæði hjá foreldrum
okkar. Hann átti sinn fasta sess í
lífi okkar og við bárum virðingu
fyrir honum. Hann sat alltaf á sama
stað við borðið og ef einhver sat í
sætinu hans þegar hann kom, stóð
sá hinn sami samstundis upp fyrir
honum. Ekki það að hann ætlaðist
til þess, þvert á moti. Hann sagði
ætíð „sittu kjur, ég sest bara ann-
ars staðar". En sú varð ekki raun-
in, þess var krafist að hann settist
í sitt sæti. Hann vildi aldrei láta
hafa neitt fyrir sér.
Afi hafði mjög gaman af að ræða
um daginn og veginn og gladdist
mjög ef hann fékk gesti. Við reynd-
um alltaf að fara yfir til hans og
rabba við hann sérstaklega, þegar
við vorum í heimsókn hjá foreldrum
okkar þó svo að við værum búnar
að hitta hánn þar.
Hann hlustaði alltaf á fréttirnar
og las blöðin og fylgdist því vel
með því sem var að gerast.
+
SIGRÍÐUR INGVARSDÓTTIR
frá Efri-Reykjum,
Biskupstungum,
andaðist á Ljósheimum, Selfossi, 26. desember.
Synir hinnar látnu.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Bæ, Miðdölum,
verður jarðsungin frá Kvennabrekkukirkju laugardaginn 29. des-
ember kl. 14.00.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00.
Baldur Friðfinnsson, Álfheiður Þorsteinsdóttir,
Bragi Friðfinnsson, Ester K. Celin,
Hreinn Friðfinnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkaer eiginkona min, móðir okkar, amma, dóttir, tengdamóðir,
systir og mágkona,
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR,
Tjarnargötu 16,
er lést 17. desember sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
dag, föstudaginn 28. desember kl. 13.30.
Baldur Zóphaníasson,
Þyrí Marta Baldursdóttir,
Soffía Kolbrún Pitts, David Lee Pitts,
Elías Bjarni Baldursson,
Smári Orn Baldursson, Elvur Rósa Sigurðardóttir,
Hafdís Birna Baldursdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR ÓLAFSSON,
Haga,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 29. desember
kl. 13.30.
Ragnheiður Hannesdóttir,
Hannes Gunnarsson, Ása Bjarnadóttir,
Magnús Gunnarsson, Guðrún Ingvarsdóttir,
Ólafur R. Gunnarsson, Bergrún Sigurðardóttir,
Sigurður K. Gunnarsson, Þórunn Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR B. BJÖRNSSON,
Strandaseli 9,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. desember
kl. 13.30.
Sigurður Gunnlaugsson, Oddný Sturludóttir,
Björn Gunnlaugsson, Sigrún Pedersen,
Gunnlaugur Gunnlaugsson, Margrét Halldórsdóttir,
l'var Gunnlaugsson, Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Ásgeir Gunnlaugsson, Þórunn Lúðvíksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Afi hafði ákveðnar skoðanir á
þjóðmálunum og hélt fast í þær til
hins síðasta. Hann virti þó skoðanir
annarra en gat orðið ansi heitur ef
honum fannst farið með rangt mál.
Nú hefur hann fengið hvíldina.
Blessuð sé minning hans.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Margrét Jónsdóttir
og Elín Jónsdóttir.
Hann andaðist í Sjúkrahúsi Suð-
urlands 17. desember sl. 93 ára að
aldri. Árni fæddist á Lækjarbotnum
í Landsveit 27. júní 1897 sonur
hjónanna Sigríðar Theodóru Páls-
dóttur og Sæmundar Sæmundsson-
ar bónda er þar bjuggu. Börn hjón-
anna á Lækjarbotnum urðu 7 sem
komust til fullorðinsára. Systurnar
Katrín og Guðrún sem vo/u bænda-
konur í Landsveit, Jóhanna Vigdís,
Pálína og Guðríður húsmæður í
Reykjavík og bræðurnir Árni sem
hér er kvaddur og Sæmundur sem
nú er einn eftir, hefur hann búið í
Reykjavík. Árið 1909 missa þau
föður sinn og þá verður móðir þeirra
fljótlega að leysa upp heimilið og
koma börnunum fyrir hjá frændum
og vinum. Ámi fór að Holtsmúla í
Landsveit til hjónanna Guðrúnar
Jakobsdóttur og Jóns Þorsteinsson-
ar var það traust og gott heimili,
sem Árni mat mikils. Móðir þeirra
fór fljótlega til Reykjavíkur og
Sæmundur fylgdi henni, þar áttu
systkinin gott athvarf, alltaf fannst
mér í minningum þeirra þau öll
vera komin heim, þegár þau komu
til móður sinnar og bróður, þar sem
þau bjuggu í Reykjavík, svo var
sterkur kærleiksþráður á milli móð-
ur og barna. Móðir þeirra var vel
gefin og fróðleiksfús og studdi börn
sín til að afla sér menntunar, eftir
því sem hægt var. Árni var greind-
ur maður. Hamkbar þann mann,
að honum var treyst fyrir ýmsum
málum innan sinnar sveitar. Hann
lærði á orgel og hafði yndi af falleg-
um söng og góðri tónlist.
Árið 1921 giftist hann Margréti
Loftsdóttur frá Neðra-Seli í Land-
sveit og byrjuðu þau búskap á
Snjallsteinshöfðahjáleigu í Land-
sveit, sem nú nefnist Árbakki. Þar
bjuggu hjónin í 17 ár og eignuðust
8 börn en af þeim komust 6 til full-
orðinsára en þau voru Lovísa Anna,
Svava Þuríður og Guðlaugur sem
búa í Þykkvabæ, Sigríður Theodóra
og Rut sem búa í Reykjavík og
Sæmundur drukknaði 1944.
Árið 1938 fluttust þau að Bala
í Þykkvabæ og þar bjuggu þau, þar
til Margrét andaðist þann 12. ágúst
1981 og áfram átti Árni heima í
Bala í skjóli barna sinna. í
Þykkvabæ fundu þau sig fljótt og
að þar áttu þau heima. Þar var
meira umfangs en áður var og þar
opnuðust áður óþekktir möguleikar
fyrir þeim hjónum. Árni var trú-
maður mikill og tók virkan þátt í
safnaðarlífi Hábæjarkirkju, var
sóknarnefndarformaður í mörg ár.
Það var mikill hátíðisdagur í lífi
Árna þegar nýja Hábæjarkirkja var
vígð. Hann var sannur kirkjuvinur
og vildi veg hennar sem bestan.
Heimili Árna og Margrétar bar
þeim fagurt vitni. Þau byggðu upp
og ræktuðu jörðina. Sameiginlega
hjálpuðust þau við að vinna heimili
sínu allt og börnunum. Gestrisin
og jgóð heim að sækja.
Eg undirrituð var hjá þeim í 6
sumur. Þar kynntist ég fyrst þeim
vinnubrögðum sem mótuðu síðar
ævistarf mitt.
Árni og Margrét voru góðir hús-
bændur, á heimili þeirra ríkti ró og
reglusemi og enginn gleymdist.
Frændur og vinir senda innileg-
ustu samúðarkveðjur til barna Árna
og fjölskyldna þeirra.
Að leiðarlokum þökkum við líf
og störf Árna í Bala með ljóðlínum
Matthíasar Jochumssonar.
Ó, þá náð að eiga Jesúm
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu i Drottins skaut.