Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
l
!
I
I
!
t
i
!
i
t
i ■
f •
!
!
i
i
i
!
t
! ■
I
i
!
í
i
I
!
i
I
Stormie Jones. Myndin er frá 1984.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS KYNNIR:
NÝTT FYRIRKOMULAG
Á AFGREIÐSLU Á EINNOTA VÖRUM
Frá 1. janúar nk. verður breyting á afgreiðslu á einum
vöruflokki af einnota vörum, í hagræðingar- og sparnaðar-
skyni.
Handhafar bleiuskírteina skulu frá áramótum panta vörur
sínar í síma
91-68 55 54 eða 99 65 64 (græn lína)
Vörurnar verða síðan sendar heim til skírteinishafa á
Reykjavíkursvæðinu, en utan þess verða þær sendar í við-
komandi pósthús.
Nánari upplýsingar hafa verið sendar öllum skírteinishöfum
og öðrum, sem þessi breyting viðkemur.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
félk í
fréttum
íi
FLUGLEIÐAMÓTIÐ
í dag föstudag Laugardag 29. des.: Sunnudag 30. des.:
Svíþjóð - — Japan kl. 18 Noregur — Svíþjóð kl. 15 Noregur — Japan kl. 18
ísland — - Noregur kl. 20 ísland — Japan kl. 17 ísland — Svíþjóð kl. 20
Komum í Höllina og hvetjum okkat menn til sigursl
LÆKNISFRÆÐI
Fyrsti
hjarta- og
lifrarþeg-
inn látinn
Stormie Jones, 13 ára stúlka frá
Texas, sem varð . heimsins
fyrsti sjúklingur sem skipt var um
hjarta og lifur í, lést í Texas fyrir
skömmu, tæplega sjö árum eftir
tímamótaaðgerðina. Lát hennar
kom á óvart, því hún fékk pestarein-
kenni sem álitið að væru ekki ann-
að en flensa. Þó var allur varinn
hafður á, en eftir skamma sjúkra-
húslegu ágerðist krankleikinn og
Storniie lést.
Stormie fæddist með sjaldgæfan
lifrarsjúkdóm sem olli því að kó-
lesterolmagnið í blóði hennar var
tíu sinnum meira heldur en eðlilegt
telst. Þegar hún gekkst undir
hjarta- og lifrarígræðsluna sex ára
gömul hafði hún þegar lifað af tvær
hjartabilanir og skipt hafði verið
um hjartaloku. I byijun ársinasfékk
hún slæma lifrarbólgu og var þá
enn skipt um lifur í henni, en í júlí
spilltist nýja lifrin er hún fékk lifrar-
bólgu á nýjan leik. Stormie átti hug
og hjörtu Bandaríkjamanna, enda
sýndi hún af sér mikla hugprýði.
Eitt sinn sagði hún í blaðaviðtali
að einhvem tíman myndi hún vilja
rita sjálfsævisögu sína. Hún átti að
heita „In the darkness“, eða „í
myrkrinu“. Ætlaði Stormie að segja
frá sjálfri sér, foreldrum sínum og
öllum gæludýrunum sem hún eign-
aðist á stuttri lífsleið.
SÖNGUR
Fyrstu spor
ungs sópr-
ans farsæl
Ung íslensk sópransöngkona,
Unnur Astrid Wilhelmsen,
steig sín fyrstu spor á söngbraut-
inni í byijun desember, ,er hún
söng í fyrsta sinn opinberiega í
Borgarleikhúsinu í Sankti Pölten
í Austurríki, en borgin er skammt
utan Vínar. Ummæli gagmýnenda
voru Öll á einn veg, lofsamleg.
Unnur söng hlutverk Zerlínu í
óperunni Don Giovanni eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart.
Unnur stundaði söngnám í
Söngskólanum í Reykjavík, en
kennari hennar þar var Ólöf Kol-
brún Harðardóttir. Síðustu tvö
árin hefur Unnur hins vegar
stundað nám við Tónlistarháskól-
ann í Vínarborg, en þar hefur
kennari hennar verið prófessor
Helene Karusso, sem er mörgum
íslendingum að góðu kunn.