Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
19
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Bankastjórastaðan við Landsbankann:
Halldór Guðbjamarson er
líklegri en Geir Magnússon
Tekist á um nafnvaxtahækkun og ráðningu nýs bankastjóra Landsbankans
BANKARÁÐ Landsbanka íslands kemur saman til fundar klukkan
11 í dag, þar sem ákvörðun verður tekin um nafnvaxtahækkun inn-
og útlána, auk þess sem ákvörðun verður tekin um ráðningu nýs
bankasljóra. Styrr hefur staðið um bæði þessi mál að undanförnu,
en nú er ljóst að bankaráðið ætlar sér að ná fram niðurstöðu í
báðum málum, áður en árið er allt. Líklegast er að nafnvaxtahækk-
un verði ákveðin um 1% til 1,5% að þessu sinni, auk þess sem líklegt
er talið að Kristinn Finnbogason, fulltrúi Framsóknarflokksins í
bankaráðinu geri tillögu um að Halldór Guðbjarnarson, fyrrum
bankastjóri Utvegsbanka Isiands verði hljóti bankastjórastöðu þá
er Valur heitinn Arnþórsson gegndi. Þó er ekki útséð um að sú
verði niðurstaðan, þar sem sterk öfl innan Framsóknarflokksins,
svo sem helstu forsvarar samvinnuhreyfingarinnar, með Vilhjálm
Jónsson, forstjóra Olíufélagsins í fararbroddi sækja það af miklum
þunga að Geir Magnússon verði bankastjóri Landsbankans.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur lýst sig
mjög andvígan hvers konar vaxta-
hækkunum og þegar Búnaðar-
bankinn og sparisjóðirnir ákváðu
nafnvaxtahækkun fyrir jól gekk
hann svo langt að lýsa því yfir að
um grófustu aðför að þjóðarsátt-
inni væri að ræða. Samkvæmt
mínum upplýsingum hefur hann
lagt hart að Kristni Finnbogasyni
um að leggjast gegn hækkun vaxta
á óverðtryggðum inn- og útlánum.
Sömu heimildir telja þó að ekki
verði hjá því komist að ákveða ein-
hveija nafnvaxtahækkun, og er þá
rætt um að hækkunin í þessu skrefi
verði 1% til 1,5%, en að alls verði
að hækka nafnvexti um 3% til 3,5%
fyrir 1. febrúar næstkomandi, mið-
að við verðbólguþróun og verð-
tryggða reikninga frá desember til
febrúar.
Afkoma sparifjáreigenda
skiptir höfuðmáli
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra er ekki sömu skoðunar og
forsætisráðherra. Hann segist
treysta því að bankaráðið meti all-
ar aðstæður og taki sína ákvörðun
í kjölfar slíks mats. „Það er alveg
ljóst að raunvextir á nafnvaxta-
bréfum hafa lækkað mjög mikið
og á öðrum lánum með nafnvaxta-
kjörum," sagði ráðherra í gær.
Ráðherra sagði að auðvitað tengd-
ist afkoma bankanna þessum
ákvörðunum einnig, en sér sýndist
sem hún yrði eitthvað lakari í ár
en á sl. ári. „Bankarnir þurfa nátt-
úrlega að halda eiginflárstöðu sinni
sem traustastri vegna sinnar starf-
semi og vegna sinna viðskiptavina,
en mér finnst hálfeinkennilegt að
ræða vaxtaákvarðanir svo til ein-
göngu út frá afkomu bankanna.
Það sem höfuðmáli skiptir er auð-
vitað áfkoma spariijáreigendanna.
Það er afkomustærð sem lítð hefur
verið rædd í þessum umræðum, en
er þó miklu mikilvægari en afkoma
bankanna í þessu dæmi,“ sagði Jón.
Bent er á að forsætisráðherra
hafi gengið fulllangt í yfirlýsingum
sínum þegar hann hélt því fram
að um lögbrot væri að ræða, þegar
bankar eltu hveijir aðra í ákvörðun-
um um vexti. Slíkt væri einfaldlega
samkeppni, en ekki samráð. „En
þegar einn maður beitir sér fyrir
því að bankar sammælist úm að
hækka ekki nafnvexti, þrátt fyrir
hækkandi verðbólgu, þá er í reynd
verið að biðja um að lögbrot sé
framið.. Hver stendur fyrir því? Það
er Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra,“ sagði Friðrik Sop-
husson alþingismaður og banka-
ráðsmaður Landsbankans í gær.
Tveir af þremur eftir um
hituna
Eins og komið hefur fram hafa
þrír framsóknarmenn einkum verið
nefndir sem mögulegir eftirmenn
Vals heitins Arnþórssonar. Þeir eru
Geir Magnússon, fyrrum banka-
stjóri Samvinnubankans, Guð-
mur.dur G. Þórarinsson, alþingis-
maður og Halldór Guðbjarnarson,
fyrrum bankastjóri Útvegsbank-
ans. Guðmundur G. Þórarinsson er
\ekki lengur talinn eiga möguleika
á stuðningi í stöðuna, en slagurinn
Halldór Guðbjarnarson
upp á síðkastið hefur verið á milli
þeirra Geirs og Halldórs.
Raunar mun formaður Fram-
sóknarflokksins, Steingrímur Her-
mannsson hafa komist í hann
krappan vegna þessa máls, þar sem
hann er sagður hafa heitið tveimur
stuðningi sínum, fyrst Geir en síðan
Halldóri. Steingrímur mun fyrst
hafa beitt Jóni Sigurðssyni við-
skiptaráðherra fyrir sig og sagt við
Halldór að ráðherra legðist gegn
skipun hans, vegna þess að hann
gæti átt yfir höfði sér ákæru í
Hafskipsmálinu. Forsætisráðherra
mun loks hafa vísað ákvörðun í
málinu frá sér á þann hátt að veita
sínum fulltrúa í bankaráðinu fullt
umboð sitt til þess að gera tillögu
um annan þeirra tveggja, Geir eða
Halldór.
Kristinn vill styðja Halldór
Kristinn Finnbogason mun hafa
lagt til að ráðningu nýs banka-
stjóra yrði frestað þar til saksókn-
ari hefði ákveðið á hendur hveijum
yrðu gefnar út ákærur. Nú liggi
fyrir að Halldór verði ekki ákærður
og því sé Kristni ekkert að vanbún-
aði að gera tillögu um Halldór.
Engu að síður er talið að Jón Sig-
Geir Magnússon
urðsson viðskiptaráðherra sé lítt
hrifinn af því að Halldór verði gerð-
ur að bankastjóra Landsbankans
og höfuðskýring þess er sögð vera
sú að við Útvegsbankasöluna hafði
Halldór allt aðra skoðun á raun-
verulegum verðmætum Útvegs-
bankans en ráðherra og lá ekki á
þeim skoðunum sínum. Því er talið
að formanni bankaráðsins Eyjólfi
K. Siguijónssyni sem er fulltrúi
Alþýðuflokksins í bankaráðinu sé
nokkur vandi á höndum þegar
ákvörðun verður tekin í bankaráð-
inu í dag, þar sem ljóst er að við-
skiptaráðherra vill fremur að til-
laga verði gerð um Geir Magnússon
en Halldór. Hann mun þó ekki eiga
hægt um vik að gera aðra tillögu,
verði niðurstaðan sú sem líklegust
var talin í gær, að Kristinn geri
tillögu um Halldór.
Talið er fullvíst að Kristinn styðji
Halldór í hjarta sínu og vilji gera
tillögu um hann í bankastjórastól-
inn, en ekki voru allir viðmælendur
mínir í gær sannfærðir um að hon-
um yrði stætt á slíkri tillögu, vegna
þrýstings áhrifamanna innan
Framsóknarflokksins í þá veru að
Geir verði fyrir valinu. Vilhjálmur
Jónsson, forstjóri Olíufélagsins,
sem er stór viðskiptaaðili Lands-
bankans er sagður þrýsta fast á
forystu Framsóknarflokksins um
að gera Geir að bankastjóra. Aðrir
forkólfar úr samvinnuhreyfingunni
eru sama sinnis, sem gerir það áð
verkum að Steingrímur Hermanns-
son leikur úr þrengri stöðu en hann
hefði að líkindum sjálfur kosið.
Þá er talið að þeir Sverrir Her-
mannsson og Björgvin Vilmundar-
son, bankastjórar Landsbankans
kysu fremur að tillaga yrði gerð
um Geir en Halldór, þar sem þeir
telji að slíkt myndi greiða fyrir
ýmsum innanhússmálum Lands-
bankans, eftir að Samvinnubank-
inn var keyptur og sameinaður
Landsbankanum. Þeir hafa þó
haldið sig utan við þessi mál og
ekki viljað ræða þau. Hafa einfald-
lega sagt að þeir muni starfa með
þeim bankastjóra seni bankaráðið
tekur ákvörðun um að ráða.
Hefðin um það hver á stöðuna
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
og Alþýðubandalagsins í bankaráði
Landsbankans, þeir Friðrik Sop-
husson og Lúðvík Jósefsson munu
telja sig nokkurn veginn bundna
af því að styðja þá tillögu sem
Kristinn Finnbogason gerir um
nýjan bankastjóra, samkvæmt
þeirri hefð sem ríkt hefur um
„hvaða flokkur eigi þá bankastjóra-
stöðu" sem um ræðir hveiju sinni.
Fulltrúi Kvennalistans Kristín Sig-
urðardóttir hefur lýst þeirri skoðun
sinni að auglýsa beri stöðuna og
ráða fagmann innan bankans í
kjörfar slíkrar auglýsingar, en slík
hugmynd nýtur einfaldlega ekki
stuðnings í bankaráði Landsbank-
ans. Því er talið líklegt að hún
,muni greiða þeim sem Kristinn
Finnbogason gerir tillögu um at-
kvæði sitt:
Stuðningur þessara þriggja mun
háður því að full vissa sé fyrir því
að sá sem Kristinn gerir tillögu um,
njóti stuðnings Framsóknarflokks-
ins og þar með talið formanns hans.
Sjálfstæðismenn telja sig með því
að standa við það „samkomulag“
sem tíðkast hefur í gegnum árin,
hvað varðar bankastjórastöður,
eiga gagnkvæmniskröfur á hendur
framsóknarmönnum og benda á að
rétt sé að láta á það reyna hvort
fulltrúi Framsóknarflokksins í
bankaráði Seðlabankans muni
greiða atkvæði með Birgi ísleifi
Gunnarssyni sem bankastjóra
Seðlabankans, en Sjálfstæðisflokk-
urinn gerir tillögu um að hann verði
ráðinn í stöðu Geirs heitins Hallgr-
ímssonar.
Á það getur liins vegar ekki
reynt, áður en ákvörðun um nýjan
bankastjóra Landsbankans verður
tekin í dag, þar sem bankaráð
Seðlabankans mun ekki gera til-
lögu um nýjan bankastjóra Seðla-
bankans fyrr en á næsta ári, sam-
kvæmt upplýsingum dr. Ágústar
Einarssonar, formanns Seðlabank-
aráðs, og því mun ekki liggja fyrir
fyrr en í ársbytjun næsta árs hvern
Davíð Aðalsteinsson frá Arnbjarg-
arlæk, fulltrúi Framsóknarflokks-
ins mun styðja sem nýjan Seðla-
bankastjóra.
Y estmannaeyjar:
Jólasveinar á
ferð og flugi
Vestmannaeyjum.
ANNRÍKI hefur verið hjá jóla-
sveinunum kringum jólin eins og
yfirleitt áður. Heimsóknir á jóla-
böll og ýmislegt fleira eru dagleg-
ir viðburðir en ekki er mikið um
það að sveinarnir flakki lands-
horna á milli til að taka lagið með
börnunum og færa þeim einhvern
glaðning.
Flugleiðir buðu upp á jólasveina-
flug fyrir jólin, en þá heimsóttu jóla-
sveinar börnin á viðkomustöðum
Flugleiða. Það var mikil örtröð í flug-
stöðinni í Eyjum þegar jólasveinar
Flugleiða litu þar inn til að taka lag-
ið með börnunum og færa þeim síðan
sælgætispoka á eftir. Flugstöðin í
Eyjum var ful! af fólki er sveinarnir'
komu og voru öll bílastæði í næsta
nágrenni við flugstöðina upptekin.
Grímur
MEÐ ALLT I ROÐ OG REGLU
i 1
f" - ’ |
j
ft i
1 ■ 1
1^>
með
seven star
ÚTSÖLUSTAÐIR:
GRÍMA, GARÐATORGI3, GARÐABÆ
ÍSAFOLD, AUSTURSTRÆTI 10, RVK.
KIRKJUHÚSIÐ, KIRKJUHVOLI, RVK.
MÁL OG MENNING, LAUGAVEGI18, RVK.
MÁL OG MENNING, SÍÐUMÚLA 7-9, RVK.
NESBÓK, HAFNARGÓTU 36, KEFLAVÍK
KIRKJUFELL
HEILDVERSLUN
SÍMI 666566