Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 35
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 35 bættist við í hans tregafullu lífsbar- áttu, fullur vissu um að hann héfðí betur með aðstoð vilja síns og vísinda. Viljastyrkinn hafði hann en vísindin kunnu ekki ráð. I dag kveð ég þennan mág minn, félaga og vin. Samverustundir okk- ar einkenndust af kímni og gleði, það var stutt í brosið. Þannig var það strax frá fyrstu stundu og til þeirrar síðustu. Hann var engu að síður fremur lokaður maður og bar tilfinningar sínar ekki á torg. Einkenni Friðriks voi-u látleysi og góðmennska. Hann var hrekk- laus. Mjög einlægur. Með góða nærvist. Ekki sló han um sig í ver- aldlegum gæðum og raunar mætti honum nokkurt andstreymi í lífsins vafstri. Á andlega sviðinu naut hann hins vegar velgengni, var bæði skarpgreindur og mjög vel að sér. Hafsjór af fróðleik og bók- hneigður. Friðrik var kvæntur Ólöfu Hall- dórsdóttur. Hún var bæði eiginkona hans og besti vinur. í erfiðri bar- áttu hans við hinn banvæna sjúk- dóm sýndi.hún fádæma styrk. Þetta var barátta þeirra beggja; hönd í hönd. Þegar honum hrakaði stöpp- uðu þau full vonar og bjartsýni stál- inu í hvort annað. Þetta skyldi tak- ast. Umönnun hennar fyrir manni því að hún var af Eyrinni eins og ég. Þetta kvöld hófst vinátta milli okkar Þórhildar, sem hefur staðið óslitið í 18 ár. Hún uppfræddi mig unglinginn og studdi og uppörfaði við þau störf, sem mér voru falin innan stúkunnar. Hún gegndi ávallt embættum í ísafold meðan henni entist heilsa og henni voru falin mjög mörg trúnaðarstörf á öðrum stigum Reglunnar. Öllum þessum störfum gegndi hún með miklum sóma, enda átti hún létt með að koma fyrir sig orði. Hún var vel greind, prúð í allri framkomu og stórmyndarleg, og ég held að öllum stúkubræðrum og systrum hafi þótt vænt um hana. Þórhildur var fonnaður Friðbjarn- arhúsnefndar, minjasafns templara á Akureyri, í mörg ár og vann ég með henni þar, mér til mikillar ánægju, og áttum við yndislegar stundir í þessu gamla húsi. Gerði hún þar marga góða hluti. Þórhildur gegndi embætti í Stórstúku íslands í mörg ár, og fórum við ásamt Klöru Nielsen, sem var sérstök vinkona hennar, saman á Stórstúkuþing, sem haldin eru annað hvert ár. Það fannst okkur mjög skemmtilegt, og oft var þar tekist á um menn og málefni, og lagði Þórhildur ávallt gott til málanna. Góðtemplarareglan átti hug hennar allan, og tel ég, að hún hafi verið einn traustasti félagi Reglunnar. Enginn í Reglunni hefur reynst mér betur bæði í blíðu og stríðu öll þessi mörgu ár og fyrir það allt þakka ég henni. Þórhildur var gerð að heiðursfélaga bæði í stúkunni ísafold nr. 1 og í Stórstúku Islands fyrir vel unnin störf. Þórhildur vann að fleiri góðum málum. Hún starfaði í Kvenfélagi Akureyrarkirkju og Kristniboðsfé- lagi kvenna og var einn af stofnend- um Slysavarnafélags kvenna á Ak- ureyri. Hún var mjög trúuð kona, og ég veit, að hún hefur fengið góða heimkomu, þar sem hún hefur hitt alla ástvini sína aftur. Eg sendi öllum ættmgjum hennar samúðarkveðjur, sérstaklega Rafni Hjaltalín, bróðursyni hennar, sem hefur verið henni ómetanleg stoð í gegnum árin. Veri hún svo Guði falin mín kæra vinkona og hafi þökk fyrir allt og allt. Sigurlaug Ingólfs V^terkurog KJ hagkvæmur auglýsingamiðill! § fHurumihltalíiíh sínum var alger og aðdáunarverð. Hún svaf og vakti yfir honum. Hún var hans ómetanlegi styrkur. Mjög máttvana kvaddi hann hljóðlega í svefni á heimili þeirra. Ólöf á mína allra dýpstu samúð. Þrátt fyrir mikla löngun auðnað- ist þeim Friðrik og Ólöfu ekki að eignast barn saman. Þau voru engu að síður þijú samhent í íjölskyld- unni. Friðrik gekk mjög ungum syni Ólafar, Halldóri, í föður stað í upphafi sambúðar þeirra. Þeir urðu ekki aðeins feðgar heldur miklir og nánir vinir. Þeir skildu hvor annan og treystu hvor öðrum. Þeir voru feðgar sem gátu talað saman. Söknuður Halldórs er nú mikill. Megi honum veitast styrkur í sorg sinni. Friðrik var sonur Brynleifs H. Stéingrímssonar, læknis á Selfossi, og Sigríðar Friðriksdóttur. Sigríður dó af völdum sama sjúkdóms og Friðrik, krabbameini, um jólaleytið fyrir fimmtán árum, 19. desember 1975, eftir mjög svo_ erfiða og stranga sjúkdómslegu. I annað sinn hefur því sami sjúkdómur bankað á dyr fjölskyldunnar í upphafi há- tíðarinnar miklu, jólanna. Friðrik ólst að mestu upp í Svíþjóð en þar bjó ijölskyldan um árabil. Árin í Svíþjóð, fjarri ættingj- um á íslandi, þjöppuðu fjölskyld- unni saman. Enda er það svo að árin í Svíþjóð ber ævinlega á góma þegar fjölskyldan hittist. Sérstak- lega eru það ærslafull sumarferða- lög um Evrópu sem eru ofarlega í minni. Þessi bernskuár Friðriks voru honum mjög kær. Sáttur við alla kvaddi hann þenn- an heim þótt hann hefði fulla ástæðu til að vera beiskur út í örlög- in. Hann spurði samt aldrei spurn- ingarinnar: Hvers vegna ég? Þess í stað þakkaði hann fyrir hvern dag sem hann fékk til viðbótar. Nýr dagur gaf honum von. Það þarf mikinn styrk til að horfast í augu við líf sitt fjara hægt og sígandi út. En hann kvartaði aldrei. Þannig var Friðrik. Viðhorf hans kom vel í ljós þegar hann fór að jarðarför ungbarns fyr- ir nokkrum vikum. Eftir á hafði hann á orði að hann mætti vera þakklátur, hann hefði fengið að lifa í 32 ár, en hið nýfædda barn aðeins tvo mánuði. í svona orðum blasir það aldrei betur við hvað vandamál- in, sem fengist er við í hörðum heimi lífsgæðakapphlaups — og alla ætlar að æra — eru innantóm og einskis verð borin saman við þá einlægu ósk í heimi helsjúkra; að fá að lifa. Kveðjum góðan dreng í dag. Megi góður guð veita konu hans og syni fyllsta styrk í djúpri sorg þeirra. Megi góður guð létta á harmi systra hans, bróður, föður og ann- arra venslanmnna. Blessuð sé minn- ing Friðriks Brynleifssonar. Jón G. Hauksson Gleymdu ekki hlutabréfunum í ár ! HLUTABRÉFASJÓÐUR VÍB HF. Einfalt, öruggt og arðbært Hlutabréfasjóður \1B hf., HVIB var stofnaður. til þess að bjóða einstaklingum einfalda, örugga og arðbæra leið til að ávaxta sparifé sitt í hlutabréfum og njóta jafnframt skattafrádráttar. Áhættudreifing Áhætta hlutabréfa felst einkum í því að verð hlutabréfa í einstökum fyrirtækjum getur verið sveiflukennt. H\TB dregur úr þessari áhættu með þ\'í að kaupa hlutabréf í mörgum fyrirtækjum, í þeim hlutföllum sem sérfræðingar VÍB telja hagkvæmast hverju sinni. Með kaupum á hlutabréfum H\TB fæst þannig veruleg áhættu- dreifíng. Góð ávöxtun Hlutabréfín eru ávísun á eignarhlut í fjölda fyrirtækja og þar með hlutdeild í afrakstri þeirra. Ávöxtun hlutabréfa HVÍB fylgir þ\’í náið hag fyrir- tækjanna oggetur orðið mjög góð þegar vel árar. Lægri skattar Einstaklingum er heimilt að draga kaupverð hlutabréfa í HVIB frá tekjuskatts- og útsvarsstofni sínum að vissu marki. Á árinu 1989 nam hámarkskaupverð til skatta- frádráttar 115.000 kr. hjáeinstaklingum og230.000 kr. hjá hjónum. Hjón sem fullnýttu skattafrádrátt sinn á síðasta ári fengu þannig endurgreiddar röskar 86.000 kr. frá skattinum. Verið velkomin í afgreiðslu VÍB í Ármúia 13a, eða hringið í síma 91-681530. Útboðsrit HVIB liggur frammi hjá VÍB og í útibúum íslandsbanka um land allt Opið á morgun laugardag frákl. 10-14. VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. HMARK-afgreiðsla, Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík. Sími 21677.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.