Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 39 POPP Milli Yanilli-dúett- inn var svikamylla elr félagarnir í poppdúettinum Milli Vanilli voru heldur betur afhjúpaðir á dögunum. Árið 1988 slógu þeir í gegn með laginu „Girl You Know It’s True“ og síðan rak hvert lagið annað. Þessir stæltu og hárprúðu piltar fóru hamförum á myndböndum, en einhverra hluta vegna voru þeir tregir að koma fram á hljómleikum. Það var í sjálfu sér ekki að undra er sannleikurinn kom í ljós. Hann var sá, að þeir félagarn- ir Rob Pilatus og Fab Morvan sungu alls ekki lögin. Það gerðu einhverjir ónafngreindir baktjaldamenn. Þeir Rob og Fab gerðu ekki annað en að hreyfa varirnar og aka sér til og frá á myndböndum! Þetta mál hefurgengið svo langt, að þeir hafa verið sviptir Emmy-verðlaun- um sem þeir hlutu fyrir lagið sem að framan er nefnt. Sökudólgurinn mun vera þýskur upptökustjóri að nafni Frank Farian sem hafði nýlokið við að hljóðrita lagið „Girl You Know It’s True“ er hann hitti þá Fab og Rob í fyrsta sinn. Útlit þeirra hafði þau áhrif á hann að hann varð þess fullviss að þeir gætu skotið laginu á topp vin- sældalista með því að leika á mynd- bandi. Þetta tókst svo vel að leikur- inn var endurtekinn aftur og aftur, Fyrrum umboðsmaður þeirra Rob og Fab, sem voru áður sýningar- menn, segir að í fyrstu hafi hinn skjótfengni auður og frægðin stigið strákunum til höfuðs og þeir hafi farið að trúa því að þeir væru meiri háttar númer. Undir niðri hafi þó kraumað sómatilfinningin og þegar leyndarmálið varð þeim of þung- bært var orðið of seint að gera nokkuð. Það hafi því þrátt fyrir allt verið þeim nokkur léttir er upp komst. Upp komast svik um síðir og þetta gabb komst upp er strákarnir heimtuðu að syngja sjálfir á mynd- bandi á þessu ári. Farian neitaði og kastaðist þá í kekki. Strákarnir ruku á dyr i fússi, en Farian ákvað þá í skyndingu að nú væri nóg komið, blés til fréttamannafundar og kjaftaði frá. Af þeim Rob Pilatus og Fab Morvan er það nú að frétta að þeir hafa lokað sig inni á sameiginlegu heimili þeirra í Hollywood. Þar sitja þeir við lagasmíðar, staðráðnir í að byija frá grunni og gefa út plötu með sinni eigin tónlist og síðast en ekki síst sínum eigin röddum. 3 af vinsœlustu ,, < 'da nsh lj<5 msveitu m íslands [saman á stœrsta kvöldi ársins frá kl 24-04 Hiísiö öptmð k/. 24. Forsala aögöngnniiöa befsi þriöjnciaginii 18. desember t/k. AðgÖngutniðaverð kt: 1.900,- A/ciurstakniark 18 círa. CTl f ff Jf"f JJLJ>£ hraðframköllunarþjónusta er nú einnig hjá eftirtöldum aðilum um allt land: Litsel, Austurstræti 6 - Úlfarsfell, Hagamel - Ljósmyndabúðin, Ingólfsstræti - Filman, Hamraborg, Kópavogi - Myndíð, Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði - Ljós- myndastofa Suðurlands, Selfossi - Fótó, Vestmannaeyjum - Myndsmiðjan, Egilsstöðum - Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík - Nýja bíó, Siglufirði - Fuji-búðin, iSunnuhlíð, Akureyri - Stefán Pedersen, Ijósmyndaþjónusta, Sauðárkróki - Ljósmyndastofa Leós, ísafirði - Framköllunarþjónustan, Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.