Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 31 Minning: Jóhanna Bima Helga- dóttir, Fremstagili ■ Fædd 6. júlí 1911 Dáin 21. deseinber 1990 Eins og Agli er okkur tregt tungu að hræra. í miðju skammdeginu og aðeins nokkrum dögum fyrir hátíð ljóss og friðar hefur amma okkar verið kvödd á vit feðra sinna. Orð virðast fátækleg til að minnast þessarar konu sem skilur eftir sig stórt skarð í lífi þeirra sem hana þekkja. Aldrei aftur mun hún taka á móti okkur með opinn faðminn á tröppunum á Fremstagili. Afkom- endur okkar munu ekki þekkja þessa konu sem þriggja ára syrgði móður sína í litlum torfbæ í Skaga- firði, lifði frostaveturinn mikla, ver- aldarstríðin tvö og sá inn í öld hrað- vaxandi tölvu- og upplýsingaþjóðfé- lags. Við yljum okkur við minning- arnar. Á björtum sumarkvöldum las hún fyrir okkur söguna um Ugga litla Greipsson, sem frekar vildi síróp en hákarlalýsi, þrátt fyrir for- tölur afa á Knerri og þegar eldaði af degi vakti hún kúasmalana sína með með fáeinum viskuorðum, rúsínum eða súkkulaði í munninn. Seinna sagði hún okkur sögur af því þegar hún var vinnukona á Akureyri og keypti prógrammið af bíómyndum til þess að þurfa ekki að fara á myndirnar en geta þess í stað keypt hátísku sokka. Hún fylgdist vel með og hafði þann fá- gæta eiginleika að geta skipt um skoðun á málefnum að vel ígrund- uðu máli. Til dæmis sagðist hún ekki hafa haft gaman af sögum Halldórs Laxness fyrr en hún á gamalsaldri tók upp á því að lesa Sækur hans upphátt.fyrir sjálfa sig eftir að skyggja tók á kvöldin. Passíusálmarnir voru aftur á móti í miklu uppáhaldi hjá henni alla tíð. Amma hafði þann mikilsverða eig- inleika að hún kunni að hlusta og ráð hennar einkenndust öðru frem- ur af sanngirni og umburðarlyndi. Ekki mátti hún heldur aumt sjá án þess að rétta hjálparhönd. Einnig var hún mikill dýravinur og voru dýr margir hennar bestu vinir. I framtíðinni eins og áður verður hún verndarengill okkar í blíðu og stríðu. Kynnin við hana hafa verið okkur dýrmæt og reynsla og vega- nesti hvert sem leið okkar á eftir að liggja. Anna Gunnhildur, Hilmar, Birna og Jón Heiðar Olafsbörn. Birna Helgadóttir á Fremstagili er látin. Ég sakna hennar. Með henni er gengin mæt sómakona, sem miðlaði mildi og hlýju hvar sem hún kom. Hún hafði rúmu hálfu ári fátt í áttrætt þegar dauðinn átti við hana erindi. Meginhluta starfsævi sinnar átti hún að Fremstagili, þar sem hún stýrði búi ásamt manni sínum, Hilmari A. Frímannssyni, umn ára- tuga skeið. Hilmar missti hún fyrir tíu árum, en búsetu hafði Birna áfram á Fremstagili, en þar höfðu þá tekið við búsforráðum sonur hennar Valgarður og tengdadóttirin Vilborg Pétursdóttir. Á árunum milli 1950-1960 var gjarnan farskóli á Fremstagili, og þar nutum við systkinin nærgætni hennar þegar á þurfti að halda. Nálega 30 árum síðar var ný kyn- slóð að vaxa úr grasi á Geita- •skarði, og þau börn sóttu skóla að Fremstagili fyrstu þijá vetur sinnar skólavistar. Þessum börnum var hún eins og besta amma. Ég hygg að Birna hafi verið lán- söm kona. Henni auðnaðist að horfa á barnahópinn sinn komast til manns og verða að nýtum borgur- um samfélagsins, og hún átti þess líka kost að fylgjast meðbarnabörn- unum vaxa og dafna. Áreiðanlega var börnum Valgarðs og Vilborgar mikill styrkur að ömmu, og ekki síður þroskandi fyrir þau að fá að alast upp að nokkru undir liennar leiðsögn. I mínum huga var Birna fyrst og fremst maður gróandans og vorsins, og þannig lifir hún í minn- ingu minni. Fjölskyldan á Geitaskarði sendir börnum, tengdabörnum og barna- börnum hennar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Birnu. Á.S. Á skemmsta degi ársins barst okkur helfregn Birnu Helgadóttur, fyrrum húsfreyju á Fremstagili í Langadal. Við höfðum verið nágrannar um áratuga skeið, og átt samstarf og samstöðu um margháttuð málefni, bæði á sviði félagsmála og í önn hins daglega lífs. Það var jarðvegurinn, sem vin- átta okkar óx úr. Hún fæddist á Kirkjubóii í Skagafirði, dóttir Helga Guðnasonar bónda þar, og konu hans, Sigurbjargar Jónsdóttur. Að þeim stóðu eyfirskar og þingeyskar ættir. Ekki hlotnaðist Birnu önnur skólaganga en sú, er látin var duga börnum þess tíma. En allar þær þrautir og próf, sem langt líf færði henni í hendur, leysti hún þannig að ekki þurfti um að bæta. I endurminningu okkar er hún fyrst og fremst húsmóðir. Um- hyggja fyrir heimilinu, barnahópn- um sínum og öðru því fólki er for- sjár hennar naut, var gildasti þátt- urinn í eðlisgerð hennar. Framkoma hennar og fas var kyrrlátt og hlýtt, en markað festu. Það var borin fyrir henni vircfing, og hún stjórnaði án pilsaþyts. Hún var lánsöm kona. Framan af ævi var það hennar hamingja að giftast góðum manni. Hilm'ar Arngrímur Frímannsson hét hann (d. 13. júní 1980). Með honum átti hún langt og farsælt samlíf, og hóp barna, sem öll hafa reynst nýtir borgarar. Bóndi hennar sagði eitt sinn að hann hefði fengið hamingjuna í heimanmund með henni Birnu, og satt mun það hafa verið. Hin síðari árin var hamingja hennar sú, að eftir að bús- og heim- ilisforráð voru komin í hendur Val- garðs sonar hennar og konu hans, Vilborgar Pétursdóttur, þá hélt hún áfram að vera þar virtur og virkur þátttakandi í erli daganna, eftir því sem þrek entist til. Hún átti þar áhyggjulaust skjól og fylgdist með ömmubörnunum þremur vaxa úr grasi. Slðasti votturinn um hversu þetta hvikula og vandhöndlaða fyrirbæri, sem kallað er hamingja var henni handgengið er, að alveg þar til maðurinn með ljáinn sótti hana heim, hélt hún fullri andlegri reisn. Hún þurfti ekki að þola þá raun í ellinni að verða ósjálfbjarga vesal- ingur, sem alfarið var upp á aðra komin. Dauðinn hitti hana með skóna á fótunum, að starfi heima á Fremstagili, þar sem hún var að greiða jólunum leið í bæinn. Það var henni líkt. Þetta á að vera kveðja okkar, gömlu hjónanna frá Geitaskarði til Birnu. Hún er borin fram af virð- ingu og þökk. Vottum fjölskyldunni samúð. Sigurður og Valgerður í einu vetfangi sjáum við hvað lífið er stutt og við erum alltaf jafn óviðbúin því sem koma skal. Svo var um mig er mér barst andláts- fregn tengdamóður minnar, Jó- hönnu Birnu Helgadóttur. Þá renna í gegnum hugann minn- ingar um hana frá fyrstu kynnum til okkar síðustu samfunda í haust. Mér er minnisstætt er ég sá hana fyrst þessa vingjarnlegu myndai'- konu þegar hún tók á móti mér í eldhúsinu sínu á Fremstagili. Sá bær var henni afar kær enda dvald- ist hún þar allan sinn búskap. Oft rifjaði hún upp, svona til að kynna mér ungum manni, hvað túnið var þýft og skepnuhús léleg og bar það gjarnan saman við það sem mætir augum okkar nú. Þegar hún talaði um þetta leyndi sér ekki jive stolt hún var af sínum ágæta manni, Hilmari Frírríanns- syni, bóndasyni frá Hvammi, sem hreyf huga hennar er hún gerðist kaupakona hjá honum á jörðinni sem hann hafði þá þegar fest kaup á. Tengdamóðir mín var af góðu bændafólki komin. Móðir hennar eyfirsk gáfukona en faðirinn Bárð- dælingur, góður og hlýr. Þau hófu búskap í Skagafirði og þar fæddist Birna 6. júlí 1911 á bæ er hét Kirkjuhóll. Móðir sína missti hún þriggja ára gömul og fluttist hún þá með föður sínum að Þröm og þaðan átti hún sínar bernskuminn- ingar með systkinum sínum, föður og stjúpmóður. En föður sinn missti hún sviplega er hann féll af hest- baki. Þá þegar var ekki um annað FRESTUR AÐ RENNA ÚT TIL AÐ TRYGGJA SÉR LÆKKUN Á TEKJUSKATTI Sérstök ákvæöi skattalaga heimila þeim sem fjárfesta í hlutabréfum vissra fyrirtækja, að draga frá skattskyldum tekjum að ákveðnu hámarki kaupverð hlutabréfanna. Við höfum í sölu hlutabréf í nokkrum traustum fyrirtækjum. Verið velkomin í afgreiðslu okkar að Suðurlandsbraut 18 eða að hringja í síma 688568. Við gefum ykkur góð ráð. UERÐBRÉFAUIÐSKIPTI V/ SAMUINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 688568 að ræða en að fara að vinna fyrir sér en hún var þá á fimmtánda ári. Var hún heppin í þeim efnum og réðst í góðar vistir á Akureyri, sem var sá skóli sem dugði henni mætavel. Hún naut þess að hlúa að fólki og yfirleitt öllu sem var lifandi, nutu margir þess. Heimilið hennar oft mannmargt, börn á sumrin og gestir margir, og alltaf tekið á móti fólki með hlýju og nóg pláss fyrir alla. Hilmar bóndi hennar réðst til margra starfa fyrir sveit sína og þurfti oft ' að bregða sér frá og hvíldi þá umsjá heimilisins á hennar herðum. Heimilið er skemmtilegt og þar dvöldust börnin okkar öll, sumar eftir sumar, það er alltaf til- hlökkun að koma í Fremstagil. Á Fremstagili ólust börnin þeirra upp, fimm að tölu. Halldóra gift undirrituðum, Guðmundur Frímann kvæntur Gerði Hallgrímsdóttir, Anna Helga ógift, Valgarður kvæntur Vilborgu Pétursdóttur og Hallur, unnusta hans er Elín Jóns- dóttir. Barnabörnin eru orðin fjórt- án og litlu barnabarnabörnin eru sjö. Allt þetta fólk var hennar eftir- lætis umræðuefni. Naut hún þess þegar við vorum sem flest í heim- sókn hjá henni. Mann sinn missti hún fyrir tíu árum en þá hafði Valgarður sonur þeirra og Vilborg kona hans tekið við og haldið áfram við að fegra og bæta jörðina af miklum myndar- skap. Það var henni mikil gleði að fá að dveljast þar og taka áfram þátt í öllu sem fram fór utan húss og innan auk þess sem hún pijón- aði og las sér til gamans enda heilsuhraust til síðustu stundar. Hafði hún gott eyra fyrir kveð- skap og var fljót að búa til Ijóð og stakar vísur. Hún var kölluð á braut í miðjum jólaundirbúningi, var að snotra til í kringum sig. Birnu verður sárt saknað og kann ég henni bestu þakkir fyi'ir sam- fylgdina._ Olafur Heiðar Jónsson BILALEIGA AKUREYRAR Traustir hlekkir í sveiganlegri keðju hringinn í kringum landið Bflaleiga með útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Nýjustu MITSUBISHI bílarnir alltaf til taks Reykjavík: 91-686915 Akureyri: 96-21715 Borgarnes: 93-71618 ísafjörður: 94-3574 Blönduós: 95-24350 Sauðárkrókur: 95-35828 Egilsstaðir: 97-11623 Vopnafjörður: 97-31145 Höfn í Hornaf.: 97-81303 ÓDÝRIR HELGARPAKKAR STÝRT VIÐHAID NÁMSKEIÐ Efnt verður til námskeiðs um stýrt viðhald véla, tækja og mannvirkja dagana 4. og 7. janúar 1991. Námskeiðið er ætlað þeim, sem stjórna og annast viðgerðar- og viðhaldsverk. Á námskeiðinu verða eftirtalin atriði til meðferðar: - Hvað er kerfisbundið viðhald? - Mismuninn á viðgerð og viðhaldi. - Uppsetningu viðhaldskerfis. - Skráningu gagna fyrir stýrt viðhald. - Skráningar sem tengjast kerfinu. - Viðhaldskerfið í notkun. - Stýrt viðhald í tölvuvæddu formi (PC). Um þessi atriði verður fjallað í fyrirlestrum og með verklegum æfingum. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að hafa tileinkað sér ný vinnubrögð og öðlast þjálfun til þess að koma þeim á - hver á sínum vinnustað. Námskeiðsgjald er kr. 9.500,- Þátttaka tilkynnist eigi sfðar en 2. janúar í síma 91-621755. FÉLAC MÁLMl Ð NAÐ ARFYTHRDBKÁJW

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.