Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
Er sannfæring alþing-
ismanna til sölu?
eftirKarl Ormsson
Siðgæði sumra þingmanna á
elstu löggjafarsamkomu heims,
Alþingi íslendinga, er svo sannar-
lega ekki til að hrópa húrra fyrir,
þegar á það er litið frá sjónarhóli
hins almenna kjósanda. Framferði
stjórnarþingmanna, sem ég ætla
að tíunda hér svolítið, hefur verið
það korn, sem fyllt hefur mælinn
a.m.k. hjá mér. Þingmenn ávaipa
hver annan sem háttvirtan þing-
mann en siðareglurnar virðast ekki
nájengra.
í stjórnarskrá íslands stendur
meðal annars, að sérhver þingmað-
ur skuli vinna eið að stjórnar-
skránni. Neiti hann að vinna eiðinn
fær hann ekki setu á Alþingi. Sér-
staklega er tekið fram í stjórnar-
skránni að þingmenn séu bundnir
við sannfæringu sína. Undanfarið
hefur verið rætt um eitt umdeild-
asta mál, sem hefur komið á Al-
þingi í langan tíma, þ.e. bráða-
birgðalögin sem sett voru á BHMR.
Hún er undarleg sannfæring
sumra stjórnarþingmanna og virð-
ing fyrir stjómarskránni. Virtir
lögfræðingar, hæstaréttarlög-
menn, lagaprófessor, sem hefur
verið forseti lagadeildar Háskól-
ans, hafa marg lýst því yfir að
þessi ólög standist vart. Eru þau
meðal annars talin bijóta í bága
við stjórnarskrána.
Þingmenn sem styðja stjórn
Steingríms Hermannssonar, kepp-
ast við að lýsa yfir því að þeir
muni fella bráðabirgðalögin. Við
skrautlegar umræður á hinu háa
Alþingi skipta menn hins vegar
um skoðun eins og sokka og hæla
sér afþví, að auðvitað hafi þeir
aldrei ætlað að fella umrædd
bráðabirgðalög þegar þau kæmu
til afgreiðslu. Stefáni Valgeirssyni
er kannski vorkunn því hann er
gamall maður, eins og hann segir
sjálfur, og hefur auk þess fylgt
maddömu Framsókn í áratugi,
Hjörleifur Guttormsson er hins
vegar hámenntaður líffræðingur á
Karl Ormsson
besta aldri og ætti að geta verið
sjálfum sér samkvæmur í einn dag
eða svo.
Geir Gunnarsson er eini stjórn-
arþingmaðurinn sem unnt er að
taka ofan fyrir. Hann stendur fast
á sannfæringu sinni.
Það er fróðlegt, en margt sorg-
legt, sem hefur gerst á Alþingi í
tíð stjórnar Steingríms Hermanns-
sonar, og margt ekki auðskilið.
Guðmundur Ágústsson sem hefur
sýnt þann kjark að yfirgefa stjórn-
arskútuna. Hann lýsir því yfir að
hann hafi ætlað að fella ríkisstjórn-
ina þegar lögin um fiskveiðistjórn-
un komu til afgreiðslu, en verið
beðinn um að hætta við það. Er
hægt að kaupa sannfæringu þing-
manna'í
DV sagði frá því um daginn að
þingið myndi endurnýjast um ’/?. í
næstu kosningum. Það er ekki
seinna vænna, ef rétta mætti
ímynd Alþingis í augum kjósenda.
I margra augum hefur það verið
einsog skrípasamkunda undanfar-
in ár. Það væri varla sú ríkisstjórn
til í heiminum, sem ekki væri búin
að segja af sér í stöðu þeirrar sem
situr hér. Forsetar kvarta yfir að
þingmenn fáist ekki í þingsali til
að fundarfært sé. í stjórnarskránni
segir að það sé meginskylda þing-
manna að rækja þingmannastörfin
eftir bestu samvisku og svo sem
lög mæla fyrir um. Þeim er skylt
að sækja nefndarfundi og mæta
jafnan á þingfundi, sem þeir eru
kjörnir til (þá veit maður það).
Hinum almenna borgara finnst
skrítið hvernig ríkisstjórnin þjösn-
aði þessum bráðabirgðalögum í
gegnum þingið. Er það nokkur
furða þótt almenningi blöskri
gjörðir þessara herra?
Maður heyrir ekki betur en ríkis-
stjórnin sé þegar farin að réttlæta
það þótt Alþjóða vinnumálastofn-
unin í Sviss fordæmi bráðabirgða-
lögin á BHMR. Vitnað' er til
Svíþjóðar, sem hafi tapað svona
málum. Island er lítið land, sem
þekkt er fyrir að fara að alþjóða-
lögum. Það yrði ljót saga ef aðrar
þjóðir fengju annað álit á íslandi
út af þessu máli. Að endingu hvet
ég sem flesta til að lesa ágæta
grein er Kristján Torfason bæjar-
fógeti ritar í Morgunblaðið 12.
desember sl. Þingmönnum væri
hollt að lesa hana fyrir endanlega
afgreiðslu bráðabirgðalaganna.
f
Höfundur er raftækjavörður.
____________Brids________________
Arnór Ragnarsson
Jólamót Bridsfélags
Hafnarfjarðar og Sparisjóðs
Hafnarfjarðar
Hið árlega jólamót félagsins verður
spilað laugardaginn 29. desember. Að
þessu sinni verður sþilað í Víðistaða-
skóla og byrjaði kl. 12. Keppninni verð-
ur síðan lokið um kl. 18. Keppnisgjald
verður 1.200 kr. á mann. Veitt verða
fern verðlaun í hvorum riðli, 30.000,
20.000, 14.000, og 10.000 kr. á parið,
samtals 8 verðlaunasæti að upphæð
148.000. Þátttaka verður takmörkuð í
þessa vinsælu keppni.
Nánari upplýsingar: 651064
(Trausti), 642450 (Erla) og 46329
(Dröfn).
Frá Bridsdeild Barð-
strendingafélagsins í
Reykjavík
Mánudaginn 7. janúar 1991 hefst
aðalsveitakeppni félagsins. Spilað er í
Skipholti 70 öll mánudagskvöld kl.
19.30 stundvíslega. Spilastjóri er Sig-
urður Vilhjálmsson.
Enn er tími til að tilkynna þátttöku
hjá Ólafí í síma 71374.
Deildin sendir öllum sem hún hefir
haft samskipti við, bestu nýársóskir og
þakkir fyrir ánægjuleg samskipti á
liðnu ári. Sérstakar kveðjur og nýárs-
óskir tii Patreksfirðinga og annarra
bridsspilara í Barðastrandarsýslu, með
þakklæti fyrir móttökurnar síðastliðið
vor.
Lifið heil.
Áhættu-
dreifing
á einum
stað
Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur áhættudreifingu að leiðarljósi.
Félagið ver hlutafé sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og
skuldabréfum traustra atvinnufyrirtækja.
Kaup einstaklinga á hlutabréfum í félaginu veita rétt til
skattalækkunar.
Hluthafar í Hlutabréfasjóðnum hf. eru nú 1330 og markaðsverð
hreinnar eignar félagsins er 425 milljónir króna.* Þar af er
markaðsverðmæti hlutabréfaeignar félagsins 323,7 milljónir króna
og skiptist þannig á einstök félög:
millj.kr. millj.kr.
Eimskip 71,0 Sjóvá/Almennar ... 5,3
FJugleiðir 75,6 Skagstrendingur .. .... 10,7
Hampiðjan 20,6 Skeljungur .... 49,2
íslandsbanki • 1,5 Tollvörugeymslan .... 11,0
EHF Alþýðubankans .. . 1,8 ÚA 0,5
EHF Iðnaðarbankans .. 10,0 Olís 3,8
EHF Verslunarbankans .7,8 Faxamarkaður .... 1,5
Grandi 36,9
Olíufélagið 16,5 323,7
* Allar tölur m.v. nóvcmber 1990.
Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins fást hjá öllum helstu verðbréfafyrirtækjum landsins.
Útboð nýrra hlutabréfa er hafið. Útboðslýsing liggur frammi á sölustöðum.
Í&^lliPI^LUTABRÉFASJÓÐURINN HF. Itlpl|||li|
Skólavörðustíg 12 — Sími 21677 — 101 Reykjavík.
VZterkurog
kj hagkvæmur
auglýsingamiöill!