Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 2
£_________;__________________________oew fiaaMaaan .82 ít'joAairraöa aiaAjnvuoHOM
Z" MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
Mikil kirkjusókn um
allt land yfir jólin
Róleg jól hjá lögreg'lu
Morgunblaðið/Sverrir
Fuglar í vandræðum
Tregt rennsli Hitaveitunnar segir víða til sín eins og sannaðist í gær, þegar starfsmenn borgarinnar þurftu
að beita haka til að brjóta vök fyrir fuglana, sem venjulega hafa aðgang að Tjöminni við Iðnó.
KIRKJUSÓKN var mikil um allt land um jólin eins og verið hefur
undanfarin ár og messuhald gekk víðast vel, samkvæmt upplýsingum
frá biskupsembættinu. Nokkpð var um umferðaróhöpp dagana áður
en jólahátíðin gekk í garð en að öðru leyti var lítið um útköll hjá
lögreglu yfir háhátíðina.
Flug lá að mestu niðri hjá Flug-
leiðum frá Reykjavík síðustu daga
fyrir jól en á Þorláksmessu rættist
nokkuð úr fyrir flugfarþega. í gær
var ófært á allfiesta staði en útlit
var fyrir að flogið yrði til Akur-
eyrar síðdegis en þijár ferðir höfðu
verið felldar niður.
Evrópumótið
í skák:
Hannes Hlífar
með fullt hús
Arnhem. Frá Sigurði Daða Sigfússyni
fréttaritara Morgunblaðsins.
HANNES Hlífar Stefánsson hef-
ur unnið sex fyrstu skákir sínar
á Evrópumeistaramóti skák-
manna 20 ára og yngri, sem fram
fer í Arnhem í Hollandi.
S&
Um 180 manns biðu eftir flugi
hjá Flugíeiðum í gær. í gær var
ófært til Isafjarðar, Þingeyrar, Eg-
ilsstaði og varð að felia niður síð-
asta flug til Vestmannaeyja!
Færðin í borginni var ágæt fram
að jólum en á laugardag og sunnu-
dag var tilkynnt um 56 umferðaró-
höpp í borginni. í sex tilfellum var
um slys á fólki að ræða. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík er ástæða
þessara óhappa sú að fólk virðist
ekki hafa áttað sig á breyttum að-
stæðum til aksturs. 22 ökumenn
voru teknir grunaðir um ölvun við
akstur dagana fyrir jól og fjórir
yfir hátíðita. Fámennt var í fanga-
geymslum lögreglunnar en síðast-
liðna nótt brá strax til hins verra
því þá gistu 13 manns
fangageymslur.'
Fleiri einstaklingar kaupa hlutabréf í ár vegna skattfríðinda:
t. 1 'v-tl
Heildarvelta á hlutabréfamark-
aði um 5 milljarðar á þessu ári
MUN fleiri einstaklingar munu nýta sér skattaafslátt með hlutabréfa-
kaupum á þessu ári en í fyrra að’ mati verðbréfasala. Einstaklingum
sem kaupa hlutabréf í almenningshlutafélögum fyrir áramót er heim-
ilt að draga kaupverð þeirra frá skattskyldum tekjum sinum að vissu
marki. Nemur hámark þessa frádráttár nú tæpum 126 þúsund krón-
um og tvöfaldri þeirri fjárhæð fyrir hjón. Hlutabréfaviðskipti hafa
margfaldast á þessu ári miðað við árið í fyrra og vega þar þungt
hlutafjárútboð almenningshlutafélaga, t.d. Flugleiða og Eimskips.
Samkvæmt upplýsingum frá verðbréfafyrirtækjunum má reikna með
að heildarvelta á hlutabréfamarkaðnum verði nálægt fimm miHjörð-
um króna en þar af eru útboð nýrra bréfa um þrír milljarðar.
Hannes, sem er þriðji stigahæsti
keppandinn á mótinu, hefur 1,5
vinnings forskot á næstu menn,
Degraeve frá Frakklandi, van Wely
frá Hollandi og Comas frá Spáni.
Hannes tók áður þátt í þessu móti
á síðasta ári og varð þá í 9. sæti.
Jón L. Arnason stórmeistari tek-
ur einnig þátt í skákmóti í Groning-
en í Hollandi. Hann er í 5-8. sæti
eftir fimm umferðir með 2,5 vinn-
inga en efstur er breski stórmeistar-
inn Adams með 3,5 vinninga.
Færð þyngd-
ist víða í gær
FÆRÐ var ágæt víðast hvar á
landinu fram eftir degi í gær,
nema hvað ófært var frá Hofsósi
til Siglufjarðar. Undir kvöld var
færð þó farin að þyngjast víða.
Góð færð var á Suðurnesjum og
austur yfír Hellisheiði en þó gekk
þar á með éljum í gær. Fært var
með suðurströndinni allt til Aust-
fjarða og fjallvegir opnaðir þar í
gær. Fyrir Hvalfjörð var fært öllum
bílum.
Sömuleiðis var ágæt færð á Snæ-
fellsnesi allt vestur í Dali en farið
var að skafa í Borgarfirði og orðið
illfært á Mýrum.
Búið var að opna flesta vegi á
Vestfjörðum. Fært var yfir Öxna-
dalsheiði til Ólafsfjarðar og til
Húsavíkur og Mývatnssveitar. Ver-
ið var að opna vegi við Raufajjiöffi
í gær.
kjörin a fundmum í gær.
í nýkjörinni stjórn sitja Óttar
Proppé, fulltrúi ríkisins, Marteinn
Haraldsson, fulltrúi Drafnars, og
Jóhannes Egilsson fyrir Egilssíld.
Að sögn 'Róberts Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra Þormóðs
Einstaklingar hafa í miklum
mæli keypt hlutabréf í hlutabréfa-
sjóðum að undanfömu, bæði ný-
stofnuðum sjóðum í vörslu verðbréf-
afyrirtækjanna og Hlutabréfasjóðn-
um hf.
Hjá Verðbréfamarkaði íslands-
banka (VÍB) var mjög mikil eftir-
spum eftir hlutabréfum í gær og
beið fólk í biðröðum. Þar voru í
boði hlutabréf í Flugleiðum,
Granda, Hlutabréfasjóðnum, Hluta-
bréfasjóði VÍB, Eignarhaldsfélagi
Verslunarbankans og Ármannsfelli,
að sögn Svanbjöms Thoroddsen,
deildarstjóra. VIB átti t.d. í gær
hlutabréf að söluandvirði 2 milljónir
í Granda og 9 milljónir í Flugleiðum
en Svanbjörn kvaðst eiga von á því
að þau bréf seldust upp fyrir ára-
mót. Þeir sem viidu nýta sér skatta-
afsláttinn keyptu hins vegar mest
ramma, eru fyrirtækin tvö, sem
sameinast Þormóði ramma í þessu
nýja útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tæki, fremur smá en rótgróin fjöl-
skyldufyrirtæki í siglfirsku atvinnu-
lífi. Egilssíld starfrækir lagmetis-
í hlutabréfasjóðum.
„Það er mikil sala í Almenna
hlutabréfasjóðnum hjá okkur og
mér finnst fólk einblína meira á
hlutabréfasjóðina erf einstök félög.
Við höfum verið með á boðstólum
hlutabréf í tvemur félögum, Olíufé-
laginu og Eignarhaldsfélagi Versl-
unarbankans, Einnig erum við um-
boðsaðilar fyrir Hlutabréfasjóðinn
hf.,“ sagði Guðmundur Þór Þór-
hallsson hjá Fjárfestingarfélaginu í
gær. Hann sagði að á þessu ári
hefði verið jafnara framboð hluta-
bréfa með útboðum og stöðugu
framboði nýstofnaðra hlutabréfa-
sjóða. Aðspurður um söluna það
sem af væri árinu sagði Guðmundur
að um verulega aukningu væri að
ræða en ekki lægju fyrir nákvæmar
tölur.
Davíð Björnsson, forstöðumaður
framleiðslu en Drafnar rækju-
vinnslu. Sagði hann að bæði fyrir-
tækin byggju við jákvæða eiginfjár-
stöðu, þau stæðu vel og velti saman-
lagt um 200 milljónum kr. á þessu
ári.
Róbert sagði að samkvæmt drög-
um að samrunaefnahagsreikningi
sem lagður var fram á hluthafa-
fundinum komi fram að eftir að 50
milljóna kr. hlutafé hefur verið boð-
ið út muni Þormóður rammi vera
með 218 milljónir kr. í eigið fé.
Á fundinum voru um 30 manns,
sem eiga hlut í Þormóði ramma,
hjá Landsbréfum, sagði að þar
væru í boði hlutabréf í Flugleiðum
og Olís svo og hlutabréfasjóðum.
Kvaðst hann reikna með að um 100
mannS hefðu keypt bréf í gær, eink-
um í sjóðunum. „Það hefur verið
mikið að gera og margir hringja ril
að spyija ráða um hlutabréf. Ég
reikna með að við séum að sjá byij-
unina á skriðunni en að hún verði
einkum á morgun. Við ætlum einn-
ig að hafa opið til tvö á gamlársdag
fyrir þá sem koma alltaf á síðustu
„Þetta gekk skikkanlega yfir jól-
in,“ sagði Hreinn. „Tveir menn önn-
uðu því sem þurfti að sinna en það
voru milli 30 til 40 manns sem leit-
og komu fram deildar meiningar
um málið að sögn Róberts. Deilt
hefur verið á matsverð fyrirtækisins
við söluna og ljármálaráðherra hef-
ur sætt mikilli gagnrýni og verið
ásakaður um að hygla pólitískum
samheijum sínum. Róbert sagði
aðspurður að fæstir þeirra manna
sem stóðu að kaupunum hafi
nokkru sinni iitið Ólaf Ragnar aug-
um fyrr en á undirskriftardegi og
væru ekki í nokkrum pólitískum
tengslum við hann. „Allt tal um
pólitík er helber áróður. Nú förum
við sameinaðir í hlutafjárútboð og
vonumst til að Siglfirðingar standi
saman um öfluga útgerð og fisk-
vinnslu," sagði Róbert.
stundu,“ sagði Davíð.
Elfar Guðjónsson sölustjóri hjá
Kaupþingi sagði að hlutabréfasalan
hefði verið jöfn og stöðug. Þar voru
í boði hlutabréf í Sæplasti, Ár-
mannsfelli, Fróða, Hlutabréfasjóðn-
um og Auðlind og sagði Elfar að
mest væri selt í hlutabréfasjóðun-
um. Varðandi söluna í heild kvaðst
hann telja að hún væri sex- til átt-
falt meiri en í fyrra, einkum vegna
útboða sem Kaupþing hefur annast
á árinu.
uðu aðstoðar á dag. Þeir .sinntu
þeim tilvikum, þar sem um vatns-
leysi var að ræða en reyndu að ýta
öðru á undan sér þar til í dag en
þá virðast um 150 hafa fengið að-
stoð.“
Vandræðin stafa nær eingöngu
af tregu rennsli í einstök hús og
stífluðum inntakssíum. Sagði
Hreinn að í einstaka húsum stífluð-
ust síurnar aftur og aftur og er
verið að vinna yfirlit yfír þau hús
á veitusvæðinu, þar sem beðið hefur
verið um aðstoð. „Hlutfallslega er
núna mest beðið um aðstoð í gamla
bænum,“ sagði hann. „Þar eru hita-
kerfin veikari fyrir og þar var eins
og fram hefur komið blandað inn á
kerfið vatni úr borholum af Laugar-
nessvæðinu og orsakaði útfelling-
amar, sem við sitjum nú uppi með
afleiðingarnar af.“
Sagði Hreinn, að vel væri fylgst
með vatninu sem kemur frá Nesja-
völlum og er talið að það sé nokk-
urn veginn laust við útfellingar.
Vandamálið eru útfellingar sem enn
eru á kerfinu. Sagðist hann ekki
treysta sér til að segja til um hve
nær kerfið yrði hreint en minnti á
að 22 þús. hús eru tengd veitunni
og að lagnirnar ná yfir um 1000 km.
Hluthafafundur í Þormóði ramma á Siglufirði:
Samþykkir sameiningu þriggja fyrirtækja
Eigið fé eftir hlutafjárútboð verður 218 milljónir króna
Á HLUTHAFAFUNDI í Þormóði ramma hf. á Siglufirði í gær var
sameining sjávarútvegsfyrirtækjanna Drafnars hf., Egilssíldar hf.
og Þormóðs ramma samþykkt en fyrirtækin keyptu 57% hlutafjár
ríkisins í Þormóði ramma í síðustu viku. Sameiningin var samþykkt
með yfir 90% atkvæða á fundinum. Þá var samþykkt að bjóða út
hlutafé að upphæð 50 milljónir kr. á Siglufirði eftir áramót og njóta
bæjarbúar forkaupsréttar á hlutafénu á sama gengi og Drafnar og
Egilssíld keyptu sinn hluta af ríkissjóði. Ennfremur var ný stjórn
Hitaveita Reykjavíkur:
30-40 leituðu aðstoðar
á dag yfir hátíðarnar
MILLI ÞRJÁTÍU og fjörtíu leituðu eftir aðstoð dag hvern hjá Hita-
veitu Reykjavíkur yfir hátíðarnar vegna kulda í húsum sinum. Að
sögn Hreins Frímannssonar yfirverkfræðings, sinntu tveir menn
nauðsynlegum útköllum en í gær var farið á 150 staði. Ástandið er
nú verst í gamla bænum og ekki útséð um hvenær erfiðleikarnir
eru að baki.