Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 4
oeer sraaMaaaa .82 auoAnuTSoa aiaAjaviuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAÍÍUH 28. DESEMBER.l990
Átján ára piltur
lést í flugslysi
ATJÁN ára piltur, Erlendur
Árnason, lést í flugslysi á Mel-
gerðismelum í Eyjafirði á laugar-
dag. Hann fæddist 27. maí 1972
og var til heimilis í Jörvabyggð 9
á Akureyri.
Sex félagar úr Svifflugfélagi Ak-
ui'eyrar voru við æfingar á Melgerð-
ismelum í Eyjafirði, þar sem félagið
hefur aðstöðu, er slysið varð. Erlend-
ur var í síðasta æfingafluginu, en
slysið var tilkynnt til lögreglu um
kl. 14 á laugardag.
Að sögn lögreglu fór annar væng-
ur svifflugunnar af henni og vélin
steyptist til jarðar úr nokkurri hæð.
Ekki er vitað hvers vegna vængurinn
fór af, en rannsókn málsins er í
höndum Loftferðaeftirlits.
Erlendur Árnason
Jólaverslunin svipuð
og á seinasta ári
SVO ER að sjá sem jólaverslun hafi verið svipuð og í fyrra, jafn-
vel eitthvað meiri, samkvæmt þeim upplýsingum sem borist hafa
til Félags íslenskra stórkaupmanna og Kaupmannasamtaka Islands.
Ekki lágu í gær fyrir neinar
tölur um verslunina í jólamánuðin-
um, en á báðum stöðum höfðu
menn grennslast fyrir hjá félögum
samtakanna og bar þeim saman
um að verslunin hefði verið svipuð
eða ívið meiri en í fyrra.
Árni Reynisson framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna sagðist ekki hafa heyrt
annað en að menn létu vel af versl-
uninni fyrir jólin. „Svo krossa
menn bara fingur hér og vonast
eftir stöðugleika á næsta ári,“
sagði Árni.
Stefnt að afnámi verðtryggingar fjárskuldbindinga:
Menn eiga að geta valið
um verðtryggða samninga
Svifflugan var af gerðinni Sehleicher Ka-6
VEÐUR
„ÉG ER sammála þeirri stefnu
sem fram kemur í fréttatilkynn-
ingu viðskiptaráðuneytisins að
það skuli vera fijálst val á fjár-
/ DAG kl. 12.00
VEÐURHORFUR I DAG, 28. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Norðaustur af landinu er víðáttumikil en minnk-
andi lægð, en lægðardrag á Grænlandshafi. Skammt suður af
Hvarfi er þriðja lægðín og mun hún þokast í norðaustur.
SPÁ: Sunnan- og suðaustanátt — kaldi eða stinningskaldi. Snjó-
koma austanlands en él á Suðvestur- og Vesturlandi — en úrkomu-
laust um norðanvert landið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Sunnan- og suðaustan-
átt, fremur hæg, snjókoma um sunnan- og austanvert landið, en
að mestu úrkomulaust norðan- og vestanlands. Frost 2-5 stig.
TAKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-| o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—{- Skafrenningur
Þrumuveður
/ 1(EÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vsður Akureyri +2 alskýjað Reykjavík 0 skafrenningur
Bergen 3 skúr
Helsinki +0 þokumoða
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Narssarssuaq +17' léttskýjað
Nuuk +15 snjókoma
Osló 1 rigning
Stokkhólmur 4 rigning
Þórshöfn 1 hagféi
Algarve 15 alskýjað
Amsterdam 7 skúr
Barcelona 12 skýjað
Berlín 7 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 4 þoka
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 2 snjóél
Hamborg 5 skýjað
Las Palmas 18 skýjað
London 7 léttskýjað
Los Angeles 20 heiðskirt
Lúxemborg 4 skúr
Madríd 9 þokumóða
Malaga 17 skýjað
Mallorca 16 skýjað
Montreal +15 skýjað
New York -r5 skýjað
Orlando vantar
París 8 skúr
Róm 13 alskýjað
Vín 5 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +17 (snálar
magnsmarkaði en ekki lögþving-
un að draga úr mikilvægi verð-
tryggingar. Ég furða mig hins
vegar á þeirri þversögn að í sömu
tilkynningu skuli vera boðað að
lámarkstími verðtryggðra útlána
verði lengdur úr tveimur árum í
þrjú um áramótin en með því er
verið að þrengja möguleika inn-
lánsstofna til að bjóða verðtryggð
sparnaðarform, og að stefnt skuli
að því að heimild til verðtrygging-
ar fjárskuldbinda verði feljd úr
gildi í byijun 1993,“ sagði Gunnar
Helgi Hálfdánarson fram-
kvæmdasljóri Landsbréfa hf.,
verðbréfamarkaðar Landsbank-
ans, þegar leitað var álits hans á
samkomulagi Seðlabankans og
rikisstjórnar um að minnka vægi
verðtryggingar í áföngum og að
stefnt skuli að afnámi heimildar
til verðtryggingar fjárskuldbind-
inga frá ársbyrjun 1993.
„Mér finnst að menn eigi nú og
um alla framtíð að geta valið um
það hvort þeir geri vísitölutryggða
samninga sín á milli eða ekki,“ sagði
Gunnar Helgi. „Það er af og frá að
banna verðtryggingu, það er óvíða
gert í öðrum löndum. Frelsi á að
ríkja á þessu sviði. Það sýnir sig að
þegar menn eru hættir að óttast
verðhólgu kjósaþeir fremur að semja
á grundvelli nafnvaxta en vísitölu.“
Gunnar Helgi sagði að í verð-
bólguþjóðfélagi, eins og væri á á
íslandi nú og hljóti að verða verða
næstu árin, væri lánskjaravísitalan
mikilvægt trúnaðarsamband á milli
sparifjáreigenda og lántakenda, hún
tryggði að raunávöxtun væri ekki
fjárhættuspil. Á meðan hennar nyti
við væru menn tilbúnir til að semja
til lengri tíma við þær verðbólguað-
stæður sem hér eru. „Ef hún verður
bönnuð þýðir það að lánstíminn
styttist til mikils óhagræðis fyrir
atvinnulífið og sparifjáreigendum
verður óljúft að veita lán. Þá mun
kostnaður atvinnulífsins við lántökur
aukast, framlengingarkostnaður
margfaldast og atvinnulífið þarf að
bera áhættuþóknun vegna verð-
bólguóvissu sem sparifjáreigendur
leggja á lánin.
Eg sé ekki tilganginn með því að
þröngva mönnum til að hætta að
nota verðtryggingu. Það gerist af
sjálfu sér ef menn fá trú á efnahags-
málunum og að stjórn þeirra verði
betri en verið hefur á undanförnum
tveimur áratugum," sagði Gunnar
Helgi.
„Óverðtryggðu pappírarnir
athyglisverð tilraun“
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans sagði að út af fyrir sig
væri vísitölubinding ónauðsynleg í
viðvarandi lítilli verðbólgu. Hins veg-
ar væri hún öryggisventill fyrir
sparifjáreigendur. „Þeir hafa haft
trú á henni og það hefur sýnt sig
að sparnaðurinn hefur ekki brunnuð
upp í verðbólgunni frá því hún var
tekin upp,“ sagði Stefán. „Allir eru
sammála um' að það er lífsnauðsyn-
legt fyrir þjóðfélagið að efla innlend-
an sparnað svo ekki þurfi að taka
jafn mikið af erlendum lánum og
annars þyrfti. Verðtryggingin hefur
gengt veigamiklu hlutverki í því. Það
sýnir sig á því að innlendur sparnað-
ur sem hlutfall af þjóðarframleiðsiu
hefur stóraukist frá því bankarnir
fengu heimild til verðtryggingar,"
sagði hann.
Stefán sagði að sú tilraun sem
gerð verður, að bjóða upp á ný inn-
lánsform, óverðtryggða pappíra,
væri athyglisverð. „Spurningin er
hvort þessir pappírar seljast á verð-
bréfamarkaðnum. Ef svo er sýnir
það að sparifjáreigendur telja vísi-
tölubindinguna ekki nauðsynlega.
Ef á hinn bóginn þessir pappírar
seljast ekki verður að endurmeta
stöðuna.
Það er spurning hvað stórir spari-
fjáreigendur, eins og til dæmis
lífeyrissjóðirnir sem eru stærsta upp-
spretta sparifjár í landinu, gera.
Kaupa þeir þessa nýju pappíra. Þeir
verða að ávaxta fé sitt þannig að
þeir geti greitt iðgjaldagreiðendum
sínum verðtryggðan lífeyri. Ef lítil
verðbólga er og vextir fá að þróast
í samræmi við hana er ekki ólíklegt
að þessir stóru sparifjáreigendur fái
trú á óverðtryggðu innlánunum, en
það kemur auðvitað ekki í ljós fyrr
en á reynir," sagði Stefán Pálsson.
Stjórn Samtaka sparifjáriegenda
samþykkti á fundi sínum í gær álykt-
un, þar sem m.a. segir, að samtökin
telji nauðsynlegt að aðilar á fjár-
magnsmarkaði hafi alltaf fullt frelsi
til að sema sín á milli um kjör -
verðtryggð og óverðtryggð. Jafn-
framt lýsa samtökin fullri andstöðu
við hvers konar hugmyndir um
þrengingu heimilda til verðtrygging-
ar sparifjár.
Dvelst við
rætur Heklu
í tíu daga
HOLLENSKUR maður á þrítugs-
aldri dvelst nú einn í tjaldi við
rætur Heklu og hyggst hann
halda þar fyrir í um tíu daga.
Lögreglan á Selfossi bannaði
manninum fyrir jól að beiðni
Útlendingaeftirlitsins að leggja í
útileguna þar sem hann var tal-
inn illa undir slíka svaðilför bú-
inn og ekki talinn hafa tilskilin
leyfi. Dvaldist hann eina nótt á
hóteli í Reykjavík.
Daginn eftir hélt maðurinn í úti-
leguna enda hafði lögreglan gengið
úr skugga um að hann vaf mjög
vel búinn til útivistar að vetrarlagi,
með hitunartæki og vistir til hálfs
mánaðar.
Hann gaf þá skýringu á útivistar-
þránni að hann væri hér í hvíldar-
ferð, en hann er sprengjuflutning-
asérfræðingur í hollenska hernum
og hefur unnið að flutningum á
sprengjum til Persaflóa. Þetta er í
þriðja sinn sem maðurinn kemur til
Islands og árið 1987 dvaldist hann
einn síns liðs í tíu daga við Langjök-
ul.