Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 11
RÍÖRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBEr' 1990
A í
11
.
Ógæfumál
á eyðiströnd
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn
Ryð
Leikstjóri Lárus Ymir Oskars-
son. Handrit Ólafur Haukur
Símonarson, byggt á leikriti
hans, „Bilaverkstæði Badda“.
Leikmynd og búningar Karl
Júlíusson. Tónlist Wim Mertens,
Egill Ólafsson. Kvikmyndataka
Göran Nilsson, fsf. Hljóð Gunnar
Smári Helgason. Framleiðandi
Sigurjón Sighvatsson. Aðalleik-
endur Bessi Bjarnason, Egill
Ólafsson, Sigurður Sigurjóns-
son, Christine Carr, Stefán Jóns-
son, Þórhallur Sigurðsson. Is-
lensk. Verkstæðið hf., Stöð 2.,
SFI, Connexion Film 1990.
Á bílaverkstæði Badda er allt í
niðurníðslu, búnaður, hús og fólk.
Sú var tíðin að þar var nóg umleik-
is en nú er það komið úr alfara-
leið. Húskofarnir hanga uppi af
gömlum vana, íbúarnir annarlegir,
vægast sagt. Baddi (Bessi Bjarna-
son) er miðaldra, fálátur maður
sem tæpast skrimtir af ásamt fjöl-
skyldunni, syninum Haffa (Stefán
Jónsson), undarlegunj ungum
manni sem uppeldið hefur gert að
einrænum heimalning, með mikla
listræna hæfileika sem koma fram
á ógnþrungnum, æpandi málverk-
um á verkstæðisveggjum, og dótt-
urinni Sissu (Cristine Carr), sem
einveran og aðstæðurnar hafa leik-
ið verr þar sem hún vafrar um,
vitandi hvorki í þennan heim né
annan, að því er virðist. Badda til
fulltingis á verkstæðinu er neminn
Raggi, einfeldningur í þingum við
Sissu, með vitið í fingrunum, gróm-
teknum af skít.
Það er engu líkara en bölvun
hvíli á þessum mannskap á hjara
veraldar og það reynist rétt eftir
að til sögunnar kemur Pétur (Eg-
ill Ólafsson), fyrrverandi vinur og
verkstæðisfélagi Badda á árum
áður. Þá kemur semsé í ljós að
yfir lífi persónanna vofir hroðaleg-
ur atburður, ódæðisverk sem fram-
ið var á verkstæðinu fyrir áratug.
Þetta er inntakið í hinum nánast
átakanlega þriller Ryði, sem fjallar
um einstaklega ógæfusamar per-
sónur, aðdragandann að hinum
ömurlegu örlögum þeirra og loka-
uppgjörinu fyrst og fremst, sem
allt fer úr böndunum. Hér er naum-
ast normal manneskju að finna,
nema ef vera skyldi Pétur, en það
er svosem engin ný bóla í íslenskri
kvikmyndagerð, að maður taíi ekki
um sjónvarpsmyndir. Ryð er sterkt
drama og tragískt og undir niðri
gefur samviskan aðalpersónunum
engin grið. Hún fer ágætlega í
gang, kannski full leyndardómsfull
á ábúðarmikinn hátt til að byija
með, en þetta gamla glæpamál
smáskýrist eftir því sem á líður.
En fyrst þurfum við að sitja yfir
nokkuð aðgerðarlitlum og lang-
dregnum millikafla (og ekki bætti
hléið þá úr skák, að vera rifinn
úr sambandi við þetta afskekkta
ólánsfólk i grárri tilveru anda og
umhverfis og grýtt inní dísæta jóla-
söngva Bing Crosby um stund,
flokkast undir umhverfisslys!). En
þrýstingurinn vex og síðari hluti
myndarinnar er þrúgandi og endar
með sprengingu á verkstæðinu,
þar gerast nánast óbærilegir hlutir
fyrir augað og ekki vænkast hagur
óhamingjufólksins.
Atvinnumannsleg í alla staði og
vel sögð kvikmyndalega. Handritið
hefur oftar en ekki verið einn veik-
asti hlekkur íslenskra kvikmynda,
því er ekki fyrir að fara hér. Sögu-
fléttan er snjöll og samtölin lan-
goftast trúverðug — án þess að
vera sviðsleg — þó að persónurnar
séu harla óvenjulegar. Persónu-
sköpunin er besta verk Ólafs
Atriði ur Ryði.
Hauks, tær, kraftmikil, óumdeilan-
lega einn sterkasti og eftirtektar-
verðasti hluti Ryðs og þá er komið
að besta þættinum sem er leikhóp-
urinn. Ég ætla ekki að tíunda hann
í smáatriðum, ég leyfi mér einung-
is að fullyrða að Ryð er jafnbest
leikna íslenska myndin til þessa.
Leikhópurinn er óaðfinnanlegur,
hver einasti einstaklingur skilar
sínu erfiða hlutverki með prýði.
Jafn mikil ástæða er hæla Lárusi
Ymi, hann heldur öllum endum
saman, jafnt af lipurri fagmennsku
og listrænni yfirsýn og lokauppgjö-
rið á verkstæðinu margumrædda
er eitt best gerða og æsilegasta
atriði sem sést hefur í myndum
okkar. Valið á tökustöðum er kór-
rétt, harla ömurleg eyðiströndin
undirstrikar ástand persónanna í
hverri töku, sem og óhijáleg húsa-
kynnin, en sviðsmynd og búningar
Karls Júlíussonar er magnaður
þáttur, að venju. Ekki verður geng-
ið framhjá leiktjöldunum án þess
að getið sé Magnúsar þáttar Kjart-
anssonar, listmálara, hann á ekki
lítirin þátt í að tjá hina beisku sál
Haffa sem hrópar af veggjunum.
Tónlist og upptaka með ágætum.
Ryð er óumdeilanlega ein at-
hyglisverðasta og metnaðarfyllsta
mynd sem gerð hefur verið hér-
lendis á undanförnum árum. Þó
að hún líði fyrir teygðan millikafla
og lengd, þá gustar svo sannarlega
af henni. Hér er það kannski sú
slípaða atvinnumennska sem hvar-
vetna blasir við sem vegur þyngst
á metunum og kemur til góða hin
mikla réynsla framleiðandans og
leikstjórans í alþjóðlegri kvik-
myndagerð. Á kannski fyrst og
fremst erindi til þeirra sem komnir
eru af táningsárunum, þó held ég
að kostir Ryðs höfði engu síður til
unglinganna.
J'-S' S-S-S; S-S; S-S;/■ íy-V; S-í; S-■■■ ■■ ■ J--M * i S;
f ■ >■,>■>■>■!fm>mfm>«>ífSfifí>■>?>?>?>■>?>?/ijíj > >m f f J ■ >■,>í>?f m >■> m f m f m f?/?> ■ f m fm f m f f f f fíf m J> m f m f m f m J f J J f f f ^ ^ f ^ ^ ■ J> ■ f ^.
■ %■• •%■■
/V .......:■.........................'■.....A..........-......................-...............................................-- V'
f* A WWÍMW.
hHÆh .. /Hk fsBmSBg
__ gmH
j&Mmm æiL— iiw mM SSSSliiJf \m \
Æk wk
isœStoSBiS&aKr — ffir ■RHSHB HH rnmS MKBmtaBBS a.
Húsiö opnað kl 18 meö fordrykk.
Veislutríóiö leikur Ijúfa kampavínstónlist.
HátíöarmatseöiW
Humarsúpa í brauðbúri
Reyktur lundi á melónuhjarta
Nautalundir náttfarans
ístilbrigði
VeislustjórU Halldór Einarsson
Rœöumaöur: Ingi Björn Albertsson
Skemmtiatriöi:
Grínarar Spaugstofunnar leggja línurnarfyrir nýja árið.
íslandsmeistararnir frá Nýja dansskólanum sýna samkvœmis-
og suður - amerískumdönsum
Bergþór Pálsson, óperusöngvari, kemur sérstaklega frá
Þýskalandi og syngur fyrir gesti.
Að afloknu borðhaldi og skemmtidagskrá verður
dansað fram á rauða nótt og það verður
hljómsveitin Stjórnin sem leikur.
Borðapantanir alla virka daga ísíma 687111
mi.lli kl. 12.00-19.00.
Miðavérð kr. 5.900, -
Gleðilegt nýtt ár!
HÓTEL LjvLÁND
Tryggiö ykkur miöa tímanlega í síma 687111.
,\V
r*i" ■■^i
■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%•%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■■
■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■%■% - %í% ■% ■% ■%■% ■ % ■% ■ % ■ % - %í%V%V%í%. %V%Í%V%. %í%V%V%V%Í%.%.%.% .%:% .%V%Í%í%í% .%V%i%i%i%V%V%i%V% - %V%V%Í%V%. % .% ■% ■% .%.% ■% ■% ■%. % •% -%■%■%■■