Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
an söng bæði í „addio“-atriðinu
í 1. þætti og í „Caro nome“.
Leikur og söngur Sigríðar E.
Magnúsdóttur í hlutverki
Maddalenu var góður, einkum
er hún bað hertoganum gi’iða.
í minni hlutverkum voru: Jón
Sigurbjörnsson (Monterone),
Þorgeir Andrésson (Borsa), Loft-
ur Erlingsson (Marullo), Ragnar
Davíðsson (Ceprano), Ásrún
Davíðsdóttir, Elísabet Erlings-
dóttir og Þóra Einarsdóttir.
Karlakórinn var sérlega góður,
einkum í 2. þætti, þegar ráninu
á Gildu er lýst fyrir hertoganum.
Garðar Cortes fór með hlutverk
hertogans og söng glæsiaríur
verksins mjög vel en var bestur
í „E il sol dell’anima“ og sömu-
leiðis í „addio“-atriðinu í 1.
þætti. Sparafucile var mjög góð-
ur hjá Guðjóni Óskarssyni og
ásamt Paskalís var hann sterk-
asti karakter sýningarinnar.
Og að óperan mun lifa
_________Tónlist___________
JónÁsgeirsson
Nú hafa stjómvöld tryggt
óperunni starfsgrundvöll, sem
líklega mun endast til nokkurra
ára og þá er aðeins að bíða þess
að Islenska óperan standi sig.
Fyrsta verkefnið við þessar nýju
aðstæður er Rigoletto eftir
Verdi, sem segja má að sé tákn-
rænt, því árið 1951, hundrað
árum eftir að óperan var frum-
flutt í Feneyjum, fumrsýndi
Þjóðleikhúsið þessa sívinsælu
óperu.
Nú, eins og 1951, er aðeins
einn erlendur söngvari í sýningu
íslensku óperunnar á Rigoletto
en það er gríski söngvarinn Kost-
as Paskalis. Frumraun hans á
óperusviði var í hlutverki Rigo-
letto árið 1951 í Aþenu, svo að
saga hans sem söngvara er jafn
löng því sem kalla mætti sögu
og tilvist óperuflutnings á
íslensku leiksviði. Paskalis er
þróttmikill söngvari og ágætur
leikari og gerði hlutverki hirð-
fíflsins góð skil, bæði hvað snert-
ir söng og í hófstilltum leik.
Söngur hans og leikur var bestur
í 2. þætti, er Rigoletto reynir að
telja hirðmennina á að hjálpa sér
og syngur þeim reiðilestur sinn
og sérstaklega er hann sver þess
eið að hefna sín á hertoganum.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söng
Gildu og var í raun stjarna
kvöldsins með sérlega glæsileg-
Sviðsetning var í höndum
Bríetar Héðinsdóttur og var
margt þar ágætlega leyst en
sviðsmynd Unu Collins var ein-
um of samlit til að styðja við
andstætt umhverfi þáttanna, þ.e.
þann mun sem þarf að vera á
björtum sölum hertogans, heim-
ili Rigolettos sem utan dyra er
dimmt og autt en innan hlýtt og
verndandi og svo kránni, þar sem
svallað er og háskinn liggur í
leyni. Þarna kemur til önugt svið
og erfiðleikar í að skipta hrein-
lega um sviðsmynd. Þá var
maskinn á kórnum svolítið ræn-
ingjalegur.
. Hljómsveitin var sérlega góð
undir öruggri stjórn Per Ake
Anderssons en konsertmeistari
var Sigrún Eðvaldsdóttir. Aðrir
sem áttu þátt í þessari ágætu
sýningu voru Jóhann B. Pálma-
son, er sá um lýsingu, Kristín
S. Kristjánsdóttir. er var sýning-
arstjóri, Nanna Ólafsdóttir, er
samdi og æfði dansana í 1. þætti
og Peter Locke sem stjórnaði
kórnum og var æfingastjóri.
Þessi sýning markar tímamót því
nú hafa stjórnvöld játað sig skyld
til að styðja við rekstur óperunn-
ar „og að óperan mun lifa“.
_Til viðskiptamanna_
banka og sparisjóóa
Lokun
2. janúar
og eindagar
w m
Vegna áramótavinnu verða
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar miðvikudaginn
2. janúar 1991.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um jól og áramót
liggjaframmi í afgreiðslum.
Reykjavík, 12. desember 1990.
Samvinnunefnd bankaog sparisjóóa
Presthólahreppur og Qxarfjarðarhreppur sameinast:
Sameining í nýjan Öxarfjarðar-
hrepp samþykkt með 87% atkvæða
Kópaskeri.
ÍBÚAR Presthólahrepps og Oxafjarðarhrepps í Norður-Þingeyjar-
sýslu samþykktu í almennri atkvæðagreiðslu að sameina hreppana
undir nafninu Öxarfjarðarhreppur. Stærsti þéttbýliskjarni hrep-
panna er Kópasker í Presthólahreppi. Sameiningin var samþykkt
með 93,6% atkvæða i Presthólahreppi og 74,2% í Öxafjarðarhreppi.
Atkvæðagreiðslan fór fram
síðastliðinn laugardag. í Presthóla-
hreppi voru 183 á kjörskrá, 127
greiddu atkvæði. Já sögu 117
(93,6%), nei sögu 8 (6,4%), auðir
seðlar og ógildir voru 2. í Öxarfjarð-
arhreppi voru 92 á kjörskrá, 68
greiddu atkvæði. Já sögðu 49
(74,2%), nei sögðu 17 (25,8%) og 2
seðlar voru auðir og ógildir. í báðum
hreppunum greiddu því 166 at-
kvæði með sameiningu, það er
86,9% gildra atkvæða, en 25 vorud
á móti en það er 13,1%.
Ingunn Svavarsdóttir oddviti
Presthólahrepps segir að nú þegar
niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
liggi fyrir ræði gömlu hreppsnefnd-
irnar saman um framkvæmd sam-
einingarinnar. Samkomulag væri
um að hreppsnefndirnar tilnefni
fulltrúa á sameiginlegan lista frá-
farandi hreppsnefnda og síðan
þyrfti að ákveða kjördag. Ingunn
sagði að nýja sveitarfélagið myndi
heita Öxarfjarðarhreppur en nota
byggðamerki Presthólahrepps. Hún
sagði að áhugi væri fyrir því að
sameiningin gilti frá áramótum.
Ingunn sagði að sameiningar-
nefnd hreppanna hefði talið veru-
legan ávinning af sameiningu, ekki
síst með því að Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga myndi jafna skulda-
stöðu hreppanna. Presthólahreppur
hefði orðið að taka allhá lán til að
geiða ábyrgðir sem á hann hafa
fallið vegna gjaldþrota atvinnufyrir-
tækja á undanförnum árum. Þetta
lán myndi Jöfnunarsjóðurinn taka
á sig við sameiningu, auk þess sem
tekjujöfnunar- og þjónustuframlag
sjóðsins myndi aukast um 4 milljón-
ir kr. til hins sameinaða sveitarfé-
lags. Þá hefðu hreppsnefndirnar
óskað eftir stofnframlögum vegna
lagningar hitaveitu að grunnskólum
hreppanna. Hún sagði að bættar
samgöngur væri ein af forsendum
sameiningar og því hefði verið ósk-
að eftir því við samgönguráðuney-
tið að lagt yrði bundið slitlag á þjóð-
veginn frá Skinnastað í Öxarfirði,
í gegn um Presthólahrepp og fyrir
Melrakkasléttu, að Raufarhöfn.
Óskað hefði verið eftir því að ráðist
yrði í þessar framkvæmdir á árun-
um 1992 til 1994.
Upphaflega var rætt um samein-
ingu þriggja hreppa við Öxarfjörð,
Kelduneshreppur yrði með, en íbú-
arnir þar höfnuðu því í almennri
atkvæðagreiðslu að skipa fulltrúa í
sameiningarnefnd.
Marinó