Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 Kasparov verður heims- meistari næstu þijú árin Skák Margeir Pétursson Nú þegar 22 skákir í heimsmeist- araeinvíginu hafa verið tefldar hef- ur Gary Kasparov, heimsmeistari í skák, lokið titilvörn sinni. Hann hefur hlotið tólf vinninga, en áskor- andinn, Anatoly Karpov, tíu vinn- inga. Kasparov hefur því tryggt sér jafntefli í einvíginu og heldur titli sínum næstu þijú árin. Einvígið heldur þó áfram í Lyon í Frakkl- andi þar sem Karpov á ennþá mögu- leika á að ná jöfnu og ef svo fer, verður verðlaununum skipt jafnt. Fyrirhugað er að tefla 23. einvígis- skákina á morgun, laugardag, og hefur Karpov þá hvítt. Það var svo til útséð um mögu- leika Karpovs eftir að honum tókst ekki að nýta möguleika sína í 21. skákinni fyrir jólin til sigurs. Hann frestaði síðan 22. skákinni fram á aðfangadag og þá greip Campoma- nes, forseti FIDE, í taumana og ákvað að ekki yrði teflt þá, vegna jólahátíðarinnar og frestaði henni fram á annan dag jóla. Karpov var greinilega staðráðinn í að selja sig dýrt, þótt hann hefði svart. Hann beitti eina ferðina enn sömu útgáf- unni af eigin afbrigði spánska leiks- ins, þrátt fyrir hrikalegt afhroð í 20. skákinni. Hann hlýtur að hafa tröllatrú á möguleikum svarts í af- brigðinu, því hann hefur þrívegis tapað með því í heimsmeistaraein- vígi gegn Kasparov, en aldrei unn- ið. Flestir aðrir væru líklega búnir að gefa það upp á bátinn. Það eru mikil meðmæli með fræðilegri stöðu Karpov-Zaitsev afbrigðisins að Karpov skuli ennþá reiðubúinn til að tefla það. Þessi skák mun líklega hafa þau áhrif að það fellur ekki úr tízku eins og vænta hefði mátt eftir 20. skákina. Karpov fórnaði fljótlega tveimur peðum fyrir frumkvæðið og náði að þrengja verulega að stöðu heims- meistarans. Kasparov brá á það sfijalla ráð í 30. leik að fórna manni til að losa um stöðu sína. Hann hafði síðan þijú peð fyrir mann og trausta stöðu, sem Karpov gat ekki fundið snöggan blett á. Þegar skák- in var síðan að fara í bið tryggði Kasparov sér jafntefli með þráskák og titilinn var í höfn. Eftir stórbrotið einvígið var þetta því vei'ðugur endir á titilvörn heims- meistarans. 21. einvígisskákin Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3 - 0-0 9. h3 - Bb7 10. d4 - He8 II. Rbd2 Ávarpsorð flutti forseti félagsins, dr. Max Adenauer. Fyrirlesarar voru fjórir: Þórir Einarsson, pró- fesáor við Háskóla íslands, ijallaði um stöðu íslands í efnahagssam- runa Evrópu. Dr. Schunke, prófess- or við Göttingen-háskóla, greindi frá jöklalandslagi á íslandi, dr. H. Uecker, prófessor við háskólann í Bonn, flutti frásögn um séra Pál r'--. Vi'lnr. Dags. 28.12 1990 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4543 3700 0000 2678 4543 3700 0001 5415 4929 541 675 316 4548 9000 0021 2540 4548 9000 0027 9424 Kort frá Kuwait sem byrja á nr.: 4506 13** 4966 66** 4509 02** 4507 13** 4921 04** 4921 90** 4547 26** 4552 41** 4560 31** 4508 70** 4507 77** 4966 82** V} Afgreiöslufolk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ISLAND -K Eftir 11. Rg5 á'svartur ekkert betra en 11. — Hf8 og Karpov hef- ur reyndar einum sjö sinnum á ferli sínum gert stutt jafntefli með þrá- leik í þessari stöðu. Hvort hann hefði sætt sig slíkt í þessari skák veit hann einn, því Kasparov reyndi sem betur fer ekki að halda titlinum á svo lágkúrulegan hátt. 11. - Bf8 12. a4 - h6 13. Bc2 - cxd4 14. cxd4 — Rb4 15. Bbl — c5 16. d5 - Rd7 17. Ha3 Þessa stöðu vann Kasparov tvívegis í einvíginu við Karpov 1986 og einu sinni nú, hina örlaga- ríku 20. skák. 17. - f5 18. exf5 í 20. skákinni lék Kasparov hér 18. Hae3l? og vann glæsilega, en gerir greinilega ráð fyrir að Karpov hafi sett undir þann leka. Nú svar- aði Karpov með 18. — Rf6 í fjórðu skákinni, sem gafst honum nokkuð vel, en samt hristir hann nýjung fram úr erminni: 18. - Bxd5!? 19. Re4 Með tilliti til þess að Kasparov lendir nú í þröngri stöðu og erfítt er að benda á endurbætur á tafl- mennsku næstu leiki má draga þá ályktun að þetta sé ónákvæmni og 19. axb5 sé betra. Svartur virðist ekki eiga neitt annað en 19. — axb5 og eftir 20. Re4! — Bf7 mætti hvítur leika 21. Rxd6! — Hxel 22. Rxel án þess að yfir honum vofi mannstap. 19. - Bf7 20. axb5 20. Rxd6? gekk auðvitað ekki vegna 20. — Hxel+ 21. Rxel — Rf6 og hvítur tapar manni. Nú gæti hann hins vegar svarað 20. — axb5? með 21. Rxd6!, svo Karpov fórnar peði. 20. - d5! 21. Rc3 - Hxel+ 22. Rxel — d4 23. Ra2 — Rxa2 24. Bxa2 - c4! 25. Hxa6 - Rc5! 26. Hxa8 - Dxa8 27. Bbl - d3 28. Be3 - Da5 sjá stöðumynd Nærri allir leikir hvíts frá því Karpov fórnaði peði fyrir frum- kvæðið hafa verið þvingaðir og áskorandinn má vel við útkomuna úr byijuninni una. Svörtu peðin á c4 og d3 eru mjög ógnvekjandi og ef svartur næði að leika 29. — Dxb5 í friði hefði hann mjög sterk tök á stöðunni. Kasparov sér sig tilneyddan að fórna manni til að losa um sig: 29. b3! — Rxb3 30. Rxd3 — cxd3 31. Bxd3 - Rc5 32. Bfl Hvítur hefur þijú peð fyrir mann- inn og mjög trausta stöðu. Þótt möguleikarnir séu svarts megin þá er Kasparov ekki í teljandi tap- hættu. 32. - Dc7 33. Dg4 - Kh7 34. Bc4! — Bxc4 35. Dxc4 — De5 36. Df7 - Bd6 37. g3 - De7 38. Dg6+ Hvítur þyrfti ekki að óttast enda- taflið eftir 38. Dxe7 — Bxe7 39. Kg2, en Kasparov hefur komið auga á fljótvirkari jafnteflisleið. 38. - Kh8 39. Bd4 - Be5 40. Bxc5 — Dxc5 41. De8+ — Kh7 42. Dg6+ - Kh8 43. De8+. Jafn- tefli, þar sem svartur sleppur ekki úr þráskákinni. A Málþing um Island í Köln "ÞÝSK-ÍSLENSKA félagið í Köln hélt árlegt málþing sitt um íslensk málefni, svokallað Island-Kolloquium, 1. desember sl. Var það hið sautjánda í röðinni. Björnsson, fræðimann á 17: öld. Að lokum talaði dr. H. Schwab, prófessor við Kielar-háskóla um ís- lenska nútímatónlist. Fjörugar um- ræður urðu eftir hvert erindi. Mál- þingið sótti á annað hundrað mánns. Stjórnandi þess var Her- mann Höner, fyrrverandi • sendi- kennari á íslandi. K STYTTU ÞER LEIÐ TIL LÍFSGÆÐA! Áttu þér draum um nýtt og betra líf, um tíma til að sinna hugðarefnum þínum, ferðast, stofna eigið fyrirtæki, safna listaverkum eða fágætum bókum...? Ef þú átt miða í Happdrætti Háskóla íslands gætu draumar þínir hæglega orðið að veruleika í einni svipan - og það þarf ekki stærsta vinninginn til. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.