Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
21
Albanskir kommúnistar búa sig undir kosningar:
Yngt upp í forystusveit-
inni og stalínisma hafnað
Tirana. Reuter, Thc Daily Telegraph.
GERÐAR hafa verið breytingar á miðstjórn albanska kommúnista-
flokksins og er litið á þær sem lið í undirbúningi flokksins fyrir
kosningar sem boðaðar hafa verið í febrúarmánuði. Ramiz Alia,
forseti Albaníu, sagði í ræðu er hann flutti á miðvikudag að alban-
skir kommúnistar hefðu hafnað kennisetningum stalínismans en lagði
jafnframt áherslu á að flokkurinn myndi hér eftir sem hingað til
grundvalla stefnu sína á kenningum Karls Marx.
Albanska ríkisútvarpið skýrði frá
því að fimm yngri menn hefðu tek-
ið sæti í miðstjórn albanska komm-
únistaflokksins auk þess sem níu
menn aðrir hefðu verið teknir inn
í stjórnina þó svo þeir hefðu ekki
atkvæðisrétt þar. Ramiz Alia hafði
í ræðu er hann flutti á miðvikudag
hvatt til þess að yngt yrði upp í
forustusveit flokksins til að alban-
skir kommúnistar gætu lagað sig
að breyttum aðstæðum í landinu.
Forsetinn staðfesti að ákveðið hefði
verið að hafna stalínískum stjórnar-
háttum sem kommúnistar í Albaníu
hafa fylgt í fjóra áratugi en lýsti
jafnframt yfir því að kenningar
Karls Marx væru enn í fullu gildi.
Þykir sýnt af þessu að albanskir
kommúnistar hyggist ekki fylgja
fordæmi skoðanabræðra sinna í
Austur-Evrópu, sem hafa, a.m.k.
að nafninu til, hafnað marxískum
fræðum og kenna sig nú flestir
hveijir við lýðræðislegan sósíal-
isma. Alia varði hins vegar minn-
ingu Envers Hoxha, forvera síns,
sem lést árið 1985. Hoxha var læri-
sveinn Jósefs.Stalíns og var öðrum
fremur ábyrgur fyrir þeirri algjöru
einangrun sem Albanir bjuggu við
allt þar til í byijun desember er
stjórnvöld slökuðu á klónni eftir
fjölmenn mótmæli stjórnarand-
stæðinga.
Kosningar hafa verið boðaðar í
Albaníu 10. febrúar og verður það
í fyrsta skipti í 46 ár sem andstæð-
ingum kommúnista verður leyft að
bjóða fram. Fyrr í þessari viku hafn-
aði þing Albaníu kröfu stjórnarand-
stöðunnar um að kosningunum yrði
frestað fram í maí en talsmenn
Lýðræðisflokksins, sem stjórnar-
andstæðingar stofnuðu þann 12.
þessa mánaðar, höfðu sagt að ella
gæfist ekki tíini til nauðsynlegs
undirbúnings. Í gær kröfðust leið-
togar flokksins þess að efnt yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um kosn-
ingadaginn og ítrekuðu fyrri full-
yrðingar þess efnis að yfirvöld
gerðu allt hvað þau gætu til að
spilla fyrir stjórnarandstöðunni og
hefta skipulagningu flokksins. Lýð-
ræðisflokknum hefur enn ekki tek-
ist að koma sér upp málgagni þar
sem stjórnvöld hafa þráast við að
gefa leyfi fyrir því að blaðið verði
prentað í prentsmiðju ríkisins. Þá
hefur flokkurinn aðeins fengið af-
not af einni bifreið, einni ritvél og
einu telex-tæki. Talsmenn flokksins
telja litlar líkur á því að sigurinn
verði þeirra í kosningunum og segja
tilganginn með framboðinu einkum
þann að mynda stjórnarandstöðu á
þingi.
Reuter
Kasparov heldur titlinum
Garrí Kasparov, heimsmeistari í skák, náði 12 vinninga markinu
eftir að jafntefli varð í 22. skák þeirra Anatólíjs Karpovs eftir 43
leiki á miðvikudaginn. Kasparov heldur því heimsmeistaratitilinum
næstu þtjú árin. Kasparov hefur nú tveggja vinninga forskot á
áskorandann í 24 skáka einvígi þeirra, 12 — 10. Einvígið heldur
þó áfram. Fái hann hálfan vinning til viðbótar fær hann bróðurpart-
inn af verðlaunafénu, eða 1,7 milljónir af alls þremur milljónum
dollara (um 168 millj. ísl. kr.). A myndinni sjást Kasparov og
Karpov spjalla saman eftir jafnteflisskákina á miðvikudag.
Sjá ennfremur skáksskýringu á bls. 16.
Meö sparnaöi á METBÓK og GULLBÓK
Búnaðarbankans leggur þú grunninn aö
fjárhagslegu öryggi í framtíöinni.
METBÓK og GULLBÓK eru verötryggöir
sparireikningar sem sameina hámarks öryggi
og ávöxtun sparifjárins. Auk þess eru þeir
einfaldir og þægilegir í notkun.
Þessu eru þeir sparifjáreigendur sammála
sem ávaxta 16 milljarða króna á 50.207
Metbókum og Gullbókum í Búnaöarbankanum.
BIJNAÐARBANKI
ÍSLANDS
...bankinn minn
...þetta er fjölskyldan í dag
...og þetta er bankabókin okkar!
Franskir komm-
únistar:
Marchais
endurkjör-
inn leiðtogi
París. Reuter.
GEORGES Marchais var endur-
kjörinn formaður franska komm-
únistaflokksins á lokadegi
flokksþings sem lauk laugardag-
inn fyrir jól, en hann hefur gegnt
þessum starfa fra 1972.
Á þinginu voru ekki teknar til
greina óskir „andófsmanna“ um
breytingar á stefnu flokksins í ljósi
lýðræðisþróunarinnar í Evrópu
síðustu misseri; að horfið verði frá
kröfunni um alræði öreigannna sem
enn er hornsteinn flokkstefnunnar
og laga flokksins.
Marchais hefur markvisst unnið
að því að koma umbótasinnuðum
mönnum úr áhrifastöðum innan
flokksins en á flokksþinginu studdi
hann kjör tveggja slíkra, Charles
Eitermans og Guys Hermiers, í 10
manna stjórnmálaráð flokksins í
þeirri von að koma í veg fyrir frek-
ara brotthvarf félaga úr flokknum..
Franski kommúnistaflokkurinn
var stærsti flokkur landsins á árun-
um eftir stríð og naut þá stuðnings
rúmlega íjórðungs kjósenda. Und-
anfarin ár hefur fylgi hrunið af
flokknum og er nú komið í 7% á
landsvísu.
Grænfriðung-ar:
Hrefnuveið-
artafðar
Wellington. Reuter.
Grænfriðungár sögðust hafa
hindrað hrefnuveiðar Japana í
Suðurhafi um jólaleytið, að sögn
talsmanns Greenpeace.
Á Þorláksmessu sigldu grænfrið-
ungar hraðbátum sínum í veg fyrir
japanska hvalbáta og komu í veg
fyrir veiðar þeirra. Skip grænfrið-
unga, Goodwana, hefur fylgt fjór-
um japönskum skipuni sem verið
hafa við hrefnuveiðar undan Suður-
skautslandinu, frá því í byijun des-
ember.