Morgunblaðið - 28.12.1990, Síða 23
22
82
oeor aaaMaaaa .82 HuoAauTgöa
MORGUNBL-AÐIÐ FÖSTUÐAGUR-28. f>ES'
A.SOHOM_
Bretland:
Rushdie semur við
múslimaleiðtoga
St. Andrews. Frá Guðmundi Heidari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaösins.
Rithöfundurinn Salman Rushdie náði samkomulagi við nokkra
leiðtoga breskra múhameðstrúarmanna á fundi, sem þeir áttu á
aðfangadag jóla. Iranskir klerkar hafa neitað að afnema dauða-
dóm Ayatolla Khomeinis heitins erkiklerks yfir Rushdie.
Rushdie átti fund með Hesham
el-Essawy, formanni félags mú-
hameðstrúarmanna sem vilja efla
umburðarlyndi í trúmálum, og
öðrum frammámönnum meðal
breskra múhameðstrúarmanna á
aðfangadag jóla í Lundúnum.
Einnig sat Muhammad Ali Mahgo-
ub, trúmálaráðherra Egyptalands,
fundinn. Á fundinum samþykktu
þeir yfirlýsingu, sem Rushdie gaf
út.
í yfiríýsingunni segir Rushdie,
að'enginn Guð sé annar en Allah
og að Múhameð hafi verið spámað-
ur hans. Hann sagði einnig: „Ég
lýsi því yfir, að ég er ekki sam-
mála neinni staðhæfingu neinnar
persónu í skáldsögu minni Söngv-
ar Satans, sem er móðgun við
Múhameð spámann eða vanvirðir
múhameðstrú eða dregur í efa
sannleika Kóransins eða hafnar
guðdómi Allah.
Ég skuldbind mig til að g^fa
Söhgva Satans ekki út í pappírs-
kilju og mun ekki heimila frekari
þýðingar á önnur tungumál, á
meðan enn er haetta á að bókin
særi trúartilfinningu manna. Ég
held áfram að stuðla að betri skiln-
ingi á múhameðstrú í veröldinni,
eins og ég hef gert áður.“
Rushdie sagði á aðfangadag,
að nú væru betri horfur á að leysa
þetta mál en nokkru sinni sl. tvö
ár.
El-Essawy sendi Ali Khamenei,
núverandi erkiklerk í Iran, skeyti
eftir fundinn og fór fram á, að
dauðadómi Khomeinis yrði aflétt.
íranski erkiklerkurinn hafnaði
beiðninni; sá dómur stæði, þótt
Rushdie yrði hinn trúaðasti maður.
El-Essawy segir Khamenei sek-
an um guðlast með því að segja
dauðadóminn standa um aldur og
ævi. Rushdie hafi nú tekið múha-
meðstrú og samkvæmt Sharia,
lögum múhameðstrúarinnar, þurr-
kist allar fyrri syndir manna út
við það. Lög múhameðstrúar hafi
ekki náð til Rushdies fyrr en nú,
er hann taki trú. Hann segir það
gegn orðum Kóransins og umburð-
arlyndi múhameðstrúar að hafna
iðrun manns.
Leiðtogar öfgasinnaðra breskra
múhameðstrúarmanna hafa hafn-
að yfirlýsingu Rushdies. Sumir
þeirra segja samkomulagið vera
skref í rétta átt en vilja að Rushd-
ie dragi bókina af markaði. Aðrir
segja að ekkert þurfi að ræða við
höfundinn og vilja að dauðadómin-
um verði fullnægt.
Nokkrir stuðningsmenn höfund-
arins draga í efa, að túlka megi
orð hans svo, að hann hafi tekið
múhameðstrú.
Húsin hrundu eins ogspilaborg
Reuter
Hvirfilbylur gekk yfir hluta Ástralíu í fyrradag og
hrundu mörg hús sem urðu í vegi hans eins og spila-
borg. Til að mynda var lítið eftir af einbýlishúsi
hjónanna Diane Shaw og Darrens Toy í bænum
Mackey en það er svo til ónýtt. Á myndinni standa
þau þar sem áður var svefnherbergið.
Fulltrúaþingið í Moskvu samþykkir stjórnarskrárbreytingar:
Gorbatsjov valdamesti Sovét-
leiðtogi frá stofnun ríkisins
Moskvu, Reuter. Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna
samþykkti á miðvikudag aukin
völd til handa Míkhaíl S. Gor-
batsjov forseta og ’r hann nú
valdameiri en nokkui annar Sov-
étleiðtogi frá stofnui. ríkisins.
Með viðbótum sem samþykktar
voru við gildandi stjórnarskrá
heyra í reynd öll mikilvæg verk-
efni á sviði stjórn- og efnahags-
mála og sjálf ríkisstjórnin beint
undir forsetann. Til að selja for-
setanum einhverjar skorður verð-
ur komið á laggimar nýju sam-'
bandsráði þar sem sitja eiga full-
trúar lýðveldanna 15 og sérstöku
öryggisráði, skipuðu frammá-
mönnum á sviði landvarna og frá
ráðuneytum utanríkis- og inn-
anríkismála auk yfirstjórnar ör-
yggislögreglunnar, KGB. Borís
Jeltsin, forseti Rússlands, lýsti
andstöðu við aukin völd Gor-
batsjovs.
„Það er þegar búið að hlaða nógu
miklum völdum á einn mann - jafn-
vel of miklum,“ sagði Jeltsín við
blaðamenn á jóladag er tillögurnar
voru til umræðu. Hann sagði ljóst
að barist yrði gegn öllum tilraunum
Moskvuvaldsins til að traðka á full-
veldi Rússlands. Aðrir hafa gagnrýnt
nýja valdakerfið á þeim forsendum
að til árekstra hljóti að koma milli
•forsetans og nýja sambandsráðsins
þótt Gorbatsjov eigi að gegna for-
mennsku í því jafnt sem öryggisráð-
inu nýja. Afleiðingin verði sem fyrr
Húsnæðissparnaðar-
reikningur
Samkvæmt ákvæðum 3. málsl. 7. gr. laga nr.
49/1985 um húsnæðissparnaðarreikninga
hefur ríkisskattstjóri reiknað út þærfjárhæðir
sem um ræðir í 2. mgr. 2. gr. laganna og
gilda vegna innborgana á árinu 1991:
Lágmarksfjárhæð skv. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr.
laganna verður kr. 39.795 og hámarksfjár-
hæð kr. 397.950. Lágmarksfjárhæð skv. 3.
málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna verður kr. 9.949
og hámarksfjárhæð kr. 99.490.
Reykjavík, 20. desember 1990
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
pattstaða þar sem enginn hafi úr-
slitavaldið.
Fulltrúaþingið samþykkti á að-
fangadag tillögu Gorbatsjovs um að
efna til þjóðaratkvæðis þar sem lýst
yrði stuðningi eða andstöðu við
áframhaldandi einingu sambands-
ríkisins. Einnig yrðu greidd atkvæði
um það hvort leyfa skyldi einkaeign
á jarðnæði en Gorbatsjov hefur sagt
slíkar hugmyndir „smáborgaralegar.
Tillögnrnar um þjóðaratkvæði voru
báðar samþykktar með þorra
greiddra atkvæða þingmanna.
Ótti í Eystrasaltslöndunum
Yfirmaður sovéska flotans á
Eystrasalti, Vítalíj ívanov flotafor-
ingi, sagði í ræðu á fulltrúaþinginu
á miðvikudag að ýfingar mili herfor-
ingja og embættismanna í Eystra-
saltsríkjunum væru orðnar slíkar að
soðið gæti upp úr hvenær sem væri.
Hann sagði að kastað væri bensín-
sprengjum að hermönnum og skotið
á þá. „Öfgasinnarnir reyna að skapa
aðstæður sem gera hermönnum
nauðsynlegt að veija fjölskyldur
sínar og börn með vopnum,“ sagði
hann. Sams konar ásakanir voru
bornar fram áður en Sovétmenn
hófu að stórauka setulið sitt í lönd-
unum árið 1939 en þeir atburðir
reyndust undanfari innlimunar
Eystrasaltsríkjanna í Sovétríkin
1940. Litháískur þingmaður sagði
að umræðurnar um Eystrasalts-
löndin og átök þar væru hluti barátt-
unnar fyrir því að auka völd Gor-
batsjovs, ættu að sanna nauðsyn
aukinna forsetavalda.
Béngt Gustafsson hershöfðingi,
yfirmaður sænska heraflans, segir
að ýmsar upplýsingar bendi til þess
að Sovétherinn búi sig undir að taka
völdin í Eystrasaltslöndunum.
Sænska leyniþjónustan telur að Gor-
batsjov ætli að setja neyðarlög í
Sovétríkjunum til að geta notað her-
inn gegn sjálfstæðishreyfingum.
Ryzhkov sagður vera
alvarlega hjartveikur
Moskvu. Reuter.
NÍKOLAJ Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, fékk hjartaáfall
á þriðjudagskvöld og er nú á sjúkrahúsi í Moskvu. Míkhaíl S. Gor-
batsjov Sovétleiðtogi sagði í gær að veikindi forsætisráðherrans væru
alvarleg en læknar teldu líðan hans eftir atvikum góða. Óstaðfestar
fréttir herma að Ryzhkov hafi veikst snögglega eftir að hafa deilt
hart við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, á fundi í Moskvu þar sem
saman voru komnir leiðtogar lýðvelda Sovétfíkjanna til að ræða fjár-
lög næsta árs.
Gorbatsjov greindi frá veikindum
forsætisráðherrans á fundi fulltrúa-
þings Sovétríkjanna á miðvikudag
og sagði þá að Ryzhkov væri ekki
talinn í lífshættu. Fréttir í gær
hermdu að Jeltsín og Ryzhkov hefði
lent saman á fundi í Moskvu á þriðju-
dag en þær fengust ekki staðfestar.
Gennadíj Janajev, sem í gær var
kjörinn varaforseti Sovétríkjanna,
sagði á miðvikudag að Ryzhkov
hefði verið undir miklu „andlegu
álagi" að undanförnu og gaf þar
með til kynna að veikindi forsætis-
ráðherrans, sem er 61 árs að aldri,
tengdust kröfum um afsögn hans.
Gorbatsjov skýrði frá því á þingi
í gær að Ryzhkov væri alvarlega
veikur en bætti við að honum hefði
ekki hrakað. Fyrr um daginn hafði
talsmaður Sovptleiðtogans hins veg-
„ ar sagt í viðtali við Moskvu-útvarpið
að veikindi forsætisráðherrans væru
mikið áhyggjuefni þar sem þau
hefðu ágerst.
Ryzhkov tók við embætti forsæt-
isráðherra árið 1985 og var þá talinn
í hópi dyggustu stuðningsmanna
Gorbatsjovs en nokkuð hagfæra þó.
Að undanförnu hefur hann hins veg-
ar tekið undir sjónarmið þeirra sem
andmælt háfa örum breytingum þar
eystra og þykir hafa færst nær
harðlínukommúnistum og ráða-
mönnum innan hersins. Umbóta-
sinnar með Borís Jeltsín í broddi
fylkingar hafa sótt hart að Ryzhkov
á undanförnum mánuðum og sagt
hann standa í vegi efnahagsumbóta
í Sovétríkjunum. Sjálfur hefur
Jeltsín margoft krafist þess að for-
sætisráðherrann fari frá og lýst yfir
því að hann muni enga þá ríkisstjórn
styðja sem Ryzhkov situr í.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
23
Thorbjöm Egiier látínn í Noregi
Höfundur barnaleikritsins um
fólk og ræningja í Kard-
imommubæ, Norðmaðurinn
Thorbjörn Egner, lést á jóladag,
78 ára að aldri. Frásagnir hans
af þeim kumpánum, Karíusi og
Baktusi, er hann samdi 1949,
Lilla klifurmús og ræningjunum
Kasper, Jesper og Jónatan urðu
þekktar og vinsælar um allan
lieim.
Verk Thorbjörns Egners hafa
verið þýdd á 24 tungumál, að sögn
Aftenposten. Höfundurinn hlaut
menntun í myndhöggvaralist fyrir
stríð og vann um hríð við að teikna
■ CARACAS. Herinn í Surinam
rændi völdum á aðfangadagskvöld
án þess að til átaka kæmi. Herinn
tók einnig völdin árið 1980 og var
landið undir stjórn yfirmanns hers-
ins, Desi Bouterse, fram til ársins
1987 er lýðræðisleg stjórn undir
forsæti Ramsewaks Shankars tók
við. Bouterse sagði af sér yfir-
mannsstöðu hersins á aðfangadags-
morgun og við tók Ivan Graano-
ogst en almennt er þó talið að
Bouterse standi á bak við valdarán-
ið. Búist var við afsögn Shankars
í gær. Graanoogst hefur sagt að
bráðabirgðastjórn verði mynduð og
efnt til leynilegra og fijálsra kosn-
inga innan 100 daga. Állt var með
Thorbjörn Egner.
kyrrum kjörum í höfuðborg Surin-
am, Paramaribo, í gær. Surinam
er á norðausturhorni S-Ameríku og
þar búa 410.000 manns.
■ SEOUL. Forseti Suður-Kóreu,
Roh Tae-woo gerði meiriháttar
breytingar á ríkisstjórn sinni í gær
og tilnefndi m.a. nýjan forsætisráð-
herra, Ro Jai-hong. Með aðgerðun-
um var hann að bregðast við minnk-
andi vinsældum og trú almennings
á sér. Stjórnarandstaðan og um 10
fráfarandi ráðherrar brugðust
harkalega við breytingunum og
mótmæltu þeim kröftuglega. Þeir
sögðu að nýju ráðherrarnir væru
harðlínumenn sem myndu hægja
á öllum framförum í lýðræðisátt og
auglýsingar. Hann ritaði tvær
bækur um gömul hús í Þelamörk
á stríðsárunum og myndskreytti
þær sjálfur. Heimsfrægð hlaut
hann á sjötta áratugnum fyrir
Kardimmommubæinn sem sýndur
hefur verið í Þjóðleikhúsinu.
Egner fylgdist vandlega með
uppfærslum og þýðirigum á verk-
um sínum og reyndi að gæta þess
að allt kæmist til skila. Honum
þótti takast einstaklega vel að
skrifa um heldur illa þokkuð fyrir-
bæri með svo hlýlegum og gaman-
sömum hætti að þau nutu nok-
kurrar samúðar og skilnings.
herða mjög afstöðuna gagnvart
Norður-Kóreumönnum.
■ BEIRÚT. Tvær stærstu fylk-
ingar kristinna manna í Líbanon
hafa hafnað þátttöku í 30 manna
sameiningarstjórn Omars Karamis
forsætisráðherra, sem nýtur stuðn-
ings Sýrlendinga, að sögn háttsetts
embættismanns innan Falangista-
flokksins í gær. Alfred Madi sagði
að Falangistaflokkurinn og önnur
hreyfing, Líbönsku sveitirnar,
myndu ekki ganga til liðs við ríkis-
stjórnina. Nýrri stjórn Karamis var
ætlað að binda endi á borgarastríð
sem geisað hefur í Líbanon í 15 ár
milli kristinna manna og múha-
meðstrúarmanna.
Reuter
Fyrrverandi
konungi
vísað úr
landi
Mikjáli, fyrrverandi Rúm-
eníukonungi, var vísað úr
landi snemma á miðviku-
dagsmorgun, aðeins
nokkrum klukkustundum
eftir að hann kom til hei-
malands síns í fyrsta sinn
í 43 ár. Mikjáll var sakaður
um að vera að reyna að
stofna til vandræða með
komu sinni. Stjórnarand-
stöðuflokkar í Rúmeníu
gáfu út yfirlýsingu í gær
þar sem brottvísunin var
harðlega gagnrýnd. Kon-
ungurinn fyrrverandi kom
til landsins á einkaþotu á
jóladagskvöld. Hann var í
fylgd konu sinnár, einnar
fimm dætra og fjögurra
vina. Rúmum 100 km fyrir
utan Búkarest var hópur-
inn stöðvaður af lögreglu
og var Mikjáli fylgt til her-
flugvélar sem flaug með
hann til Genfar í Sviss, þar
sem hann hefur búið í út-
legð síðan 1947.
■■
; s.a|...
Markviss leið
lækka skattana þína
SÍÐUSTU FORVÖÐ Á ÞESSU ÁRI!
íslenski hiutabréfasjóöurinn er hlutafélag sem
fjárfestir í verðbréfum, einkum hlutabréfum,
margra arðbærra og vel rekinna íslenskra fyrir-
tækja. Með því að f járfesta í hlutabréfum félags-
ins gefst þér kostur á að eignast hlutabréf með
dreifðri áhættu og von um góða ávöxtun.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. nýtur viðurkenn-
ingar ríkisskattstjóra þannig að kaup einstaklinga í
félaginu eru að vissu hámarki frádráttarbær frá
skattskyldum tekjum.
Dæmi:
Þú kaupir hlutabréf í íslenska hlutabréfasjóðn-
um hf. fyrir 115.000.- krónur. Skattfrádráttur
vegna kaupanna nemur kr. 45.758.-* en þá upp-
hæð færð þú endurgreidda frá skattinum.
Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir tvöfalt hærri
upphæð fá að sama skapi tvöfalt hærri upphæð
endurgreidda frá skattinum.
* Miðað er við 39.79% skatthlutfall.
Kynntu þér kosti þess að fjárfésta í hlutabréfum fé-
lagsins með ráðgjöfum Landsbréfa hf.
Upplýsingar vegna hlutafjárútboösins liggja
frammi hjá Landsbréfum hf. og í útibúum Lands-
banka íslands, þ.m.t. Samvinnubankanum, um
land allt.
LANDSBREF H.F.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 91-606080
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili að Verðbréfaþingi íslands.