Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Harðstjórn í
þágn nýlenduveldis
Framkvæmdir í Smárahvammslandi í Kópavogi:
Nýtt samkomulag Kópavogs-
bæjar og Fijáls framtaks
Réttir verulega hlut bæjarins, segir formaður bæjarráðs
NÝTT samkomulag hefur tekist milli bæjaryfirvalda í Kópavogi ann-
ars vegar og Fijáls framtaks hins vegar um framkvæmdir og kostnaðar-
skiptingu vegna þeirra í Smárahvammslandi í Kópavogsdal, en þegar
nýr bæjarstjórnarmeirihluti tók við í Kópavogi að loknum kosningum
síðastliðið vor taldi hann samninga fyrri meirihluta við Frjálst framtak
óhagstæða bæjarfélaginu og vanhöld á efndum af hálfu Frjáls fram-
taks. Ráðgjafarnefnd var skípuð til viðræðna við Frjálst framtak og
náði hún fýrir skömmu samkomulagi sem báðir aðilar hafa staðfest.
Meðal þess sem samkomulag er um, er að Kópavogsbær getur boðið
fjölbýlis- og raðhúsalóðir í Smárahvammslandi strax eftir næstu ára-
mót. „Eftir þessa samninga hefur gróið um heilt á milli aðila og er
samkomulag viðunandi," sagði Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs
Kópavogs, í samtali við Morgunblaðið.
Orð Actons lávarðar hafa oft
verið notuð, þegar nauð-
synlegt er að lýsa áhyggjum
vegna valdabrölts eða andstöðu
við það. Hann komst þannig að
orði: Vald spillir, alræðisvald
spillir algjörlega.
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, hefur enn verið
að auka völd sín um hátíðirnar.
Hann hefur í hótunum við full-
trúaþingið sem nú situr á fund-
um í Kreml. Síðast í gær gaf
hann til kynna að sovéska for-
ystusveitin myndi segja af sér,
ef þingið kysi ekki Gennadij
Janajev varaforseta Sovétríkj-
anna. Með þeim hætti knúði
Gorbatsjov fram vilja sinn á
þinginu. Hann lét einfaldlega
endurtaka atkvæðagreiðslu
undir þessari hótun, af því að
hann vildi ekki sætta sig við að
meirihluti þingheims hafnaði
Janajev, eina frambjóðandunum
í embættið. Þessi nýi skjólstæð-
ingur Gorbatsjovs segist vera
kommúnisti fram í fingurgóma.
Harðlínumennimir eru að færa
sig upp á skaftið í skjóli Gorb-
atsjovs.
Á þeim tæpu sex árum sem
liðin eru síðan Mikhaíl Gorb-
atsjov komst til æðstu valda í
Sovétríkjunum hafa miklar von-
ir verið bundnar við störf hans.
Breytingarnar hafa einnig orðið
ótrúlegar á mörgum sviðum.
Sovéska heimsveldið hefur tekið
að gliðna og íbúar fylgiríkjanna
í Mið- og Austur-Evrópu geta
nú um frjálst höfuð strokið eft-
ir rúmlega 40 ára kúgun.
Innan Sovétríkjanna hefur sú
breyting orðið, að nú er ekki
lengur rætt um hvort veita eigi
einstökum lýðveldum ríkisins
aukin völd heldur hvert eigi að
vera valdsvið þeirra gagnvart
miðstjórninni í Moskvu. Þar
deila þeir helst Gorbatsjov og
Boris Jeltsín, forseti lýðveldisins
Rússlands. Það er ekki heldur
lengur rætt um hvort eigi að
falla frá miðstýrðum áætlunar-
búskap í efnahagsmálum heldur
hve hratt eigi að afnema sós-
íalíska stjórnarhætti. Um þetta
hefur þá greint Gorbatsjov og
Nikolaj' Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, sem nú
liggur þungt haldinn eftir
hjartaáfall.
Á fulltrúaþinginu, sem nú er
haldið í Moskvu, hefur Gorb-
atsjov ekki aðeins beitt þvingun-
um ti! að fá harðlínumann kjör-
inn varaforseta. Hann hefur
fengið samþykkt forystuhlut-
verk sitt í lýðveldaráði Sov-
étríkjanna, þar sem ætlunin er
að forystumenn einstakra lýð-
velda og miðstjórnarinnar í
Moskvu ráði ráðum ' sínum.
Gorbatsjov hefur fengið sam-
þykkt, að ríkisstjórn Sovétríkj-
anna verði valin af honum. I
þriðja lagi hefur hann undirtök-
in í nýju öryggisráði ríkisins,
þar sem hann stjórnar störfum
fulltrúa hers og öryggislögregl-
unnar KGB. Boris Jeltsín segir,
að Gorbatsjov hafí nú fengið
meiri völd en einræðisherrann
Jósep Stalín hafði á sínum tíma.
Gorbatsjov hefur meðal ann-
ars rökstutt nauðsyn hinna
miklu valda fýrir sig með því
að vísa til „myrkraafla“ í
landinu, sem óhjákvæmilegt sé
að halda í skefjum. Óljóst er
hvort forsetinn á hér við al-
mennan glæpalýð eða fólkið og
forystumennina í einstökum
lýðveldum, sem vilja ekki sætta
sig við fyrirmæli frá Moskvu.
Hvað sem því líður blasir við
öllum, sem það vilja sjá, að vald-
aklíkan í Kreml með Gorbatsjov
í fylkingarbrjósti sættir sig ekki
við sjálfstæði einstakra sov-
éskra lýðvelda. Kremlverjar eru
enn í sporum nýlenduherra sem
mega ekki til þess hugsa að
láta þumlungs lands af hendi
til þjóðanna sem löndin byggja.
Efnahags- og atvinnustarf-
semin hefur hrunið í Sovétríkj-
unum í valdatíð Gorbatsjovs.
íbúar stórborga eins og Moskvu
og Leníngrad búa við verri kjör
en áður og hungur veldur mörg-
um angist. Hvorki Gorbatsjov
né aðrir forystumenn Sovétríkj-
anna hafa framkvæmt nokkuð
til úrlausnar á þessum vanda.
Þeir eiga nú fullt í fangi með
að halda Sovétríkjunum saman.
Ótti íbúa Eystrasaltslandanna
við valdbeitingu gegn sjálfstæð-
iskröfum þeirra sýnir, að völdin
sem Gorbatsjov hefur sankað
að sér eru líklega forsenda þess
að hervaldi verði beitt í þágu
Kremlveija í Iýðveldunum.
Kommúnismi og kommún-
istaflokkurinn er ekki lengur
bakhjarl Kremlveija. Þeir geta
ekki treyst á flokkinn eða
flokksmenn til að reka erindi
fyrir sig í einstökum lýðveldum
eða til að halda uppi aga meðal
almennings. Þeir vilja ekki held-
ur leyfa fólkinu að ráða í al-
mennum kosningum í fjöl-
flokkakerfi. Þá er aðeins vald í
skjóli hers og lögreglu eftir. í
krafti þessa valds situr Gorb-
atsjov enn á forsetastóli og það
er farið að hlakka í harðlínu-
mönnunum.
Gunnar sagði að meðal þess sem
meirihlutinn hafi deilt á sé hvernig
staðið var að samningunum við
Fijálst framtak. „í þeim samningum
fyrir bæinn stóðu menn sem höfðu
hvorki reynslu né þekkingu til þess
arna og eru slík vinnubrögð með
öllu óverjandi. Erlendis, ef menn
hefðu gert slíkar „bommertur", yrði
stjórnmálaferill þeirra ekki lengri,"
sagði hann.
Gunnar sagði síðan hafa komið í
ljós að ekki væri allt með felldu í
samningum Kópavogsbæjar við
Fijálst framtak hf., eins og á hefði
verið bent af fulltrúum núverandi
meirihluta bæjarstjórnar fyrir kosn-
ingar. „Eftir kosningar þótti okkur
lítið gerast þarna niðri í dal. Þegar
málið var kannað kom í ljós að við
samningagerðina höfðu embættis-
Með lögum um fjarskipti frá 1984
var einkaréttur ríkisins til innflutn-
ings og verslunar með notendabúnað
vegna fjarskipta afnuminn, en sam-
kvæmt lögunum er Póst og símamál-
astofnuninni falið eftirlitshlutverk
menn bæjarins, eins og bæjarlög-
fræðingur og bæjarverkfræðingur,
verið lítið með í ráðum og vissu
harla lítið um málið. Oddvitar fyrri
meirihluta og þáverandi bæjarstjóri
voru mennirnir sem töldu sig færa
um að semja við fulltrúa Fijáls fram-
taks, þrátt fyrir algjöran skort á
sérþekkingu og reynslu í slíkri samn-
ingagerð eins og niðurstöðurnar
sýndu. Oftrú þeirra á eigin hæfileik-
um var því með eindæmum og sýnir
það því mikinn skort á dómgreind
þessara manna,“ sagði Gunnar.
Lækkuðu verðið
Gunnar segir margt ámælisvert
hafa komið í ljós þegar kafað var
ofan í málið með embættismönnum
bæjarins. „Í fyrsta lagi að þegar
bærinn keypti landið og gekk inn í
með vamingi keppinauta og jafn-
framt verslunarstarfsemi á sama
sviði. Telur umboðsmaður Alþingis
ástæða sé til að endurskoða þessa
skipan með hliðsjón af þeim viðhorf-
um, sem fram koma í lögum um
tilboð SÍS til landeigenda seldu þeir
Fijálsu framtaki stærra land heldur
en þeir höfðu keypt, fyrir sama verð,
það er að segja lækkuðu verðið til
Frjáls framtaks um verulega upp-
hæð.
í öðru lagi var norðurhluta svæð-
isins breytt úr iðnaðarsvæði í íbúðar-
byggð. Við það breytast gatnagerð-
argjöld og hækka verulega, í þessu
tilviki um nálægt 90 milljónir. Þrátt
fyrir það var samningunum við
Fijálst framtak í engu breytt, utan
að þeir voru látnir leggja hluta af
götum sem lækkar þessa upphæð
eitthvað.
I þriðja lagi vantaði nægileg veð
fyrir skuldum Fijáls framtaks við
bæinn sem nema 20 til 25 milljónum
króna.
I íjórða lagi var gert leynisam-
komulag við Fijálst framtak án þess
það væri nokkurs staðar borið upp,
í bæjarstjórn eða bæjarráði, um að
allar framkvæmdir á vegum bæjar-
ins í Kópavogsdal skyldu fram-
kvæmdar af Fijálsu framtaki. Þetta
var búið sem við tókum við af fyrri
meirihluta," sagði Gunnar.
Eftir að þetta kom í ljós, sagði
Gunnar að skipuð hafi verið ráðgjaf-
arnefnd fyrir bæjarráð sem skyldi
kanna málið varðandi allt svæðið í
Kópavogsdal, einnig það sem ekki
kom Frjálsu framtaki við. Sú nefnd
verðlag, samkeppnishömlur og órétt-
mæta viðskiptahætti. í áliti hans
kemur fram að viðurkennt sé af
hálfu Póst- og símamálastofnunar-
innar og samgönguráðuneytisins að
núverandi skipan mála sé óæskileg,
og þessir aðilar telji sjálfir að eftir-
lit með innflutningi væri betur kom-
ið í höndum óháðrar prófunarstofn-
unar.
byijaði á samningunum við Fijálst
framtak. Nefndina skipa, auk bæjar-
verkfræðings, Halldór Jónsson og
Björn Ólafsson verkfræðingur.
Hlutur bæjarins réttur
„Þeir byijuðu á því að ganga til
viðræðna við Fijálst framtak þar
sem samband bæjaryfirvalda og fyr-
irtækisins var stirt á þeim tíma,“
sagði Gunnar. „Niðurstöður nefnd-
arinnar voru þær að Fijálst framtak
hefði staðið í skilum við bæjarfélag-
ið í einu og öllu og framkvæmda-
áætlanir þeirra staðist, en engar
byggingar höfðu risið. í samningun-
um við Fijálst framtak var reyndar
ekkert ákvæði um tímasetningar
byggingaframkvæmda, aðeins sagt
að stefnt skyldi að því að byggingum
verði lokið 1995. Nefndin lagði síðan
fyrir bæjarráð, eftir langar samn-
ingaviðræður, samkomulag við
Fijálst framtak sem réttir hlut bæj-
arins verulega varðandi áður nefnd
atriði. Einnig var í samkomulaginu
gert ráð fyrir að báðir aðilar mundu
vinna að uppbyggingu svæðisins af
öllum rnætti."
Gunnar sagði að í hinu nýja sam-
komulagi felist, að Kópavogsbær fái
lóð undir félagslegar íbúðir frá
Ftjálsu framtaki og að tryggt sé að
bærinn geti úthlutað fjölbýlishúsa-
lóðum og raðhúsalóðum strax eftir
næstu áramót. „Og hefur núverandi
meirihluti eftir aðeins sex mánaða
setu á valdastóli náð að hafa nægi-
legt lóðaframboð í bæjarfélaginu, en
slíkt var ekki raunin þegar hann tók
við.“
Gunnar sagðist vænta hins besta
af samstarfi við Fijálst framtak um
uppbyggingu í Kópavogsdal í fram-
haldi af þessu nýja samkomulagi.
„Þarna mun rísa einn stærsti versl-
unarkjarni höfuðborgarsvæðisins í
einni veðursælustu og miðlægustu
byggð svæðisins og þarna verður
einnig HM-húsið.
Á þessu svæði byggja einnig
BYKO, Ikea og Hagkaup og eru
byggingarnar enn á hönnunarstigi,
en framkvæmdir hefjast að líkindum
á næsta ári. Næsta verk ráðgjafar-
nefndarinnar verður að ræða við
þessa aðila, og einnig Toyota, sem
byggir iíka í Kópavogsdal," sagði
Gunnar Birgisson.
Varaforseti Skáksamband íslands:
Vill að ísland gangi úr Skák-
sambandi Norðurlanda
Einar S. Einarsson segir af sér öllum störfum fyrir norræna skáksambandið
ÁSKELL Örn Kárason, varaforseti Skáksambands íslands, hefur
tilkynnt stjórn Norræna skáksambandsins að hann muni leggja tii
að Islendingar segi sig úr Skáksambandi Norðurlanda. Málið verður
tekið fyrir í stjórn Skáksambands íslands upp úr áramótum og eru
allar líkur taldar á að þar verði úrsögn úr norræna skáksamband-
inu formlega samþykkt. Þá hefur Einar. S. Einarsson, fyrrv. formað-
ur Skáksambandsins, sent stjórn Skáksambands Islands bréf þar sem
hann segir af sér öllum störfum á vegum norræna skáksambands-
ins. Hann hefur m.a. verið ritari sambandsins um árabil. Ástæður
þessa eru megn óánægja með hlut íslenskra skákmanna í norrænu
skáksamstarfi, andað hafi köldu í garð íslendinga og þeir ekki feng-
ið forystuembætti sem sóst hafi verið eftir. Þá sé Iítið gagn í aðild
að sambandinu, að sögn Áskels.
Áskell sagði að á seinustu árum
hefði verið vaxandi óánægja með
samskiptin við Norræna skáksam-
bandið. Á þingi sambandsins í
Finnlandi árið 1989 bauð Einar
S. Einarsson sig fram í embætti
svæðisforseta Norðurlandanna
gagnvart Alþjóða skáksamband-
inu. „Einar hafði unnið mikið starf
innan sambandsins og naut mikils
stuðnings. Forseti sænska skák-
sambandsins gerði úrslitakröfu um
að hann fengi þetta embætti þar
sem Svíar ættu að sjá um næsta
skákþing Norðurlandanna og gaf
í skyn að Svíar myndu segja sig
úr sambandinu ef þetta gengi ekki
eftir. Það varð úr að Svíinn tók
við embættinu eftir eitt ár en nota
átti tímann til að leysa úr þessari
Onnu llltl lUtllilIUl
deilu. Að okkar mati hefur ekkert
gerst annað en að reynt hefur ver-
ið að grafa undan Einari með
ýmsu móti,“ sagði Áskell.
Hann sagði að á þingi Skáksam-
bands Norðurlandanna í Novi Sat
í Júgóslavíu á dögunum hafi verið
lögð fram tillaga um að forseti
sænska skáksambandsins, forseti
danska sambandsins og Einar
skiptu með sér þremur embættum
og að sænski forsetinn fengi for-
setaembætti sambandsins.
„Þetta hafði verið undirbúið á
bak við tjöldin og allir aðrir en við
íslendingarnir fengnir til.að sam-
þykkja þetta. Það var svo keyrt í
gegn og var dropinn sem fyllti
mælinn hjá okkur," sagði Áskell.
Áskell krafðist þess þá að hald-
inn yrði fundur með norrænu full-
trúunum þar sem hann rakti
óánægju íslendinga. „Ég sagði að
ekki væri tekið tillit til okkar og
við meðhöndlaðir eins og smápeð
út í hafi þrátt fyrir að við teljum
okkur þó vera sterkustu skákþjóð
Norðurlandanna. Ég tilkynnti þeim
að við teldum okkur hafa lítið gagn
af þessu samstarfi og að ég myndi
leggja til að Skáksamband íslands
gengi úr Skáksambandi Norður-
landanna,“ sagði hann.
„Skáksamband Norðurlandanna
gerir ekki neitt fyrir skák og er
orðið steinrunnið samband. Okkur
hefur helst verið akkur í unglinga-
skákmótum á vegum þess og það
er auðvitað eftirsjá í þeim en að-
stæður á þessum mótum hafa ver-
ið misjafnar og keyrði um þverbak
á í Danmörku í sumar þar sem
aðstæður voru algerlega óviðun-
andi. Þetta hefur bæst ofaná annað
í þessu samstarfi og ég tel að við
eigum að ganga út úr samband-
inu,“ sagði Áskell.
Umboðsmaður Alþingis:
prófunarstofnun annist eft-
irlit með innflutningi símtækja
UMBOÐSMAÐUR Alþingis, Gaukur Jörundsson, hefur sent frá sér álit
þar sem segir að sú tilhögun að Póst- og símamálastofnunin hafi með
höndum innflutning og sölu á símtækjum og auk þess eftirlit með inn-
flutningi samkeppnisaðila sé óæskileg, og telur hann að eftirlitinu
væri betur komið í höndum óháðrar prófunarstofnunar.
Oháð
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
25
íshúsfélag Bol-
ungarvíkur hf.;
Hluthafa-
fundur um
sameiningu
fjögurra
fyrirtækja
Bolungarvík.
HLUTHAFAR í íshúsfélagi Bol-
ungarvíkur hf. koma saman til
fundar á morgun, laugardag,
þess að ræða sameiningu við
fyrirtækin Völustein hf., Baldur
hf. og sjávarútvegsdeild Einars
Guðfinnssonar hf. og taka ýmsar
lykilákvarðanir varðandi sam-
eininguna.
Hluthafafundir hinna þriggja
fyrirtækjanna hafa þegar sam-
þykkt sameininguna.
Fyrirhuguð sameining þessara
fyrirtækja er liður í hagræðingará-
taki í rekstri þeirra. Nafn hins nýja
fyrirtækis verður ákveðið á fundin-
um á morgun.
Völusteinn hf. er eigandi Heið-
rúnar ÍS, Baldur hf. er eigandi
Dagrúnar ÍS. Rekstur allra fyrir-
tækjanna þriggja, sem fyrirhugað
er að sameinist sjávarútvegsdeild
Einars Guðfinnssonar hf. hefur
verið í höndum Einars Guðfinns-
sonar hf. Þegar hefur verið ákveðið
að sameiginlegur rekstur hefjist
um áramót.
Gunnar.
Boðað til landsfundar fljótlega
eftir að Alþingi kemur saman á ný
Morgunblaðid/RAX
Þotuhreiðrið eftir Magnús Tómasson er nú risið við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Þotuhreiðrið risið við Leifsstöð
HÖGGMYND Magnúsar Tómassonar, Þotuhreiðrið, hefur nú verið
sett upp við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Er
Þotuhreiðrið annað tveggja Iistaverka, sem hlutu fyrstu verðlaun
í samkeppni um listaverk við flugstöðina, en hitt verkið, Regnbog-
inn eftir Rúrí, verður væntanlega sett upp snemma í janúar.
Magnús Tómasson sagði við
Morgunblaðið að hann væri mjög
ánægður með verkið í sinni endan-.
legu mynd og tekist hefði framúr-
skarandi til með útfærslu og upp-
setningu verksins.
Þotuhreiðrið er risastórt egg
úr ryðfríu stáli sem goggur brýst
út úr. Eggið situr á steinhrúgu
sem rís upp úr tjörn á lóð flug-
stöðvarinnar. Eggið er um 5,6
metrar að hæð og 4,2 metrar á
breidd og vegur á sjötta tonn.
Steinhrúgan er um 14 metrar í
þvermál og tjörni'n er um 1.800
fermetrar. Listaverkið allt er um
9 metrar á hæð.
Fyrirtækið Oití hf. sá um smíð-
ina á egginu en T.V. verktakar
hlóðu steinhrúguna og gengu frá
tjörninni. Að sögn Magnúsar
Tómassonar er endanlegur kostn-
aður við verkið ekki ljós, en hann
yrði þó innan við 30 milljóna króna
fjárveitingu sem veitt var til
verksins.
Stjórn Landssambands smábátaeigenda:
STJÓRN Landssambands smá-
bátaeigenda (L.S.) hefur sam-
þykkt að fljótlega eftir að Al-
þingi kemur saman á nýju ári
verði ráðherrar og þingmenn
boðaðir til landsfundar í Reykja-
vík og smábátaeigendur um land
allt hvattir til að mæta á fund-
inn. Þá beinir L.S. þeim tilmælum
til svæðisfélaga Landssambands-
ins að þau haldi almenna fundi
hvert á sinu svæði nú i jólafríinu
og boði til þeirra þingmenn við-
komandi kjördæmis, ráðamenn í
héraði og fjölmiðla, segir í frétta-
tilkynningu.
Landssamband smábátaeigenda
skorar á sjávarútvegsráðherra að
hafíst verði nú þegar handa við að
finna leiðir til lausnar þeim vanda-
málum er við blasa hjá smábátaeig-
endum, hvort heldur sem er innan
ramma þeirra laga, er nú koma til
framkvæmda, eða með breytingum
á þeim í gegnum Alþingi.
í fréttatilkynningunni segir einn-
ig, meðal annars: „Tilraunaúthlutun
sjávarútvegsráðuneytisins til smá-
bátaeigenda hefur berlega leitt í
ljós þá alvarlegu ágalla, sem L.S.
hefur lengi bent á að séu í lögum
um stjórn fiskveiða. L.S. lagði fram
bókanir og athugasemdir í ráðgjaf-
anefnd um stjórn fiskveiðistefnu
hvað eftir annað og eins var sjávar-
útvegsnefndum Alþingis gerð ítar-
Ieg grein fyrir þeim afleiðingum er
lögin kynnu að hafa. Þá skal á það
minnt að allir þingflokkar áttu sæti
í ráðgjafanefndinni, þannig að und-
arlegt verður að teljast ef þingmenn
eru nú fyrst að vakna upp við vond-
an draum.
L.S. telur þá stöðu, sem nú er
komin upp aðeins eiga sér tvær leið-
ir til lausnar. Annars vegar að
kannað verði nú þegar hvort svig-
rúm sé innan laga þeirra og reglu-
gerða er koma til framkvæmda um
næstu áramót, sem leitt gæti til
leiðréttingar á þeirri miklu skerð-
ingu, sem annars dynur á smábáta-
eigendum með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum, ekki aðeins fyrir ein-
staklinga, heldur heilu byggðarlög-
in. Sé það hins vegar ljóst að ekki
verði unnt að rétta hlut smábátaeig-
enda með þessum hætti er það af-
dráttarlaus krafa L.S. til Álþingis
að það taki til endurskoðunar og
breytinga lögin um stjórn fískveiða.
STÚDENTAR við Háskóla ís-
lands hafa undanfarna daga sent
fjölda póstkorta til Ólafs Ragn-
ars Grímssonar fjármálaráð-
herra, þar sem hvatt er til þess
að ráðherrann geri sitt til að
leysa kjaradeilu stundakennara
við HI, sem fyrirsjáanlegt er að
valdi verulegum vanda í skólan-
um á komandi vorönn. Að sögn
Sigurjóns Þ. Árnasonar, for-
manns Stúdentaráðs HÍ, hafa
1.500-2.000 stúdentar ritað fjár-
málaráðherra kort.
Texti póstkortsins er svohljóð-
andi: „Sem stúdent við Háskóla
íslands hef ég áhyggjur af því að
kennsla við skólann skuli hafa fall-
ið niður í nokkrum námskeiðum
vegna launadeilna stundakennara
við yfirvöld. Ef fram heldur sem
horfir þá mun kennsla lamast í ein-
stökum deildum eftir áramót. Deil-
urnar bitna á þeim sem sízt skyldi,
Tillögur L.S. varðandi slíkar breyt-
ingar hafa lengi legið fyrir.
Hagræðingarsjóður hefur verið
til umræðu í beinu' sambandi við
þau byggðarlög er mest byggja á
smábátaútgerð. L.S. lítur svo á að
með tilkomu slíks sjóðs felist bein
viðurkenning á skipbroti kvótakerf-
isins. Annars vegar að kvótakerfið
hafi engan veginn skilað þeim ár-
angri, sem að var stefnt og til ætl-
þ.e. nemendum Háskólans, og geta
haft alvarlegar afleiðingar þar sem
fyrirsjáanlegt er að mörgum nem-
endum mun seinka í námi eða ná
ekki að útskrifast. Það er slæmt
að kennsla við æðstu menntastofn-
un landsins, Háskóla íslands, skuli
Heimssambandið tekur undir öll
kæruatriði í kæru BHMR til stofn-
unarinnar. Heimssambandið leggur
þó sérstaka áherslu á einhliða riftun
löglegs kjarasamnings með beitingu
bráðabirgðalagavalds. Þennan
ast og hins vegar að innri uppbygg-
ing þess kvótakerfis, sem kemur til
framkvæmda um áramót, sé ekki
sterkara en svo að sérstaka sjúkra-
deild þurfí til. L.S. lítur svo á að
sjálfsbjargarviðleitni og stolti íbúa
byggðarlaga, sem alfarið byggja
afkomu sína á smábátaútgerð, sé
gróflega misboðið með því að bjói^f
slíka aðstoð, sem sjóður af þessu
tagi óhjákvæmilega felur í sér.“
vera í hættu. Þvi vil ég hvetja þig,
Ólafur, til að leggja þitt af mörkum
til að leysa málið áður en frekari
óþægindi hljótast af fyrir stúdenta
þannig að kennsla verði með eðli-
legu móti eftir áramót."
gerning telur Heimssambandið alls
ekki standast ákvæði 98. sam-
þykktar Alþjóðavinnumálastofnun-
arinnar um fijálsan samningsrétt,
segir í frétt frá BHMR.
Kjaradeila stundakennara við HÍ:
Um 2.000 stúdentar rita
fjármálaráðherra kort
Heimssamband kennara
kærir ríkisstjórnina
Heimssamband kennarafélaga, „World Confederation of Organisati-
ons of the Teaching Profession", sendi hinn 14. desember sl. kærU
gegn ríkisstjórn Islands til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, f.h.
Hins íslenska kennarafélags.