Morgunblaðið - 28.12.1990, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
Flutt inn í fyrstu
Búsetaíbúðirnar
FLUTT var inn í fyrstu íbúðirnar sem Búseti á Akureyri hefur byggt
fyrir félagsmenn sína á Þorláksmessu. Ibúðirnar eru í tíu íbúða fjöl-
býlishúsi við Múlasíðu 9, en félagið keypti fjórar íbúðir í húsinu,
eina fjögurra herbergja og þrjá þriggja herbergja.
Rétt fyrir jól var flutt inn í fyrstu
tvær íbúðirnar, en í hinar tvær verð-
ur fiutt um miðjan janúar.
Húsið er hannað af Teiknistofu
HÁS á Akureyri, en framkvæmdir
annaðist Trésmiðjan Fjölnir hf.
Félagið er nú með í smíðum tíu
íbúðir í Giljahverfi, en þær eru allar
í raðhúsum sem byggingafyrirtækið
SS-byggir sér um byggingu á.
Fyrstu sex íbúðirnar þar eru u.þ.b.
fokheldar og ljórar til viðbótar
verða fokheldar innan tíðar. Húsin
eru hönnuð af Teiknistofu HÁS og
er áætlað að þær verði afhentar
fullbúnar 1. nóvember á næsta ári.
íbúðunum hefur öllum verið úthlut-
að til félagsmanna.
Búseti á nú inni hjá Húsnæðis-
stofnun lánsumsókn þar sem félag-
ið sækir um lán til byggingar þijátíu
íbúða á árinu 1991. Sá fjöldi er í
samræmi við þá áætluðu þörf sem
húsnæðiskannanir félagsins endur-
spegia, að sögn Heimis Ingimars-
sonar formanns Búseta.
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Blóm oggjafavörur
Eigendaskipti hafa orðið á versluninni Blóm og gjafavörur í Ólafsfirði.
Þórhildur Þorsteinsdóttir sem rekið hefur verslunina er nú að flytja
frá Ólafsfirði og hefur selt Sigríði Guðmundsdóttur verslunina og er
hún tekin við rekstrinum. Að sögn Sigríðar munu ekki verða miklar
breytingar og áherslan verður áfrám á blóm og hverskyns gjafavörur.
. SB
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Flutt hefur verið inn í fyrstu íbúðirnar sem Búseti á Akureyri hefur byggt fyrir félagsmenn sína. Á
myndinni eru þau Sæunn Jóhannsdóttir með Elfu Rán, Rúnar Steingrímsson, Heimir Ingimarsson formað-
ur Búseta á Ákureyri og Magnús Guðjónsson framkvæmdasljóri Fjölnis hf.
Utgerðarfélag Akureyringa:
Aflamarksskipin á
veiðum milli hátíða
FJÖGUR skip Útgerðarfélags
Akureyringa héldu til veiða um
miðnætti annan dag jóla, en þess
er nú freistað að ná hluta af
þeim kvóta sem félagið á óveidd-
an. Ljóst er þó að ekki næst að
veiða upp í úthiutaðar veiðiheim-
ildir á þessu ári og félagið mun
eiga kvóta um áramót sem ekki
nýtist því þar sem nú má ekki
færa hann á milli ára.
Vilhelm Þoreteinsson fram-
kvæmdastjóri ÚA sagði iið afla-
marksskipin hefðu farið á veiðar,
þ.e. Sléttbakur, Harðbakur, Kald-
bakur og Svalbákur, en þau skip
sem eru á sóknarmarki, Hrímbakur
og Sólbakarnir tveir væru í landi.
„Við eigum eftir þó nokkuð af
okkar kvóta og freistum þess að
ná að minnsta kosti hluta hans
áður en árið er allt,“ sagði Vilhelm.
Sólbakur EA- 307, sem félagið
keypti frá Keflavík í sumar á eftir
660 tonn af karfa og sagði Vilhelm
að menn hefðu vitað er skipið var
keypt að ekki yrði unnt að veiða
allan karfakvóta þess.
Unnið er í frystihúsi ÚA á milli
jóla og nýárs og vinna hefst aftur
2. janúar. Skipin verða að vera
komin inn fyrir kl. 16 á gamlársdag
samkvæmt samningum við sjómenn
og bjóst Vilhelm við að þau yrðu
úti fram að þeim tíma nema veður
gerðust válynd.
Tónleikar í Sjallanum
I KVÖLD, föstudagskvöld, efnir
Hringleikahús Akureyrar til
hljómleika í Sjallanum.
Á hljómleikunum koma fram
hljómsveitirnar, Skurk, Exit, Dust,
Hrafnar, Svörtu kaggarnir, Hljóð-
færaleikararnir og Norðanpiltar.
Búist er við að dagskráin hefjist
upp úr kl. 22.
(Fréttatilkynning)
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar
og tengdamóður,
GUNIMLAUGAR KARLOTTU EGGERTSDÓTTUR,
er lést 6. desember sl.
Snorri Karlsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Hörður Karlsson, Maria Karlsson,
Rósa B. Karlsdóttír, Hjörtur Hjartarson,
Sigurlaug R. Karlsdóttir, Páll B. Helgason
ogfjölskyldur.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
frá Stóra-Laugardal.
Sigurrós Jónsdóttir, Eyjólfur Magnússon,
Erna Jónsdóttir, Theódór Jónsson,
Gerða Jónsdóttir, Sveinn B. Hálfdánarson,
Leifur Jónsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför litla drengsins okkar og bróður,
JÓNS VÍDALÍN SIGURHANSSONAR,
Laugarásvegi 24.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningasjóð Land-
spítalans.
Erla Bára Jónsdóttir, Sigurhans Hlynsson
og systkini.
Minning:
Ólöf Jónsdóttir
Fædd 10. júlí 1937
Dáin 17. desember 1990
Með sorg í hjarta kveðjum við
yndislega konu sem við misstum
alltof fljótt. Konu sem var stór í
hugsun, stór í verki og með stórt
hjarta.
En nótt, þú sem svæfir sorgir og fögnuð
dagsins
og sumarsins dýrðar í fölnuðu laufi geyrnir.
Ég veit, að augu þín lykja um Ijósið sem
myrkrið.
'því leita ég horfinna geisla í skuggum
þínum.
Tak þú mitt angur og vinn úr því söng, er
sefí
söknuð alls þess, er var og kemur ei framar.
(Fagra veröld, Tómas Guðmundsson)
Elsku Baldur og fjölskylda, megi
Guð gefa ykkur styrk í ykkar rniklu
sorg.
Elfa og Ólöf.
Við kveðjum elsku konuna mína,
móður okkar, ömmu ogtengdamóð-
ur, Ólöfu Jónsdóttur, sem gaf okkur
svo mikið, að seint verður þakkað,
þá hjartahlýju sem hún átti og bros-
ið sem við þurftum svo oft á að
halda og hlýju höndina sem hún
strauk okkur með um kinn.
Látum skáldin segja tilfinningar
okkar á þessari stundu:
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla, *
miklu fegri en sól
unun og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(H. Pétursson)
Gleðin er léttfleyg og lánið er valt.
Lífið er spurning, sem enginn má svara.
Vinirnir koma, kynnast og fara.
Kvaðning til brottfarar lífið er allt.
(F.G.)
Hinsta kveðja frá eigin-
manni, börnum, barna-
börnum og tengdabörnum.