Morgunblaðið - 28.12.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990
Friðrik Brynleifs-
son - Minning
Fæddur 15. maí 1958
Dáinn 22. desember 1990
Þegar jólaundirbúningi var víðast
hvar að ljúka lauk erfíðu sjúkdóms-
stríði Friðriks Brynleifssonar, mágs
Vníns. Honum varð að þeirri ósk sinni
að baráttunni lyki áður en hann yrði
með öllu ósjálfbjarga. Hann dvaldi
á heimili sínu til hinstu stundar og
naut þar frábærrar umönnunar Ólaf-
ar, eiginkonu sinnar. Sjálfur bar
hann sig mun betur en öll efni stóðu
til og lagði sig fram um að gera
vandamönnum sínum samvistirnar
eins léttar og frekast var unnt.
Friðrik fæddist á Kirkjubæjar-
klaustri 15. maí 1958, sonur hjón-
anna Brynleifs H. Steingrímssonar
læknis og Þorbjargar Sigríðar Frið-
riksdóttur. Hann var aðeins nokk-
urra mánaða gamall þegar fjölskyld-
an fluttist til Svíþjóðar þar sem hann
óx úr grasi. í árslok 1968 fluttist
fjölskyldan á nýjan leik til íslands
er Brynleifur tók við stöðu héraðs-
læknis á Selfossi. Friðrik lauk stúd-
entsprófi frá öldungadeild MH 1983
og var langt kominn með nám í lyfja-
fræði við Háskóla íslands er ytri
aðstæður urðu til þess að hann hvarf
frá námi. Var hann við verslunar-
störf síðustu ár ævi sinnar. Árið
1980 kvæntist hann Ólöfu Halldórs-
dóttur og gekk syni hennar, Halld-
óri Guðmundssyni, í föður stað. Var
samband þeirra sérstaklega náið og
ástúðlegt.
Uppvaxtaráranna í Svíþjóð minnt-
ist Friðrik jafnan með mikilli
ánægju, ogmyndasafn fjölskyldunn-
ar staðfestir þá minningu hans, sýn-
ir hann geislandi af gleði, sólbrúnan
glókoll í áhyggjulausum leik í Hults-
fred í Smálöndum, þannig að manni
verður hugsað til Emils í Kattholti
og annarra persóna í ævintýrum
Astridar Lindgrens, sem einmitt
gerðust á svipuðum slóðum. Það var
í fullu samræmi við þessar ánægju-
légu endurminningar að Friðrik
skyldi leggja til að það yrði hluti af
jólahaldinu í ár að systkinin kæmu
saman til að skoða „slides" myndir
frá Svíþjóðarárunum. Síðustu dag-
ana fyrir jól var þó orðið ljóst að
af því yrði varla því heilsu hans hrak-
aði þá mjög ört.
Fyrstu kynni mín af Friðriki
tengdust því að ég var tekinn að
venja komur mínar til Guðrúnar,
elstu systur hans, en þau héldu þá
heimili saman. Móðir þeirra var ný-
látin, og þrátt fyrir að Friðrik bæri
aldrei tilfinningar sínar á torg leyndi
sér ekki hve mjög hann saknaði
hennar. Friðrik var á viðkvæmum
táningsaldri er hann upplifði erfitt
sjúkdómsstríð móður sinnar, sem var
um svo margt líkt því stríði sem
hann átti eftir að heyja sjáifur.
Minntist hann hennar enda oft í
veikindum sínum og hafði á orði að
hann væri nú að reyna það sem hún
hafði upplifað áður og fannst það
táknrænt að hann skyldi fá sjúk-
dómsúrskurðinn á afmælisdegi
hennar.
Friðrik var góðum gáfum gædd-
ur. En hann var dulur og hafði sig
yfirleitt ekki í frammi. í samræðum
í þröngum hópi vina eða innan ijöl-
skyldunnar leyndi sér hins vegar
ekki að hann var mjög vel að sér
um ýmsa hluti. Hann las mikið og
hann gerði það vegna innri þarfar á
að tileinka sér fróðleik og að glíma
við gátur tilverunnar en ekki vegna
kvaðar skólaskyldunnar. Mér er
sérstaklega minnisstætt að í eitt
fyrsta skiptið er við sátum og áttum
tal saman, að hann leiddi talið að
trúmálum, þar sem ég, guðfræði-
neminn, átti að vera á heimavelli.
Kom hann mér þá á óvart með því
að vitna í ýmis rit um þau efni og
að hafa mótaðar skoðanir á mörgum
gátum trúarinnar. Gat hann ekki
leynt undrun sinni er hann varð þess
var að ég hafði ekki lesið ritið „Sam-
ræður um trúarbrögðin", þó það
væri fjarri honum að reyna að gera
lítið úr þeim sem hann ræddi við eða
hreykja sjálfum sér. Eftir því sem
ég kynntist Friðriki betur fannst
mér hann vera efni í heimspeking.
Las hann enda mikið í heimspeki
og um skyld efni, t.d. bækur Páls
Skúlasonar prófessors. Þótti honum
sérstaklega vænt um að fá nýút-
komna bók Páls, „Siðfræði", senda
frá höfundi og áritaða af honum.
Jól í návist dauðans eru frábrugð-
in hinni fagnaðaríku hátíð, sem við
höldum yfirleitt á jólum. Það hefur
íjölskylda Friðriks reynt um þessi
jól. En helgi jólanna er ekki minni
í návist dauðans, því boðskapur jól-
anna er einmitt um Ijósið sem lýsir
í myrkrinu. Megi sá boðskapur reyn-
ast Ólöfu og Halldóri, Brynleifí og
systkinum Friðriks svo og öðrum
ástvinum hans huggun harmi gegn.
Gunnlaugnr A. Jónsson
Þegar Friðrik Brynleifsson fékk
að vita í sumar, þá nýlega orðinn
32 ára, að hann væri með banvæn-
an sjúkdóm, hófst hjá honum þrot-
laus barátta fyrir því sem flestum
finnst svo sjálfsagt; að fá að lifa.
Hann gladdist hveijum degT sem
Þórhildur Hjaltalín
Akureyri — Minning
Fædd 17. desember 1904
Dáin 17. desember 1990
Þórhildur Hjaltalín fékk hægt
andlát á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri mánudaginn 17. desember
sl. Þann sama dag varð hún 86 ára
gömul. Hún hafði verið lögð inn til
rannsóknar um mojguninn svo ekki
varð sjúkrahúsdvöl hennar löng.
Hún átti því láni að fagna að búa
alla ævi við ágæta heilsu og þrátt
fyrir háan aldur var hún sjálfbjarga
og skýr í hugsun fram til hinstu
stundar.
Fullu nafni hét hún Sigurbjörg
Þórhildur en notaði síðara nafnið.
Meðal vina og ættingja var húri
kölluð Hilda. Hún fæddist á Akur-
eyri 17. desember 1904, yngst sjö
bama þeirra Þóru Þórarinsdóttur
frá Veigastöðum (1863—1941) og
Bjarna Hjaltalín fiskimatsmanns á-
Akureyri (1867-1943). Elstur
systkinanna var Hans Friðrik (f.
1895) en hin voru: Ólafía Anna,
Steindór Jónas, Gottfreð, Jörgen
Eldjám og Jon. Þau eru öll látin.
Hilda ólst upp í foreldrahúsum á
Akureyri, fyrst í Norðurgötu 6 en
fluttist um fermingu í húsið nr, 6
við Grundargötu. Þar bjó hún þar
til fyrir nokkrum vikum að draumur
hennar síðustu árin um að eignast
sjálf litla íbúð rættist og hún flutt-
ist að Víðilundi 29. Þar eru íbúðir
sérhannaðar fyrir aldrað fólk og þar
verður þjónustumiðstöð til húsa. I
Grundargötunni bjó Hilda lengst
af með Friðriki bróður sínum og
Svövu konu hans og fjölskyldu
þeirra. Friðrik lést 1963 og Svava
vorið 1983 og uppfrá því bjó Hilda
ein í húsinu. Hún var alla tíð ein-
hleyp og barnlaus.
Að loknu námi í Barnaskóla Ak-
ureyrar fór Hilda til starfa utan
heimilisins. Hún fékk starf sem
straukona í þvottahúsi og var lengst
af í þvottahúsinu Mjöll. Þessu
hversdagslega en nauðsynlega
starfi sinnti hún af alúð og skyldu-
rækni. En hugur hennar dvaldi þó
ekki aðeins við hversdagslega hluti.
Bjarni faðir hennar var einn helstj
frömuður bindindishreyfingarinnar
á Akureyri og frá honum erfði hún
brennandi áhuga á bindindismálum.
Hún var ekki nema 9 ára gömul
þegar hún gekk til liðs við IOGT á
Akureyri. Hún starfaði síðan af lífi
og sál fyrir hreyfingu templara allt
til dauðadags. Á þeim vettvangi
voru henni falin fjölmörg trúnaðar-
störf, bæði í stúkunni Ísafold-Fjall-
konan nr. 1 á Akureyri og á lands-
vísu fyrir Stórstúku íslands. Hún
var kjörin heiðursfélagi í stúku sinni
og Stórstúkunni. Henni þótti mjög
vænt um þá viðurkenningu sem í
því kjöri fólst.
Hilda tók einnig virkan þátt í
kirkjulegu starfi. Hún var einn
st'ofnfélaga Kvenfélags Akureyrar-
kirkju og starfaði um árabil í
Kristniboðsfélagi kvenna. Einnig lét
hún til sín taka í starfi Kvennadeild-
ar Slysavarnafélagsins í bænum.
Hún hafði fastmótaðar skoðanir á
þjóðmálum og var frá upphafi fé-
lagi í Sjálfstæðiskvennafélaginu
Vörn.
Eg kynntist Hildu fyrir átta
árurn, þegar ég tengdist fjölskyldu
hennar. Hún kom mér ávallt fyrir
sjónir sem virðuleg í fasi, greind,
hæglát, trygg og ábyggileg. Eg var
svo heppinn að Hilda hafði sérstak-
ar mætur á Vöku konu minni, son-
ardóttur Friðriks bróður hennar, og
lét mig og börnin njóta þess. Sam-
verústundir okkar í Grundargötunni
voru allar ánægjulegar og tiihlökk-
unarefni. Við höfðum um margt að
skrafa, því Hilda var fróð og áhuga-
söm um menn og málefni. Kom
mér það oft á óvart hve vel hún
fylgdist með málefnum h'ðandi
stundar.
Ég fann að hún var stolt af fé-
lagsstörfum sínum. Minnisstæð er
mér heimsókn til hennar í Frið-
bjarnarhús, hið merkilega minja-
safn templara á Akureyri, fyrir
nokkrum árum, en þar starfaði hún
öðru hverju sem gæslukona. Hún
leiddi okkur Vöku um húsið, þar
sem hver hlutur hafði merkingu og
tengdist minningum hennar. Það
fór ekki leynt að hér var hún á
heimavelli, hér var líf hennar og
yndi.
Hilda var vinamörg ög oft gest-
kvæmt á heimili hennar. Síðasta
áratuginn eða svo var nánast sam-
band hennar við tengdaforeldra
mína, Rafn Hjaltalín og Sigrúnu
Ágústsdóttur. Þau önnuðust mál
hennar og á heimili þeirra í Vana-
byggðinni var hún tíður aufúsu-
gestur.
Guð blessi minningu hennar.
Guðmundur Magnússon
Þórhildur andaðist í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri mánudag-
inn 17. desember sl., en sá dagur
var einmitt 86. afmælisdagur henn-
ar. Hún fæddist á Akureyri og ól
þar allan sinn aldur.
Foreldrar hennar voru Bjarni
Hjaltalín, ættaður úr Svarfaðardal,
einn af frumheijum Góðtemplara-
reglunnar á íslandi, sem vann ötul-
lega að bindindismálum, allt til
dauðadags, og Þóra Þórarinsdóttir
frá Veigastöðum, Svalbarðsstrand-
arhreppi, mikil sóma- og gæðakona.
Þórhildur átti 6 systkini, Friðrik,
Olafíu, Steindór, Jón, Jörgen og
Gottfreð, sem öll eru látin.
Þórhildur gekk snemma í Góð-
templararegluna eða árið 1913 og
starfaði alla ævi fyrir Regluna. Það
var einmitt við inngöngu mína, þá
14 ára að aldri, í stúkuna ísafold
Fjallkonan nr. 1, sem okkar kynni
hófust. Reglan á Akureyri átti þá
húsið Skjaldborg, og ég gleymi því
aldrei, þegar ég kom þangað í fyrsta
sinn. Það voru tvær konur, sem
leiddu mig inn í stúkuna. Þær voru
á peysufötum, mjög myndarlegar.
Ég þekkti aðra konuna fyrir, Klöru
Nielsen, æskuvinkonu móður
minnar, en hin var Þórhildur Hjalt-
alín, sem ég að vísu þekkti í sjón,
Reykjavík:
Neskjör, Ægissíðu 123
Söluturninn, Hringbraut 119b
Bókaversl. isafoldar,
Austurstr. 10
Gleraugnadeildin, Austurstr. 20
Steinar, Austurstræti
Steinar, Laugavegi
Sportval, Laugavegi 118
Steinar, Rauðarárstíg 16
.......... i 178
Álnabúðin, Suðurveri
Frístund, Kringlan Kringlunni
Hugborg bókaversl., Grímsbæ
Lukku Láki, Langholtsvegi 126
Steinar, Mjóddinni
Innrömmun og hannyrðir,
Leirubakka 36
Söluturninn, Seljabraut 52
Veisluhöllin, Eddufelii 6
Straumnes, Vesturberg 76
Blómabúð Michaelsen,
Hólagarði,
Skalli, Hraunbæ
Bitahöllin, Stórhöfða
Rökrás, Bíldshöfða 18
Seltjarnarnes:
Hugsel, Eiðistorgi
Kópavogur:
Tónborg, Hamraborg 7
Söluturninn, Engihjalla
Garðabær:
Sælgætis og Videóhöllin
Garðatorgi
Spesían, Iðnbúð 4
Hafnarfjörður:
Skalli, Reykjavíkurvegi
Söluturninn, Miðvangi
Steinar, Strandgötu Versl. Þ. Þórðarsonar Hofsós:
Ishnakkar, Bæjarhrauni 12 Söluskálinn, Sleitustöðum
Mosfellssveit: Dalvík:
Álnabúöin, Byggðarholti 53 Versl. Dröfn, Hafnarbraut 24
Akranes: Akureyri:
Bókaskemman, Radíó-naust, Glerárgötu 26
Stekkjarholti 8-10 Húsavík:
Borgarnes: Shell-stöðin
Isbjörninn, Borgarbraut 1 Raufarhöfn:
Hellissandur: Esso-skálinn
Virkið, Hafnargötu 11 Egilsstaðir: 'Versl. Eyco, Tjarnarbraut 19
Ólafsvík:
Grillskálinn, ÓLafsbraut Neskaupstaður:
Stykkishólmur: Nesbær, Melagötu 2b
Versl. Húsið, Aðalgötu 22 Höfn í Hornafirði:
Búðardalur: Hvammur, Ránarslóð 2
Söluskáli Olís Hvolsvöllur:
Bíldudalur: Hlíðarendi, Austurvegi 1
Veitingarst. Vegamót, Hella:
Tjarnarbr. Bolungarvík: Videoleigan Flúðir:
Versl. B. Eiríkssonar,
Hafnargötu 1 Feröamiöstöðin
Hvammstangi: Selfoss:
Vöruhúsið Versl. ösp, Eyarvegi 1
Blönduós: Eyrarbakki:
Esso-skálinn, Ásinn, Eyrargötu 49
Norðurlandsvegi Þorlákshöfn:
Skagaströnd: Videoleiga Söluskálans Veitingarst., Duggan
Hveragerði:
Shell-skálinn, Austurmörk 22
Grindavík:
Braut sf., Víkurbraut 31
Keflavík:
Frístund, Hólmqaröi
Frístund, Hringbraut.
Garður:
Ársól
Njarðvík:
Frístund, Holtsgötu
Vogar, Vatns-
leysuströnd:
Söluskáli Esso
Senduy1
í póstkmþ*
Þú færð hana
ÓKEYPIS
Gæðafilma frá Konica fylgir hverri
framkallaðri filmu.
GXd}^riSni